Morgunblaðið - 26.05.1991, Page 22

Morgunblaðið - 26.05.1991, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991 JMfYgmiltibifttfr Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Atvinnulífið og þenslan Iumræðum þeim, sem fram hafa farið að undanförnu hefur mjög verið rætt um óeðlilega og hættulega þenslu í efnahagslífinu. í því sam- bandi hefur verið vitnað til þess, að innflutningur hafi aukizt um 20% frá áramótum, bílainnflutningur um 70% o.sv. frv. Ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar miða m.a. að því að slá á þessa þenslu. Til þess eru full rök, enda er þessi þensla ekki sprott- in úr kraftmiklu atvinnulífi og stór- auknum tekjum þjóðarinnar heldur af peningalegum ástæðum og þá fyrst og fremst miklum hallarekstri opinbera geirans. Við þurfum ekki á þeirri þenslu að halda, sem nú er reynt að hemja, en við þurfum á annars konar þenslu að halda. Við þurfum á því að halda að atvinnulífið vaxi og dafni á nýjan leik eftir þann öldudal kreppu og erfiðleika, sem við höfum gengið í gegnum á þriðja ár. Sjávarútvegur- inn hefur að jafnaði verið sá drif- kraftur, sem keyrir allt atvinnulífið og efnahagslífið upp úr öldudalnum. Að einhverju leyti er það að gerast nú. Fjölmörg sjávarútvegsfyrirtæki ganga vel, afurðaverð hefur farið hækkandi á erlendum mörkuðum og ýmis merki má sjá um það, að góð- æri í sjávarútvegi er að byija að breiðast út um þjóðfélagið allt, eins og svo oft áður. Þó eru því meiri takmörk sett en oft áður, hversu langt sjávarútveg- urinn getur dregið þjóðarskútuna upp úr öldudalnum. Útgerð og físk- vinnsla eru atvinnugreinar, sem um 1 zlQ VIÐ GET" XTtí/*um ekki haidið áfram að nota gömul orð einsog við höfum gert. Ég hef minnzt á það í þessum pistlum og einnig í grein í Frelsinu þarsem bent er á hvernig orðum er hagrætt í áróðri og hvernig þau eru eyðilögð. Ein- ræðisseggir svífast einskis í þessum efnum og lýðræðissinnar fara óvar- lega með orð, ef það hentar. Orð eru varasöm. í fréttum útvarpsins var sagt frá rússneskum þjóernis- sinnum sem vilja andæfa gegn opn- un og umbótum, þ.e. perestrojku Gorbatsjovs, og voru nú allt í einu farnir að skrifa í málgagn „íhalds- manna“. Þar fauk sú gamla merk- ing þessa annars ágæta orðs. Þjóðviljinn er sagður málgagn sósíalisma og þannig er merking orðsins tekin að breytast, nema miðstýring og þjóðnýting séu enn á dagskrá Alþýðubandalagsins og ekkert sé að marka hátíðlegar yfir- lýsingar um annað. Sósíalistar ann- ars staðar, þarámeðal á Spáni hafa breytt flokki sínum i borgaraleg samtök sem eiga lítið skylt við þjóð- nýtingar- og miðstýringarflokka og væru líklega hægra megin við Sjálf- stæðisflokkinn að öllu athuguðu. Ragnar Stefánsson segir í hug- leiðingu í Þjóðviljanum stefna Ólafs Ragnars Grímssonar sé „gamal- kunn aðferð íhaldsins“, að fiytja austur á Volgubakka þegar erfið- lega gengur að veija sókn róttækra afla heimafyrir, einsog hann kemst að orði. Og ekki nóg með það, held- ur bætir hann við liðsmenn Ólafs Ragnars „vildu aukið svigrúm markaðsaflanna". Það fer að verða erfitt að átta sig á vígorðum, eða einkunnarorðum fjóðviljans. Eða hvernig eigum við að fjalla um stjórnmál og stefnuna í efnahags- málum ef sósíalismi er ekki lengur handa óríku fólki til að lumbra á kapítalistum, heldur merkir hann nánast það sama og þessi hræðilegu kapítalistar setja á oddinn, þ.e. kröfur um fijálsan markað, sam- keppni og ósýnilega hönd til að stjórna henni. Ólafur Ragnar Grímsson hefur lýst því yfir — líklega af pólitískri nauðsyn — að gömul gæluorð, eins- og hann kemst að orði, kratar og kommar, geti „vissulega villt mönn- um sýn ef slíkir merkimiðar eru teknir bókstaflega“. Hann vill því leggja þessi orð til hliðar einsog hann segir, „setja þau í lokaða skápa með öðrum safngripum frá liðinni sögu“. Og ennfremur: „Feimni við að orða orðið jafnaðarstefna um málstað Alþýðubandalagsins á sér engar efnislegar forsendur og jafngildir aðeins ávísun á óvissuna, andstæð- ingum flokksins til ánægju . . . Al- þýðubandalagið er flokkur íslenzkra jafnaðarmanna. Getur ekki verið annað, vill ekki vera annað.