Morgunblaðið - 26.05.1991, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991
KXM iAtf. ,BS M'ji'T-.W'l/./'iA glglAiayiNifiHOM
eftir Guðmund Halldórsson
INDVERJAR eru 850 milljónir
og spyrja sig stundum hvort jafn-
fjölmenn og sundurleit þjóð geti
varðveitt lýðræði sitt og jafnvel
sjálfstæði vegna þrálátra upp-
reisna aðskilnaðarsinna, vaxandi
trúardeilna og gamals stéttarígs.
Þessi spurning hefur orðið
áleitnari vegna morðsins á Rajiv
Gandhi fyrrverandi forsætisráð-
herra, en henni hefur oft verið
varpað fram áður því að lýðræð-
ið hefur oft komizt í hættu síðan
Indland hlaut sjálfstæði fyrir 44
árum.
Svarið við spurningunni
hefur venjulega verið á
þá leið að þrátt fyrir
allt sé fleira sem sam-
eini Indvetja en sundri
þeim. Þótt ýmsir gallar
séu á lýðræðinu telja
fáir Indveijar að annað
stjórnarform komi í raun og veru
til greina. Þeir eru stoltir af lýðræð-
islegu stjórnarfyrirkomulagi sínu,
en eftir morðið á Rajiv Gandhi mun
reyna á það fyrir alvöru.
Kongressflokkurinn hefur verið
sameiningarafl í indverskum stjórn-
málum síðan afí Rajivs Gandhis,
Jawaharlal Nehru, gekk í hann fyr-
ir 70 árum. Ætt hins látna forsætis-
ráðherra stjórnaði frelsisbaráttu
Indveija og hefur farið með völdin
mestan hluta þess tíma sem liðinn
er síðan þeir hlutu sjálfstæði 1947.
Síðan hafa allar aðstæður breytzt
til muna og ýmsir efast um að
Kongressflokkurinn geti haldið
áfram að gegna sama þýðingar-
mikla hlutverkinu í stjóm mála á
Indlandi og hann hefur hingað til.
Ofbeldi hefur verið snar þáttur í
indverskum stjómmálum. Mahatma
Gandhi, sem stjórnaði frelsisbarát-
tunni, var myrtur skömmu eftir að
Indland hlaut sjálfstæði. Indíra
Gandhi forsætisráðherra, móðir
Rajivs og dóttir Nehrus, var ráðin
af dögum 31. október 1984. Tilræð-
ismennirnir voru Síkhar úr lífverði
hennar og Hindúar hefndu dauða
hennar með því að myrða um 2,700
Síkha.
í fyrra féllu um 6.000 í óeirðum,
sem áttu rætur að rekja til baráttu
fyrir aðskilnaði, stéttarígs og deilu-
mála Hindúa og minnihluta múha-
meðstrúarmanna, sem eru 120
milljónir. Þegar Rajiv Gandhi var
myrtur á dögunum var talið að um
200 hefðu verið drepnir í tveggja
mánaða kosningabaráttu, hinni
blóðugustu hefur verið háð á Indl-
andi.
Rajiv tryggði Kongressflokknum
yfirburðasigur í kosningum, sem
fóru fram tveimur mánuðum eftir
að móðir hans var myrt fyrir sjö
árum. Honum tókst hins vegar ekki
að tryggja umbætur í efnahagsmál-
um eins og hann hafði lofað og
beið ósigur í síðustu kosningum, í
nóvember 1989. Flokkur miðju-
manna, Þjóðfylkingin, sakaði Gand-
hi um að draga taum efnaðra stétta
og hann glataði stuðningi múha-
meðstrúarmanna og hægrisinnaðra
Hindúa eftir óeirðir, sem áttu rætur
að rekja til þess að herskáir Hindú-
ar kröfðust þess að hof yrði reist á
stað þar sem bænahús múhameðs-
trúarmanna hefur staðið í bænum
Ayodhya á Norður- Indlandi og
sagt er að guðkonungurinn Rama
sé fæddur.
Vishwanath Pratap Singh varð
forsætisráðherra minnihlutastjórn-
ar Þjóðfylkingarinnar með stuðn-
ingi kommúnista og Bharatiya Jan-
ata-flokks Hindúa (BJP). Singh
hafði sagt sig úr stjórninni og Kon-
gressflokknum tveimur árum áður
þegar hann hafði sakað vini Gand-
his um spillingu.
Eftir valdatöku Singhs óx að-
skilnaðarsinnum ásmegin í landa-
mærafylkjunum Púnjab, Kasmír og
Assam í norðri og óeirðir færðust
í aukana. Janata- flokkurinn dró
stuðning sinn við Singh til baka
þegar hann snerist gegn baráttu
Hindúa fyrir því að hof yrði reist í
stað moskunnar í Ayodhya. Um
2.000 hafa fallið í óeirðum Hindúa
og múhameðstrúarmanna út af
moskunni á síðustu tveimur árum.
