Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 4
4
r :>rii v{- ?'in/(rjAoni (ikíajhvluuhof
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR '2ð. JUNI 1991
Hallgrími Magnússyni
veitt áminning landlæknis
Hallgrímur mun opna stofu sína á mánudaginn
í GÆR veitti Ólafur Ólafsson, landlæknir, Hallgrími Magnússyni
formlega áminningu vegna brota sem hann telur Hallgrím hafa
framið í starfi. Á næstunni mun landlæknir síðan senda heilbrigðis-
ráðherra greinargerð um málið. Hallgrímur mun opna læknastofu
sína á mánudaginn eftir tveggja vikna hlé.
Aðdragandi málsins er sá að
landlæknir ákvað að rannsaka
vinnubrögð Hallgríms vegna
gruns um að hann beitti ekki eðli-
legum iæknisaðferðum við með-
ferð sjúklings. Það varð að sam-
komulagi milli landlæknis og Hall-
grims að sá síðamefndi yrði ekki
á stofu sinni á meðan málið væri
athugað.
Landlæknir sagði, í samtali við
Morgunblaðið í gær, að héraðs-
læknirinn í Reykjaneskjördæmi og
aðstoðarlandlæknir hefðu séð um
rannsóknina fyrir Landlæknis-
embættið. Samkvæmt niðurstöð-
um hennar hefði Hallgrímur beitt
óeðlilegum læknisaðferðum við
meðferð sjúklingsins sem á við
alvarlegan asmasjúkdóm að stríða.
Þar sem slíkar aðferðir bijóta í
bága við læknisfræðilegar venjur,
ákvað landlæknir að veita Hallg-
rími skriflega áminningu. Innan
skamms mun landlæknir síðan
senda heilbrigðisráðherra greinar-
gerð um málið eins og venja er í
tilvikum sem þessum. Landlæknir
vildi ekki tjá sig um það hvort
hann hygðist leggja það til í grein-
argerðinni að Hallgrímur missti
lækningaleyfið.
í gær sendi landlæknir frá sér
fréttatilkynningu vegna þessa
máls og þeirrar athygli sem það
hefur hlotið i fjölmiðlum. Þar seg-
ir að landlæknir hafi til þessa ekki
lagt í vana sinn að útlista í fjölm-
iðlum þau mörgu afskipti sem
hann þurfí að hafa af málefnum
einstakra heilbrigðisstarfsmanna.
Jafnan hafi verið reynt að leysa
málin í samvinnu við viðkomandi
aðila og án ráðuneytisafskipta.
Nú hafí aðrir aðilar, af óljósum
hvötum, komið máli læknisins í
hámæli og skýrt rangt frá eða
sagt hálfan sannleika. Því verði
ekki hjá því komist að skýra sjón-
armið Landlæknisembættisins í
fjölmiðlum, segir í tilkynningunni.
VEÐUR
12.00
HRÍmild: Veðurstofa islancfs
(Bysflt á veöurspákl. 16.151 gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 29. JÚNÍ
YFIRLIT: Yfír landinu er hæðarhryggur sem þokast austur, en um
1.000 km suðsuðvestur af landinu er 1.005 mb lægð sem hreyfist
norðaustur.
SPÁ: Hæg suðvestiæg átt. Skýjað og súld á stöku stað vestan-
lands en annars viðast léttskýjað. Hiti 8-20 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Hæg norðvestlæg átt.
Víðast skýjað en þurrt norðanlands og vestan og hiti 8 til 11 stig.
Víðast léttskýjað sunnanlands og austan og hiti allt að 20 stigum.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
\
TÁKN:
O Heiðskírt
<4k
Q
Q
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
# # #
* * # * Snjókoma
# # #
10 Hrtastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
V 6
— Þoka
~ Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
- -j- Skafrenningur
[7 Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti 16 10 veður léttskýjað skýjað
Bergen 13 léttskýjað
Helsinki 16 rign. á síð. klst.
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq 13 léttskýjað
Nuuk 8 skýjað
Ósló 18 skýjað
Stokkhólmur 14 rígníng
Þórshöfn 14 hálfskýjað
Algarve 25 heíðskfrt
Amsterdam 12 skúr á síð. klst.
Barcelona 22 léttskýjað
Berlín 15 skýjað
Chlcago 23 skýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 16 skýjað
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 12 rígning
London 18 skýjað
LosAngeles 17 skúr
Lúxemborg 13 skýjað
Madríd vantar
Malaga 25 mistur
Mallorca 23 akýjað
Montreal 24 skýjað
NewYork 27 skýjað
Orlando 26 skýjað
París 15 þrumuveður
Madeira 22 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Vín 19 léttskýjað
Washington 22 skýjað
Winnipeg 13 skýjað
Morgunblaðið/Yaldimar Kristinsson
Gýmir frá Vindheimum efstur að lokinni forkeppni í A-flokki gæð-
inga, knapi er Trausti Þór Guðmundsson en hann kom þremur hest- ,
um í úrslit, auk Gýmis þeim Snúði frá Brimnesi og Blakki frá Hvítár-
bakka.
Fjórðungsmót sunnlenskra hestamanna:
Gýmir með góða
forystu í A- flokki
Gaddastaðaflötum, Rangárvöllum, frá Valdimar Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞAÐ fór eins og margan grunaði að Gýmir frá Vindheimum sem
keppir fyrir Fák yrði efstur í forkeppni A-flokksgæðinga. Hlaut hann
8,95 í einkunn sem er allnokkru lægra en hann hlaut í vor á Hvítasunn-
umóti Fáks. Knapi á Gými var Trausti Þór Guðmundsson. Gýmir var
0,18 stigum hærri en næsta hross sem var Sæla frá Bakkakoti en hún
keppir fyrir Geysi. Hafliði Halldórsson sat Sælu.
