Morgunblaðið - 26.05.1991, Page 43
43
ALFA
FM 102,9
8.45 Morgunbæn. Tónlist.
10.00 ístónn. islensk tónlist flutt og leikin.
11.00 Alfa-fréttir. Fréttir af því sem Guð er að gera.
Umsjón Erla Bolladóttir.
11.30 Blönduð tónlist.
16.00 „Svona er lifið." Umsjón Ingibjörg Guðnadótt-
ir.
17.00 Blönduð tónlist.
20.00 Kvölddagskrá Krossins. Dagskrárkynning,
lofgjörðartónlist.
20.15 Hver er Guð? Fræðsluþáttur. Umsjón Kol-
beinn Sigurðsson.
20.45 Rétturinn til lifs.
21.20 Kvöldsagan. Guðbjörg Karlsdóttir.
21.40 Á stundu sem nú. Umraeðuþáttur í umsjón
Gunnars Porsteinssonar.
23.00 Dagskrárlok.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Eiríkur Jónsson og morgunvakt Bylgjunnar.
9.00 Páll Þorsteinsson i morgunham. Fréttir frá
fréttstofu kl. 9,00. íþróttafréttir kl. 11. Umsjón
Valtýr Björn.
12.00 Haraldur Gíslason. Spjall um lifið og tilveruna.
12.00 Hádegisfréttir.
14.00 Snorri Sturfuson.
17.00 island i dag. Jón Ársæll Þóröarson og Bjarni
Dagur Jónsson. Fréttir kl. 17.17.
18.30 Sigurður Hlöðversson.
22.00 Haraldur Gislason á kvöldvaktinni.
2.00 Heimir Jónasson.
EFF EMM
FM 95,7
7.00 A-Ö. Steingrimur Ólafsson.
8.00 Fróttayfirlit.
9.00 Jón Axel Ólafsson.
0.00 Fréttir.
10.40 Komdu í Ijós. Jón Axel.
11.00 jþróttafréttir.
11.05 ívar Guömundsson i hádeginu.
12.00 Hádegisfréttir.
12.30 yertu með ivari i léttum leik.
13.00 Ágúst Héðinsson. Tóniistarþáttur.
14.00 Fréttir.
16.00 Fréttir
16.05 Anna BjörK Birgisdóttir.
16.30 Fregnir af flugi og flugsamögnum.
17.00 Topplag áratugarins.
17.30 Brugðið á leik.
18.00 Kvöidfréttir.
18.05 Anna Björk heldur áfram.
18.20 Lagaleikur kvöldsins.
18.45 Endurtekið topplag áratugarins.
19.00 Bandaríski og breski vinsældalistinn.
22.00 Auðun G. Ólafsson á kvöldvakt.
01.00 Darri Ólason á næturvakt.
HUÓÐBYLGJAN
Akureyri
FM 101,8
16.00 Tónlist. Pálmi Guðmundsson. Óskalög og
afmæliskveðjur i sima 27711.
17.00 l'sland í dag (frá Bylgjunni). Fréttir frá frétta-
stofu Bylgjunnar/Stöð 2 kl. 17.17. Tónlist milli
kl. 18.30 og 19.
STJARNAN
FM102/ 104
7.30 Tónlist. Páll Sævar Guðjónsson.
10.00 Tónlist. Ólöf Marin Úlfarsdóttir.
13.00 Sigurður Ragnarsson.
16.00 Klemens Arnarson.
19.00 Guðlaugur Bjartmarz.
20.00 Kvöldtónlistin þín. Arnar Bjarnason.
24.00 Næturhrafninn. Guðlaugur Bjartmarz.
Rás 1:
RúRek “91
■■I í kvöld verður út-
OA 00 varpað á Rás 1 upp-
— tökum frá sunnu-
degi á djasshátíð RúRek “91.
Þar koma fram Ellen Kristj-
ánsdóttir og folkkur mannsins
hennar, kvintekk Carls Möller
og Finns Eydals ásamt Andreu
Gylfadóttur, sextett Árna
Schevings og Penttis Lasana
og Sveiflusextettinn.
Stöð 2:
TungEð
í ræsinu
■■■■ Fjalakötturinn sýnir
OQ 50 ' kvöld frönsku
--myndina Tunglið í
ræsinu (La lune dans le
Caniveau) sem leikstjórinn
Jean-Jacques Beineix leik-
stýrði. Ung stúlka finnst- and-
vana og bendir margt til þess
að henni hafí verið nauðgað.
Bróðir hennar fyllist hefndar-
hug og ákveður að hafa uppi
á ódæðismanninum á eigin
spýtur og refsa honum.
Með aðalhlutverk fara Nast-
assia Kinski og Gérard Dep-
ardieu.