“ En jafnaðarmenn eru ekki marx- istar. Þeir eru ekki sósíalistar að okkar skilningi. Allir jafnaðar- mannaflokkar Evrópu eru í raun einhvers konar borgaraflokkar sem eru miklu lengra til hægri hvað kapítalið snertir en tilaðmynda Sjálfstæðisflokkurinn sem þarf að taka mið af litlu þjóðfélagi og borg- aralegri millistétt sem á ekki mikið undir sér miðað við auðkýfingana í krataflokkunum austan hafs. Með allt þetta í huga er orðið sósíalismi nánast merkingarlaust þarsem það stendur sem einkunnar- orð Alþýðubandalagsins. ~t FTri Sumt fólk er alltaf að -l-tlv/»gefa öðrum einkunnir. Þetta fólk heldur það sé fjallkóng- ar, en við hin dilkarnir. Helzt vildi það, hygg ég, hafa líf okkar í hendi sér. Það eru fjallkóngarnir í stjórn- málunum sem hafa komið óorði á pólitíkina. En þá er alls staðar að finna, ekki sizt í listum. Oft eru þeir gagnrýnendur, skrifa um bæk- ur einsog þær ættu að vera en ekki einsog þær eru. Halldór Laxness hefur bent á þetta öðrum betur. Flestir hafa fjallkóngamir í bók- menntum verið á vinstra væng svo- kölluðum en þeim hefur einnig skot- ið upp á hægra kantinum. Þessi fjallkóngaforsjá er eitthvað það hvimleiðasta sem ég þekki. Forsjár- hyggja fyrir alvitringa. Hvernig væri að leyfa rithöfundum að skrifa þær bækur sem þeir vilja sjálfir? Hvers vegna alltaf að telja maður hafi það í hendi sér, hvern á að setja á og hveijum ætti að farga. Og hvernig væri að leyfa fólkinu stundum að hafa sínar skoðanir? Það hefur að vísu mikinn áhuga á fjallkópgunum vegna þess það nær- nokkurra ára skeið hafa búið við aflatakmarkanir, sem gera það að verkum, að vöxtur í sjávarútvegi takmarkast annars vegar af því hvað afurðaverð hækkar mikið erlendis og hins vegar af því hvað hagræðing í atvinnugreininni skilar miklu. Þar sem um er að ræða gífurlega offjár- festingu bæði í skipum og fiskverk- unarhúsum miðað við þann afla, sem nú berst á land og mun berast á land í fyrirsjáanlegri framtíð er ekki við því að búast, að ný alda fjárfest- ingar í sjávarútvegi kveiki í efna- hagslífmu eins og stundum áður. I landbúnaði snýst baráttan fyrst og fremst um það að draga úr fram- leiðslu. í byggingariðnaðinum er staðan sú, að enn er mikið af at- vinnuhúsnæði, sem stendur ónotað í landinu, ekki sízt á höfuðborgar- svæðinu, þannig að tæpast er við að búast mikilli uppsveiflu á þeim vígstöðvum. Svigrúm almenns iðn- aðar er áreiðanlega takmarkað og þótt stöðug þróun sé í átt til aukins útflutnings á framleiðsluvörum iðn- aðarfyrirtækja er þar ekki um að ræða magn eða íjárhæðir, sem sköp- um skipta. Það er af þessum sökum, sem það hefur svo mikla þýðingu fyrir okk- ur, að viðunandi samningar takist um byggingu nýs álvers eða annars stóriðjuvers í landinu. Okkur vantar nýjan vaxtarbrodd í atvinnulífið. Hann getur einungis komið með aukinni hagræðingu í sjávarútvegi, með nýjum stóriðjufyrirtækjum og með þeim auknu viðskiptum, sem fylgja mundu í kjölfar aukins fijáls- ræðis í samskiptum okkar og Evr- ópuþjóða. Þess vegna er það sér- stakt fagnaðarefni, að jákvæðari fréttir berast nú bæði af viðræðum EB og EFTA og viðræðum íslenzkra