Morgunblaðið - 31.08.1991, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1991
Bikarmót í hestaíþróttum:
USVH í efsta sæti
_________Hestar____________
Sigurður Sigmundsson
BIKARMÓT Norðurlands, hið
sjötta í röðinni, fór fram á Krók-
staðamelum í Miðfirði dagana
24. og 25. ágúst. Það var íþrótta-
deild innan hestamannafélags-
ins Þyts í Vestur-Húnavatns-
sýslu sem sá um framkvæmd
mótsins. Var mál nianna að vel
hafi verið staðið að allri fram-
kvæmd og aðstæður til að halda
siikt mót þarna á melunum eru
orðnar góðar. Öllum keppend-
um og gestum var boðið til mik-
illar grillveislu í nýja veitinga-
skálum á laugardagskvöldið en
húsið er um 60 fermetrar að
flatarmáli og var byggt nú fyrir
mótið.
í mótinu tóku þátt sveitir frá
sex íþrótta- eða ungmennasam-
böndum á Norðurlandi. Keppt var
í öllum hefðbundnum hestaíþrótta-
greinum nema 150 m skeiði en
ekki var talinn tími til þess þar sem
þessir tveir dagar voru með mjög
ásetta dagskrá frá morgni til
kvölds. Svo fóru leikar að Ung-
mennasamband Vestur-Húnvetrt-
inga sigraði og varð bikarmeistari
Norðurlands í hestaíþróttum 1991
og hlaut alls 1.078 stig og hinn
eftirsótta og glæsilega farandbikar
sem Dagur á Akureyri gaf á sínum
tíma. í öðru sæti varð íþrótta-
bandalag Akureyrar með 1.057,1
stig. Ungmennasamband Skaga-
fjarðar varð í þriðja sæti með 977,2
stig. Ungmennasamband Eyja-
fjarðar hlaut 656,3 stig, Héraðs-
samband Þingeyinga 641,3 stig og
Ungmennasamband Austur-Hún-
vetninga 637,1 stig. Eins og sjá
má börðust tvö efstu liðin um sig-
urinn enda mjótt á mununum.
Akureyringarnir hafa alltaf farið
með sigur af hólmi í bikarkeppn-
inni til þessa en nú urðu þeir að
lúta í lægra haldi fyrir vestur-hún-
vetneskum hestamönnum sem
mættu vel ríðandi til leiks. Það
varð að vonum mikil stemmning
hjá félögum í íþróttadeild Þyts
þegar sigurinn var í höfn og ein-
valdurinn sem valdi sveitina,
Sverrir Sigurðsson sem reyndar
er burtfluttur Hunvetningur, hyllt-
ur mjög. Sem fyrr sagði var ekki
útséð um hvort efstu liðanna færi
með sigur af hólmi fyrr en eftir
síðustu greinina sem var gæðinga-
skeið. Þar tókst þeirri kunnu hesta-
konu Herdísi Einarsdóttur að sigra
á þeim snjalla og kunna gæðingi
Neista frá Gröf sem margir hesta-
menn munu minnast frá landsmót-
inu 1986. Þórir ísólfsson á Lækja-
móti varð hlutskarpastur í fjór-
gangi á ungum en efnilegum hesti,
Skrúði frá Lækjamóti. Jóhann
Skúlason á Sauðárkróki varð í
efsta sætinu í fimmgangi á fögrum
gæðingi, Prins frá Flugumýri', en
Birgir Árnason á Akureyri bar sig-
urorð af keppendum í töltinu á
hryssunni Skottu. Þór Jósteinsson
á Akureyri halaði inn mörg stig
fyrir ÍBA þegar hann náði efsta
sæti í tölti og fjórgangi unglinga
á hryssunni Kviku. Veglegir verð-
launabikarar voru veittir sem fyrir-
tæki og sveitarfélög í Vestur
Húnavatnssýslu gáfu til keppninn-
ar svo að til mikils var að vinna.
Ekki var margt um áhorfendur
á þessu bikarmóti enda veðrið ekki
upp á á það besta en á sunnudegin-
um gekk á með hvössum skúrum.
