Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAI 1991
39
EKIÐ YFIR DAISY
Kvikmyndir
Arnaldurlndriðason
Danielle Frænka („Tatie Dan-
ielle“). Sýnd í Háskólabíói. Leik-
stjóri: Etienne Chatiliez. Aðal-
hlutverk: Tsilla Chelton, Cather-
ine Jacob, Eric Prat, Isabella
Nanty, Neige Dolsky. Frakkland.
1990.
Hin 82 ára gamla Danielle
frærika, í samnefndri franskri gam-
anmynd sem sýnd er i Háskólabíói,
er virkilega rætið, vont gamalmenni
sem gerir sitt „áhyggjulausa ævi-
kvöld“ að hreinni martröð fyrir alla
í kringum sig. Vinnukonan hennar,
sem komin er að fótum fram af
elli, lætur lífíð þegar hún er að þrífa
ljósakrónuna I loftinu og hrapar
niður á gólf en eftirmælin sem hún
fær hjá Danielle eru eitthvað á
þessa leið: Hún var alltaf grautar-
haus.
Skepnuskapurinn á sér lítil tak-
mörk. Hún leggur líf einu skyld-
menna sinna í rúst þegar þau taka
hana inn á heimili sitt í París. Ef
koma matargestir í heimsókn sest
hún inní stofu og pissar í stólinn
af ráðnum hug svo h'tið dæmi sé
Teppa í Tennessee
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Stjörnubíó:
Tennessee nætur - „Tennessee
Nights“
Leiksljóri: Nicholas Gessner.
Aðalleikendur Julian Sands,
Stacey Dash, Ned Beatty, Ed
Lauter, Brian McNamara, Rod
Steiger, Johnny Cash.
Bandarísk(?). 1991.
Breskur lögfræðingur (Sands)
nær ekki að ljúka samningsgerð í
Nashville, Tennessee, fyrir vikulok-
in svo hann framlengir dvölinni og
hugsar sér gott til glóðarinnar að
ástunda heilbrigt lífemi yfír helgina
við fískivötnin fagurblá. En áður
en hann nær að setja stöngina sam-
an er hann saklaus flæktur í banka-
rán og mannsmorð. Bretanum til
fulltingis á flótta undan óbóta-
mönnum og viðskotaillri lögreglu
er dularfull negrastúlka (Dash).
Fullkomin rökleysa frá upphafi
til enda, þó ekki beint leiðinleg.
Hvemig er hægt að ætlast til að
nokkur sæmilega óbrjálaður maður
trúi því að persóna í stöðu Sands
lendi í slíkum heljarinnar vandræð-
um undir jafn álappalegum kring-
umstæðum sem þessum og reyndar
em allar persónur myndarinnar
fjarska óraunvemlegar og jarðsam-
bandslausar. Sands á að vera af-
burðasnjall lögfræðingur (er með
sjálfan Johnny Cash sem skjólstæð-
ing - því hringdi hann ekki í hálf-
guðinn?), en minnir meira á nagg-
andi kerlingu og ekki bætir vælu-
I RAUÐI kross íslands gengst
fyrir málþingi um Genfarsáttmála
og önnur mannúðarlög laugardag-
inn 4. maí nk. í Háskólabíói kl.
13. Rauði kross íslands hefur feng-
ið valinkunnan hóp fólks til þess
að fjalla um þessi mál, reynslu af
styijöldum, hlut fjölmiðla, börn og
mannréttindi, mannréttindi og
mannréttindakennslu í skólum hér-
lendis og fleira athyglisvert. Allir
em velkomnir og þeir sem láta sig
mannúðarmál skipta em hvattir til
að mæta.
JPKWHtiliL
HITAKÚTAR
ELFA-OSO
legur leikur Sands úr skák. Stúlkan
sem verður á vegi hans er enn dular-
fyllri, hreinasta ráðgáta hvaðan hún
kemur og hvert hún fer. Dash,
tætingslega æsandi stelputrippi,
leikur hana hinsvegar þolanlega.