stjórnvalda og álfyrirtækjanna þriggja. Þessi litla þjóð á mikið und- ir því, að farsæl málalok fáist í þess- um stóru málum báðum. ist á skrifum þeirra einsog hveiju öðru slúðri. Gagnrýni er oft einsog bæjarslúður, hefur Kristján Karls- son bent mér á og ég hef nefnt áður. Hvað segir hann; eða hún? Hver talar illa um hvern? Þetta er mátulegt á hann(!) Hann er innund- ir(!) Hún ætti bara að halda sig á mottunni(!) Og þar frameftir götun- um. En fólkið hefur, þráttfyrir allt, sínar eigin hugmyndir og það sem betra er, almenningur hefur sinn smekk. Oft allgóðan smekk. Og hann getur verið fordómalausari en fjallkóngamir. Yndi og uppáhöld vistri manna eru yfirleitt sett á, þau lenda ekki í sláturhúsinu. Þetta dugði þegar ég var ungur. En nú er öldin önnur. Enginn bíður lengur í ofvæni eftir því kóparnir sem flæktust í ósýnilegt net marxismans kenni fólki að varast þessi sömu net. En þetta gráa gaman hefur haft letjandi áhrif á umhverfið. Ég þykist hafa þónokkra reynslu fyrir því skáld séu viðkvæm, þótt þau séu misjafnlega viðkvæm. Og þá oft og einatt illa útbúin í því kald- ranalega umhverfi sem er viðfangs- efni þeirra og ástríða. Huldufólks- byggð einhverskonar hentaði til- finningum þeirra og hughrifum líklega betur en það sýnilega gaddavírsumhverfi sem einkennist af olnbogaskotum og áreitni; tengsl við jörðina; náttúrukvikuna og dul- arfull ævintýri hennar, sem týnast í skarkalann. Skáld eru talsmenn drauma og leyndardóma sem tíminn vefur hægt og sígandi inní áþreifan- legan veruleika sinn. Fátt lýsir bet- ur ofnæmi skáldsins fyrir umhverfi sínu en þessar línur Frödings um skáldið Wennerbom: Veg hann fann til vorsins draumalands, vær er blundur hans. Þá er skáldið sælast, er það sefur. í draumheimum getur skáldið upp- lifað kvíðalaust og án nagandi sárs- auka þann veruleika sem deyr á því andartaki sem það opnar aug- un. Ef ég man rétt þá var það bandaríska skáldskonan misskilda sem nú er flestum öðrum skáldum þekktari, Emily Dickinson, sem sagði það væri löng leið að opna augun. M. (meira næsta sunnudag.) HELGI spjall a Vorið 1983 tók ný ríkis- stjórn Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar- flokks við völdum. Við henni blasti m.a. verð- bólga, sem var komin upp í 130%. Eitt fyrsta verk hennar var að af- nema vísitölutengingu launa og verðlags, sem hefur aldrei verið tekin upp aftur í þeirri mynd, sem þá var. Hins vegar var engin breyting gerð á verðtryggingu fjár- skuldbindinga. Morgunblaðið gagnrýndi þessa ráðstöf- un ríkisstjórnarinnar á þeirri forsendu, að með því að afnema verðtryggingu launa en halda verðtryggingu fjárskuldbindinga væ'ri öllum forsendum fyrir langtímaskuld- bindingum fjölda fólks breytt með þeim hætti, að óviðunandi væri. Um þetta sagði í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins hinn 9. júlí 1983: „í stjórnarmyndunarviðræðum Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks varð niðurstaðan hins vegar sú, að taka kaup- gjaldsvísitöluna úr sambandi en ekki láns- kjaravísitöluna. Þess í stað var húsbyggj- endum boðið upp á að fresta hluta afborg- ana og vaxta lána þar til síðar. Síðan hef- ur það misræmi, sem á skömmum tíma mun skapast vegna takmarkaðra launa- hækkana en umtalsverðra hækkana á láns- kjaravísitölu, leitt til umræðna um þessa stöðu. Þær umræður og sú gagnrýni mun fara vaxandi, eftir því sem frá líður. í öllum viðskiptum skiptir það höfuð- máli að skapa traust. Þetta á ekki sízt við um nokkra grundvallarþætti í fjármálalífi þjóðarinnar. Það er mikilvægt, að þeir sem eiga íjármuni og binda þá til ákveðins tíma í verðtryggðum