Morgunblaðið - 31.07.1991, Qupperneq 18
18
i.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JULI 1991
Ríkisstjórn Suður-
Afríku stokkuð upp
Jóhannesarborg. Reuter.
F.W. DE KLERK, forseti Suður-Afríku, tilkynnti á mánudag breyting-
ar á ríkisstjórn landsins. Þrír ráðherrar létu af embætti, tveir þeirra
ráðherra sem fara með menntamál og ráðherra vatns- og skógar-
mála, og sagðist de Klerk hafa ákveðið að gera ýmsar aðrar breyt-
ingar á ríkisstjórninni í ljósi þess. Munu Magnus Malan, varnarmála-
ráðherra, og Adriaan Vlok, lögreglumálaráðherra, m.a. fá ný emb-
ætti innan ríkisstjórnarinnar.
Þessi uppstokkun á ríkisstjórn-
inni kemur í kjölfar þess að upp
komst um fjárhagslegan stuðning
ríkisstjórnarinnar við Inkatha-frels-
isflokk Zulu-manna en þeir hafa
átt í blóðugum átökum við Afríska
þjóðarráðið (ANC). Voru það einna
helst þeir Malan og Vlok sem báru
Flóðin í Rúmeníu:
Ottast að rúm-
lega hundrað
hafi drukknað
Bacau í Rúmeníu. Reuter.
FJÖLDI þeirra sem létust í flóð-
um i norðausturhluta Rúmeniu á
sunnudag og mánudag er nú tal-
inn vera orðinn rúmlega eitt
hundrað.
Laurentiu Hrebenciuc, ráðgjafi
sýslumannsins í Bacau-sýslu, sagði
að þegar hefðu fjörutíu lík fundist
og væri 69 manna til viðbótar sakn-
að. Væru yfirgnæfandi líkur á því
að þeir hefðu drukknað. „Við berum
enga von í brjósti lengur um að
þessir menn séu enn á lífi,“ sagði
Hrebenciuc.
Mikið rigndi í norðausturhluta
Rúmeníu allan sunnudaginn og á
mánudag brast stíflugarður. Lagði
flóðbylgjan sautján þorp í rúst og
hreif með sér 648 hús.
ábyrgð á stuðningnum við Inkatha.
Inkatha notaði greiðslumar eink-
um til að borga fargjöld á samkom-
ur fyrir stuðningsmenn sína og
einnig voru kústsköft, fánar og
dreifirit keypt fyrir peningana.
Nýr varnarmálaráðherra verður
Roelf Meyer, en hann var áður sá
ráðherra sem sá um breytingar á
stjórnarskrá landsins. Við embætti
Vlok tekur Hernus Kriel, skipulags-
málaráðherra.
Heimildarmenn innan ANC
sögðu þessar breytingar á stjórninni
vera skref í rétta átt.
í gær lofaði de Klerk að stofna
nefnd sem falið yrði að endurskoða
lög og reglugerðir um leynileg verk-
efni á vegum stjómarinnar. Hann
sagðist gera þetta til að reyna að
endurvekja traust á ríkisstjórninni.
■ STOKKHÓLMI - Freddie
Wieselgren, sem rekur veitinga-
stað í grennd við sænska þinghús-
ið, hefur sett þingmenn í „straff“
til að mótmæla skatti á máltíðir,
sem atvinnurekendur niðurgreiða
fyrir starfsfólk sitt. „Þingmenn eru
ekki velkomnir. Þið neydduð 1,2
milljónir manna til að borða úr nest-
isboxum. Þið ættuð að gera slíkt
hið sama,“ segir á skilti við inngang
Rosenbrun-veitingahússins. Wies-
elgren segir að aðsókn að veitinga-
húsinu hafí minnkað til muna á
þessu ári en um áramótin lagði rík-
Reuter
í ljónskjafti
Eigandi Ferðasirkúss Russells í Ástralíu, Bruce góðu taki á fæti hans. Samson réðst á Russell eftir
Russell, liggur hér á jörðinnni og sparkar sem mest að hafa tekið svipuskaft hans í misgripum fyrir
hann má í Samson, tveggja ára ljón sem hefur náð bein. Sauma þurfti 17 spor í fót Russells.
isstjórnin skatt á matarmiða sem
launþegar gátu keypt með afslætti
af vinnuveitendum sínum.
