Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 19
NORDIA 91 í Laugardalshöll
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991
19
Guðmundur Sæmundsson fyrir framan safn sitt Morgunbiaðið/KGA
Hefur safnað í 40 ár
MARGT fleira er til sýnis á sýningunni NORDIA 91 í Laugardals-
höll en frímerki. Til að mynda sýnir Guðmundur Sæmundsson
bólstari einstakt safn sitt af skipamyndum og fleiru sem tengist
skipaferðum til og frá íslandi.
„Ég hóf að safna fyrir Ij'örutíu
árum,“ sagði Guðmundur í viðtali
við Morgunblaðið. „Fyrst safnaði
ég fyrst og fremst myndum af
íslenskum skipum en smám saman
hefur það undið upp á sig og nú
má segja að samgöngusaga ís-
lands sé viðfangsefni mitt í heild
sinni. Það var Thorolf Smith blaða-
maður sem hafði mest áhrif til að
vekja áhuga minn á íslenskum
skipum en Sigurður Magnússon
hjá Loftleiðum vakti áhuga minn
á flugi.“
Á sýningunni rekur Guðmundur
með hjálp mynda, korta og áætl-
ana sögu póst- og farþegaflutn-
inga á sjó frá 1858 til dagsins í
dag, frá fyrsta póstgufuskipinu
„Arcturus" gegnum Sameinaða
Gufuskipafélagsið og Thorefélagið
til Eimskipafélagsins og Skipaút-
gerðar ríkisins. Að lokum má sjá
myndir af feijunni Norrænu sem
undanfarin ár hefur siglt til Seyð-
isfjarðar. Einnig má sjá áætlanir
skipafélaga á sýningu Guðmund-
ar, minnisbók umboðsmanns Sam-
einaða Gufuskipafélagsins í
Reykjavík frá 1901 og bréf og
póstkort sem send hafa verið frá
hinum ýmsu skipum.
Guðmundur mun hafa orðið
fyrstur manna hér á landi til að
skrifa um skip sem slík. Þeir Amg-
rímur Sigurðsson sáu um þætti í
Æskunni á sjöunda áratugnum,
áður en.„Skipstjóar og skip“ kom
út. En Guðmundur safnar einnig
myndum af flugvélum og sér um
ársrit íslenska flugsögufélagsins.
í þetta sinn er þó einungis sýnt
úr skipasafni hans.
Þess má geta að ákveðið hefur
verið að gefa út frímerki helguð
póstsamgöngum og koma fyrstu
frímerkin í haust. Guðmundur
lagði póstþjónustunni lið við gerð
þeirra en á þeim verða sýnd póst-
skip frá mismunandi tímum.
MEÐ HVAÐA BOLTA
VARÐ GREG NORMAN
li-l
í U.S.A. ?
GEFÐU DOS TIL HJALPAR!
ÞJOÐÞRIF
<jlT
MjAU>«SI0fNUN
UNDUM HUMHU KATA
Dósakúlur um allan bæ
624590
g|sK»lffi
S»LAUGAVEGI 95
Dýrasta safnið kom til
landsins í lögreglufylgd
LETTIR OG MARGLITIR BARNASKOR SEM ÞARF EKKIAÐ REIMA
STÆRÐIR: 22 - 27
VERÐ: 1.990 KR
Á laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum.
innar,“ segir Karol Weyna. Áhugi
hans á Islandi er sprottinn af áhuga
hans á Danmörku en Scott hefur
safnað dönskum. frímerkjum frá níu
ára aldri. Að sögn Weyna er íslands-
safn Scotts svo fullkomið sem það
er af tveimur ástæðum. Annars veg-
ar hafi Scott fjármuni til að kaupa
þau frímerki sem hann hefur áhuga
á. Hins vegar hafi Scott verið svo
heppinn að ómetanlegir dýrgripir
komu á markaðinn á réttum tíma.
„Frímerkjasafn eins og þetta fæst
ekki keypt í dag, sama hve mikla
flármuni menn hafa milli handa,"
segir Weyna.