spariskirteinum ríkissjóðs, almennum verðtryggðum skuldabréfum eða á verðtryggðum innlánsreikningum bankanna, geti treyst því, að stjórnmála- menn breyti ekki í einu vetfangi þeim for- sendum, sem lágu til þess, að þeir voru tilbúnir að festa fé sitt. Þegar um þetta var fjallað í viðræðum ríkisstjórnarflokk- anna mun það hafa verið mat sérfræð- inga, að yrði lánskjaravísitalan tekin úr sambandi eða skert eins og kaupgjalds- vísitalan, gæti það orðið þungt áfallt fyrir allt íjármálakerfi þjóðarinnar, þar sem fjármagnseigendur gætu þá augsýnilega engu treyst. Rökin fyrir þessu eru augljós. A hinn bóginn er ljóst, að húsbyggjend- ur, sem hin síðari ár hafa tekið á sig verð- tryggðar fjárskuldbindingar, hafa einnig gert það á ákveðnum forsendum og þær forsendur hafa verið, að hækkun kaup- gjaldsvísitölu og lánskjaravísitölu yrði mjög áþekk. Sem dæmi um þetta má nefna, að þegar einn lífeyrissjóðanna reið á vaðið með verðtryggð lán til sjóðfélaga til langs tíma, var röksemdafærsla sjóðsins sú, að jafnvel þótt höfuðstóll lánsins svo og upphæð árlegra afborgana mundi hækka jafnt og þétt yrði afborgunin svo til sama hlutfall af launum viðkomandi eins og í upphafi. Á þessum forsendum og í þessari trú hafa húsbyggjendur tekið verðtryggð lán á undanförnum árum. Á sama hátt og ekki má bijóta niður traust fjármagnseigenda til fjármálakerfisins er jafnljóst, að ekki er til fýrirmyndar að gjörbreyta með einu pennastriki þeim for- sendum, sem lántakendur hafa lagt til grundvallar sínum gjörðum ... ... Með aðgerðum ríkisstjórnarinnar í upphafi hefur á engan hátt verið dregið úr trausti og tiltrú fjármagnseigenda til fjármálakerfisins og það er auðvitað mikil- vægt í sjálfu sér. Hins vegar hefur forsend- um fyrir lántöku fjölmargra húsbyggjenda og atvinnufyrirtækja verið gjörbreytt. Ríkisstjómin verður að gera sér ljóst, að vandi þessara aðila er óleystur." Þessi ákvörðun þáverandi ríkisstjómar leiddi til svo mikilla og afdrifaríkra vanda- mála fyrir þúsundir húsbyggjenda á þeim tíma, að nokkrum árum seinna varð að gera sérstakar ráðstafanir og taka upp sérstök greiðsluerfiðleikalán til þess að leysa úr vanda þeirra og tókst það þó ekki nema að takmörkuðu leyti vegna þess, að mikill fjöldi fólks missti allar eig- ur sínar m.a. og ekki sízt af þessum sökum. Nokkrum árum seinna stóðu svo spari- fjáreigendur frammi fyrir því, að ríkis- stjórn tók ákvörðun um að breyta grund- velli lánskjaravísitölu með þeim hætti, að þeir báru skarðan hlut frá borði miðað við það, sem þeir máttu ætla, þegar þeir festu fé sitt í verðtryggðum verðbréfum ríkis- sjóðs eða annarra aðila. MORGUNBLAÐIÐ hefur í engu breytt þeirri skoðun, sem forsendum sett var fram á þessum vettvangi í júlí 1983, að það sé óveijandi, að stjórn- völd grípi til ráðstafana í efnahags- og fjármálum, sem kippi gjörsamlega stoðun- um undan langtímaráðstöfunum fólks og fyrirtækja eins og fasteignakaup óneitan- lega eru. Með sama hætti og sá sem fest- ir sparifé sitt í verðbréfum með ákveðnum skilmálum á að geta treyst því, að þeim skilmálum verði ekki breytt honum í óhag, á lántakandi, sem tekur á sig skuldbinding- ar jafnvel til 25 ára, að geta treyst því, að þeim skilmálum á skuldbindingum hans, sem hann hefur byggt ráðstafanir sínar á, verði ekki breytt og honum í mörgum tilvikum gert ókleift að standa við þær skuldbindingar. Nú er um það rætt að selja húsbréfin á erlendum markaði. Með sama hætti og við höfum nú heimild til að kaupa erlend verðbréf er ekkert athugavert við það, að útlendingar geti keypt íslenzk verðbréf. Væntanlega er hins vegar öllum, sem hlut