Morgunblaðið - 26.05.1991, Síða 8
'8
. í(>i;i iam aidAjaviuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR' 26. MAÍ1991
I'PI \ er sunnudagur 26. maí, þrenningarhátíð.
146. dagur ársins 1991. Árdegisflóðí
Reykjavík kl. 4.56 og síðdegisflóð kl. 17.20. Sólarupprás í
Rvík kl. 3.40 og sólarlagkl. 23.12. Sólin er í hádegisstað í
Rvík kl. 13.25 ogtungliðerí suðri kl. 24.11. (Almanak
Háskóla íslands.)
Lofa þú Drottin sála mín, og gleym eigi neinum velgjörð-
um hans. (Sálm. 103, 2).
ÁRNAÐ HEILLA
KIRKJA
DIGRANESPRESTA-
KALL: Messan í Kópavogs-
kirkju í dag er kl. 11, ekki
kl. 14.
ÁRBÆJARKIRKJA: Efnt
verður til ferðar iyrir mæður
og feður ungra barna úr Ár-
túnsholti og Árbæ suður í
Hafnarfjörð tl að kynnast
starfi foreldramorgna í Vitan-
um þar í bænum. Lagt af stað
frá Árbæjarkirkju kl. 9.45.
ára afmæli. í dag, 26.
maí, er 85 ára Jafet
E. Hjartarson, Hátúni 10,
Rvík. Hann er vélstjóri og
fyrrum verksmiðjustjóri í
Hvalstöðinni í Hvalfirði. Hann
er að heiman í dag.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
í dag er Kyndill væntanlegur
og rússneskt olíuskip.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: Á morgun eru vænt-
anlegir inn togararnir Ýmir
og Hrafn Sveinbjarnarson
svo og Urriðafoss. Panama-
skipið Pig Mona er farið út
aftur.
FELLA- OG HÓLA-
KIRKJA: Fyrirbænir nk.
þriðjudag kl. 14 í kirkjunni.
LANGHOLTSKIRKJA:
Kirkjulistahátíð kl. 20 í kvöld.
Leiklestur úr Kristnihaldi
undir Jökli eftir Halldór Lax-
ness í leikgerð Hallgríms
Helgasonar. Lesarar. þeir Rú-
rik Haraldsson og Þor-
steinn Gunnarsson.
ÁHEIT OG GJAFIR
ÁHEIT á Strandarkirkju, af-
hent Morgunblaðinu.
Stefanía Jóns. 2000. Gústaf
B. Einarss. 2000. Þakkl.
amma E*M 2000. NN 2000.
Guðmundur Þorkelss. 2000.
KI 2000. IS 2500. Steindór
5000. GGB 5000. RR 11.000.
EJ 2000 + 100 krónur norsk-
ar.
HJÓNABAND
Gefin voru sam-
an í hjónaband
þann 27. apríl sl.
í Kópavogskirkju
af séra Kristjáni
Einari Þorvarð-
arsyni þau
Nanna Sif
Gísladóttir og
Böðvar Guð-
mundsson. Þau
eru til heimilis í
Engihjalla 7,
Kópavogi.
(Ljósmyndastofan Mynd Hafnarf.)
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 afklæða, 5 LÓÐRÉTT: — 2 kærleikur,
raki, 8 þverneitaði, 9 eitt sér, 3 verkur, 4 kvöld, 5 veikin, 6
11 spjald, 14 rödd, 15 100 keyra, 7 trant, 9 drepa á, 10
árin, 16 starfið, 17 eykta- skjóls, 12 skjótar, 13 árbæk-
mark, 19 áburður, 21 mergð, ur, 18 kvæði, 20 leyfíst, 21
22 fugla, 25 verkfæris, 26 belti, 23 öðlast, 24 skóli.
heiður, 27 magur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 áþján, 5 dæsti, 8 lækur, 9 fróar, 11 lifur,
14 iði, 15 sukks, 16 Nixon, 17 tin, 19 agns, 21 elda, 22
dingull, 25 aki, 26 nam, 27 ani.
LOÐRÉTT: — 2 Þór, 3 ála, 4 nærist, 5 dulinn, 6 æri, 7 tíu,
9 fískana, 10 óskundi, 12 foxilla, 13 rangali, 18 Inga, 20 si,
21 el, 23 NN, 24 um.
