Morgunblaðið - 29.06.1991, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991
Grófargil:
Listamenn hafa áhuga
á að kaupa húsnæði
HOPUR m.a. myndlistarmanna, arkitekta og hönnuða hefur sýnt
áiiuga á að kaupa 80% af húseignum þeim sem Akureyrarbær
keypti fyrir skömmu af Kaupfélagi Eyfirðinga í Grófargili, en þar
er fyrirhugað að í framtíðinni verði miðstöð menningar og lista í
bænum.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á fundi í vikunni að selja
tvö af húsunum sem keypt voru í
gilinu, en þar er um að ræða hús-
in númer 23 og 25 við Kaupvangs-
stræti. Áhugi er nú fyrir því hjá
hópi myndlistarmanna, arkitekta
og fleiri aðila að kaupa hluta af
húsnæðinu, eða 80%.
Sjávar-
útvegs-
ráðherra
á fundi
Útvegsmannafélag Norð-
urlands heldur fund á Hótel
KEA á morgun, sunnudag,
kl. 16.
Gestir fundarins verða þeir
Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra og Sveinn Hjört-
ur Hjartarson, hagfræðingur
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna.
Sverrir Leósson formaður
Útvegsmannafélags Norður-
lands sagði að norðlenskir út-
vegsmenn vildu gjarnan heyra
hljóðið í nýjum sjávarútvegs-
ráðherra, enda mörg mál í
brennidepli nú á sviði sjávarút-
vegsins.
Á fundi bæjarráðs í fyrradag
var samþykkt að heimila starfshópi
um Listamiðstöð í Grófargili að
leita samninga við þessa aðila og
jafnframt að huga að kaupendum
að því húsrými sem eftir verður.
Skipulagsnefnd hefur verið falið
að gera tillögur að breytingum
m.a. vegna umferðar og göngu-
leiða sem óhjákvæmilega verða í
kjölfar listastarfsemi í gilinu. Jafn-
framt er nefndinni falið að huga
að framtíðarskipulagi og útliti
svæðisins með hliðsjón af því hlut-
verki sem því er ætlað að gegna
í miðbæ Akureyrar.
Fulltrúar minnihlutans í bæjar-
stjórn telja ekki tímabært að selja
umræddar eignir, á meðan skipu-
lagsnefnd hefur ekki íjallað um
breytingar a skipulagi svæðisins,
m.a. með tilliti til umferðar.
------M-t------
Vinabæjamót
á Dalvík
Dalvík.
VINABÆJAMÓT verður haldið
á Dalvík um helgina, en það
sækja rúmlega 80 manns frá
fjórum vinabæjum Dalvíkur á
hinum Norðurlöndunum.
Vinabæir Dalvíkur eru Viborg
í Danmörku, Hamar í Noregi,
Lundur í Svíþjóð og Borgá í Finn-
landi. Fulltrúar allra þessara bæja
verða á Dalvík um helgina og er
dagskrá mótsins fjölbreytt, en
yfirskrift þessa móts er: Atvinna
og umhverfi. Fréttaritari
Átthagamót Arnarneshrepps
verður haldið laugardaginn 6. júlí og hefst í Freyjulundi
kl. 15.00. Um kvöldið verður dansleikur í Hlíðarbæ.
Allir búsettir og brottfluttir Arnarneshreppsbúar velkomn-
ir og í lagi að taka með sér gesti.
Sjáumst í Stuði. MofnHin
Æfm \w rÆ A: ‘Z 'M « i
Wgmm wHMm m M WÆ
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd hafa í liðinni viku unnið við stígagerð í námunda við Goða-
foss, en verkefnið er unnið í samvinnu við Kvenfélag Ljósvetninga, Ferðamálaráð, Náttúruverndar-
ráð og landeigendur. Vinnuferð samtakanna lýkur í dag, laugardag, og hefur umhverfi fossins
mikið verið endurbætt, en að Goðafossi koma að jafnaði um og yfir eitt þúsund manns á hverjum
degi yfir hásumarið.