eiga að máli ljóst, að ef tækist að selja húsbréf í einhveiju magni á erlendum markaði og ríkisstjórn á Islandi mundi gera ráðstafanir, sem fælu í sér grundvall- arbreytingu á þeim skilmálum, sem hús- bréfin byggja á, t.d. í sambandi við grund- völl lánskjaravísitölu eða breytingu á ríkis- ábyrgð, sem þýddi minni ábyrgð ríkisins en ella á þessum bréfum og ætlast væri til, að sú aðgerð væri afturvirk og hefði áhrif á þau bréf, sem búið væri að selja erlendis, mundi slík ráðstöfun á svipstundu eyðileggja alla möguleika á sölu slíkra bréfa og annarra íslenzkra verðbréfa er- lendis. Að því leyti til gæti það orðið vörn fyrir landsmenn hér heima fyrir, að slík bréf væru sett á markað erlendis, að islenzk stjórnvöld mundu ekki dirfast að koma þannig fram við erlenda fjárfest- ingaraðila, þótt þau fari létt með að beita sér með þessum hætti gagnvart innlendum sparifjáreigendum eða lántakendum. Að þessu vék Gunnar Helgi Hálfdanarson, forstjóri Landsbréfa hf. einmitt í samtali við Morgunblaðið í gær, föstudag, er hann ræddi vissa erfiðleika á sölu slíkra bréfa erlendis og sagði m.a.: „Þeir (þ.e. erlendir fjárfestar) skynjuðu hættuna á, að fjár- festa í bréfum tryggðum með lánskjara- vísitölu í ljósi þeirrar breytingar, sem gerð hefur verið á útreikningsaðferðum henn- ar.“ Af einhveijum ástæðum hafa fjármála- sérfræðingar þjóðarinnar hins vegar ekki lagt sama mælikvarða á sparifjáreigand- ann og lántakandann í þessu sambandi. Þegar grunni lánskjaravísitölu var breytt vöruðu þeir mjög við þeim aðgerðum en þegar ráðstafanir eru gerðar, sem gjör- breyta stöðu lántakenda, gera þeir engar athugasemdir við það. Að breyta Afturvirk vaxtahækk- un Á ÞESSU ER haft orð nú vegna þeirrar ákvörðunar núverandi ríkis- stjórnar að hækka vexti á húsnæðis- lánum umtalsvert. Það er ekkert við það að athuga að hækka vexti á húsnæðislán- um. Augljóst er, að þeir hafa verið alltof lágir miðað við þá vexti, sem Byggingar- sjóður ríkisins hefur orðið að borga af þeim fjármunum, sem hann hefur tekið að láni til þess að lána aftur út til hús- byggjenda. Það er hins vegar staðreynd, að vextir þessara lána voru ákveðnir 3,5%. Það er jafnframt staðreynd, að fjölmargir lántak- endur hjá Húsnæðismálastjórn tóku lánin á þessum forsendum og byggðu langtíma- fjárfestingu í húsnæði á þessu vaxtastigi. Um leið og Morgunblaðið sér ekkert at- hugavert við að hækka nú vexti á þeim REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 25. maí húsnæðislánum, sem tekin eru frá því að vaxtahækkun er tilkynnt, getur blaðið ekki fallizt á að réttmætt sé að láta þá ákvörðun virka frá árinu 1984. Það er engin sanngirni eða réttlæti í því að breyta með þessum hætti þeim forsendum, sem lántakendur Húsnæðismálastjórnar frá árinu 1984 til vors 1991 byggðu fjárhags- ráðstafanir sínar á. Nú eru ýmis rök færð fram til stuðn- ings þessari ráðstöfun. Þegar Morgunblað- ið spurði Sigurð B. Stefánsson, fram- kvæmdastjóra Verðbréfamarkaðar ís- landsbanka hf. sl. fimmtudag, hvort þetta gæti ekki talizt siðlaus aðgerð svaraði hann: „Ég held, að þetta sé alfarið í sam- ræmi við skilmála í viðkomandi skuldabréf- um og þess vegna auðvitað löglegt og alls ekki siðlaust. Ég veit ekki betur en að þetta sé í skilmálum allra þessara skulda- bréfa. Þessi breyting er gerð, ef ég skil rétt, til þess að draga úr þessum mikla mismun, sem er milli þeirra, sem njóta lána úr gamla kerfinu og þeirra, sem eru að taka lán í húsbréfakerfínu, þar sem byggt er á markaðsvöxtum. Mér finnst ákveðið réttlæti í því, að allir þurfi að taka á sig vaxtahækkun, þegar vextir hækka vegna þess, að ekki er jafnvægi á milli framboðs og eftirspurnar eftir sparifé. Mér fyndist óréttlátara, ef einhver hópur væri stikkfrí og slyppi undan þeirri hækkun, það er að segja, þegar það er skráð inn í skilmála bréfanna, að húsnæðismálastjórn geti breytt vöxtunum, þannig að allir hljóta að hafa verið undir það búnir.