Kongressflokknum hefur al-
mennt verið kennt um aukin áhrif
aðskilnaðarsinna í Punjab, Kasmír
og Assam. Barátta þeirra hefur
orðið til þess að ýmsir áhrifamenn
hafa sagt sig úr Kongressflokknum
og gengið í lið með stjórnarand-
stæðingum.
Þessi klofningur hefur verið vatn
á myllu-Janata-flokksins, sem er
hægrisinnaður flokkur hindískra
trúarvakningarmanna og berst
gegn múhameðstrúarmönnum. Jan-
ata-flokkurinn hefur hagnazt á
uppreisnum aðskilnaðarsinna. Áhrif
öfgamanna hafa aukizt í indversk-
um stjómmálum og dregið hefur
úr áhrifum miðjumanna.
í fyrra lá við að styijöld brytist
út milli Indveija og Pakistana í
fjórða skipti síðan Indland hlaut
sjálfstæði vegna blóðugra upp-
reisna aðskilnaðarsinna í Jammu
og Kasmír, einu fylkjunum þar sem
múhameðstrúarmenn eru í meiri-
hluta. Samskiptin hafa lagazt á
síðustu mánuðum.
Fyrirætlanir Singhs um að fjölga
fólki úr lágstéttum í störfum hjá
ríkinu til að ijúfa valdaeinokun yfir-
stéttafólks urðu til þess að stúdent-
ar úr efri stéttum brenndu sig til
bana. I nóvember sl. varð Singh að
segja af sér, aðeins 11 mánuðum
eftir kosningar, þar sem Janata-
flokkurinn hætti stuðningi sínum
við hann.
Chandra Shekar myndaði minni-
hlutastjórn með hjálp Rajivs Gand-
his, sem setti ýmis skilyrði fyrir
stuðningi sínum og hafði líf stjóm-
arinnar í hendi sér. Shekar hafði
sagt sig úr Kongressflokknum út
af neyðarástandslögum 1975.
Gandhi var tvístígandi í stéttadeil-
unum og átökunum um moskuna
og þótti ekki standa sig vel í stjórn-
arandstöðu.
Stjórnmálaleiðtogar í Tamil
Nadu og Assam kenndu Gandhi um
þá ákvörðun Shekars að reka
stjórnir þessara fylkja. Shekar var
fús að ræða við aðskilnaðarsinna í
þessum fylkjum og annars staðar
og ávann sér traust þeirra, en Gand-
hi barðist af alefli gegn kröfum um
sjálfstjóm og valddreifíngu. Shekar
kvartaði yfir því að erfitt væri að
stjórna landinu vegna afskipta Kon-
gressflokksins og fékk sig fullsadd-
an á stöðugum árásum Gandhis. I
marz baðst Shekar lausnar og boð-
aði til kosninga, en stjórn hans var
beðinn að sitja áfram til bráða-
birgða.
Nú hefur morðið á Gandhi veikt
stöðu Shekars ennþá meir og stjórn
hans hefur þegar verið gagnrýnd
fyrir að hafa eklri haft hendur þeirra
sem skipulögðu morðið. Kongress-
flokkurinn stendur uppi án leiðtoga
í miðri kosningabaráttu. Tveimur
umferðum kosninganna af þremur
hefur verið frestað til 12. og 15.
júní og eftir er að kjósa um 60%
þingsæta, sem eru alls 537.
Gandhi hafði ekki áhuga á því
að gengið yrði til kosningum.
Nokkrir valdamiklir menn í Kon-
gressflokknum drógu forystuhæfi-
leika hans í efa og efuðust einnig
um hæfni hans til að afla flokknum
atkvæða, en hann sýndi mikinn
dugnað í kosningabaráttunni, sem
leiddi til dauða hans. Ein af ástæð-
unum fyrir ósigri hans í kosningun-
um 1989 hafði verið talin sú að
hann væri í of litlum tengslum við
venjulega kjósendur og hann lagði
kapp á að afsanna þá kenningu og
heilsa sem flestum í kosningabarát-
tunni.
Margt benti til þess að kosning:
amar mundu marka þáttaskil. í
fyrsta skipti hefur verið að mynd-
ast almenn samstaða um að tími
sé kominn til að hafna sósíalisma
Nehrus og í fyrsta skipti var Kon-
gressflokkurinn og stuðningur við
hann ekki aðalkosningamálið. Sýnt
þ'ótti að ef Kongressflokkurinn tap-
aði yrði Rajiv Gandhi að hætta af-