Morgunblaðið - 03.05.1991, Síða 28
28
MORGUNBLA'ÐIÐ 'FÖ3TUÐAGUR/ 3/'MAf> 199-1
1
Lagabreytingar vegna
gruns um stríðsglæpi
Bretland:
St Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FRUMVARP þess efnis að unnt verði að draga meinta stríðsglæpa-
menn í Bretlandi fyrir dómstóla verður að lögum í þessari viku.
Grípa þurfti til þingskapalaga í fyrsta sinn í 40 ár til að frumvarp-
ið yrði að lögum.
Fyrir nokkrum árum skipaði
ríkisstjóm Ihaldsflokksins nefnd
til að rannsaka grunsemdir um,
að stríðsglæpamenn hefðu komist
til Bretlands eftir seinni heims-
styijöldina á fölskum forsendum.
Niðurstaða nefndarinnar var, að
hugsanlega væru fjórir menn enn
á lífi, sem réttlætanlegt væri að
draga fyrir dómstóla vegna stríðs-
glæpa.
En samkvæmt breskum lögum
var það ekki hægt af því að glæp-
irnir voru framdir í öðru landi utan
breskrar lögsögu. Það þurfti því
breytingar á breskum lögum til
að stríðsglæparéttarhöld gætu
farið fram.
Frumvarpið um breytingamar
var samþykkt i neðri deild breska
þingsins á síðasta ári, en fellt í
lávarðadeildinni. Það var síðan
samþykkt aftur í neðri deildinni í
lok síðasta árs með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða. Lávarðadeild-
in ákvað í fyrradag að fella fram-
varpið aftur. í hvorugri deildinni
var flokksaga beitt við atkvæða-
greiðslumar.
Þegar deildimar greinir á verða
stjórnvöld að ákveða, hvort þau
vilja grípa til þingskapalaga frá
1949. Skv. þeim er þjóðhöfðingj-
anum heimilt að samþykkja lög,
sem neðri deildin hefur samþykkt
tvisvar, jafnvel þótt lávarðadeildin
hafí fellt þau. Frekari umræða í
neðri deildinni er ekki nauðsynleg.
Stjóm Johns Majors ákvað þegar
í fyrradag að senda frumvarpið til
drottningar. Það verður að líkind-
um að lögum í þessari viku.
Skv. þingskapalögum frá 1949
hefur lávarðadeildin einungis
frestunarvald en ekki stöðvunar-
vald. Stjóm Verkamannaflokks-
ins, sem þá sat, beitti sér fyrir
þessum lögum vegna þess, að lá-
varðadeildin hafði fellt framvarp
stjómarinnar um þjóðnýtingu á
stáliðnaðinum.
Lávarðamir vora mótfallnir
framvarpinu nú aðallega á tveimur
forsendum. Þeir töldu afturvirkni
laganna ósamrýmanlega góðum
breskum réttarvenjum. Hins vegar
töldu þeir ekki veijanlegt, að setja
afturvirk lög, sem beinlínis væru
til þess sett að draga tiltekna ein-
staklinga fyrir dóm. Sömuleiðis
væri nánast útilokað að sakfella
einhvem skv. þessum lögum vegna
þess, að langt væri um liðið frá
því glæpimir vora framdir.
Talsmenn framvarpsins segja
hins vegar að glæpimir, sem hér
um ræðir, séu svo hroðalegir, að
enginn granur megi vera um, að
í Bretlandi séu stríðsglæpamenn,
sem njóti verndar breskra laga.
Þeir breskir þegnar, sem
granaðir eru um stríðsglæpi, eru
frá Eystrasaltsríkjunum og eru
taldir bera ábyrgð á fjöldamorðum
á Rússum en ekki á gyðingum.
Sérstakur hópur rannsóknar-
lögreglumanna mun hefja rann-
sókn á gransemdum um stríðs-
glæpi þegar frumvarpið verður að
lögum. Það er ekki ljóst, hvort
nokkur verður dreginn fyrir dóm
á grandvelli þessara laga. Vitna-
leiðslur verða miklum erfiðleikum
háðar, enda næstum 50 ár frá því
glæpimir vora framdir.
Reuter
Ófriðlegur 1. maí
1. maí, baráttudagur verkalýðsins, var haldinn hátíðlegur víða um
heim og kom sums staðar til nokkurra átaka, einkum þar sem fátækt
og misrétti haldast í hendur. Á Vesturlöndum og í öðram iðnríkjum
bar þó lítið til nema í Berlín þar sem um 1.000 stjómleysingjar minnt-
ust dagsins með bensínsprengjukasti. Á myndinni er einn þeirra að
munda einhvers konar gasbyssu en nærri 100 manns voru handteknir
fyrir að hafa vopn undir höndum eða líkamsárásir.
400 ástæður fyrir IBM AS/400
opna ótal leiðir við þjálfun
starfsmanna.