“ Nú er það út af fyrir sig býsna teygjan- leg röksemd, að aðgerðir af þessu tagi eigi að vera afturvirkar til þess, að enginn hópur þjóðfélagsþegna njóti betri kjara en aðrir. I áratugi byggðu Islendingar íbúðir, sem verðbólgan borgaði niður og fengu jafnframt alla vexti frádregna frá skatti! Hvers vegna eiga þær kynslóðir, sem nú eru að koma yfir sig þaki ekki að sitja við sama borð og lnnar fyrri, ef röksemd Sig- urðar B. Stefánssonar er notuð að þessu leyti? Hitt er vafalaust rétt, að í skuldabréfum þeim, sem lántakendur hafa undirritað á árabilinu 1984 til 1991 sé gert ráð fyrir breytilegum vöxtum. Hins vegar verður ekki horft fram hjá því, að þær umræður, sem fram fóru um lánakerfið, sem upp var tekið 1986, voru með þeim hætti, að lán- takendur í því kerfi höfðu rökstudda ástæðu til að ætla, að vextir þessara lána yrðu þeir, sem um var samið í upphafi. Umræðurn- ar 1986 HINN 26. febrúar 1986 var undirritað sam- komulag milli verkalýðshreyfíng- ar og vinnuveitenda um kjaramál. Jafn- framt var gefin út yfirlýsing þessara aðila um samkomuiag, sem þeir höfðu gert með sér um húsnæðismál, sem að sjálfsögðu var ekki skuldbindandi fyrir löggjafarvald- ið en var lykill að lausn kjaradeilunnar og þáverandi ríkisstjórn tók að sér að fylgja fram. í þessari yfirlýsingu um húsnæðis- mál sagði m.a.: „ASÍ, VSÍ og VMS eru sammála um, að eitt brýnasta úrlausnar- efni kjarasamninganna sé að leita leiða til úrlausnar á þeim greiðsluvanda húsbyggj- enda, sem nú eiga í erfiðleikum og jafn- framt að finna varanlega lausn á fjármögn- unarvanda þeirra, sem eru að eignast sína fyrstu íbúð.“ Síðar í þessari yfirlýsingu sagði: „Lánstími verði 40 ár og vextir aldrei hærri en 3,5%“ Takið eftir: „ ... aldrei hærri en 3,5%.“ í sérstakri yfirlýsingu, sem ríkisstjórnin sendi frá sér og Steingrímur Hermannsson undirritaði á þessum tíma sagði: „Ríkisstjórnin felst á grundvallar- atriði þeirra hugmynda, sem fram koma í yfirlýsingu samningsaðila um húsnæðis- mál...“ Hinn 18. apríl 1986 mælti Alexander Stefánsson, þáverandi félagsmálaráð- herra, fyrir frumvarpi, sem ríkisstjómin lagði fram á Alþingi í samræmi við þessa yfirlýsingu. I ræðu sinni sagði þáverandi félagsmálaráðherra: „í tillögum nefndar þeirrar, sem samdi frumvarp þetta er gert ráð fyrir, að kveðið verði á um, að vextir af útlánum megi ekki verða hærri en 3,5% á ári. Ríkisstjórnin taldi það ekki heppilegt að kveðið væri á um hámark vaxta í lög- um. Á hinn bóginn hefur ríkisstjómin ákveðið að vextir af lánum Byggingarsjóðs ríkisins verði 3,5% á ári eins og þeir eru nú og verði ekki hærri meðan þessi ríkis- stjórn situr ... Hafa verður í huga, að þrátt fyrir háa vexti á fjármagnsmarkaði að undanförnu og þann vaxtamun, sem nú er, hafa útlánavextir byggingarsjóð- anna ekki orðið hærri en að ofan greinir. Því er óvíst, að ákvæði um vaxtaþak, eins og tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir, breyti svo miklu um vaxtaákvarðanir og núverandi ríkisstjórn mun ekki hækka vexti umfram 3,5%.