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SIONVARP SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991
Sjónvarpið:
Simpson-fjölskyklan
BBHBI Heimilislífið hjá hinni bandarísku Simpson-fjölskyldu geng-
QA 35 ur aldrei tíðindalaust fyrir sig. Höfundur syrpunnar, teikn-
“U —■ arinn Matt Groening, hefur lýst fjölskyldunni sem „hreint
út sagt fáránlegri samkundu“. Hún á sér þó fyrirmyndir í hinni
bandarísku vísitölufjölskyldu, eins og Groening sér það fyrirbæri:
Pabbinn brýnir raustina í sífellu, mamman nöldrar og sífrar og bles-
suð bömin þijú eru höfð að blórabögglum fyrir allt sem miður fer
í heimiiislífinu.
í kvöld er á dagskrá 21. þátturinn í þessum kátlega mynda-
flokki. Þýðandi er Olafur B. Guðnason.
Sjónvarpið
IMöfnin okkar
■■■■I Nöfnin okkar, fjórði þáttur Gísla Jónssonar íslenskufræð-
Ol 30 ing's. er á dagskrá Sjónvarps i kvöld. Hvað er það sem
Li\- ~ stjórnar vali okkar á skírnarnöfnum, þegar hvítvoðungur-
inn er vatni ausinn? Hvað ræður því, hvort barnið hlýtur eitt nafn
eða fleiri? Og hvers vegna verða sum nöfn að sannkölluðum tísku-
heitum meðan önnur falla í gleymsku og dá? Gísli fer hringinn í
kringum íslenska nafnaflóru í fimmtán stuttum þáttum, sem verða
á mánudagskvöldum í sumar. Þar mun hann leita svara við ofan-
greindum spurningum og ýmsum fleiri sem vakan kunna þegar aug-
um er rennt yfir símaskrána, þjóðskrána og aðrar nafnaskrár. í leið-
inni segir Gísli svo deili á ýmum algengum nöfnum sem fylgt hafa
íslenskri þjóð gegnum tíðina. í kvöld ættu Einarar þessa lands að
setjast við skjáinn, því þeir verða væntanlega nokkru fróðari um
skírnarnafn sitt að þættinum loknum. Dagskrárgerð annaðist Sam-
ver hf. á Akureyri.
Stöð 2=
Öngstræti
!■■■■ Þáttaröðin Ongstræti Hong Kong (Yellowthread Street)
91 25 íefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld en þar er fjallað um
“ \ störf lögreglunnar í þessari miklu stórborg. í þáttaröðinni
koma við sögu sjö lögreglumenn sem allir berjast með ráðum og dáð
gegn skipulagðri glæpastarfsemi og vaxandi öldu ofbeldis í borg-
inni. Sögusviðið er fjölbreytt enda er samfélagið í Hong Kong margsl-
ungið og með öðum hætti en Vesturlandabúar eiga að venjast. Bar-
áttan gegn glæpum tekur á sig óvenjulega mynd þarna þar sem
kínverska mafían, eiturlyfjabarónar og dulrænir atburðir jkoma við
sögu. Öngstræti verður vikulega á dagskrá Stöðvar 2.
GÁRUR
eftir Elínu Pálmadóttur
Eftir morgun-
daginn
Orð dagsins: Spara, spara.
Draga saman. Hagræða.
Kominn tíminn á það. Þetta
gerist víst á hveiju heimili, þegar
búið er að eyða of miklu, veita
sér lúxussumarfrí eða stækka
húsið með glerhúsi eða heitum
potti og reikningarnir streyma
inn, sem ekki er til fyrir. Á þjóð-
arheimilinu líka. Það fór jafnvel
hrollur um þessa skuldglöðu þjóð
þegar allir milljarðarnir, sem
búið var að eyða eða lofa, komu
fyrir stuttu undan teppinu, þang-
að sem þeim
hafði verið
sópað. Ólán
með þessi
teppi. Það eru
víst takmörk
fyrir hve
miklu er hægt
að sópa undir
þau, áður en
þau fara að
bunga eins og
uppblásnir
belgir af öll-
um gerðum og
falda súpan
að skríða út
undan brún-
inni. Á hvers-
dagsheimilum situr sóparinn
venjulega uppi með að vera á
staðnum og taka við skuldasúp-
unni. Verður að gera eitthvað í
málinu. Nema auðvitað þeir sem
geta farið á hausinn, lýst sig
gjaldþrota og velt skuldunum
yfir á þá sem lánuðu þeim eða
lögðu út, sem þá vökna í skulda-
súpunni. Sumir eru Iíka svo
heppnir að vera bara horfnir á
braut þegar kemur að skuldadög-
um. Verða áhorfendur. Svoleiðis
er það á þjóðarheimilinu. Og það
má alltaf taka áhættuna.
Það var því eftir allt saman
ekki út í bláinn hjá Oscari heitn-
um Wilde, þegar hann sagði: Ég
fresta því aldrei til morguns sem
ég get gert eftir morgundaginn!
Nú er dagurinn sá víst upp runn-
inn hjá stóra sjóðnum okkar allra.
