Morgunblaðið - 03.05.1991, Page 29
29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991
Vopnaviðskiptum verði
hætt um miðjan mánuð
Estoril í Portúgal, Lissabon, Washington, Luanda. Reuter.
DEILUAÐILAR í borgarastríðinu
í Angóla undirrituðu á miðviku-
dag bráðabirgðasamkomulag um
frið í landinu á fundi sem Portúg-
alir hafa stjórnað og fór fram þar
í landi. Gert er ráð fyrir að vopna-
hlé taki formlega gildi í lok mán-
aðarins en vopnaviðskiptum ljúki
fyrr og heitið er frjálsum kosn-
ingum seint á næsta ári. Viðræð-
urnar hafa staðið í eitt ár.
Sovétmenn hafa stutt stjórn An-
góla með vopnum en Bandaríkja-
menn og Suður-Afríkumenn skæru-
liðahreyfinguna UNITA er tók á sín-
um tíma þátt í baráttunni gegn ný-
lendustjórn Portúgala ásamt MPLA-
hreyfingunni sem nú fer með ríkis-
stjórnarvöldin. Fulltrúar risaveld-
anna hafa fylgst með friðarviðræð-
unum í Portúgal og munu reyna að
tryggja að ákvæði samningsins verði
haldin. Eitt af þeim er að hvorugur
deiluaðili kaupi meira af vopnum og
hafa risaveldin skuldbundið sig til
að hætta vopnasölu til landsins.
Kveðið er á um samruna beggja
herja í einn, fámennan þjóðarher.
Bandaríkjamenn munu senda hjálp-
argögn til svæða í suðurhlutanum
þar sem hungursneyð blasir við.
„Frá 15. maí verður að leggja af
vopnaviðskipti í öllu landinu," sagði
Jonas Sawimbi, leiðtogi Únita.
Jeremias Chitunda, fulltrúi UNITA-
samtakanna, sem barist hafa gegn
marxistastjórninni í Luanda um 16
ára skeið undir stjórn Jonas Savimb-
is. „Við vonum að leiðtogarnir geti
undirritað samninginn við friðsam-
legar aðstæður." Gert er ráð fyrir
að Savimbi og forseti Angóla, Jose
Eduardo dos Santos, undirriti samn-
inginn í Portúgal undir lok mánaðar-
ins.
Svipað samkomulag er gert var
1989 fór út um þúfur eftir fáeinar
vikur en í síðasta mánuði lýsti stjórn
dos Santos yfir því að hún væri
horfin frá marxisma og hygðist
fýlgja hófsamri jafnaðarstefnu.
Smáatvinnurekendur hafa verið
hvattir til dáða og hugað er að auk-
inni einkavæðingu jarðnæðis. Þessar
breytingar gætu haft í för með sér
aukið traust. Þar að auki halda síð-
ustu kúbversku hermennimir, er
stutt hafa við bakið á stjórnvöldum,
heim í mánuðinum í samræmi við
fyrri samninga.
Sovétríkin:
Reuter
Einn þátttakenda í 1. maí-hátíðarhöldunum í Moskvu veifar hér til
Gorbatsjovs forseta, sem stóð á grafhýsi Lenins, en konan fyrir fram-
an hann er að mótmæla því, sem miður fer í landinu. Það voru verka-
lýðsfélögin sjálf, sem sáu um að skipuleggja daginn, í fyrsta sinn í
sögu Sovétríkjanna.
Grænland:
Jeltsín náði samkomulagi
við námamenn í Síberíu
Bráðabirgðasamkomulag í Angóla:
Yfirstjórn námanna verður færð undir rússneska lýðveldið — Níkolaj Ryz-
hkov ætlar að bjóða sig fram gegn Jeltsín í forsetakosningunum
Novokúznetsk, Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, hefur samið um það við kolanáma-
menn, sem verið hafa í verkfalli í tvo mánuði, að snúi þeir aftur til
vinnu muni yfirstjórn námanna verða færð undir yfirvöld í rúss-
neska lýðveldinu. Er búist við, að sovétstjórnin samþykki þessa breyt-
ingu eftir helgi. Níkolaj Ryzhkov, fyrrum forsætisráðherra, til-
kynnti á miðvikudag, 1. maí, að hann hygðist bjóða sig fram gegn
Jeltsín í forsetakosningunum í Rússlandi 12. júní nk. Engin hersýn-
ing var í Moskvu á hátíðisdegi verkalýðsins, 1. maí, og einkenndist
dagurinn af áhyggjum fólks af atvinnuleysi og bágum kjörum.
