Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 35
‘ MORGÚNBLAÐIE) FÖSÍ'ÚDAGUR 3. MAÍ 1991
Vorhappdrætti Krabbameinsfélagsins;
Miðar sendir til karla ásamt
bæklingi um krabbamein
MIÐAR í vorhappdrætti Krabbameinsfélagsins hafa verið settir í
póst til viðtakenda um land allt. Nú er í fyrsta sinn í 36 ára sögu
happdrættisins eingöngu sent til karlmanna enda fá þeir í leiðinni
nýjan tólf síðna fræðslubækling sem þeim er sérstaklega ætlaður.
Konurnar fá miða í haust.
Meðal annars vegna dreifingar á
bæklingnum miðast útsending
happdrættismiða nú við rýmri ald-
urstakmörk en áður og nær til allra
karla á aldrinum 20-75 ára eða
nánar tiltekið þeirra sem eru fæddir
1916-1971. Það er einnig nýmæli
að nú fær hver viðtakandi miða með
tveimur mismunandi númerum.
Aður voru þau samliggjandi og réð-
ust af heimilisfangi hvers og eins.
Vinningar eru að þessu sinni 104
talsins að verðmæti samtals 15,6
milljónir króna. Aðalvinningar eru
Toyota 4Runner 3000i, Toyota Cor-
olla 1600 GLi, Toyota Corolla 1300
GL HB og bifreið að eigin vali fyrir
800.000 kr. Auk þeirra eru fimmtíu
vinningar á 125.000 kr. og aðrir
fimmtíu á 75.000 kr. fyrir vörum
eða þjónustu að eigin vali frá nokkr-
um mismunandi fyrirtækjum. Dreg-
ið verður í happdrættinu 17. júní
næstkomandi. Minnt er á að happ-
drættið er ein af mikilvægustu stoð-
um krabbameinssamtakanna og
þátttaka í því er auðveld leið til að
efla starfsemi þeirra.
Bæklingur fyrir Þjóðarátaksfé
Bæklingur sá sem um ræðir nefn-
ist Karlar og krabbamein og hefur
undirtitilinn Arvekni utn einkenni
getur skipt miklu máli. í honum er
fjallað um nokkur algengustu
krabbamein meðal karla hér á landi.
Greint er stuttlega frá helstu
áhættuþáttum þessara krabba-
meina, hættumerkjunum sem geta
bent til þeirra og forvörnum sem
dregið geta úr líkum á myndun
þeirra. Bæklingur þessi er gefínn
út af Krabbameinsfélagi íslands
fyrir fé sem hefur safnast í Þjóðar-
átaki gegn krabbameini í fyrra.
Þótt hann sé af hagkvæmnisástæð-
um sendur með happdrættismiðun-
um er þess eindregið vænst að menn
nýti sér hann hvort sem þeir greiða
miðana eða ekki. Um 80 þúsund
karlar fá bæklinginn með þessum
hætti. Að auki verður hann fáanleg-
ur á heilsugæslustöðvum um land
allt.
Krabbameinsfélagið hvetur ís-
lenska karlmenn til að kynna sér
bæklinginn vandlega. Eins og þar
kemur fram er rétt að leita læknis
verði menn varir við einkenni sem
geta bent til krabbameins.
(Fréttatilkynning)
Hljómsveitin Stjórnin.
Stjómin leikur í K-17
Hljómsveitin Stjórnin undirbýr þessa dagana tónleika- og
dansleikjaferð sína um landið í sumar. Fyrsti dansleikur Stjórn-
arinnar á landsbyggðinni verður á morgun, laugardaginn 4.
mai, í veitingahúsinu K-17 í Keflavík.
Stjórnin hefur verið í hijóðveri asti dansleikur hennar þar var
undanfarnar vikur og sendir frá um síðustu helgi. Þess má geta
sér aðra hljómplötu sína um að Stjórnin hóf feril sinn á staðn-
miðjan maí. Jafnframt hefur um K-17, sem þá hét Glaum-
hljómsveitin leikið á dansleikjum berg, fyrir þremur árum.
á Hótel íslandi í vetur, en síð-
Samkór Trésmiðafélagsins.
Vortónleikar Samkórs
Trésmiðafélagsins
ARLEGIR vortónleikar Samkórs
Trésmiðafélags Reykjavíkur
verða í Breiðholtskirkju, Mjódd-
inni, sunnudaginn 5. * maí kl.
16.00.
Efnisskrá er fjölbreytt að vanda.
