Morgunblaðið - 29.06.1991, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JUNI 1991
25
Sérfræðingar í málefnum Balkanskaga;
Hörð gagnrýni á af-
stöðu Vesturlanda
London. Reuter.
AFSTAÐA Vesturlanda til sjálfstæðisviðleitni Slóvena og Króata
kynni að hafa flýtt fyrir blóðsúthellingum frekar en að stuðla að
því að halda landinu saman, segja stjórnmála- og varnarmálasérfræð-
ingar í samtölum við Jíeuíers-fréttastofuna.
„Með því að leggja áherslu á ein-
ingu Júgóslavíu ofar öllu hefur sam-
félag þjóðanna aukið líkurnar á
borgarastyijöld,“ sagði Lawrence
Freedman, prófessor við Centre for
Defence Studies í London. Með því
að hvetja Slóvena og Króata til að
vera um kyrrt í júgóslavneska ríkja-
sambandinu hafa Vesturlönd ýtt
undir íhlutun sambandshersins, að
hans sögn. „Afstaða Vesturlanda
hefur stuðlað að fullkominni upp-
lausn,“ sagði James Gow, sérfræð-
ingur í öryggismálum í Austur-Evr-
ópu, sem starfar í London.
Slóvenar og Króatar hafa lýst
yfir sjálfstæði en Serbar ráða nú
lögum og lofum í Júgóslavíu. í
Serbíu eru kommúnistar enn við
völd en þeir biðu ósigur í kosningum
í Slóveníu og Króatíu á síðasta ári.
„Vestræn ríki hefðu ekki átt að
taka þá afstöðu að Júgóslavía yrði
að vera eitt ríki sama á hveiju
gengi,“ sagði Gow. „Vesturlönd
hafa í raun lagt blessun sína yfir
afstöðu Serba og sambandshers-
ins.“ Lojze Peterle, forsætisráð-
herra Slóveníu, vék að þessu í ræðu
í síðustu viku er hann sagði að við-
urkenning vestrænna ríkja á sjálf-
stæðikröfum Slóvena hefði getað
komið að miklu haldi. „Herinn hag-
ar sér eins og hann sé á eigin landi,“
sagði ráðherrann.
Mark Wheeler, sem kennir sögu
Balkanskaga í London, segir að
Vesturlönd hefðu hvort eð er aldrei
Hernadur sambandshersins
|egn Slóvenum
Herþotur gerðu árásir á tvo helstu flugvelli
Slóveníu og eyðilögðu flugskýli og smáar
fluavélar á Ljúbljana-flugvelli, en
fíugbrautirnar eru óskemmdar.
Miklir byssubardagar
sambandshersins og
Sambands-
herinn
iotur gera spreng|uaras , e
ustu landamærastooma, -- 7
sem var á valdi Slóvena.
Gornja Radgona
megnað að stöðva aðskilnaðar-
hreyfmgu Slóvena og Króata en
hins vegar hefðu þau getað komið
í veg fyrir blóðbað. „Vesturlönd
gætu komið Slóvenum og Króötum
til hjálpar ef þeir lenda undir hæln-
um með því að viðurkenna sjálf-
200 þyrlur
200 herþotur
Slóvenar
20.000
hermenn
1.159
skriðdrekar
Króatar
stæði þeirra ... það væru nokkurs
konar skilaboð til júgóslavneska
hersins um að hann yrði að hætta.“
Wheeler sagðist hlynntur því að
Vesturlönd efndu til ráðstefnu um
ástandið í Júgóslavíu með þátttöku
fulltrúa stríðandi fylkinga. Gow
u
tVA. 138.000
hermenn, þar af 35-40.000 hermenn
20.000 í Slóveníu 30.000 manna varaliS
sagðist telja að það væri of seint
að gera slíkt. „Það er ekkert sem
knýr Serba að samningaborðinu
nú.“
John Zametica, sérfræðingur í
málefnum Balkanskaga hjá Al-
þjóðahermálastofnuninni í London,
sagðist telja að vestræn ríki gætu
lítil áhrif haft á gang mála í Júgó-
slavíu. „Menn skyldu hafa í huga
að Serbarnir eru ærið þijóskir. Þeim
stendur hjartanlega á sama um
hvað heimsbyggðin heldur. Þeir
stefna bara að því að ná fram
markmiðum þjóðar sinnar. Við eig-
um eftir að sjá nýtt Líbanon í Júgo-
slavíu."
■ STOKKHÓLMI - Sendi-
nefnd háttsettra sænskra emb-
ættismanna undir forystu Ing-
vars Carlssonar forsætisráð-
herra mun afhenda formlega
beiðni Svía um inngöngu í
Evrópubandalagið í Haag í
Hollandi á mánudag. Talsmað-
ur forsætisráðuneytisins til-
kynnti þetta í gær. Hollending-
ar taka við forsæti ráðherrar-
áðs Evrópubandalagsins nú um
mánaðamótin.
■ ALGEIRSBORG -
Chadli Benjedid, forseti
Alsírs og formaður Þjóðfylk-
ingarinnar, sem verið hefur
við völd í Alsír síðan landið
vann sjálfstæðisstríð gegn
Frökkum árið 1962, sagði af
sér formennsku í flokknum í
gær. Alsírska fréttastofan APS
greindi frá afsögn Benjedids í
gær eftir átakafund í miðstjórn
flokksins og sagði að afsögn
Chadlis virtist vera tilraun til
að aðskilja flokkinn frá ríkinu
og gera fyrstu lýðræðislegu
kosningarnar í landinu mögu-
legar.
■ LOS ANGELES - A.m.k.
einn fórst í snörpum jarð-
skjálfta sem fannst í Los
Angeles og nágrenni í gær-
morgun. Skjálftinn, sem mæld-
ist 6 stig á Richter-kvarða,
átti upptök sín um 64 km norð-
austur af miðborg Los Angeles
og fannst í allt að 130 km fjar-
lægð frá borginni. Kona lést
þegar stálbiti féll á hana í hest-
húsi og a.m.k. 14 manns þörfn-
uðust aðhlynningar vegna
meiðsla sem þeir urðu fyrir í
skjálftanum. Grjóthrun varð á
nokkrum stöðum, fólk hljóp
skelfingu lostið út á götur en
eignatjón var óverulegt.
■ SIMPEROPOL - Tatar-
ar frá Krímskaga ákváðu á
fundi í gær að lýsa yfir full-
veldi skagans sem gengur út
í Svartahaf en þaðan voru tug-
þúsundir tatara fluttar árið
1944. 240 fulltrúar á tatara-
þinginu eða Kurultai, eins og
það heitir, samþykktu í nær
samhljóða atkvæðagreiðslu að
lýsa Krímskagann heimaland
sitt og skipa 41-manns stjórn-
arnefnd.
OPIÐ ALLAR
HELGAR í SUMAR
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
TJALDVAGNAR
og allt í útileguna:
Tjöld, svefnpokar, himnar,
gönguskór, allur útilegufatnaður,
stólar, grill, borð, sólskýli
og margt margt fleira.
Vatnsheldir með útöndun
5°o$t°r,ai$l, 4-i
Bómull (1 >.()()())
Nælon (12.900)