Mikil dánar-
tíðni barna
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMKVÆMT rannsókn sem
danskur læknir hefur fram-
kvæmt er dánartíðni barna fimm
sinnum hærri á Grænlandi en í
Danmörku. Eru drukknunarslys
og sjúkdómar helstu orsakirnar.
Astand heilbrigðismála er víða
mjög slæmt á Grænlandi. Sem
dæmi má nefna að á dögunum var
skýrt frá því í grænlenska útvarpinu
að í byggðalaginu Kulluorsak hefðu
allt að 30 smábörn soltið í mánuð
þar sem ekki hefði verið hægt að
fá mjólkurduft. Þá hefði nánast
engin matvæli verið hægt að fá í
verslun byggðalagsins í heilan mán-
uð.
Þessi ályktun, verði hún sam-
þykkt, hefur í för með sér að
væntanlegir samningar EB við
Fríverslunarbandalag Evrópu
(EFTA) verða felldir á Evrópu-
þinginu. Samkvæmt samnings-
umboði framkvæmdastjórnar
EB er samningurinn um Evr-
ópska efnahagssvæðið (EES)
gerður á grundvelli greinar 238
en hún gerir ráð fyrir að meiri-
hluti þingmanna á Evrópuþing-
inu samþykki samninginn til
þess að hann taki gildi.
Samkvæmt heimildum í
Jeltsín skrifaði undir samninginn
við kolanámamenn í síberísku borg-
inni Novokúznetsk og fór athöfnin
fram á aðaltorginu að viðstöddum
5.000 manns. Samkvæmt honum
eiga námurnar að heyra undir rúss-
neska lýðveldið en ekki beint undir
sovétstjórnina eins og hingað til.
Sagði Jeltsín, að Míkhaíl Gorb-
atsjov, forseti Sovétríkjanna, hefði
Brussel er þessi ályktun svar
Evrópuþingsins við málamiðl-
unartillögu Lúxemborgara á
ríkisstjórnarráðstefnunum en í
þeim er ekki gert ráð fyrir
neinum umtalsverðum breyt-
ingum á áhrifum þingsins.
Stuðningur við utanríkis -og
varnarstefnu
I skoðanakönnun sem birt var
í Brussel í gær og gerð var í
mars innan aðildarríkja Evr-
ópubandalagsins kemur fram
að íbúar bandalagsins telja að
lofað að skrifa undir samkomulagið
5. maí eða næsta mánudag. Ef þetta
gengur eftir munu námamenn fara
aftur til vinnu sinnar í næstu viku.
Samkomulagið við námamenn er
mikill sigur fyrir Jeltsín og með því
hóf hann í raun baráttuna fyrir
forsetakosningarnar 12. júní. Hann
verður þó ekki einn í framboði því
að Níkolaj Ryzhkov, fyrrum forsæt-
árið 2000 verði EB búið að
koma á fót sameiginlegum
fastaher, aðildarríkjunum hafi
fjölgað, sameiginlegur gjalmið-
ill verði í gildi og fólk njóti
fullkomins ferða- og búsetu-
frelsis innan bandalagsins. Evr-
ópskur ríkisborgararéttur nýt-
ur meirihlutastuðnings í öllum
aðildarríkjunum nema Dan-
mörku en 54% Dana kveðast
vera honum andvíg. Meirihluti
þátttakenda í könnuninn telur
að sameiginlegur EB-her verði
orðinn að veruleika fyrir árið
2000 auk þess sem lýst er yfir
stuðningi við sameiginlega ut-
anríkis- og varnarstefnu allra
aðildarríkjanna. Meirihlutinn
styður og hugmyndir um evr-
ópskan seðlabanka.
isráðherra, hefur tilkynnt, að hann
hyggist bjóða sig fram einnig. Sagði
hann í viðtali við Komsomolskaja
Pravda, að hann hefði tekið þessa
ákvörðun vegna fjölda áskorana,
bæði frá almenningi og félagasam-
tökum. Heldur þykir þó ósennilegt,
að Ryzhkov verði Jeltsín skeinu-
hættur í þessum fyrstu, almennu
forsetakosningum í Rússlandi.