Sungin verða innlend og erlend lög,
___________Brids_____________
Amór Ragnarsson
Bikarkeppnin 1991
Bikarkeppnin 1991 verður með
sama sniði og undanfarin ár. Þátttöku-
gjaldið verður 12.000 og greiðist um
leið og sveitin er skráð. 80% af keppn-
isgjöldunum verða sett í pott sem
skiptist á sveitir sem þurfa að ferðast
langt til að spila. Bridssambandið sér
um undanúrslitin og úrslitin og fær
20% af keppnisgjöldunum til þess.
Bikarkeppni BSÍ hefur verið spiluð
síðan 1977, og einn tilgangurinn með
þessri keppni, auk spilamennskunnar,
var að spilarar af sitt hvoru landshorn-
inu kynntust betur, það felur í sér að
það þarf að taka vel á móti sveitum
sem eru að koma í heimsókn og sá
sem á heimaleik hefur gestgjafaskyld-
um að sinna. Þessu hafa landsbyggð-
armennirnir ekki gleymt og taka á
móti sveitum frá Stór-Reykjavíkur-
svæðinu með þvílíkri gestrisni og spila-
gleði að menn muna lengi. En því
miður ekki nógu lengi til að muna það
sjálfir þegar röðin kemur að þeim að
vera gestgjafar, jafnvel hefur stundum
heyrst að sumir leikir séu nánast
formsatriði sem þurfi að klára í hvelli.
Þessu þarf að breyta og það ekki
seinna en strax í komandi bikar-
keppni. Skráning er að hefjast og er
á skrifstofu BSÍ í síma 91-289360 og
skráning verður til mánudagsins 27.
maí. Bridssamband íslands skorar á
brids-spilara alls staðar á landinu að
vera nú með í sumar, það þarf aðeins
að spila einn ieik á mánuði og þú
getur í leiðinni kynnst mönnum sem
þú hefur aldrei spilað við áður, notið
þess að spila keppni í óþvinguðu and-
rúmslofti, jafnvel komið á staði innan-
lands sem þú hefur ekki komið á áður
til viðbótar kórsöngnum verður dú-
ett og einsöngur.
Stjórnandi kórsins er Kjartan
Ólafsson, einsöngvari Elín Ósk
Óskarsdóttir og píanóleikari Lára
Rafnsdóttir.
og viðhaldið eða aukið við kunnáttu
þína í þessu spili sem á þann fjölbreyti-
leika að aldrei er hægt að verða full-
numa.
Þessi keppni er öllum opin og vinn-
ingsleikir gefa gullstig. Annar nánari
upplýsingar er að fá á skrifstofu BSÍ.
(Fréttatilkynning.)
Norðurlandsmótið í brids
Norðurlandsmótið í brids, sveita-
keppni, verður haldið á Akureyri
24.-26. maí nk. Mótið fer fram í
Hamri, félagsheimili Þórs við
Skarðshlíð, og hefst keppni kl. 16.00
föstudaginn 24. maí.
Öllu spilafólki á Norðurlandi er
heimil þátttaka. Spilað verður eftir
Monrad-kerfi, 7 umferðir, 24 spila
leikir. Tvær umferðir verða spilaðar á
föstudeginum, þijár á laugardeginum
og tvær á sunnudeginum.
Norðurlandsmótið er haldið til
skiptis á Norðurlandi eystra og vestra.
Mótið í fyrra var haldið á Siglufirði
og þá fór sveit íslandsbanka á Siglu-
firði með sigur af hólmi.
Væntanlegir þátttakendur þurfa að
skrá sig fyrir 11. maí hjá einhveijum
eftirtalinna aðila: Frímanni Fnmanns-
syni, vs. 24222, hs. 21830, Reyni
Helgasyni, hs. 25788, Helga Steins-
syni, hs. 26826, og Jóni Sigurbjöms-
syni, Siglufirði, vs. 71350, hs. 71411.
Aðstaða fyrir áhorfendur er mjög
góð í Hamri. Aðgangur að mótinu er
ókeypis og eru allir áhugasamir vel-
komnir að koma og fylgjast með.
Bridsdeild
Húnvetningafélagsins
Sl. miðvikudag var spilaður eins kvölds
tvímenningur og spiluðu 14 pör.
Lokastaðan:
Baldur Ásgeirsson ■ Hermann Jónsson 182
Þórarinn Amason - Þorleifur Þórarinsson 180
Valdimar Jóhannsson - Karl Adolphsson 174
GarðarSigurðsson-HelgiIngvarsson 173
Næsta miðvikudagskvöld hefst
þriggja kvölda vortvímenningur. Spil-
að er í Skeifunni 17 og hefst spila-
mennskan kl. 19.30. Skráning á staðn-
um. ,
CICFCC6
Leikstjóri
ROB REINER
Byggt ó sögu eftir
STEPHEN KING
Hondrit
WILLIAM GOLDMAN