Næstur kom Blakkur frá Hvítár-
bakka er keppir fyrir Hörð. Trausti
Þór var knapi á Blakki en hann kom
þremur hestum inn í úrslit í A-flokki.
Blakkur hlaut í einkunn 8,74 ásamt
Sókron frá Sunnuhvoli sem Atli Guð-
mundsson sat. Fáni frá Hala er kepp-
ir fyrir Geysi kom næstur með 8,71,
knapi Kristinn Guðnason, Snúður frá
Brimnesi sem keppir fyrir Fák varð
sjöundi með 8,67 en hann var þriðji
hesturinn sem Trausti Þór kom inn
í úrslit. I áttunda sæti varð Höfði frá
Húsavík sem keppir einnig fyrir Fák
með 8,66, knapi Sigurbjörn Bárðar-
son og Þróttur frá Tunguhálsi sem
keppir fyrir Hörð varð í áttunda
sæti með 8,60. Þessir hestar mætast
í úrslitum á sunnudag og má reikna
með að keppnin standi um annað
sætið því telja verður líklegt að Gým-
ir haldi sínu fyrsta sæti. Ekki má
þó gleyma því að allt getur gerst.
í eldri flokki unglinga var svipað
upp á teningnum. Efst stóð að lokum
Maríanna Gunnarsdóttir, Fáki, á
Kolskeggi frá Ásmundarstöðum með
9,03. Var hún 0,17 stigum hærri en
næsti keppandi sem var Sigríður
Theódóra Kristinsdóttir, Geysi, á
Vöku frá Strönd með 8,86, Reynir
Aðalsteinsson, Geysi, á Vorsól frá
Laugasteini með 8,74, Gísli Geir
Gylfason, Fáki, á Ófeigi frá Grófar-
gili með 8,64, Edda Rún Ragnars-
dóttir, Fáki, á Örvari frá Ríp með
8,60, Sigurður Óli Kristinsson,
Sleipni, á Stíganda frá Hjálmholti
með 8,59, Theódóra Mathiesen,
Herði, á Hvini frá Haugi með 8,55
og í áttunda sæti varð Jón Þorberg
Steindórsson, Fáki, á Hörða frá
Hörðubóli með 8,50. Árangur Fáks-
manna er sérlega athyglisverður á
þessu móti en þar eru fjórir af átta
í úrslitum frá Fáki í bæði eldri flokki
unglinga og A-flokki. í B-flokki eru
fimm af átta hestum frá Fáki og
þrír af átta í yngri flokki unglinga.
Samtals eru Fáksmenn með 16 af
32 hestum sem mæta í úrslit, næstir
koma Harðarmenn með 8 hesta,
Geysir með 5 og Sleipnir og Smári
með 1 hvort félag.
í töltkeppninni á fímmtudag gerð-
ust þau tíðindi að Ragnar Ólafsson
og Pjakkur frá Torfunesi rufu 100
punkta múrinn er þeir urðu langefst-
ir með 102 stig. Næstir komu Sigur-
bjöm Bárðarson og Kraki frá Helga-
stöðum I með 88,8 stig, Gunnar
Amarsson og Besi frá Gröf með
88,0 stig-, -Einar-Öder Magnússon og- -
Atgeir frá Skipanesi með 86,9 stig
og Vignir Siggeirsson og Blesi frá
Hvammi með 85,3 stig. Þessir fimm
menn og hestar mætast í-úrslitum í
kvöld.
Hryssur og stóðhestar með af-
kvæmum voru sýnd og kynnt í gær
og komu þar meðal annars fram af-
kvæmi Stígs frá Kjartansstöðum en
hann hlýtur 1. verðlaun fyrir af-
kvæmi. Fjögur afkvæmi Adams frá
Meðalfelli vom sýnd en í það minnsta
tveir gæðingar undan honum voru
uppteknir í forkeppni
A-flokksgæðinga.
Hátt á þriðja þúsund manns voru
komin á mótssvæðið um kvöldmatar-
leytið í gær og var reiknað með að
mótsgestum fjölgaði mjög með
kvöldinu. Veðrið á mótsstað var ág-
ætt, alskýjað, lítill vindur og nánast
‘ þurrt.
í dag hefst dagskrá klukkan 9.00
með kynbótasýningu þar sem dómum
verður lýst. Klukkan 13.00 verða
úrslit kappreiða og að þeim loknum
heldur kynbótasýningin áfram þar
sem fram koma stóðhestar. Kvöld-
vaka hefst klukkan 20.00 og endað
með dansleik undir stjóm Geirmund-
ar Valtýssonar og hljómsveitar hans.
------HM--------
Copenhagen
Open skákmótið:
Hannes Hlíf-
ar í öðru til
sjöunda sæti
HANNES Hlífar Stefánsson skák-
maður er nú I öðru til sjöunda
sæti á Copenhagen Open skák-
mótinu í Kaupmannahöfn. í gær
vann Hannes Hlífar danska skák-
maiminn Kristiansen og hefur þá
hlotið fjóra og hálfan vinning eft-
ir fimm umferðir.
Eftir fimm umferðir af tíu er stað-
an þannig að Grotnes frá Noregi er
efstur með fímm vinninga. Auk
Hannesar Hlífars eru eftirtaldir í
öðru til sjöunda sæti: Ernst frá Sví-
þjóð, Tixchbierek frá Þýskalandi og
Piskov, Swilder og Kishnev frá Sov-
étríkjunum. Alls taka 82 keppendur
þátfe í -mófeinu- sem lýk-ur hinn 4-. júlí.