Morgunblaðið - 03.05.1991, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ .1991
Menntamálaráðuneytið:
Framkvæmdaáætlun í
skólamálum komin út
Menntamálaráðuneytið
hefur gefið út fram-
kvæmdaáætlun í skólamál-
um til ársins 2000 og ber
hún titilinn „Til nýrrar
aldar“. Drög að áætluninni
komu út í nóvember á
síðasta ári og voru til um-
ræðu á Menntamálaþingi
sem ráðuneytið stóð fyrir
16. og 17. nóvember. Þá
hefur ráðuneytið gefið út
Hótel ísland:
Rokk, trúður og
trylltar meyjar
DANS- og söngleikurinn
Rokk, trúður og trylltar
meyjar verður sýndur á
Hótel íslandi laugardags-
kvöldið 4. maí. Leikurinn
var sýndur í Sjallanum á
Akureyri í fjóra mánuði
og er nú sýndur í nýrri
mynd á Hótel Islandi.
Rokk, trúður og trylltar
meyjar er saga um sveita-
piltinn Lúðvík Líndal sem
orðinn er leiður á fjósinu og
flórnum. Þetta er vingjarn-
legt grey sem hefur eitthvað
við sig þrátt fyrir heftan
þroska. Lúðvík skellir sér í
höfuðborgina og breytist
þar í besta dansarann og
mesta töffarann. Sagan er
sögð með dansi, söng og
látbragði.
Dansarar í sýningunni
eru: Jóhannes Bachmann,
María Huldarsdóttir, Ölöf
Björnsdóttir, Ragnar Sverr-
isson, Ingólfur Stefánsson,
Sigurrós Jónsdóttir Lizi
Steinsdóttir, Arnór Diego
og Sigrún Jónsdóttir. Á
sviðinu bregður einnig fyrir
ýmsum söngvurum svo sem
Bjarna Arasyni, Önnu Vil-
hjálms, Júlíusi Guðmunds-
syni og Rúnari Júlíussyni.
■ HARALD Flor norski
listfræðingurinn heldur fyr-
irlestur sunnudaginn 5. maí
kl. 17.00 í fundarsal Norr-
æna hússins um myndlist í
Noregi á síðasta áratug og
sýnir litskyggnur. Harald
Flor hefur starfað við Dag-
bladet í Osló sem listgagn-
rýnandi í rúm 20 ár en einn-
ig hefur hann skrifað í Berg-
ens Arbeiderblad og Bergens
Tidende. Auk þess hefur
hann kennt við listaakade-
míuna í Osló og Þrándheimi.
Harald Flor hefur skrifað
ásamt öðrum margar bækur
um myndlist og verið ötull
við að kynna norska og
sænska myndlist. Fyrirlest-
urinn er öllum opinn.
Fegupðarsamkeppni
íslands í kvöld
HÓTEL LÁLAND S: 687111
DfiNSHÚSIÐ
GLÆSIBÆ
Hljómsveitin
SMELLIR
ásamt
Ragnari Bjarnasyni.
Staður hinna dansglöðu
skýrslu nefndar um
námsráðgjöf og starfs-
fræðslu í skólum. Nefndin
var skipuð haustið 1989.
Áætlunin hefur sam-
kvæmt frétt frá ráðuneytinu
verið endurskoðuð með hlið-
sjón af umræðum á þinginu,
fjölda bréfa sem borist hafa
og tillagna sem komið hafa
fram á fundum sem ráðu-
neytið hefur haldið með ýms-
um aðilum um einstaka þætti
áætlunarinnar. Unnið hefur
verið að áætluninni frá því í
janúar 1990 en undirbúning-
ur fór fram með skoðana-
könnunum og fundarhöldum
allt árið 1989.
Bókin er tæplega 200
síður að lengd og skiptist í
átta kafla. Hún hefst á
ávarpi Svavars Gestssonar,
menntamálaráðherra, en í
inngangskafla er gerð grein
fyrir tilurð áætlunarinnar og
umgjörð hennar. Fyrsti
kaflinn íjallar um ijögur
meginmarkmið sem snerta
öll skólastigin en síðan koma
kaflar um hvert skólastig,
leikskóla-, grunnskóla, fram-
haldsskóla- og háskólastig,
fullorðinsfræðslu og kenn-
aramenntun. Lokakaflinn
fjallar um ráðuneytið sjálft.
I viðauka er gerð grein fyrir
kostnaði við áætlunina sem
er um tveggja milljarða
króna aukning á ári til skóla-
mála að 10 árum liðnum sem
samsvarar því að menntamál
nái aftur 15% ríkisútgjalda
eins og þau hafa haft að
meðaltali síðustu tvo áratugi.
Framkvæmdaáætlunin
„Til nýrrar aldar“ hefur ver-
ið send öllum skólum og öðr-
um menntastofnunum.
. , , Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
Ur leikþættinum Stolna reiðhjólið sem nemendur í Klúkuskóla fluttu en þau heita:
Viktor Guðbrandsson, Harpa Guðbrandsdóttir, Hrönn Magnúsdóttir, Bjarki Magnús-
son, Jóhanna Guðbrandsdóttir, Aðalbjörg Guðbrandsdóttir, Steinar Þór Baldursson,
Sölvi Þór Baldursson, Finnur Olafsson og Eysteinn Pálmason.
Bjarnarfjörður:
Listahátíð æskunnar
á Norðurströndum
Laugarhóli.
LISTAHÁTÍÐ æskunnar
var opnuð á Laugarhóli á
sumardaginn fyrsta.
Klúkuskóli í Bjarnarfirði
er til húsa í skólanum og
félagsheimilinu á Lauga-
hóli. Það voru nemendur
skólans sem stóðu að hát-
iðinni. Auk söngs og upp-
lesturs ljóða, fluttu nem-
endurnir „grasafjall“ úr
Skugga-Sveini eftir Matt-
hías Jochumsson og annan
nútímalegri leikþátt. Þá
var opnuð myndlistarsýn-
ing í báðum kennslustofum
skólans.
Það var fjölmenni við opn-
un Listahátíðar æskunnar á
Laugarhóii á sumardaginn
„BLACK AND
WHITE"
KYNNA
fyrsta. 36 manns skráðu sig
í gestabókina, en þar voru
nær allir íbúar Bjarnarfjarð-
ar og Bessastaða, sem eiga
skólasókn í Klúkuskóla. Á
myndlistarsýningum í báðum
kennslustofum skólans gat
að iíta afrakstur vetrarins,
bæði í myndlist og hverskon-
ar myndrænni vinnu nem-
enda í námsgreinum sínum.
Þá skemmtu nemendur gest-
unum með söng og lásu fyr-
ir þá ljóð eftir ýmsa höf-
unda, allt frá Hannesi Haf-
stein, til þeirra er nú stunda
nám við skólann. Vöktu ljóð
nemenda verðskuldaða at-
hygli.
I leiklistinni voru nemend-
ur ekki heldur smátækir og
fluttu þarna þáttinn á
„Grasafjalli" úr Skugga-
Sveini eftir Matthías Joc-
humsson. Þóttu Gudda og
Gvendur smali, barnabarn
hennar, taka sig vel út í hlut-
verkum sínum ásamt Sigurði
bónda og Jóni sterka.
Þá var einnig fluttur leik-
þáttur er nefnist „Stolna
reiðhjólið“ og er hann með
öllu nútímalegi’a yfirbragði.
Þannig voru allir nemendur
skólans þátttakendur í leik-
listarflutningi og upplestri,
en þeir eru 10 að tölu.
Áð efnisflutningi loknum
var svo myndlistarsýningin
opnuð og skoðuðu gestir
hana, en fengu sér sumar-
kaffi með nemendum og
starfsliði skólans að því lo-
knu.
Eins og áður segir voru
36 manns samankomin við
þessa opnun Listahátíðar
æskunnar í Bjarnarfirði. Var
það mál manna að vel hefði
tekist til og nemendur staðið
sig frábærlega vel við allan
efnisflutninginn.
Þrátt fyrir að á almanak-
inu stæði sumardagurinn
fyrsti, var snjór yfir öllu og
ófært fyrir litla bíla yfir
Bjarnarijarðarháls.
- SHÞ.
\MM
„IMPOSSIBLE
sýningu sem kemur eins
og köld vatnsgusa framan
íþig!
Söngfélag Skaftfellinga á tónleikum í Ásbyrgi, Mið-
firði, 27. apríl sl.
■ ÁRLEGIR vortónleikar
Söngfélags Skaftfellinga i
Reykjavík verða í Breið-
holtskirkju í Mjódd laugar-
daginn 4. maí nk. og hefjast
kl. 16. Að vanda er efnis-
skráin ljölbreytt, bæði inn-
lend og erlend lög, m.a. lög
og textar eftir Skaftfellinga,
lög úr söngleikjum og óper-
um. Stjórnandi tónleikanna
er Violeta Smid og undir-
leikari er Pavel Smid. Þetta
eru 19. starfsár kórsins og
eru kórfélagar í vetur 45 að
tölu. Helgina 27.-28. apríl
sl. var kórinn á ferð um
Vestur-Húnavatnssýslu ,og
var m.a. með tónleika í Ás-
byrgi, Miðfirði, laugardaginn
27. apríl. Sunnudaginn 5.
muí uorflur Skflft.fellino'afé.^
lagið með kaffisamsæti fyrir
aldraða Skaftfeilinga í
Skaftfellingabúð, Lauga-
vegi 178, 4. hæð, og hefst
samsætið kl. 14.30.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!