Morgunblaðið - 31.08.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1991
nsi t?úo# :rjo;uT.vinAJ -uliiuluw
15
MH og „kerfið“
Undanfarin ár hafa nemendur
og kennarar sem starfað hafa við
Menntaskólans við Hamrahlíð
þurft að horfa upp á áfangakerfí
það, sem í upphafí opnaði nemend-
um leið til að skipuleggja nám sitt
sjálfír, týna eigin markmiðum.
Kerfíð sigldi hægt og bítandi í
sama far og forverar þess, uns svo
var komið að val nemenda var
orðið nær ekkert og kerfíð hafði
misst alla sína eiginleika og sér-
stöðu. Séð var að við svo búið
mátti ekki sitja og ákveðið var að
leita nýrra leiða. Eftir þrotlaust
starf kennara skólans við lausn á
þeim vandamálum sem horfðu við
hinu gamla áfangakerfí, var loks
séð til sólar og úrbætur lágu fyr-
ir. Niðurstaðan var sú að ákveðið
var að hrinda í framkvæmd nýju
áfangakerfí sem byði í senn upp
á fleiri og opnari möguleika en
áður hafði tíðkast. Samþykki
menntamálaráðherra var fengið
og loks sáum við nemendur fram
á bjartari tíð sem bauð upp á
möguleika til að sveigja námið að
framtíðaráformum okkar.
Ekki virðast allir hafa gert sér
grein fyrir mikilvægi þeirra breyt-
inga sem lágu fyrir. Leyfí það sem
menntamálaráðuneytið hafði þeg-
ar veitt til að hrinda þessu kerfi
í framkvæmd hefur nú verið aftur-
kallað af nýjum valdhöfum. Enn
virðist gamli lagabókstafurinn og
þröngsýnin ráða ríkjum hjá þeim
sem völdin hafa. í stað þess að
gefa Menntaskólanum við Hamra-
hlíð tækifæri til að reyna nýtt
áfangakerfí, sem leyst hefði af
hólmi það gamla og marklausa
setja þeir stein í götu framfara
og víðsýni með því að halda fast
í fyrra kerfi.
Auk þess að ákvörðun ráðherra
skuli vera svo illskiljanleg hlýtur
tímasetning hennar einnig að telj-
ast undarleg. Nú er ljóst að skóla-
hald Menntaskólans við Hamrahlíð
mun raskast verulega af þessum
sökum og nýnemar hafa innritað
sig í skólann á röngum forsendum.
Einnig þurfa eldri nemendur að
endurskipuleggja nám sitt, sem
hefur í mörgum tilfellum í för með
sér seinkun námsloka. Þessar ný-
tilkomnu breytingar ráðherra kalla
þar með á aukinn kostnað ríkisins
á tímum niðurskurðar.
Þau rök yfírboðara að stúdents-
próf sem kæmu út úr hinu nýja
kerfí myndu ekki uppfylla kröfur
og inntökuskilyrði þau sem Há-
skólinn setur eru í hæsta máta
undarleg. Með þessu nýja kerfí
hefði nemendum einmitt verið gef-
inn kostur á því að leggja grunn-
inn að námi sínu á þeim tíma sem
þeir hefðu sjálfír kosið. Þannig
hefðu þeir nemendur sem hyggja
á ákveðið háskólanám getað undir-
búið sig mun markvissar og þar
af leiðandi komið betur undirbúnir
til námsins. Þeim nemendum sem
hins vegar hygðu ekki á háskóla-
nám gæfíst þama kostur á að
undirbúa sig mun betur fyrir hinar
fjölbreyttu kröfur atvinnulífsins
og átt betri kost á endurmenntun
síðar. Til að tryggja að hagur nem-
enda yrði sem mestur hefðu þeir
notið aðstoðar námsráðgjafa sem
verið hefði þeim innan handar.
Af þessu hljótum við að ráða
að ráðamenn treysti ekki nemend-
um sem komnir era á framhalds-
skólastig til að taka ákvarðanir
varðandi sína eigin framtíð. í raun
er þarna tekinn af nemendum sá
möguleiki að búa eins vel í haginn
fyrir framtíð sína og frekast er
unnt. Það hlýtur að vekja ugg al-
mennings að fullorðið fólk sem
ekki getur tekið sjálfstæðar
ákvarðanir um eigin framtíð skuli
þegar hafa hlotið kosningarétt.
Fyrir hönd nemenda Mennta-
skólans við Hamrahlíð.
Nemendastjórn:
Benedikt Hjartarson,
Steingerður Ólafsdóttir,
Sigurlaug Vilbergsdóttir,
Andri Stefánsson,
Þorbjörg María Ómars-
dóttir,
Magnús Orri Schram,
Halldór Eiríksson.
Félag íslenskra iðnrekenda:
Hætta á að efnahags-
legnr stöðugleiki bresti
FÉLAG íslenskra iðnrekenda
hefur endurskoðað þjóðhagsspá
fyrir árin 1991 og 1992. Spáin
gerir ráð fyrir því að verðbólga
á mælikvarða framfærsluvísi-
tölu verði í kringum 7 prósent
á þessu ári, en hálfu prósenti
lægri á næsta ári.
í fréttatilkynningu frá FÍI kem-
ur fram að endurskoðunin hafí
einkum verið gerð í ljósi ákvarðana
um leyfílegan hámarksafla á fisk-
veiðiárinu 1991-1992. Jafnframt
er í spánni gert ráð fyrir að samn-
ingum um byggingu 200 þúsund
tonna álvers verði lokið og að
orkuframkvæmdir hefjist á næsta
ári.
Samkvæmt spánni munu þjóð-
arútgjöld hækka um 2 til 2,5 pró-
sent milli áranna 1990 og 1991,
og um 1,5 prósent á milli áranna
1991 og 1992. Landsframleiðsla
mun hins vegar einungis vaxa um
0,5 prósent á þessu ári samkvæmt
spánni og á næsta ári er einnig
gert ráð fyrir stöðnun.
í fréttatilkynningunni segir að
ein aðalástæða lítils hagvaxtar á
árunum 1990 til 1992 sé samdrátt-
ur í útflutningi, sem orsakist af
aðhaldi við úthlutun aflakvóta.
Samkvæmt spánni eru ákveðin
teikn á lofti sem benda til þess
að stöðugleiki í íslensku efnahags-
lífí bresti. Til marks um það er
hallarekstur ríkissjóðs bæði árin
og vaxandi viðskiptahalli við út-
lönd. Hallinn nemur 12 milljörð-
um, eða 3,5 prósentum af lands-
framleiðslu í ár og 20 milljörðum
eða 5,5 prósentum á næsta ári.
OPIÐ í dag frá kl. 10-16
Nýjar glæsilegar haustvörar.
LOlVDOrVssr,4'
ÞRIGGJA DAGA STANSLAUS
NOTAÐIR BÍLAR Á VILDARKJÖRUM
í DAG LAUGARDAG KL. 10-17
■^■mTTRÚUEGTÚRVA^H^H
^lTj^vie^Sgbundn^koðu^
AFGREIDDIR MEÐ FULLAN BENSÍNTANK
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ KR
LAUGAVEGI 174 - SÍMI 695660