Morgunblaðið - 26.05.1991, Síða 13
skiptum sínum af stjórnmálum.
Kongressflokknum var ógnað frá
hægri jafnt sem vinstri. Hægrisinn-
aðir Hindúar börðust gegn því
frjálslyndi sem Nehru hafði boðað
í veraldlegum efnum og vinstri-
sinnar börðust gegn völdum yfir-
stétta, sem fjölskylda Gandhis til-
heyrir. Janata-flokkur Hindúa virt-
ist sópa til sín fylgi með ásökunum
sínum um linkind í garð múhameðs-
trúarmanna og Þjóðfylking Singhs
jók fylgi sitt á kostnað Kongress-
flokksins með loforðum sínum um
fjölgun lágstéttafólks í stöðum hjá
ríkinu.
Þegar fyrsta lota kosninganna
hófst daginn áður en Gandhi var
myrtur var Janata-flokkurinn viss
um að hann mundi koma í veg fyr-
ir að Kongressflokkurinn fengi
meirihluta á þingi, sem hann missti
1989, og komast í oddaaðstöðu.
Nú mun Kongressflokkurinn reyna
að færa sér morðið í nyt og það
getur haft mikil áhrif á úrslitin.
Val á nýjum leiðtoga hefur þegar
leitt til valdatogstreitu, sem getur
klofið flokkinn.
Sérfræðingar segja að búast
megi við að morðið veiki stöðu Jan-
ata- flokksins og auki fylgi Kon-
gressfiokksins, sem muni fá fylgi
frá kjósendum sem hafí séu fullir
samúðar eftir morðið á Rajiv nú
eins og eftir morðið á Indíru í kosn-
ingunum 1984.
Um leið er sagt að margir þeir
sem hafi ekki getað sætt sig við
Rajiv Gandhi muni nú koma aftur
til liðs við Kongressflokkinn. Uppi
eru vangaveltur um að Shekar for-
sætisráðherra, stuðningsmenn hans
og fleiri miðjumenn, sem hafa sagt
skilið við Kongressflokkinn, muni
ganga í hann aftur. Þar með mundu
aukast líkur á því að flokkurinn
geti aftur unnið hylli múhameðstrú-
armanna og annarra öflugra þjóðfé-
lagshópa, sem hafa snúið við honum
baki.
Sumir eru á öðru máli. Þeir benda
á að kjósendur hafi fylkt sér um
Kongressflokkinn 1984 vegna þess
að þá hafi hann virzt kjölfestan í
indverskum stjórnmálum. Nú sé
flokkurinn ekki lengur talin þessi
kjölfesta heldur Janata- flokkurinn
og fylgi hans geti því aukizt, enda
virðist hann hafa staðið sig vel í
fyrstu lotu kosninganna.
Talsvert löngu áður en Gandhi
var myrtur voru ýmsir sérfræðingar
farnir að efast um að takast mundi
að varðveita einingu Kongress-
flokksins. Þeir telja tímabært að
flokkurinn klofni í þrennt, í flokka
hægi-imanna, vinstrisinna og miðju-
manna.
Sumir hafa óttazt að Indveijar
muni fórna pólitísku frelsi, sem oft
jaðrar við stjórnleysi, til að tryggja
framfarir í efnahagsmálum. Aðrir
hafa talið aukna valddreifingu til
fylkisstjórna nauðsynlega til að
koma í veg fyrir aukin áhrif aðskiln-
aðarsinna. Gandhi var ekki talinn
skilja nauðsyn þess að draga úr
ofurvaldi Kongressflokksins, en
síðan hann var myrtur virðast
vandamálin torleystari en áður.
Skömmu fyrir kosningarnar
sagði Gandhi í viðtali að mestu
máli skipti að „þjóðin og menning
hennar héldu velli.“ Eftir morðið
lagði The Times of India áherzlu á
að lýðræðið væri í hættu og hvatti
þjóðina til að standa saman og
halda ró sinni. „Indveijar hafa aldr-
ei verið eins sundraðir síðan þeir
fengu sjálfstæði,11 sagði blaðið.