Bjórframleiðandi styrldr
landgræðslustörf her á landi I
Clmrlcs E. Cobb, scndihcrra Bnndnríkjnnna A fslandi, aflicndir Sveini Runólfssyni, Inndgrœðslustjóra,
Tyrsla framlng bnndnriska fyrirtickisins Anheuscr-Buscli Iiitcrnational, sem varið verður til land- (
græðslu... —^ ~
Nei, nei, strákar. Samkvæmt heiðursmannasamkomulaginu á ég að fá þessa dollara...
FRÉTTIR/MANNAMÓT
ÞENNAN dag árið 1056 var
Isleifur biskup vígður. Þenn-
an dag árið 1845 fæddist
Jónas Hallgrímsson. Þá er
þetta stofndagur Garðyrkju-
félags íslands, árið 1885.
Og árið 1968 var hægri um-
ferð tekin up_p hérlendis, H-
dagurinn. I dag, fyrsta
sunnudag eftir hvítasunnu,
er Trínitatis, þrenningarhátíð.
Hátíðisdagur til heiðurs heil-
agri þrenningu, fyrirskipaður
af Jóhannesi páfa á 14. öld,
segir Stjörnufræði/Rímfr.
DÓMTÚLKUR: Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið tilk. í
Lögbirtingi að það hafí gefíð
út löggildingu handa Sæ-
mundi Garðari HaUdórs-
syni til að vera dómtúlkur og
skjalaþýðandi á og úr þýsku
og frönsku.
KÓPAVOGUR: Kvenfélag
bæjarins efnir til gönguferðar
næstkomandi þriðjudags-
kvöld. Lagt verður af stað frá
félagsheimili bæjarins kl. 20.
FÉLAG eldri borgaraí dag
er opið hús í Goðheimum við
Sigtún kl. 14. Fijáls spila-
mennska. Dansað kl. 20.
Mánudag er opið í Risinu kl.
13-17.
KRISTILEGT félag heil-
brigðisstétta heldur opinn
. fund í safnaðarheimili Laug-
ameskirkju mánudagskvöldið
27. þ.m. kl. 20.30. Kristjana
Thorarensen syngur ein-
söng. Þá flytur sr. Magnús
Björnsson erindi: Helgun
hins kristna manns. Fundur-
inn er öllum opinn.
ITC-samtökin hér á landi
halda ársþing um þessa helgi
og heldur það áfram í dag á
Loftleiða-hóteli. Þar stjómar
Kristjana Milla Thorsteins-
son prófí í þingsköpum. Full-
trúi alþjóðastjórnar samtak-
anna Elaine La Rue situr
fyrir svörum um starfsemi
þessara alþjóðlegu samtaka.
Hádegisverðarerindi flytur
Þórhildur Þorleifsdóttir
leikstjóri. Þinginu lýkur með
innsetningu nýrrar stjórnar
samtakanna hér á landi.
KVENFÉL. Óháða safnað-
arins. Kvöldverð verður farin
að kvöldi mánudags. Lagt af
stað frá kirkjunni kl. 20.
Heimsótt verður minjasafn
Eyrarbakka og kvöldkaffið
drukkið í Básum.
AGLOW, kristileg samtök
kvenna í Rvík, halda mánað-
arlegan fund sinn í kaffísal
Bústaðakirkju mánudags-
kvöldið kl. 20. Ræðukona
fundarins verður Ólöf Ingi-
björg Davíðsdóttir. Fundur-
inn er opinn öllum konum og
verða kaffíveitingar.
HAFNARFJÖRÐUR: Orlof
húsmæðra þar í bæ, á vegum
orlofsnefndar, verður í sumar
austur á Laugarvatni dagana
8.-14. júlí. Farið er að huga
að þátttöku í orlofsdvölinni.
Gefa þær nánari uppl.: Ses-
seija s. 50505, Dúna s. 50742,
Lára s. 52217 eða Bagga i
s. 53036.
MOSFELLSBÆR. Á vegum
JC-Mosfellsbær verður hald-
inn almennur borgarafund-
ur mánudagskvöldið kl. 20. Á
dagskrá er tilboð Reykjavík-
urborgar í land Blikastaða.
