Morgunblaðið - 25.08.1991, Qupperneq 32
FORGANGSPOSTUR
UPPL ÝSINEASÍMI 63 71 90
N • A - JVI • A • N
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLADW, ADALSTRÆTl 6. 101 KEYKJA VÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811. PÓSTHÓLF 1555 / AKllREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 25. AGUST 1991
VERÐ í LÁUSASÖLU 100 KR.
Þorlákshöfn:
V erksmiðj uhús
Mátveggja eyði-
lagðist af eldi
Selfossi.
TUGMILLJÓNATJÓN varð í Þorlákshöfn aðfaranótt laugardags
þegar Mátveggir, verksmiðjuhús Framleiðslufélagsins hf., brann.
Verksmiðjan sem framleiddi meðal annars milliveggjaeiningar
er mjög illa farin ef ekki ónýt eftir brunann. Slökkvilið Þorláks-
hafnar fékk aðstoð frá Selfossi og Hveragerði við slökkvistarfið.
Það var sjómaður sem tilkynnti
um eldinn um klukkan 3.15 um
nóttina. Þegar slökkviliðið kom á
vettvang var mikill eldur í öðrum
enda hússins og iogaði út um
glugga þess. Slökkvistarfið gekk
greiðlega og lauk um sexleytið
um morguninn. Eldsupptök eru
ókunn en ljóst er að eldurinn kom
upp í norðausturenda hússins.
Verksmiðjuhúsið, sem er stái-
grindarhús og einn geimur, er
mjög illa farið. Stálgrindin í þak-
inu hefur greinilega gefið sig og
ljóst er að vélarnar sem margar
eru sérhæfðar eru ónýtar.
Slökkviliðsmönnum tókst að af-
stýra því að eldur kæmist í lakk-
klefa í enda hússins og áfasta
skrifstofubyggingu en skemmdir
urðu þar af reyk og vatni. í verk-
smiðjunni unnu 12 menn við fram-
leiðslu svonefndra máteininga auk
annarrar trésmíðavinnu. Verkefni
voru næg, meðal þeirra fram-
leiðsla fyrir Þjóðarbókhlöðuna.
Aðaleigendur verksmiðjunnar eru
Húsasmiðjan hf. í Reykjavík og
Hannes Gunnarsson sem er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. „Það
er rosalegt að missa þetta,“ sagði
Óskar Jónsson starfsmaður í verk-
smiðjunni en starfsmenn þar eru
frá Þorlákshöfn, Hveragerði og
Selfossi.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Slökkviliðsmenn voru að
slökkva síðustu neistana í'verk-
smiðjuhúsi Mátveggja í gær-
morgun. Á innfelldu myndinni
sést húsið eftir brunann.
Umferðarslys í
Skagafirði:
Þrennt á
sjúkrahús
Sauðárkróki.
ALVARLEGT umferðarslys
varð í Skagafirði í gærmorgun
er fólksbíll af Toyota-gerð
endastakkst út af veginum á
Hegranesi. Þrír voru í bílnum
og voru allir fluttir á sjúkra-
húsið á Sauðárkróki, og annar
farþeginn var síðan fluttur
með sjúkraflugi til Akureyrar
enda meiðsli hans talin alvar-
leg.
Að sögn lögreglunnar á Sauðár-
króki barst tilkynning um slysið,
sem varð skammt austan við bæ-
inn Utanverðunes, klukkan 8.30
um morguninn. Bíllinn mun hafa
endastungist og hafnaði hann
gjörónýtur á annað hundra metra
frá veginum.
BB
Ríkisstjórnin fjallar um tekjuhlið fjárlaga:
Rætt um breíkkun skattstofna
og lækkun sjómannaafsláttar
Ríkisstjórnin gengur út frá óbreyttu launastigi á næsta ári
AÐ ÓBREYTTU stefnir í að tekjur ríkissjóðs muni dragast saman
á næsta ári um einn til tvo milljarða króna vegna áhrifa af samdrætti
í þjóðartekjum og vegna þess að jöfnunargjald fellur niður um næstu
áramót. Auk 14 milljarða niðurskurðar- og sparnaðaraðgerða ríkis-
stjórnarinnar er nú einnig farið að huga að aðgerðum á tekjuhlið
fjárlagafrumvarpsins til að mæta þessum samdrætti. Að sögn Frið-
riks Sophussonar fjármálaráðherra er það ákveðin stefna ríkisstjórn-
arinnar að hækka ekki skatta á næsta ári og því komi m.a. til athug-
unar að breikka skattstofna og draga úr víðtækum undanþágum í
virðisauka- og tekjuskattskerfunum. „Engar ákvarðanir hafa þó
verið teknar í þessa veru,“ segir Friðrik.
Við fjárlagagerðina sem nú
stendur sem hæst miðar ríkisstjórn-
in við að launastig haldist óbreytt
á næsta ári. Fjármálaráðherra seg-
ir að samdráttur í fiskveiðum á
næsta ári geri það að verkum, að
kaupmáttur muni rýrna. „Því má
búast við, að við leggjum upp með
að verkalýðshreyfingin og opinberir
starfsmenn hafí þann skilning, að
engar hækkanir verði á launum ai-
mennt. Verði um innbyrðis launa-
1 breytingar að ræða þurfa því sumir
að taka á sig lækkun ef aðrir fá
launahækkanir," sagði hann.