„Stétt hefur verið att gegn stétt,
trúarhópum gegn trúarhópum. Svo
hefur virzt að þjóðin sé hætt að
láta skynsemina ráða.“
Erlendur stjórnarerindreki sagði
hins vegar að þótt efasemdir hefðu
vaknað um framtíð lýðræðisins
hefði stuðningur Indveija við það
verið merkilega öflugur. Hann taldi
fráfall Gandhis auka líkur á því að
leiðtogar miðjumanna í indverskum
stjórnmálum mundu gera út um
ágreining sinn og að hættunni við
lýðræðið yrði bægt frá. Þar sem
þessi ágreiningyr hefði aðallega
snúizt um menn en ekki málefni,
fyrst og fremst Rajiv Gandhi,
mundu áhrif miðjumanna aukast
og þeir ættu að geta eflt þjóðarsam-
stöðu.
IQSl ÍAM 3UÖAOÍJTOÍU8 QIGAJHKUpflOl't
----itIORGUNBUAÐÍ©-SUNNUDA-GUft-2«TÍtlAi-b99t-
lá
á garðbekkjum og leiktækjum,
ídagkl. 10-18
f Bamasmiðjunni, Kársnesbraut 108 ^(ekið niðurfyrir húsið)
Garðbekki r—Ról u r—Kastal i—Vegasalt—Gormatæki
...sannkölluð „svíta“ á hjólum...
FIMM STÆRÐIR OG VERÐ
ALPEN KREUZER tjaldvagnarnir fást ífimm stærðum:
A.K. DUET........................275 kg. 19 fm. 2 svefnpl. Verð kr. 322.200,-
A.K. ALLURE....................300 kg. 26 fm. 4-8 svefnpl. Verð kr. 358.800,-
A.K. SELECT....................300 kg. 21 fm. 2-4 svefnpl. Verð kr. 368.000,-
A.K. PRESTIGE..................328 kg. 30 fm. 4-7 svefnpl. Verð kr. 379.000,-
A.K. SUPER GT..................320 kg. 27 fm. 4-7 svefnpl. Verð kr. 393.000,-
(Alh. Allor gerðirnar loko melro en 200 kg. forangurs).
alpenj<reuzer umboðið,
Lágmúla 9, 108 Reykjavík. Sími 629990.
Telefax 622725.
TJALDAÐ Á SVIPSTUNDU
Það tekur aðeins sekúndur að tjalda aðaltjaldi flestra
gerða ALPEN KREUZER vagnanna. Fortjald og sóltjald
eru hinsvegar reist og stöguð á fáeinum mínútum. Tjald-
dúkurinn er níðsterkur og stenst hin verstu veður. Eftir
tjöldun eru vagnarnir lokaðir af niður við jörð (sem er
m.a. vörn gegn gólftrekk).
Allt innifalið í verði
Það sem einkennir ALPEN KREUZER tjaldvagnana er
hversu ríkulega útbúnir þeir eru. Þeir eru aðeins fáanleg-
ir með öllu. Dæmi um staðalbúnað þeirra er: 1. For-
tjald. 2. Sóltjald. 3. Botn í fortjald. 4. Gluggatjöld. 5.
Innitjöld. 6. Gaseldavél með þrem hellum og gasör-
yggi. 7. Vaskur úr ryðfríustáli. 8. Eldhúsborð. 9. Eldhús-
skápar. 10. Hnífaparaskúffa. 11. Matborð. 12. Læsan-
legt öryggishólf. 13. Varahjól með festingu undir grind.
14. Jafnvægistjakkar. 15. Beislistengi til að minnka fyrir-
ferð við geymslu. 16. Öryggishemlar. 17. Handhemill.
18. Hjálparhemlar er virka þegar hemlum þílsins er
beitt. 19. Stillanlegt nefhjól á beisfi. 20. Yfirbreiðsla er
nær niður fyrir neðstu brún vagnsins.
ÞÝSKIR GLÆSIVAGNAR
ALPEN KREUZER tjaldvagnarnir eru smíðaðir í Þýska-
landi eftir ströngustu kröfum um gæði og öryggi. Til
dæmis má nefna að allir vagnarnir eru búnir öryggis-
og hjálparhemlum, sjálfstæðri gormafjöðrun með högg-
deyfum, stórum (13 tommu) hjólbörðum, varahjólbarða
og að sjálfsögðu fullkomnum Ijósabúnaði. Vagnarnir
eru sterkbyggðir og vandaðir að allri gerð og lýsa útsjón-
arsemi hönnuða sinna. Reynslan hefur sýnt að þeir
henta íslenskum aðstæðum með ágætum.