RÓSAKROSSREGLAN
Amorc heldur almennan
kynningarfund um starfsemi
Reglunnar nk. þriðjudags-
kvöld, 28. maí, kl. 20.30.
Fundurinn verður í Bolholti
4, uppi á 4. hæð og er hann
öllum opinn sem fyrr segir.
STARFSMENNTUNAR-
STYRKIR: Menntamála-
ráðuneytið augl. í Lögbirtingi
að hinn 1. júní renni út um-
sóknarfrestur um norræna
starfsmenntunarstyrki, fyrir
þá sem hug hafa á námi við
fræðslustofnanir í Danmörku
kr. 16.200 d.kr., í Finnlandi
27.000 mörk og í Noregi
22.000 n.kr., miðað við heil
skólaár. Styrkirnir eru eink-
um ætlaðir til framhaldsnáms
eftir iðnskólapróf svo og
vegna ýmiss konar starfs-
menntunar sem ekki er unnt
að afla hérlendis, segir í þess-
ari tilk. frá ráðuneytinu.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 25 ÁRUM
Einn fremsti píanósnill-
ingurinn á þeim árum,
Wilhelm Kempff, kom tií
Reykjavíkur til að vera
einleikari á tónleikum
með Sinfóníuhljómsveit-
inni. Hann var 71 árs og
kom hingað beint frá
Ítalíu þar sem hann hafði
verið á tónleikaferð.
Blaðamaður Morgun-
blaðsins ræddi við hinn
víðkunna snilling. Kom í
ljós að ferðataskan hans
hafði ekki ratað í rétta
flugvél og verið send
vestur til San Francisco.
Það væri raunar ekki í
fyrsta skipti sem slíkt
kæmi fyrir hann. Samtal-
inu lýkur með þessum
orðum: Þegar hér var
komið sögu kvaðst hann
þurfa að fara að æfa sig,
ef hann fyndi einhvers
staðar slaghörpu. Hann
ætti að spila í næstu viku
í Leipzig í A-Þýskalandi
á Bach-tónleikum.
★
Þjóðhátíðarnefnd 1974
tók til starfa samkv.
ályktun Alþingis. í henni
áttu sæti: Matthías Jo-
hannesson, ritstjóri, Gísli
Jónsson, menntaskóla-
kennari, Höskuldur
Ólafsson, bankastjóri,
Gunnar Eyjólfsson, leik-
ari, Guðlaugur Rósin-
kranz, Þjóðleikhússtjóri,
Indriði Þorsteinsson, rit-
sljóri og Gils Guðmunds-
son, alþingismaður. Matt-
hías var formaður nefnd-
arinnar.
ORÐABÓKIN
Að leggja fyrir róða
í útvarpsumr-æðum fyr-
ir skömmu mátti heyra
ræðumann tala um að
leggja fyrírijóða. Þar sem
þetta var endurtekið, var
hér tæplega um misheym
að ræða. Allt bendir því
til þess, að téðan ræðu-
mann misminni annað-
hvort um upprunalega
gerð orðtaksins eða hann
hafi jafnvel mismælt sig.
Skal nú litið nánar á
þetta. Orðtakið heitir að
leggja fyrír róða og merk-
ir að gefa e-ð upp á bát-
inn, láta e-ð róa eða kasta
e-u á glæ. Flestir munu
annars kannast vel við
það úr mæltu máli. Orð-
takið kemur þegar fyrir í
fornu máli og eins í gerð-
inni að láta fyrir róða og
er allalgengt. Halldór
Halldórsson prófessor
rekur dæmi um þetta í
íslenzku orðtakasafni.
Ekki er merking þess al-
veg ljós, en flestir munu
hallast að þeirri skýringu,
að róði sé hér sama og
vindur. Orðtakið merkir
þá sama og að láta eða
kasta í vindinn. Halldór
bendir á, að þetta orðtak
komi ekki fyrir í heimild-
umfrá 16.-19. öld. Áþeim
tímum munu menn hafa
notað orðtakið að leggja
e-ð fyrír óðal eða leggjast
fyrir óðal. í lok 19. aldar
kemur það svo upp aftur
og er nú orðið mælt mál
margra. Eru mörg dæmi
um að leggja fyrír róða í
safni OH úr prentuðum
ritum frá því um aldamót
og fram á þennan dag.
- JAJ