Að sögn Jóns Baldvins Hanni-
balssonar úPánríkisráðherra blasir
við að enn muni síga á ógæfuhliðina
í efnahagslífinu og til að ná mark-
miðum ríkisstjórnarinnar þurfi enn
> að taka til hendinni.
Tillögur ráðuneytanna um niður-
skurð og sparnað til að iækka
ríkisútgjöld um 14 milljarða eru nú
nánast fullmótaðar en þó mun enn
vanta um einn milljarð kr. uppá að
markmiðið náist. Þingflokkur AI-
þýðuflokksins hefur afgreitt allar
tillögur ráðherranna efnislega og
þrátt fyrir að innan flokksins sé
hörð andstaða við tillögur um innrit-
unargjöld á sjúkrahúsum og skóla-
gjöld eru þær enn á borði ráðherr-
anna. Þingmenn Sjáifstæðisflokks-
ins hafa ekki fengið tillögurnar til
skoðunar en boðaður hefur vérið
þingflokksfundur á þriðjudag.
Tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins
hefur ekkert verið til umfjöllunar á
ríkisstjórnarfundum og engin af-
staða því verið tekin til einstakra
þátta en farið er að íhuga hugmynd-
ir um að taka upp virðisaukaskatt
á vöru og þjónustu sem nú er und-
anþegin skattinum og minnka
skattáfslátt sjómanna. Þá er mikill
áhugi á því innan Alþýðuflokksins
að tekinn verði upp skattur á fjár-
magnstekjur. Össur Skarphéðins-
son, þingflokksformaður Alþýðu-
flokks, minnir á að í samkomulagi
formanna stjórnarflokkanna í vor
hafi verið skýrt tekið fram að
slíkum skatti yrði komið á og Sig-
hvatur Björgvinsson heilbrigðisráð-
herra segist ekki sjá réttlæti í því
að fólk sem hafí tekjur sínar af
eignum greiði ekki skatt af þeim.
Sjá „Heilagar kýr undir
hnífinn" á bls. 10 og 12.
Arnarstofninn:
17 ungar að
verða fleygir
UM þessar mundir eru 17
arnarungar að verða fleyg-
ir úr 15 hreiðrum, en auk
þess er vitað um 21 par sem
tekið hefur sér óðal en varp
misfarist hjá. Að sögn
Björns Guðbrandssonar
læknis, formanns Fugla-
verndunarfélags íslands,
eru þetta ívið færri ungar
en komist hafa upp undan-
farin ár.
Björn sagði að þegar stofn-
inn væri jafn lítill og hann nú
er, þá pari ernirnir sig jafnvel
með ókynþroska maka. Þá
geti liðið nokkur ár þar til
varp hjá þeim heppnist, en
fuglarnir verða kynþroska 5-7
ára gamlir. Hann sagði að ern-
irnir héldu sig á hefðbundnum
slóðum á Vestfjörðum og við
Breiðafjörð og Faxaflóa, en í
sumar hefðu að auki sést tveir
ernir við Hjörleifshöfða.
Utanríkisráðherrar Eystrasaltslanda koma í dag:
Stj ómmálasambandi lýst yf-
ir á Þingvöllum eða í Höfða
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Eystrasaltslandanna þriggja koma til ís-
lands síðdegis í dag, sunnudag, og skrifa ásamt Jóni Baldvin Hannibals-
syni undir yfirlýsingar um stjórnmálasamband við ísland. Jón Baldvin
kvaðst í gær gera ráð fyrir að fundur þeirra yrði annaðhvort á Þing-
völlum eða í Höfða.
Þeir Lennart Meri frá Eistlandi
og Algirdas Saudargas frá Litháen
koma hingað til lands með Flug-
leiðavél frá Stokkhólmi. Á hádegi
í gær var enn óljóst hvenær dags
lettneski ráðeherrann, Janis Jurk-
ans, kæmi. Gert er ráð fyrir að
ráðherrarnir haldi heim á þriðjudag,
nema Jurkans- sem flýgur væntan-
lega til fundar við bandaríska ráða-
menn á morgun.
Jón Baldvin segir fyrirhugað að
áður en yfirlýsing um stjórnmála-
samband verði undirrituð muni
hann ræða við starfsbræður sína
um viðskiptasamninga, menning-
arsamskipti, tilnefningu á sendi-
herrum og annað fyrirkomulag
samskipta landanna. Hann hefur
óskað eftir því að utanríkismála-
nefnd Alþingis verði viðstödd undir-
ritunina auk formanna stjórnmála-
flokkanna til að leggja áherslu á
samstöðu þjóðar og þings um málið.
Eyjólfur Konráð Jónsson formað-
ur utanríkismálanefndar segir að
nefndin hafí í gærmorgun sam-
þykkt ályktun þar sem fagnað er
yfirlýsingum Eystrasaltsríkjanna
um sjálfstæði, fyrri yfirlýsingar
Alþingis áréttaðar og einróma
stuðningi lýst við stjórnmálasam-
bandið.