Morgunblaðið - 29.06.1991, Síða 1
72 SIÐUR B/LESBOK
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að óhrekjandi sannanir
væru fyrir því að Irakar hefðu brotið vopnahlésskilmála Sameinuðu
þjóðanna og heimildarmaður í Hvíta húsinu sagði miklar líkur á því
að Bandaríkjaher gripi til aðgerða gegn írökum, sem beinast myndu
að stöðum þar sem talið er að írakar geymi kjarnorkuvopn eða efni
og búnað til framleiðslu þeirra.
Bush kallaði í gær á sinn fund
háttsetta öryggismálaráðgjafa en
talsmaður hans vildi ekki staðfesta
að þeir væru að ræða framkomu
Iraka gagnvart sendinefnd á vegum
Sameinuðu þjóðanna sem skoða á
staði í írak þar sem kjarnorka er
meðhöndluð. Nefndinni var í gær
enn meinaður aðgangur að herstöð
þar sem nefndarmenn ætluðu að
skoða búnað og tæki. Á fundinum
voru rri.a.' varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, Richard Cheney,
Brent Scowcroft, ráðgjafi í þjóðarör-
yggismálum, og Colin Powell, for-
seti herráðsins.
Eftirlitsnefnd á vegum Samein-
uðu þjóðanna var í gær meinaður
aðgangur að íraskri herstöð og að
sögn heimiidarmanns innan SÞ
skutu íraskir hermenn upp í loftið
þegar nefndarmenn og fylgdarmenn
þeirra reyndu að taka myndir af
flutningabílum, sem ekið var í flýti
frá herstöðinni, og reyndu hermenn-
irnir einnig að grípa af þeim mynda-
vélarnar. Atvikið átti sér stað við
flutningamiðstöð hersins austur af
bænum Fallujah.
Fyrr í vikunni var eftirlitsmönnum
SÞ meinaður aðgangur að annarri
herstöð í 72 klukkustundir og þegar
þeir loksins fengu að fara inn í stöð-
ina á miðvikudag var búið að fjar-
lægja búnað sem þeir höfðu séð úr
fjarlægð. Bandaríkjamenn halda því
fram að búnaðurinn hafi verið notað-
ur til vinnslu úraníums sem Irakar
noti til leynilegrar framleiðsiu kjarn-
orkuvopna.
Atvik þessi urðu þess valdandi að
boðað var í skyndingu til lokaðra
funda meðal þeirra sem sitja í örygg-
isráði SÞ. Eftir fund Bush og
öryggisráðjafa hanssagði heimildar-
maður í Washingon miklar líkur á
að Bandaríkjamenn myndu gera ár-
ásir á staði þar sem þeir teidu að
kjarnorkuvopn eða efni og búnað til
framleiðslu þeirra væri að flnna.
Heimildarmaðurinn sagði að írakar
hefðu brotið samþykktir öryggisráðs
SÞ með framkomu sinni við eftirlits-
mennina.
Síðar í gær greindi írösk frétta-
stofa frá því að Saddam Hussein
íraksforseti hefði skipað íröskum
embættismönnum að hafa fulla sam-
vinnu við eftirlitsmenn SÞ og fara
í öllu eftir samþykktum öiyggisráðs-
ins.
m s
Reuter
Liðsmenn heimavarnarliðs Slóveníu búa sig undir bardaga við hermenn Júgóslavíuhers í gær. Skömmu
áður en myndin var tekin misstu þeir einn af félögum sínum í skotbardaga.
Slóvenar og Júgóslavíu-
stjórn semja um vopnahlé
Belgrad, Ljubljana. Reuter.
STJORNVÖLD í Júgóslavíu og Slóveníu skýrðu frá því í gærkvöldi
að þau hefðu samið um vopnahlé eftir harða bardaga í lýðveldinu í
tvo daga. Milan Kucan, forseti Slóveníu, sagði í sjónvarpi lýðveldisins
að hann og Stane Brovet, aðstoðarvarnarmálaráðherra Júgóslavíu,
hefðu komist að samkomulagi um þetta í símasamtali. Talsmaður júgó-
slavneska utanríkisráðuneytisins sagði að Ante Markovics, forsætisráð-
herra Júgóslavíu, hefði tjáð þremur utanríkisráðherrum Evrópubanda-
lagsins, sem heimsóttu Belgrad, að hernaðaraðgerðum hefði verið hætt.
Srdan Kerim, talsmaður
júgóslavneska utanríkisráðuneytis-
ins, sagði að samið hefði verið um
vopnahlé frá klukkan 19.00 að ís-
lenskum tíma í gærkvöldi. Áður
höfðu stjórnvöld í Slóveníu sagt að
júgóslavneski herinn héldi enn uppi
árásum í lýðvelðinu þrátt fyrir að
Ante Markovic hefði tiikynnt-á blaða-
mannafundi að stjórnarhernum hefði
verið fyrirskipað að hætta hernaðar-
aðgerðum. Þá hafði Lojze Peterle,
forsætisráðherra Slóveníu, sagt að
her Júgóslavíu hefði hótað að ráðast
á kjarnorkuver í lýðveldinu.