Gene Scott gengur ávallt með
axlasítt hár og lætur mynda sig með
einkennilega kúrekahatta. Hann
lætur sér ekki nægja að safna frí-
merkjum. Hann rekur einnig fjórar
trúboðssjónvarpsstöðvar í Kalifor-
níu. Auk þess að safna frímerkjum
safnar hann hlutum tengdum bibl-
íunni og á fyrstu prentanir af henni
á ýmsum tungumálum. Einnig safn-
ar hann gæðingum og byssum.
Gene Scott sjálfur hefur komið
nokkrum sinnum til íslands á yngri
árum en er ekki væntanlegur núna.
„Þó er aldrei að vita,“ segir Karel
Weyna. „Gene Scott er óútreiknan-
legur. Hann getur ferðast um allan
heim á einkaþotu sinni og e_f hann
fýsir skyndilega að koma til íslands
gerir hann það. Hann sagðist ekki
ætla að koma núna. En síðan bætti
hann við : En maður veit aldrei."
Einstakt safn íslandskorta
Besta og verðmætasta einkasafn íslenskra frímerkja kom til lands-
ins á miðvikudaginn í lögreglufylgd. Það er í eigu bandaríska auðkýf-
ingsins Gene Scott, sem lætur sér ekki nægja að eiga eitt besta safn
íslenskra frímerkja í heiminum heldur safnar einnig sjónvarps- og
útvarpsstöðum, gæðingum , byssum og hlutum tengdum biblíunni.
Að sögn Karol Weyna sem er milljarða króna virði. íslandssafnið
umboðsmaður Gene Scott og lítur
eftir frímerkjum hans á þessi amer-
íski auðmaður frímerki sem eru á
við „góðan Van Gogh“ að verð-
mæti, þ.e. milli tveggja og þriggja
eitt er metið á 180 milljónir en Gene
Scott á auk þess verðmæt söfn frá
Danmörku, Noregi og Grænlandi.
„Gene Scott safnar frímerkjum
frá mörgum smærri svæðum jarðar-
Morgunblaðið/KGA
Karol Weyna kemur með íslandssafn Scotts til Laugardalshallarinn-
ar í fylgd stæðilegra lögregluþjóna
EITT verðmætasta íslenska safn-
ið á Nordiu-sýningunni er korta-
safn Kjartans Gunnarssonar apó-
tekara. Hann sýnir 40 íslandskort
á sýningunni, mörg afar dýrmæt
og sum einstök í sinni röð.
„Ég byijaði að safna kortum fýrir
rúmum tuttugu árum,“ sagði Kjart-
an í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta byijaði með áhuga mínum á
gömlum ferðabókum en ósjaldan eru
í þeim kort. Ég hef ferðast um alla
Evrópu í viðskiptaerindum, einkum
til Norðurlanda og Bretlands og þar
er mikið um kort, sérstaklega í
Lundúnum þar sem eru sérstakar
kortaverslanir sem eru hreinn fjár-
sjóður af kortum.“
í safni Kjartans eru mörg fágæt
kort, sum ófáanleg í dag. Hann sýn-
ir 40 þeirra á sýningunni. Þau eru
valin með tilliti til þess að þau endur-
spegli sögu kortagerðar sem best.
Elsta kortið er frá 1528 en hið
yngsta frá 1827; Öll kortin eru er-
lend enda fóru íslendingar ekki að
teikna kort fyrr en með Birni Gunn-
laugssyni latínuskólakennara.
Mörg kortanna eru fagurlega
myndskreytt, sér í lagi þau eldri.
Þau sýna mörg hver sæskrýmsli í
sjónum umhverfis landið og Heklu
spúa eld og reyk sínum. Hins vegar
Morgunblaðið/Sverrir
Kjartan Gunnarsson apótekari fyrir framan einstakt kortasafn sitt.
Bak við hann sést í Harald Sigurðsson sem mun vera mesti kortasér-
fræðingur íslands
er nákvæmninni ekki ávallt fyrir að
fara og á sumum kortunum eru eng-
ir aðrir staðir nefndir en Hekla,
Skálholt og Hólar. Auk þess vantar
Vestfjarðakjálkann á elstu kortin.
SKÓR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA
• • *