Þessi skrifari hefur greinilega
smitast af alþingismönnum,
fréttamönnum og öllum hinum
og er í ofurkappi farinn að líta
eftir útgönguleið: Hvar ætli megi
hagræða obbolítið? Byijaði raun-
ar í síðasta pistli og getur ekki
hætt. Skortir djörfung og dug til
að segja eins og Theodór heitinn
Roosevelt, Bandaríkjaforseti: Við
eigum ekki að biðja um léttari
byrðar heldur sterkari bök.
Fyrir augum varð þá svið sem
illa þolir samdrátt, einfaldlega
af því að svo lítið er til að draga
saman. Sviðið sem hefur blásið
hér svo ánægjulega út á undan-
förnum árum, tónlistin. Tónlist-
arlífíð hefur tekið stökk fram á
við í gæðum og magni, flytjend-
um og áheyrendum síðan tónlist-
arskólarnir komu til með, tæki-
færi fyrir alla til vissrar mennt-
unar. Nú streyma flytjendurnir
heim, færandi hendi og fullir af
áhuga, en of lítið svigrúm fyrir
þá. Ekki er það efnilegt á sam-
dráttarskeiði í skuldasúpu.
Þá rak ég augun í ummæli
eins af þessum ungu, glæsilegu
söngvurum sem ætlar þrátt fyrir
allt að reyna að þreyja þorrann
og góuna hér heima, Bergþór
Pálsson óperusöngvara. Hafði
raunar heyrt eitthvað í þá áttina
hjá tónlistarfólki sem starfað
hefur erlendis. Eftir að hafa hrós-
að þeirri uppbyggingarstarfsemi
sem hér hefur orðið er Bergþór
spurður hvað hann mundi leggja
til: „Það væri tii dæmis hægt að
setja á laggirnar öflugt fyrirtæki
fyrir alla sviðslist. Þetta fyrirtæki
er reyndar til, en það starfar í
mörgum litlum einingum og á
afar óhagkvæman hátt. Hér
starfa fastráðnir hljóðfæraleikar-
ar í Sinfóníuhljómsveitinni og
fastráðnir leikarar og balletdans-
arar í Þjóðleikhúsi. í íslensku
óperunni eru söngvarar hins veg-
ar lausráðnir. í Þýskalandi þykir
sjálfsagt að allir þessir iistamenn
hafi einn starfsmannastjóra sem
hefur umsjón með vinnu þeirra.
Allir listamennirnir eru á sömu
starfsmannaskránni í sömu tölv-
unni hjá sama aðilanum. Hér
pukrast menn hins vegar hver í
sínu horni og afleiðingin er óhag-
kvæmni. Það er til dæmis erfitt
að ná saman hóp af hljóðfæralei-
kurum til að leika í ópei-usýn-
ingu, því oft eru það sömu menn-
irnir sem leika í Sinfóníuhljóm-
sveitinni og í óperunni. Mér þætti
skynsamlegra að þau bágbornu
laun sem hljóðfæraleikarar í Sin-
fóníuhljómsveitinni búa við, yrðu
gerð sómasamleg. Þannig yrði
kleift að nýta þá bæði í óperusýn-
ingum og sinfóníutónleikúm.“
Ekki man ég betur en að hafa
heyrt íslending, sem starfað hef-
ur í sinfóníuhljómsveit í Svíþjóð,
segja frá því að þar í borg léku
fastráðnir hljóðfæraleikarar líka
í óperu staðarins. Starfíð skipu-
lagt þannig og þeim bæri að leika
á hvorum staðnum sem er. Og
hörpuleikari í starfi í Hollandi
sagði eitthvað á þá leið að í ráðn-
ingunni fælist að leika á fleiri
stöðum eftir þörfum. í þessari
miklu grósku í íslensku tónlist-
arlífí á stuttum tíma hefur það
beinlínis sprungið út og teygt
annana í allar áttir, hvar sem
ljósglætu hefur verið að fínna.
Því eðlilegt að skapnaðurinn á
jurtinni sé tilviljanakenndur,
kannski svolítið vanskapaður. Er
ekki tími til kominn að skoða
hana frá grunni og kannski
„skera hana sundur og saman“,
eins og hástemmdur ræðumaður
orðaði það eitt sinn við vígslu
pýrrar sjúkradeildar. Að hag-
ræða svo þeir peningar sem til
eru í málaflokkinn nýtist sem
best meðan þröngt er í búi.
Kannski komumst við ein-
hverntíma úr skuldasúpunni ef
við verðum dugleg að spara og
hagræða. Segjum eins og Kjeld
Kirk Kristiansen, forseti Lego-
fyrirtækisins, þegar hann var
beðinn að skýra velgengni þessa
danska fjölskyldufyrirtækis:
„Síðast þegar pabbi fór í banka
til að fá lán, sem var um 1950,
þá leist honum ekki á það.“