■ COLOMBO - Hermenn felldu
60 uppreisnarmenn tamíia á sunnu-
dag í áhlaupi sem gert var til að
ná herstöð sem uppreisnarmenn
hafa haft á valdi sínu í 20 daga;
að sögn talsmanns hersins í gær. I
bardögum féllu 60 uppreisnarmenn
og 6 hermenn og 30 hermenn særð-
ust. Talið er að 1.170 tamílar og
143 hermenn hafi fallið síðan bar-
dagar blossuðu upp að nýju en átök-
in á sunnudag eru þau mannskæð-
ustu síðan þjóðernisátök hófust á
Sri Lanka fyrir 10 árum.
■ ÓSLÓ - Sovésku rannsóknar-
skipi var neitað um leyfi til að
leggjast að bryggju í Bergen af
þeirri ástæðu að um borð séu full-
komin tæki til kortagerðar. Um
borð í skipinu eru 32 manns á leið
á Esperanto-ráðstefnu í Bergen
og 40 aðrir ferðamenn. Björn Blok-
hus, talsmaður norska utanríkis-
ráðuneytisins, sagðist á mánudag
ekki skilja hvers vegna rannsóknar-
skip væri notað til að flytja far-
þega. „Við vitum að fullkomin óm-
sjár-tæki eru um borð í skipinu.
Við teljum ekki að þeir ætli að
stunda njósnir í Noregi en þeir hafa
möguleika til þess,“ sagði Gunnar
Angeltveit, talsmaður norska vam-
armálaráðuneytisins. Ráðstefnu-
fulltrúarnir 32 höfnuðu boði Norð-
manna um ókeypis flutning með
norsku skipi til hafnar og ókeypis
gistingu í Bergen meðan á ráðstefn-
unni stæði.
H Ú n Ál I/
1
Tónleikadagskrá Rokkhátíðarí Húnaveri 1991
Föstudaginn 2. dgúst
Kl. 21:00 Stungið í samband, kveikt á kyndlum, Kl. 23:30 Todmobile
talið í.... Kl. 00:15 Síðan skein sól
Kl. 21:05 Bootlegs Kl. 02:00 Sálin hans Jóns míns
Kl. 22:00 Blautir dropar Kl. 04:00-06:00 Útvarp Húnaver
Kl. 22:45 Deep Jimi and the Zep Creams
Laugardagur 3. úgúst kl. 14:00 - ■ Hljómsveitaeinvígi Húnavers ’91, fyrri hluti
Eftirmiðdagur: Hljómsveitirnar sem koma fram eru:
Synir Raspútíns Plató Ræsið Strikning Piflon Kyd
Rotþró Diddi Guði gleymdir In men Paffhundar
Exit Skurk Leiksvið fáránleikans 911 Babalú
Ber að ofan „Sauðfé á mjög undir Corruption Nirvana Þukl
Helgi og hljóðfæra högg að sækja í landi Spilverk sóðanna Reykjavíkur Apótek Eldorado
leikararnir Reykjavíkur" Fliss Alvilda Synir Abrahams
- 20:20 Útvarp Húnaver Kvölddagskrá:
Kl. 19:30 Kl. 23:00 Sálin hans Jóns míns
Kl. 20:20 Fríða sársauki Kl. 00:45 Stuðmenn
Kl. 21:15 Bless Kl. 02:15 Síðan skein sól
Kl. 22:15 Todmobile Kl. 05:00-06:00 Útvarp Húnaver
Sunnudagur 4. óigúst:
Eftirmiðdagur kl. 15:00-17:00 - Úrslitaorrustan í hljómsveitaeinvígi
Kl.
Kl.
Kl.
17
18
19
30 Blúskompaníið
15 Spaghetti Jazz
00-20:00 Útvarp Húnaver
Kvölddagskrú:
Kl. 20:00 Bleeding Volcano
Kl. 20:45 Orgill
Kl. 21:30 Svörtu kaggarnir
Kl. 22:30 Síðan skein sól
Kl. 00:00 Sálin hans Jóns míns
Kl. 01:30 Stuðmenn
Kl. 00:?? Tónleikadagskrá lýkur
Ökum varlega!
Miöaverö kr. 5.900,-
Áætlunarferðir frd Reykjavík kr. 3.600,- (báðar leiðir)
Kotnum heil íHúnaver!
Góða skemmtun