“ Þessar yfirlýsingar og umræður breyta ekki því að löglegt er að hækka vexti á þeim lánum Húsnæðismálastjórnar, sem þegar hafa verið tekin og auðvitað má færa rök að því, að sú afstaða þáverandi ríkisstjórnar að lögfesta ekki vaxtastigið hafi verið vísbending um að vextir kynnu að hækka síðar en allar umræður um þetta húsnæðislánakerfi í þjóðfélaginu vom með þeim hætti, að lántakendur hafa með rök- um getað búizt við því, að þessu vaxta- stigi yrði ekki breytt. En auðvitað eru samningsaðilar á þessum tíma beztu vitnin um það, sem að var stefnt. Núverandi ríkisstjórn bendir á, að þeir, sem hafa lægstar tekjur og miðlungstekjur muni fá þessa vaxtahækkun bætta með vaxtabótum, þannig að staða þeirra verði óbreytt. Auðvitað skiptir þetta vemlegu máli. Hins vegar eru gjalddagar lánanna íjórir á ári en gjalddagi vaxtabóta einn þannig að augljóst er, að þessi vaxtahækk- un getur leitt til erfiðleika hjá þeim, sem minnst mega sín, við að standa í skilum á réttum gjalddögum. En kjarni málsins er þó sá, að hvort sem um er að ræða sparifjáreigendur eða lán- takendur, tekjulága eða tekjuháa, þá em afturvirkar ráðstafanir, sem breyta for- sendum fyrir langtímafjárfestingum fólks og fyrirtækja ekki veijandi. Og Sjálfstæð- isflokkurinn ekki sízt ætti að hafa í huga, að aðgerðir af þessu tagi, sem sá flokkur stendur fyrir, opnar vinstri stjórnum leið til margvíslegrar afturvirkrar skattlagn- ingar með tilvísun til þess að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi gert það sama. Umræður í Bretlandi í SAMTÖLUM þeim, sem Morgun- blaðið birti sl. fimmtudag við helztu sérfræðinga á fjármálamarkaðnum um þessi málefni sagði Guðmundur Hauksson, fram- kvæmdastjóri Kaupþings hf. m.a.: „Þetta eru skuldbindingar, sem fólk er búið að taka á sig, við þekkjum dæmi erlendis, þar sem þetta hefur verið gert, til dæmis í Bretlandi, þar sem uppistaðan af lánum vegna húsnæðismála er með breytilegum vöxtum. Þar er þetta beinlínis notað af stjórnvöldum, sem stjórntæki við að hafa áhrif á efnahagslífið á hveijum tíma vegna þess að þetta kemur auðvitað beint við buddu almennings, svona hækkanir eða lækkanir og hafa þá áhrif á það, hvort fólk hefur úr meiru eða minna að moða.“ Verra dæmi var varla hægt að taka til þess að veija afturvirkar vaxtahækkanir hér! Það er rétt, að í Bretlandi eru breyti- legir vextir á húsnæðislánum. Á undan- förnum misserum hefur orðið gífurleg hækkun á vöxtum í Bretlandi, þótt þeir séu byijaðir að lækka aftur. Þegar vextim- ir voru sem hæstir voru miklar umræður í fjölmiðlum í Bretlandi um þessi málefni og þar kom fram, að vaxtahækkanir af þessu tagi þýði sjálfkrafa gjaldþrot svo og svo margra einstaklinga. Töluverð átök voru innan íhaldsflokksins á síðasta ári um það, hvort auka ætti vaxtafrádrátt fólks vegna húsnæðiskaupa til þess að mæta þessu vanda og m.a. kom fram í fréttum á þeim tíma, að Thatcher þáver- andi forsætisráðherra væri því mjög hlynnt en ætti við ramman reip að draga vegna andstöðu fjármálasérfræðinga (!). En fleira forvitnilegt hefur komið fram í umræðum í Bretlandi um þessi málefni, þ.e. breytilega vexti eða fasta vexti á hús- næðislánum. Hinn 23. maí 1989 birtist í hinu heimsþekkta dagblaði The Times í London, bréf til ritstjóra frá manni að nafni Karsten Schmidt, sem þá var einn af framkvæmdastjórum brezka verzlunar- ráðsins í Þýzkalandi. Bréf þetta varð til- efni nokkurra umræðna í brezkum blöðum og m.a. um það ijallað af efnahagssérfræð- ingum Financial Times og bréfritari kom fram í brezka sjónvarpinu BBC, þar sem hann ræddi þessi málefni. í bréfinu í Times sagði bréfritari m.a.: „Sú bylgja löglegra og ólöglegra verkfalla og hótana um slíkar aðgerðir, sem nú gengur yfir m.a. í samgöngufyrirtækjum í Bretlandi og raunar víðar í brezku at- vinnulífi sýnist beinlinis eiga rót sína að rekja til mikilla hækkana á vöxtum hús- næðislána, sem