Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 52
EM í bridge: Island ör- uggt með HM-sæti ÍSLENZKA landsliðið í bridge hefur tryggt sér að minnsta kosti fjórða sætið á Evrópumeistara- mótinu, sem fram fer í Killarney á Irlandi, með sigri á Belgum í 26. umferð mótsins í gærkvöldi. Það er því ljóst að Islendingar spila á heimsmeistaramótinu, sem fram fer í Japan í haust. íslendingar unnu Belga 16-14, en gætu enn bætt við sig tveimur stigum, ef kærumál vegna spils í fyrri hálfleik verður úrskurðað þeim í hag. Staðan eftir 26. umferð var þessi: Bretar voru efstir með 528,5 stig, Svíar aðrir með 509, Pólveijar í þriðja sæti með 486 og íslending- ar í fjórða sæti með 483 stig. í síðustu umferðinni, sem fram fer í dag, spila Islendingar við Dani en Pólveijar við Svisslendinga. „Við höfum fyrst og fremst unn- ið á sögnunum en úrspili og vörn hefur verið nokkuð ábótavant. Þar þurfum við að taka okkur tak fyrir ' haustið," sagði Jón Baldursson, einn liðsmaður íslenzka landsliðsins í Killarney við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Hann sagði að liðið hefði oft á tíðum spilað einstaklega vej ef und- an væri skilinn kafli í upphafi þess- arar viku. Helgi Jóhannsson, forseti Bridge- sambands Islands, sagði að þessi árangur íslenzka Iandsliðsins væri betri en nokkurn hefði órað fyrir. „I upphafi mótsins voru ýmslr spá- menn að raða þjóðum niður í heims- meistaramótssæti, en ísland var þar hvergi á blaði. Árangur liðsins er því mjög ánægjulegur en hann er verðskuldaður. Það er svo athyglis- vert að þessir sömu menn, sem nú eru að tryggja sér sæti á heims- meistaramóti, eru í hörkukeppni við kollega sína á íslandi, sem sýnir hvað styrkleikinn er orðinn mikill hér,“ sagði Helgi. Helgi bætti við að það væri enn frekari lyftistöng fyrir íþróttina hér á landi að ísland fengi þátttökurétt í Japan. Um leið fengi Bridgesam- bandið hins vegar erfitt verkefni vegna þess að það væri veikt fjár- hagslega og þyrfti stuðning til að valda því. Sjá bls. 28. Fluttur með þyrlu af slysstað Mjög harður árekstur varð á. Vesturlandsvegi, rétt sunnan við Borgarfjarðarbrú í gærkvöldi. Ökumaður annars bílsins var fluttur ineð þyrlu á Borgarspital- ann. Areksturinn varð með þeim hætti að fólksbifreið sem var á leið norð- ur var að taka fram úr stærri bif- reið en lenti þá framan á fólksbif- reið sem kom á móti og kastaði henni út af veginum. Ókumaður bifreiðarinnar sem á móti kom var einn í bílnum og festist hann í bíln- um við áreksturinn. Þurfti að saga bifreiðina i sundur til að komast að ökumanninum. Hann var síðan fluttur með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar á Borgarspítalan í Reykjavík. LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Morgunblaðið/Árni B. Stefánsson Á myndinni sést hvar dagsbirtan Iýsir niður um op á hraunhvelfingunni. Niður úr opinu hangir kaðall sem leiðangursmenn notuðu til að síga niður í hvelfinguna. Stærsta hraunhvelfíng heims fundin á Bláfjallasvæðinu FJÓRIR áhugamenn um hellarannsóknir tóku sig saman fyrir nokkru og könnuðu Þríhnúkagíg, skammt norðvestur af skíða- landinu í Bláfjöllum. I ljós kom að þarna er um stærstu hraun- hvelfingu heimsins að ræða, svo st.