Morgunblaðið - 29.06.1991, Síða 37

Morgunblaðið - 29.06.1991, Síða 37
37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991 Hluti nýstúdenta frá Menntaskólanum á Egilsstöðum ásamt Helga Ómari Bragasyni og Emil Björnssyni aðstoðarskólameistara. Menntaskólinn á Egilsstöðum: Fjarkennslan gafst mjög vel MENNTASKÓLANUM á Egils- stöðum var slitið í tólfta sinn á hvítasunnudag og voru 35 stúd- entar útskrifaðir við það tæki- færi. Tveir nýstúdentar, Óli Grétar Sveinsson og Daníel Ásgeirsson, luku námi frá eðlisfræðibraut á aðeins þremur árum, sem er óvenj- ulegt. Þeir hlutu báðir viðurkenn- ingu fyrir góðan námsárangur. Sig- urlaug Gunnarsdóttir og Aðal- steinn Hjartarson hlutu viðurkenn- ingar fyrir ágætan árangur af málabraut, Hreinn Halldórsson fyr- ir góðan árangur af hagfræði- braut, Þórunn Hrefna Siguijóns- dóttir af félagsfræðibraut og Páll Þórðarson af náttúrufræðibraut. Nýstúdentar voru 35, 11 af fé- lagsfræðibraut, 7 af náttúrufræði- braut, 6 af eðlisfræðibraut, 6 af íþróttabraut, 3 af hagfræðibraut og 2 af málabraut. Um 210 nemendur stunduðu reglulegt dagskólanám við ME á síðasta skólaári en utanskólanem- endur voru 30 talsins. Rúmlega 150 nemendur stunduðu nám í öldunga- deild skólans á Egilsstöðum, Vop- nafirði og Reyðarfirði og einnig í fjarkennslu. Fjarkennsla er nýjung í starfi ME, kenndir voru þrír áfangar á vorönn og komust færri að en vildu. Notað er sérstakt kennsluefni og var um að ræða tilraun sem styrkt var af Fjarkennslunefnd mennta- málaráðuneytisins. Tilraunin gafst mjög vel og verður haldið áfram með þessa starfsemi næsta haust. Frambjóðendur til Alþingis fyrir Austurlandskjördæmi nýttu sér vel málþing sem skólinn gekkst fyrir í mars um Evrópusamrunann, en auk frambjóðenda fjölmenntu nem- endur skólans og almenningur á þingið. Á hausti komanda verður vænt- anlega starfrækt sérstök skóg- ræktarbraut við Menntaskólann á Egilsstöðum og mun námsframboð miðað við nemendur og einnig skógarbændur og annað áhugafólk um skógrækt. Starfandi skólameistari Mennta- skólans á Egilsstöðum er Helgi Ómar Bragason en Vilhjálmur Ein- arsson skólameistari var í náms- leyfi í Svíþjóð. Fulltrú tíu ára stúnd- enta afhenti skólanum að gjöf málverk af Vilhjálmi skólameist- ara. 24 x 30 cm. Myndir sem birtast í Morgunblaðinu, teknar af Ijósmyndurum blaösins fdst keyptar, hvort sem er til einkanota eöa birtingar. UÓSMYNDADÉILD „SALA MYNDA" Aðalstrœti 6, sími 691150 101 Reykjavík BESTU KAUPIN i STEIKUM! T-bone sleikurm/bakaóri kartöflu, kryddsmjöri og hrásalati KR. 890,- Grilluó lambasteikm/bakaóri kartöflu, krydd- smjöri og hrásalati KR. 690,- AUKÞESS: Nautagrillsteikog meólæti kr. 760,- Svinagrillsteikog meðlæti kr. 695,- Góðar steikurvoru til skamms tíma dýr matur, sem menn borðuðu aðeins á íburðarmiklum veit- ingahúsum við dúkuð borð með þjóna á þönum í kringum viðskiptavinina. Jarlinn setti sértakmark: Að bjóða fólki upp á úrvals steikur úr besta hráefni með sem allra minnstum tilkostnaði og þar með á lægsta verði. Smátt og smátt fór starf okkar að skila árangri og ísíðasta mánuðiseldi Jariinn um 8.000 steikur. Jarlinn hefurgreinilega markað þáttaskil í íslenskri veitingamennsku. Það er ekki lengur munaóur ú íslc aó fó sér góða steik. \kW JarUim * G/adur (braqðt ' bragði TRYGGVAGÖTU - SPRENGISANDI - KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.