Morgunblaðið - 29.06.1991, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 29.06.1991, Qupperneq 15
 r^SiBBTTF ! l jpTji m : L> IL:- ®s©® ~T~T~P-Á GZD ■£- T ~ 00 Hafðu með þér málin af eldhúsinu. Við teiknum á tölvu eldhúsinnréttingu nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana og látum tilboð fylgja. laugardag kl. 10 -16 sunnudag kl. 13 -17 Sýningá verkum Þorvaldar Skúlasonar SÝNING á abstraktverkum eftir Þorvald Skúlason verður opnuð í sýningarsölum Norræna húss- ins í dag, laugardaginn 29. júní kl. 15.00. Listaverkin eru öll í eigu Lista- safns Háskóla íslands sem hefur lánað þessi verk á sýninguna. Verkin eru máluð á árunum 1950 til 1981. Björn Th. Björnsson list- fræðingur og forstöðumaður Lista- safns H.í. skrifar grein um Þorvald Skúlason í sýningarskrá og valdi hann jafnframt myndirnar. Sýningin verður opin daglega kl. 13-19 og stendur til 25. ágúst. Aðgangur er ókeypis. H B Þorvaldur Skúlason Norræna húsið: H VELKÖMII csatfe rae Bæjarhrauni 8 • 220 Hafnarfirði Sími 65 14 99 • Fax 65 29 59 Thymus arcticus Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir Nr. 210 Blóðbergið er kunnugt næstum hverju mannsbarni á Islandi, enda mjög algeng planta. Það gefur frá sér góðan ilm, jafnt blöð sem blóm, úr því má laga gómsætt te, og nota má plöntuna sem krydd í mat (en blóðbergið er náskylt þeirri plöntu, sem kryddið „timian" er unnið úr). En blóðbergið er líka mjög falleg planta, sem hentar vel sums staðar í garða. Hún myndar þéttar jarðlæg- ar breiður úr smágerðu laufi. Laufið er sígrænt, en missir þó oft talsvert lit yfir veturinn. Undir snjó helst laufíð vel grænt. Þegar blóðbergið blómstrar, í júní, eru þessar lauf- breiður þaktar dökkbleikum blóm- um. Blómaliturinn er raunar dálítið breytilegur, og má stundum rekast á plöntur með ljósbleikum eða jafn- vel alveg hvítum blómum, og eru þær ekki síður fallegar en þær venju- legu. Blóðbergið er mjög harðgert og þrífst við margs konar skilyrði. Einna best fer þó um það milli steina, sem það getur breitt sig út á, og þar sem lítinn skugga ber á. Það sýnist ekki taka neitt nærri sér þótt stigið sé á það, og má vel hafa það á milli hellna eða steina í gangstíg. En blóðbergið getur verið dálítið frekt til fjörsins, það er bæði fljótt að breiða úr sér og sáir sér mikið. Þetta getur orðið til ama við aðstæð- ur, þar sem mikið er um glufur (t.d. í stejnbeði), því þar spretta hvar- 'vetna upp sáðplöntur. En öðrum finnst það kannski vera hinn mesti kostur við blóðbergið hversu vel það fyllir í allar eyður. Klippi menn blóm- stönglana eftir blómgun er hægt að koma í veg fyrir að plantan sái sér. Eins og ljóst er af ofansögðu má sá til blóðbergs. Einnig má taka afleggjara, helst með einhveijum rótum, og er auðvelt að koma því til þannig. Og svo má kaupa það í gróðrarstöðvum. Þar er sums staðar til bæði hið venjulega blóðberg, svo og afbrigði með hvítum blómum, og eru laufblöð þess mun ljósari en á því venjulega. Þetta blóðberg er væntanlega af eriendum uppruna, því það er stundum nefnt skoskt blóðberg. Agnar Ingólfsson Blóðberg Þú ákveður sjálf(ur) hvað KVIK - innréttingin á að kosta. Þú getur valið um „Gera- sjálfurverð", „Þjónustuverð" og „Heildar- verð". Athyglisverð nýjung sem vert er að kynna sér nánar. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991 L Það verður mikið að gerast hjá okkur í Fit um helgina. Við kynnum það nýjasta í eldhús- og baðinnréttingum. Jafnframt hefjum við dreifingu á nýjum 40 bls. hugmyndabæklingi frá KVIK. í honum sérðu verð og myndir af öllum KVIK - innréttingunum og hver veit nema hugmynd að draumaeldhúsinu þínu leynist þar líka. Blóðberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.