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd:
Göngustígar lagðir á
svæðinu við Goðafoss
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd í samvinnu við Kvenfé-
lag Ljósvetninga, Ferðamálaráð, Náttúruverndarráð og lan-
deigendur hafa síðustu viku unnið við Goðafoss. Lagðir hafa
verið stígar frá gömlu brúnni við Fosshól og upp að fossinum,
en fram til þessa hafa þar einungis verið troðningar. Þá hafa
sjálfboðaliðar lagfært plan við fossinn, lagt steinþrep og fegr-
að umhverfið á ýmsan máta.
Sjálfboðaliðasamtök um nátt-
úruvernd voru stofnuð vorið
1986 og hefur á þeim tíma smám
saman vaxið fiskur um hrygg
og eru skráðir félagar nú um
100. Samtökin skipuleggja
vinnuferðir þar sem unnið er að
verkefnum er stuðla að náttúru-
vernd og m.a. er unnið á friðlýst-
um svæðum og öðrum þeim
svæðum sem sérstæð þykja að
náttúrufari. Tilgangurinn er að
vernda náttúruna, veita fólki
tækifæri til að vinna að náttúru-
vernd og að auðvelda fólki um-
gengni við náttúruna og auka
kynni af henni.
Jóhanna B. Magnúsdóttir
verkstjóri í vinnuferð samtak-
anna að Goðafossi sagði að brýnt
hefði verið að bæta úr aðstöðu
við fossinn, þar kæmu að jafnaði
um og yfir eitt þúsund manns á
dag, en fram til þessa hefðu
engir göngustígar verið í nám-
unda við fossinn, heldur einungis
óskipulagðir troðningar. Um tíu
manns á vegum samtakanna
hafa tekið þátt í vinnuferðinni
auk þess sem konur úr Kvenfé-
lagi Ljósvetninga hafa lagt verk-
efninu lið þannig að þegar flest
er hafa um tuttugu og fimm
manns verið við vinnu á svæðinu.
Samtökin hafa síðustu þijú
ár fengið úthlutað fé úr poka-
sjóði, en Ferðamálaráð hefur
einnig styrkt samtökin ijárhags-
lega. Kvenfélag Ljósvetninga
hefur lagt út fé til efniskaupa
og vegna vélavinnu vegna verk-
efnisins við Goðafoss og sagði
Jóhanna að félaginu væri einkar
umhugað um nágrenni fossins
og hefði á liðnum árum lagt
rækt við umhverfi hans.
4 NÝJAR
Allt stakar sögur
Áskriftarsími 96-24966
ásútgáfan
Glerárgötu 28 - 600 Akureyri - Slmi 24966
Sigurlaun meistarans
SandíM Marttm
“fttaíeáör ieifcor
Fóðurverksmiðjan Laxá:
Framleiðslutæki Istess
leigð af þrotabúinu
NÝTT félag, Fóðurverksmiðjan Laxá hf., var stofnað í gær, en félag-
ið mun reka fóðurverksmiðju í Krossanesi. Gerður hefur verið samn-
ingur við þrotabú Istess hf. um leigu á framleiðslutækjum og hófst
vinnsla nýja fyrirtækisins þegar í gærmorgun.
og Byggðastofnun, auk þriggja
smærri hluthafa, Raftákns, Dreka
og Hlaðverks. Hlutafé er 8,1 milljón
króna og verða starfsmenn Laxár
8 talsins í fyrstu.
Guðmundur Stefánsson sem var
framkvæmdastjóri ístess sagði að
reksturinn yrði með svipuðu sniði
og hjá ístess, nema smærri í snið-
um. Fyrirtækið myndi þjóna fiskeldi
og öðrum búgreinum. „Þetta verður
allt með svipuðum hætti, en smærra
í sniðum. Við munum freista þess
að afla nýrra markaða, endurvekja
eldri markaði og gera framleiðsluna
fjölbreyttari. Þetta er tilraun, sem
við vonum að muni ganga, við trú-
um því reyndar og þess vegna er^
farið út í þetta,“ pagði Guðmundur.
Hluthafar í hinu nýja félagi eru
sjö, Akureyrarbær, Kaupfélag Ey-
firðinga, Hraðfrystistöð Þórshafnar
Akureyri
til sölu
3ja herbergja íbúð v/Skarðshlíð,
ca 70 m2.
Góður staður, laus strax.
Upplýsingar í síma 96-21967,
Fasteignatorgið, og í síma
96-22802 eftir kl. 22.00 á kvöldin.