Lögreglan er sem af annarri plán-
etu og framferði hennar, einkum
Ned Beatty, óskiljanlegt, virðist svo
sem eigi að glitta í samsæri í þoku-
mósku handritsins. Dómarinn er
enn eitt furðuverkið til handa Steig-
er gamla.
Tennessee nætur er frekar
skemmtileg mistök, maður getur
haft talsvert gaman af vönkuðu
handritinu og tilburðum Sands í
aðalhlutverkinu. Útlitið er ekki
ólaglegt, enda virðist sem kvik-
myndatökustjórinn hafí kynnt sér
rækilega listahandbragð Peter Biz-
iou í Mississippi brennur. Aukaleik-
ararnir er dágott samansafn, en
höfundur skilur þá eftir í lausu
lofti. Einsog áhorfendur.
30-60-120-200-300 lítra.
Ryðfrítt stál — Blðndunarloki.
Aratuoa oóð reynsla.
IEInar Farestvett&Co.hf
BORQARTÚNI28, SÍNII622901
Uit 4 stoppar vM dymar
tititititititif
nefnt. Öllum blótar hún í sand og
ösku sem koma nálægt henni en
eini sálufélagi hennar er eiginmað-
urinn heitinn, Játvarður herforingi,
sem lést á vopnahlésdaginn í seinni
heimsstyijöldinni en starir nú niður
á hana kolrangeygður af ljósmynd
á vegg.
Danielle frænka er ekki ljúfsár
bíómynd um rósömu efri árin eins
og t.d. Ekið með Daisy. Ef Danielle
fengi einhveiju ráðið hefði myndin
sú heitið Ekið yfir Daisy en það er
nokkuð sem þessi mynd í rauninni
gerir með lýsingu á gamalmenninu
sem algeru og fullkomnu skrýmsli.
Höfundur hennar, Etienne Chatil-
iez, valtar yfír fallegu og róm-
antísku myndirnar um ellina með
þessari andstæðu sem er sannar-
lega yfírgengileg - maður óskar
þeirri gömlu alls hins versta eftir
fyrsta hálftímann - en líka spaugi-
leg og fyndin þótt maður tregist
við að hlæja að ósvífninni.
Það er erfítt að hafa nokkra sam-
úð með gömlu konunni enda ekki
gefínn kostur á því nema í milli-
kafla um unga stúlku sem tekur
að sér að annast hana á meðan fjöl-
skyldan er í sumarfríi. Sú kann
tökin á þeirri gömlu og brátt verða
þær vinkonur. Þá skín í manneskj-
una á bak við hortugheitin en það
stendur þó ekki of lengi og brátt
er Danielle frænka komin í sama
farið.
Áður en lýkur hefur Danielle
komist í fréttirnar og öll franska
þjóðin hefur samúð með henni sem
byggð er á misskilningi að sjálf-
sögðu en þá er sagan líka orðin
full stórkostleg. Myndin er prýðileg
skemmtun, persónulýsingar eru
ágætlega kómískar, sérstaklega er
frændlið þeirrar gömlu - samheld
uppafjölskylda - unaðslega ráð-
þrota frammi fyrir illfyglinu. Og
maður er það eiginlega sjálfur.
LETTSAPA
fyrir
viðkvœma
staði
Lactacyd léttsápan styrkir
náttúrulegar varnir húðar-
innar og kemur í veg fyrir
kláða og óþægindi við
kynfæri, endaþarm og
undir brjóstum ■
Lactacyd léttsápan hefur
lágt pH-gildi (3,5) eins og
húðin sjálf og styrkir þvi
eðlilegar varnir hennar ■
Lactacyd
lcttsápan
fæst í helstu
stórmörkuð-
um og að
sjálfsögðu
í næsta
apóteki ■