Gorbatsjov forseta var viðstaddur
1. maí hátíðarhöldin í Moskvu en
þau voru einstaklega daufleg og
þóttu endurspegla ástandið Sov-
étríkjunum. Á kröfuspjöldunum
mátti lesa um áhyggjur almennings
af atvinnuleysi og dýrtíð en lítið var
þó um, að spjótunum væri beint
sérstaklega að Gorbatsjov eins og
1. maí í fyrra. Þá var hersýning-
Spurt ■ var um hugsanlega
fjölgun aðildarríkjanna og úr
hvaða átt hún væri líklegust.
55% töldu líklegt að Pólland,
Ungverjaland og Tékkóslóvak-
ía yrðu aðilar í framtíðinni en
hlutfallið jókst í 63% þegar
spurt var um aðildarríki EFTA,
Finnland, Austurríki, Sviss, Sví-
þjóð og Noreg. Island var ekki
með í upptalningunni.
Nýr sendiherra í Brussel
Hannes Hafstein hefur afhent
Baldvin Belgíukonungi trún-
aðarbréf sitt. sem sendiherra
íslands í Belgíu. í síðasta mán-
uði afhenti Hannes Stórhertog-
anum í Lúxemborg trúnaðar-
bréf og sömuleiðis ráðherrar-
áði Evrópubandalagsins. Nýi
sendiherrann bíður áheyrnar
hjá Jaques Delors, forseta
framkvæmdastjórnar EB. Jafn-
framt því að vera fulltrúi ís-
lands gagnvart Evrópubanda-
laginu og sendiherra í Lúxem-
borg og Belgíu er Hannes aðal-
samningamður íslands í við-
ræðunum um Evrópska efna-
hagssvæðið.
unni sleppt og öllu tilstandinu, sem
einkenndi 1. maí gönguna meðan
kommúnistaflokkurinn var og hét.
í Úkraínu bar mest á andófi gegn
kommúnistaflokknum og stjórninni
i Kreml en í Eystrasaltsríkjunum
þremur og í Georgíu voru engar
göngur.
Stjórnvöld í Armeníu sökuðu í
gær sovétstjórnina um að reyna að
koma af stað styijöld á milli Arm-
ena og Azera. Sagði Levon Ter-Pet-
rosjan, forseti Armeníu, að hermenn
sovéska innanríkisráðuneytisins,
sveitir KGB-manna og vopnaðar
sveitir Azera hefðu ráðist á tvö
þorp í Azerbajdzhan, sem byggð
væru Armenum, og fellt 36 manns.
Kvaðst Ter-Petrosjan hafa heimildir
fyrir því, að árásirnar væru runnar
undan rifjum sovétstjórnarinnar,
sem vildi koma af stað átökum
milli þjóðanna og nota þær sem
átyllu til að kveða niður sjálfstæðis-
viðleitni Armena.
-----------------
Sovétríkin — ísrael:
Styttist 1
samband?
Jerúsalm, Aninian. Reuter.
ALEXANDER Bessmertnykh, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
kemur í opinbera heimsókn til
Israels 10. maí nk. og er hann
æðsti, sovéski embættismaðurinn,
sem þangað kemur síðan stjórn-
málasambandi rikjanna var slitið
1967.
ísraelar hafa fallist á aðild Sovét-
manna að hugsanlegum viðræðum
um frið í Miðausturlöndum með því
skilyrði, að ríkin, ísrael og Sovétrík-
in, taki aftur upp stjórnmálasam-
band. Er ekki ólíklegt, að frá þvi
verði gengið í heimsókn Bessmert-
nykhs en hann mun í sömu ferðinni
eiga viðræður við ráðamenn í araba-
rikjunum._______________t__
EB-fréttir
Evrópuþingið hótar að
fella EES-samninginn
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
STJÓRNMÁLANEFND Evrópuþingsins hefur samþykkt ályktun
vegna ríkisstjórnarráðstefna Evrópubandalagsins (EB) um breyt-
ingar á Rómarsáttmálanum. I ályktuninni segir m.a. að þingið
lýsi því yfir að engir samningar sem byggjast á 238. grein sáttmál-
ans verði samþykktir fyrr en tryggt verði að þinginu séu ætluð
aukin áhrif á stjórn EB í fyrirhuguðum breytingum.