Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991
43
Hjónaminning:
Magnús Guðjónsson
Bjargey Guðjónsdóttir
Fæddur 28. ágúst 1899
Dáinn 19. apríl 1991
Fædd 4. apríl 1907
Dáin 27. september 1989
Með fáum orðum langar mig að
kveðja elskuleg hjón, ömmu og afa
á Langó. Magnús var lagður til
hinstu hvílu í gær, 2. maí, en Bjarg:
ey andaðist 27. september 1989. í
mínum huga eru þau eitt.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að eignast afa og ömmu er ég kynnt-
ist sonarsyni þeirra, eiginmanni
mínum. í ein átta ár bjuggum við í
nábýli við afa og ömmu. Þetta voru
okkar fyrstu búskaparár og eru þau
mér ljúf minning. Magnús og Bjarg-
ey voru einstaklega gestrisin og var
þar mikill gestagangur, oft glatt á
hjalla. Alltaf var faðmur þeirra opinn
og sótti frumburður okkar Sigurður
mikið til þeirra. „Er litli kúturinn
hans afa kominn," var afi vanur að
segja. Marga litla kúta átti afí og
öll voru börnin honum jafn hjart-
kær. Sonur okkar átti það til að
skjótast á öllum mögulegum og
ómögulegum tíma í eldhúsið til henn-
ar ömmu. Stundum fyrir allar aldir
og stundum rétt fyrir mat. Ekki gat
eiginmaður minn reiðst ömmu sinni
þótt sonur okkar sæti að snæðingi
þegar var verið að kalla í mat. Sjálf-
ur hafði hann oft stungið sér inn í
eldhúsið til ömmu og afa sem bam,
og fengið sér bita, en hann bjó sín
fyrstu æskuár í kjallaranum hjá afa
og ömmu. Man hann hve gott var
að eiga þau að. Reyndar sóttu öll
barnbömin sem bjuggu lengra frá
einnig til afa og ömmu á Langó, sem
höfðu alltaf tíma fyrir þau. Það v
ar einkennandi fyrir heimili þeirra,
hve allt var laust við lífsgæðakapp-
hlaup og streitu.
Magnús var mjög laghentur og
var áhuginn þar langt á undan
líkamlegri getu hin seinni ár. Er
mér þar minnisstæðust förin er
Magnús afi fór á rafknúnum hjóla-
stól, þá hátt á níræðisaldri í Húsa-
smiðjuna að versla sér efni til smíða.
Þegar afgreiðslumaðurinn bauðst til
að bera viðarlistana út í bíl fyrir
hann, tók afi listana undir hendina
og sagði: „Þetta er mitt farartæki,"
og brunaði heim á hjólastólnum. Afi
var fullur af glettni og hafði gaman
að segja frá skemmtilegum atvikum
úr lífi sinu.
Það er sárt að sjá á eftir slíkum
hjónum og erum við lánsöm að hafa
átt þau að. Við kveðjum þau með
söknuði.
Stína, Palli og synir.
ÓPERUTÓNLEjKAR
Sinfóníuhljómsveitar íslands
- græn tónleikaröð -
í Háskólabíói
föstudaginn 3. maí, kl. 20.00
Einsöngvari: Giorgio Tieppo
Hljómsveitarstjóri: Robin Stapleton
Giorgio Tieppo Robin Staplelon
Sinfóníuhljómsveit íslands
Háskólabíói v/Hagatorg. Sími 622255.
IBM á íslandi er aöalstyrktaraóili Sinfóniuhljómsveitar íslands
starfsárið 1990 - 1991
er barna- og unglingalinan
frá Þrælstek og falleg 1 8
gíra alvöru fjallahjól meS öflugum
bremsum í mörgum stærSum frá
og 20", 6 gíra fyrir
jeau yngri (stráka og stelpuútgáfur) á
Barnahjólin frá eru
einstaklega sterk og falleg og verS
miðað viS gæöi ótrúlega lágt eins og á
öðrum hjólum. Tvær stærðir frá
4ra ára oq eldri frá
Þýsku hjólin hafa fariS
sigurför um Island, enda reynst
framúrskarandi vel. Nú eru þau komin
í unglinga og fullorðinsstærðum í 1991
litunum fyrir karla og konur. An gíra
frá og með 3 gírum frá
Þetta er lúxus útgáfan af þýsku
barnahjólunum vinsælu,
þrælsterk og meS öllum búnaSi eins
og á mynd. Tvílit í m ög fallegum litum
og þremur stærSum fyrir börn allt frá
4ra ára aldri og eldri.
VerS frá
Þýsku barnahjólin eru líka
til í ódýrari útgáfu í einum lit, en meS
öllum búnaSi eins og á mynd og í
þremur stæröum. Fyrir börn frá 4ra ára
oq eldri oq kosta frá
Dönsku barnahjólin eru
löngu orSin landskunn fyrir góða
endingu, fallegt útlit og gæSi, enda
eiga þau sér tugþúsundir tryggra
aSdáenda. Til í mörgum stærðum og
gerÖum fyrir börn allt frá 2i/2 árs og
eldri. Verð frá
Einhver albestu kaupin í þríhjólum
gerir þú í Þau hafa
ótrúlega endingu og hafa gengió í
erfóir eru einföld og ódýr í viðhaldi,
og allt til í þau. Öll með skúffu og
kosta frá
SENDUM I
Reidhjolaverslunin
PÓSTKRÖFU
UM LAND ALLT
OPIÐ
LAUGARDAGA
KL10 -14
RAÐGREIDSLUB
SPITALASTIG 8
VIÐ ÓOINSTORG SÍMI 14661
SKCIFUNNI I I
VERSLUN SIMI 679890 VERKSTÆÐI SIMI 679891