Morgunblaðið - 03.05.1991, Page 43

Morgunblaðið - 03.05.1991, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991 43 Hjónaminning: Magnús Guðjónsson Bjargey Guðjónsdóttir Fæddur 28. ágúst 1899 Dáinn 19. apríl 1991 Fædd 4. apríl 1907 Dáin 27. september 1989 Með fáum orðum langar mig að kveðja elskuleg hjón, ömmu og afa á Langó. Magnús var lagður til hinstu hvílu í gær, 2. maí, en Bjarg: ey andaðist 27. september 1989. í mínum huga eru þau eitt. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast afa og ömmu er ég kynnt- ist sonarsyni þeirra, eiginmanni mínum. í ein átta ár bjuggum við í nábýli við afa og ömmu. Þetta voru okkar fyrstu búskaparár og eru þau mér ljúf minning. Magnús og Bjarg- ey voru einstaklega gestrisin og var þar mikill gestagangur, oft glatt á hjalla. Alltaf var faðmur þeirra opinn og sótti frumburður okkar Sigurður mikið til þeirra. „Er litli kúturinn hans afa kominn," var afi vanur að segja. Marga litla kúta átti afí og öll voru börnin honum jafn hjart- kær. Sonur okkar átti það til að skjótast á öllum mögulegum og ómögulegum tíma í eldhúsið til henn- ar ömmu. Stundum fyrir allar aldir og stundum rétt fyrir mat. Ekki gat eiginmaður minn reiðst ömmu sinni þótt sonur okkar sæti að snæðingi þegar var verið að kalla í mat. Sjálf- ur hafði hann oft stungið sér inn í eldhúsið til ömmu og afa sem bam, og fengið sér bita, en hann bjó sín fyrstu æskuár í kjallaranum hjá afa og ömmu. Man hann hve gott var að eiga þau að. Reyndar sóttu öll barnbömin sem bjuggu lengra frá einnig til afa og ömmu á Langó, sem höfðu alltaf tíma fyrir þau. Það v ar einkennandi fyrir heimili þeirra, hve allt var laust við lífsgæðakapp- hlaup og streitu. Magnús var mjög laghentur og var áhuginn þar langt á undan líkamlegri getu hin seinni ár. Er mér þar minnisstæðust förin er Magnús afi fór á rafknúnum hjóla- stól, þá hátt á níræðisaldri í Húsa- smiðjuna að versla sér efni til smíða. Þegar afgreiðslumaðurinn bauðst til að bera viðarlistana út í bíl fyrir hann, tók afi listana undir hendina og sagði: „Þetta er mitt farartæki," og brunaði heim á hjólastólnum. Afi var fullur af glettni og hafði gaman að segja frá skemmtilegum atvikum úr lífi sinu. Það er sárt að sjá á eftir slíkum hjónum og erum við lánsöm að hafa átt þau að. Við kveðjum þau með söknuði. Stína, Palli og synir. ÓPERUTÓNLEjKAR Sinfóníuhljómsveitar íslands - græn tónleikaröð - í Háskólabíói föstudaginn 3. maí, kl. 20.00 Einsöngvari: Giorgio Tieppo Hljómsveitarstjóri: Robin Stapleton Giorgio Tieppo Robin Staplelon Sinfóníuhljómsveit íslands Háskólabíói v/Hagatorg. Sími 622255. IBM á íslandi er aöalstyrktaraóili Sinfóniuhljómsveitar íslands starfsárið 1990 - 1991 er barna- og unglingalinan frá Þrælstek og falleg 1 8 gíra alvöru fjallahjól meS öflugum bremsum í mörgum stærSum frá og 20", 6 gíra fyrir jeau yngri (stráka og stelpuútgáfur) á Barnahjólin frá eru einstaklega sterk og falleg og verS miðað viS gæöi ótrúlega lágt eins og á öðrum hjólum. Tvær stærðir frá 4ra ára oq eldri frá Þýsku hjólin hafa fariS sigurför um Island, enda reynst framúrskarandi vel. Nú eru þau komin í unglinga og fullorðinsstærðum í 1991 litunum fyrir karla og konur. An gíra frá og með 3 gírum frá Þetta er lúxus útgáfan af þýsku barnahjólunum vinsælu, þrælsterk og meS öllum búnaSi eins og á mynd. Tvílit í m ög fallegum litum og þremur stærSum fyrir börn allt frá 4ra ára aldri og eldri. VerS frá Þýsku barnahjólin eru líka til í ódýrari útgáfu í einum lit, en meS öllum búnaSi eins og á mynd og í þremur stæröum. Fyrir börn frá 4ra ára oq eldri oq kosta frá Dönsku barnahjólin eru löngu orSin landskunn fyrir góða endingu, fallegt útlit og gæSi, enda eiga þau sér tugþúsundir tryggra aSdáenda. Til í mörgum stærðum og gerÖum fyrir börn allt frá 2i/2 árs og eldri. Verð frá Einhver albestu kaupin í þríhjólum gerir þú í Þau hafa ótrúlega endingu og hafa gengió í erfóir eru einföld og ódýr í viðhaldi, og allt til í þau. Öll með skúffu og kosta frá SENDUM I Reidhjolaverslunin PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT OPIÐ LAUGARDAGA KL10 -14 RAÐGREIDSLUB SPITALASTIG 8 VIÐ ÓOINSTORG SÍMI 14661 SKCIFUNNI I I VERSLUN SIMI 679890 VERKSTÆÐI SIMI 679891

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.