Janez Jansa, varnarmálaráðherra
Slóveníu, sagði síðdegis í gær að
heimavarnarlið lýðveldisins hefði
eyðilagt 19 skriðdreka og bryn-
vagna, sem hefðu ráðist á hús í
Fréttaritari Morgrmblaðsins á ferð í Slóveníu:
Styrrinn stendur um landa-
mærin til norðurs og vesturs
Maribor í Slóveníu. Frá Önnu Bjarnadóttur, bladamanni Morgunblaðsins.
SÁRAFÁIR voru á ferð í Maribor, næststærstu borg Slóveníu, síðdeg-
Is í gær. Kveikt var á sjónvarpi eða útvarpi í öllum verslunum og
veitingastöðum og mikil spenna var í lofti. Fólk beið frétta af fram-
vindu mála í hinu nýja ríki og óttaðist að Júgóslavíuher léti vopnin
tala. Bílstjóri, sem ók fram hjá herbúðum þar sem nokkur fjöldi
fólks mótmælti veru hersins í borginni, var skotinn til bana í gær-
morgun þegar hermaður greip hríðskotabyssu og hleypti af i átt
að fólkinu. Flugherinn varpaði tveimur sprengjum á landamærastöð
við Sentilj, 18 km fyrir norðan Maribor, skömmu fyrir hádegi í gær
en það er mikilvægasta landamærastöðin milli Suðaustur-Evrópu
og Vestur-Evrópu.
Maribor er 150.000 manna bær.
Það var ekki hlaupið að því að kom-
ast þangað í gær. Herlögregla á
aðaiveginum þangað frá Zagreb,
höfuðborg Króatíu, beindi allri
umferð í átt til Ungveijalands í
gegnum Króatíu og sagði að það
væru vopnuð átök í Maribor. Her-
lögregía á minni vegi svaf á verðin-
um svo það var hægt að aka yfir
hin nýju landamæri til Slóveníu.
Aðstoðarborgarstjóri Maribor,
Dr. Franci Stus, sagði í samtali við
Morgunblaðið að vegum væri lokað
svo júgóslavneski herinn og skrið-
drekar hans kæmust ekki að landa-
mærum Slóveníu og Austurríkis en
það væri mjög mikilvægt að Slóv-
enía héldi tengslum í vestur. Hann
varaði við því að reynt yrði að kom-
ast að landamærunum en það tókst
eftir þröngum og krókóttum veg-
um. Landamærastöð í þorpinu Juri
var opin og þar voru austurrískir
og slóvenskir toll- og landamæra-
verðir í sólskinsskapi. Þeir sögðust
vera við öllu búnir. Þeir voru klædd-
ir skotheldum vestum og vopnaðir
öflugum skotvopnum. Andrúms-
loftið í kringum Juri var mun af-
slappaðra en í Maribor sem er 20
km sunnar. Gömul bílflök úr bíla-
kirkjugarði voru notuð á einum stað
til að loka vegi til hálfs. En annars
voru þungavinnuvélar og flutninga-
bílar til taks til að loka vegum al-
veg ef með þyrfti.
Reuter
Brynvagn júgóslavneska hers-
ins brennur í bænum Cornja
Roddona í Slóveníu í gær.
bænum Medvedje, skammt frá landa-
mærunum að Króatíu, og orðið þrem-
ur mönnum að bana.
Lögreglan í Ljubljana sagði að
tvær herþotur hefðu gert árásir á
Brnik-fiugvöll skammt frá borginni
í gærmorgun. Flugskýli, tvær litlar
flutningavélar slóvensks flugfélags
og tvær byggingar hefðu eyðilagst.
Jelko Kacin sagði að herflugvélar
hefðu einnig gert árás á flugvöllinn
í Maribor og skotið með vélbyssum
á bifreiðar í Sentijl, við landamærin
að Austurríki.
Leiðtogar Evrópubandalagsins
komu saman í Brussel í gær og
ákveðið var að_ utanríkisráðherrar
Lúxemborgar, Ítalíu og Hollands
færu til viðræðna við stjórnvöld í
Júgóslavíu til að freista þess að stilla
til friðar. Heimildir hermdu einnig
að náðst hefði samkomulag um að
fresta frekari efnahagsaðstoð við
Júgóslava ef friðarumleitanir bæru
ekki árangur. „Við getum ekki látið
það viðgangast að skotið sé á fólk í
Evrópu og að sjálfsákvörðunarréttur
þjóða sé allt í einu virtur að vett-
ugi,“ sagði Helmut Kohl, kanslari
Þýskalands, við blaðamenn eftir leið-
togafundinn.
Jiri Dienstbier, utanríkisráðherra
Tékkóslóvakíu, sagði í Prag að emb-
ættismenn Ráðstefnunnar um öryggi
og samvinnu í Evrópu (RÖSE/CSCE)
kæmu að öllum líkindum saman í
næstu viku til að ræða ástandið í
Júgóslavíu. Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra sendi í gær
Budimir Loncar, starfsbróður sínum
í Júgóslavíu, orðsendingu, þar sem
hann harmar að deilur Slóvena og
stjórnvalda í Júgóslavíu skuli hafa
leitt til beitingar hervalds og
mannfalls.
Sjá fréttir á bls. 24-25.
Bandaríkjamenn
útiloka ekki hern-
að gegn Irökum
«*• ^