FYRST OG FREMST
SKAFTAHLlÐ 24 REYKJAVÍK SÍM! 697700
Reuter
Kista með líkamsleifum Mindszentys kardínála borin út úr kirkj-
unni i austurríska bænum Mariazell í gær.
Jarðneskar leifar
Mindszentys kvadd-
ar í Austurríki
Mariazell, Vín. Reuter.
LÍKAMSLEIFAR ungverska kardínálans Joszefs Mindszentys
voru fluttar frá kirkjunni í austurríska bænum Mariazell í gær
og var baráttu kardínálans gegn kommúnistum minnst með mik-
illi viðhöfn af því tilefni. Forseti Austurríkis, Kurt Waldheim,
sendimaður Jóhannesar Páls II páfa og ungversku kirkjunnar
auk fulltrúa Habsborgaraættarinnar sem lengi réð yfir löndunum
tveim, voru viðstaddir. Gröf Mindszentys hefur verið verið heim-
sótt af fjölda kaþólikka frá Austur-Evrópu frá því hann lést 1975.
Ætlunin er að jarðsetja Mindszenty á ný með viðhöfn í ung-
verska bænum Esztergom.
Kommúnistar fangelsuðu
Mindszenty og varð hann að sæta
pyntingum í vistinni. Hann var
látinn laus er uppreisn var gerð
1956 en leitaði síðan hælis í sendi-
ráði Bandaríkjanna í Búdapest er
Sovétmenn brutu uppreisnina á
bak aftur. Þar var hann kyrrsett-
ur næstu sextán árin en fékk loks
að fara úr landi 1972. Ræðumenn
hylltu Mindszenty fyrir staðfestu
hans en kardínálinn var áratugum
saman lifandi tákn um andstöð-
una við stjómvöld kommúnista og
von um breytingar. „Þessi von
varð að lokum svo mikið afl að
gaddavírinn var rifinn niður, land-
amærastöðvar opnaðar og múrar
felldir," sagði Johann Weber,
biskup í Austurríki.
Austurrísk lögregla íjarlægði á
miðvikudag aldraðan prest sem
hafði hlekkjað sig við grafreit
Mindszentys. Presturinn, Tibor
Danmörk:
Meszaros, er 74 ára gamall og
var síðasti einkaritari kardínál-
ans. Hann vildi mótmæla því að
bein kardínálans yrðu flutt heim
til Ungveijalands þótt enn séu
sovéskir hermenn í landinu. Mes-
zaros fullyrðir að Mindszenty hafí
á dánarbeðnum beðið um að jarð-
neskar leifar sínar yrðu ekki flutt-
ar til Ungveijalands fyrr en allir
Sovéthermenn væru famir. Þeir
sem standa fyrir flutningi bein-
anna segja að kardínálinn hafi í
erfðaskrá sinni aðeins beðið um
að beinin yrðu send heim þegar
kommúnistastjórnin væri fallin.
„Frá lagalegu sjónarmiði er erfða-
skráin það eina sem gildir," sagði
Attila Mikloshazy biskup á blaða-
mannafundi. Samkvæmt samn-
ingum ungverskra og sovéskra
stjórnvalda hverfa síðustu so-
vésku hermennirnir frá Ungveij-
alandi í júní.
„Réttarhöldum
aldarinnar“ lokið
Kaupmannahöfn. Reuter.
SJÖ Danir voru í gær dæmdir í
allt að tíu ára fangelsi fyrir rán
og ólöglegan vopnaburð og fyrir
að hafa safnað upplýsingum um
SYLVANIA
HEILDSÖLUDREIFING
Rafkaup
ÁRMÚLA 24, RVÍK.
S í MI : 6 8 15 7
danska gyðinga fyrir palestínsk
skæruliðasamtök. Hafa þessi „rétt-
arhöld aldarinnar" eins og dönsku
blöðin kalla þau staðið yfir í átta
mánuði.
Sex mannanna voru fundnir sekir
um að hafa rænt pósthús árið 1988
og fimm um að hafa rænt peninga-
flutningabíl fyrir sex árum. Einn var
að auki dæmdur fyrir að hafa tekið
saman lista yflr frammámenn gyð-
inga í Danmörku og afhent hann
Alþýðufylkingunni til frelsunar Pa-
lestínu. Þykja dómarnir áfall fyrir
dönsku lögregluna, sem vildi fá allan
hópinn dæmdan fyrir morð á lögregl-
umanni og margar fleiri sakir.
Mennirnir sjö, sem voru félagar í
vinstrisinnuðum samtökum, voru
handteknir 1988 en þá hafði lögregl-
an fundið íbúð á þeirra vegum, sem
var yfirfull af vopnum og sprengi-
efni. Hafði því verið stolið úr vopna-
búrum hersins í Danmörku og Sví-
þjóð. Við dómsuppkvaðninguna voru
mennirnir sýknaðir af morði lögreglu-
mannsins og mörgum öðram ákær-
-JUD.. - .. .................__J