hafa fylgt öðrum vaxta- hækkunum. Fjármagnskostnaður vegna húsnæðislána er komin langt fram úr því, sem ráðstöfunarfé fólks dugar til að standa undir og vaxtahækkanir hafa farið fram úr verðbólgu og kauphækkunum ... Sum- ar Evrópuþjóðir hafa ekki lent í sömu stöðu og Bretar að þessu leyti. Getur skýringin verið sú, að húsnæðislán eru veitt með föstum vöxtum í ákveðinn tíma? í Sviss og Þýzkalandi, þar sem efnahagsástand er stöðugast meðal Evrópuþjóða og raun- vextir lægstir er bönkum óheimilt að lána sparifé, sem lagt er inn til skamms tíma, í langtíma lán til húsnæðiskaupenda. Langtímalán verða að byggjast á langtímaspamaði... Tengslin á milli vaxta af húsnæðislánum og þeirra vaxta, sem geta tekið daglegum breytingum, eru rofín og hafa því ekki áhrif á daglegt líf fjölskyldna, sem þurfa að standa undir greiðslum af húsnæðislán- ' um. Heimilunum er hlíft við breytingum á vöxtum og fjölskyldur geta byggt ijár- hagsáætlanir sínar í samræmi við tekjur án þess að þurfa að krefjast kauphækkana til þess að greiða vaxtahækkanir eins og við þekkjum í Bretlandi. Af þessu leiðir líka vinnufrið.“ Bréfritari bætir svo við: „Árið 1992 má vel vera, að húsnæðislán af þessu tagi verði tekin upp í Bretlandi - og vonandi verður það svo.“ Morgunblaðið óskaði eftir því við bréfrit- ara á þessum tíma, að hann skýrði betur þau sjónarmið, sem fram komu í bréfí hans til Times og í svari til blaðsins sagði hann m.a.: „Almenningur er að mínu mati, reiðubúnari til þess að sætta sig við háa raunvexti vegna ýmissa daglegra þarfa, ef heimilum fólks, þ.e. íbúðum, er hlíft við þessum vaxtasveiflum. Sú ákvörðun að kaupa hús eða íbúð er mikilvæg fyrir nán- ast hveija einustu ijölskyldu og á að mínu mati að byggjast á skynsamlegum langtímasjónarmiðum. Þegar fasteign er keypt þarf kaupandinn að vita, hvort hann getur staðið undir þessari fjárfestingu með tekjum sínum. Fastir vextir á Iangtímalán- um eru lykilatriði í ákvörðun um kaup.“ Eins og af þessu má sjá liggur það ekki beint við að rökstyðja afturvirka vaxtahækkun með tilvísun til þess, hvem- ig þessum málum er háttað í Bretlandi! Hitt er svo annað mál, að lífeyrissjóðimir, sem standa undir húsnæðislánakerfínu að vemlegu leyti eru eign sama fólks og er að taka þessi lán. Á blaðamannafundi á dögunum vék Friðrik Sophusson, íjármála- ráðherra, orðum að lífeyrissjóðunum og benti á, að afstaða þeirra gæti ráðið úrslit- um um vaxtastig í húsnæðiskerfinu. Er nú ekki hugsanlegt að færi atkvæða- greiðsla fram meðal eigenda lífeyrissjóð- anna, fólksins í landinu, um það hvort eig- endur sjóðanna væra tilbúnir til að lána fé þeirra á föstum vöxtum til langs tíma til þess að standa undir húsnæðislánakerfi með föstum vöxtum, mundu þessir sömu eigendur komast að þeirri niðurstöðu að það væri þeim í hag, börnum þeirra og barnabömum, jafnvel þótt það kostaði þá einhveijar krónur í minni lífeyri á efri áram? Með þessari umfjöllun er engin af- staða tekin til þeirra húsnæðislánakerfa, sem hér hafa verið byggð upp. Það er umhugsunarefni, að öngþveitið á þeim vettvangi virðist vaxa en ekki minnka. En það er önnur saga. „Um leið og Morgunblaðið sér ekkert athuga- vert við að hækka nú vexti á þeim húsnæðislánum, sem tekin eru frá því að vaxtahækk- un er tilkynnt, getur blaðið ekki fallizt á að rétt- mætt sé að láta þá ákvörðun virka frá árinu 1984. Það er eng- in sanngirni eða réttlæti í því að breyta með þess- um hætti þeim forsendum, sem lántakendur Hús- næðismálastj órn- ar frá árinu 1984 til vors 1991 byggðu fjár- hagsráðstafanir sínar á.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.