óra að stærsti eða rúmtaks- mesti hraunhellir heimsins, Víðgelmir, kæmist allur fyrir, bara í gígkatlinum sjálfum. Það voru þeir Árni B. Stefánsson, Björn Ólafsson, Einar Danielsson og Einar K. Stefánsson sem könnuðu gíginn og mældu. Þríhnúkagígur er tiltölulega lítt kunnur gíghellir á hálendisbrún- inni þijá km norðvestan skíða- landanna í Bláfjöllum. Nokkrum sinnum hefur verið sigið í gíginn sem þekktur hefur verið í a.m.k. nokkra áratugi. Fram til þessa hefur hann þó aldrei verið full- kannaður. Fyrir nokkru tóku sig saman fjórir félagar, Árni B. Stefánsson, Björn Ólafsson, Einar Daníelsson og Einar K. Stefánsson, könnuðu gíginn og mældu nákvæmlega. I ljós kom að lóðrétt sigdýpi á botn gígketilsins er 117 metrar en op í toppi gígkeilunnar er 44 metrar. Þvermál í botni er 4860-70 metr- ar, eftir því hvar mælt er, og rúm- mál sjálfs gígketilsins er um 150.000 rúmmetrar. Niður frá gígkatlinum liggur rás til suðvest- ursmeð 50 gráðu halla, 115 metra löng. Lóðrétt heildardýpt gígsins er því um 200 metrar. Á 175 m dýpi í rásinni er 45 m lóðréttur stromp- ur beint upp. Þvermál í honum er neðst 2,5 metrar, en mest um 6 metrar. Strompurinn var klifinn og fullkannaður. Til að átta sig betur á þessum stærðum má nefna að á botn ket- ilsins mætti setja 12 hæða blokk- irnar við Austurbrún í Reykjavík, allar þijár hlið við hlið. Ofan á þær mætti setja Hallgrímskirkju- turn og væru þó 10-15 metrar niður á krossinn. Einnig mætti troða mörgum' tugum einbýlis- húsa meðfram turninum og blokk- unum til að fylla upp í. Leiðangurinn var kvikmyndað- ur og mun myndin væntanlega verða sýnd í Ríkissjónvarpinu næsta vetur. Eftir er að ljúka yfirborðsmælingum þegar snjóa leysir. Gert er ráð fyrir að rann- sóknarniðurstöður verði birtar næsta haust eða vetur. Skandia- tryggingafélagið kaupir meirihluta í Reykvískri tryggingu Áhugaverð þróun framundan á íslenskum trygginga- markaði, segir Leif Victorin aðstoðarforstjóri Skandia SÆNSKA tryggingafélagið Skandia, sem er eitt af stærri vátrygg- ingafélögum í Evrópu, keypti á finimtudag meirihluta í Reyk- vískri tryggingu hf. með forkaupsrétti að öllu fyrirtækinu í fram- tíðinni. Er þetta í fyrsta sinn sem erlent stórfyrirtæki, sem er með umsvif um allan hcim, kaupir meirihluta í íslensku trygginga- félagi. Skandia er stærsta vátryggingafyrirtæki Norðurlanda. Heildarvelta Skandia-samsteypunnar nam um 350 milljörðum á síðasta ári. Með í kaupunum á Reykvískri tryggingu fylgja Reykvísk líf- tiygging hf. og Reykvísk endur- trygging hf. Gísli Orn Lárusson, sem er annar aðaleigandi félagsins með 35% hlut á móti 65% eignar- hlut Skandia, verður áfram for- stjóri Reykvískrar tryggingar og dótturfélaga þess en þau verða rekin sem sjálfstæð fyrirtæki í nánu samstarfi við Skandia. Stjórn félaganna eftir hluthafafund sl. fimmtudag skipa Werner Rasmus- son formaður, Leif Victorin, sem er aðstoðarforstjóri Skandia-sam- steypunnar og Gísli Örn Lárusson. Að sögn Gísla hefur aðdragandi að sölunni til Skandia staðið yfir síðan í janúar sl. Sagði hann að Reykvísk ti-ygging hefði að undan- förnu verið leiðandi við nýjungar á íslenskum vátryggingamarkaði og hefði nú eignast sterkan bak- hjarl í Skandia sem myndi opna nýja möguleika í tryggingamálum, m.a. á sviði lífeyrissparnaðar. Sagði hann að fjöldi starfsfólks yrði óbreyttur fyrst í stað en vænt- arilega þyrfti að fjölga starfsliði fyrirtækisins þegar fram liðu stundir. Leif Victorin sagði í samtali við Morgunblaðið að kaupin á Reyk- vískri tryggingu væru liður í þeirri stefnu Skandia að gera Norður- löndin öll að sínum heimamarkaði en framundan væri áhugaverð þróun á íslenskum trygginga- markaði sem byði upp á ýmsa nýja kosti í tryggingaþjónustu sem Skandia hygðist bjóða hérlendis. „Við höfum ekki í hyggju að umturna íslenskum vátrygginga- markaði en munum skoða alla kosti með varfærni," sagði hann. í gær var gefin út tilkynning um kaup Skandia á meirihlutanum í Reykvískri tryggingu samtímis í Stokkhólmi, London, Kaupmanna- höfn og Osló. Sjá frétt á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.