Úrslit mótsins:
Fjórgangur unglinga:
Þór Jósteinsson, Kviku, ÍBA........23,0
Eyþór Einarsson, Rauðskjóna, UMSS 26,0
Berglind R. Þorkelsd., Bakkusi, USVH
...................................55,0
. Isólfur Líndal Þórisson, Ljúf, USVH ..59,0
Helga S. Amardóttir, Þyt, HSÞ......62,0
Tölt unglinga:
Þór Jósteinsson, Kviku, ÍBA........16,0
Helga S. Arnardóttir, Þyt, HSÞ.....26,0
Johannes Æ. Kristjánss., Rúbín, USVH
...................................42,0
Eyþór Einarsson, Rauðskjónu, UMSS47,0
ísólfur Líndal Þórisson, Ljúf, USVH ..50,0
Hlýðni B:
Herdís Einarsdóttir, Jóker, USVH...35,5
Þórir ísólfsson, Skrúð, USVH.......34,0
Johann Skúlason, Þyt, UMSS.........32,5
Jarþrúður Þórarinsdóttir, Birtu, ÍBA.,31,5
Fimmgangur:
Jóhann Skúlason, Prins, UMSS^......23,0
Erlingur Erlingsson, Stíganda, ÍBA ..51,0
Herdís Einarsdóttir, Nátthrafni, USVH
...................................69,0
Magnús Magnússon, Þrótti, UMSS ....75,0
Þórir ísólfsson, Pela, USVH........92,0
Fjórgangur:
Þórir ísólfsson, Skrúð, USVH.......17,0
Herdís Einarsdóttir, Jóker, USVH....35,0
Birgir Ámason, Skottu, ÍBA.........55,0
Jarþrúður Þórarinsdóttir, Segul, ÍBA.57,0
Bergur Gunnarsson, Hausta, UMSS .61,0
Hindrunarstökk:
Sigurður Líndal Þóriss., Brönu, USVH
................................. 53,3
Ejður Matthíasson, Galsa, ÍBA......42,7
Johannes Skúlason, Blossa, UMSS ....40,0
Jarþrúður Þórarinsdóttir, Varma, ÍBA
..................,.............. 34,7
Jón K. Sigmarsson, Ögra, USAH......30,7
Gæðingaskeið:
1. Herdís Einarsdóttir, Neista, USVH93,0
2. Johann R. Skúlason, Prins, UMSS.,89,5
3. Bjþm Þorsteinsson, Eitli, ÍBA.85,0
4. Holmgeir Jónsson, Draumi, ÍBA.,...80,5
5. Anna Valdimarsdóttir, Glóblesa, ÍBA
80,5
Bikarmeistarar Norðurlands i hestaíþróttum 1991. Morgunbiaðið/Sigurður Sigmundsson
Herdís Einarsdóttir og Neisti frá Gröf gerðu það gott í gæðinga-
skeiðinu og fóru með sigur af hólmi.
Þessar blómarósir úr Miðfirði sáu um úthlutun veglegra verð-
launa, f.v. Hólmfríður Björnsdóttir, Gréta Karlsdóttir og Ragn-
hildur Benediktsdóttir.
Kátir Akureyringar fagna velgengni sinna manna í keppninni.
Iþróttamót hjá Dreyra:
Guðni hlaut 4 gnll
IÞROTTADEILD hestamannafélagsins Dreyra gekkst fyrir
keppni á opnu móti í hestaíþróttum á hinum nýja hringvelli sem-
þeir Dreyrafélagar byggðu í sumar við hesthúsahverfið á Æðar-
odda.
Þátttaka var fremur takmörk-
uð, þetta 8-10 í hverri keppnis-
grein fullorðinna en mun dræmari
þátttaka var hjá börnum og ungl-
ingum. Nokkrir þátttakendur
komu frá Fáki og Faxa auk
heimamanna. Einn aðkomu-
manna, Guðni Jónsson úr Fáki,
varð sigurvegari í fjórum grein-
um. í fimmgangi hlaut hann 64,4
stig sem mun vera það hæsta sem
náðst hefur í þessari grein á ár-
inu. I gæðingaskeiðinu náði hann
einnig frábærum árangri og hlaut
110 stig, þess ber að geta að
gæðingur hans Skoli frá Búðar-
hóli er aðeins 7 vetra. Hann stóð
sig einnig mjög vel á Svarti frá
Sólheimatungu í tölti og fjór-
gangi. Þá var árangur Alexanders
Hrafnkelssonar einnig góður í 150
m skeiðinu en hann náði 14,7
sek. á Tígli. Völlurinn nýi sannaði
ágæti sitt á þessu móti en síðar
á eftir að stækka hann og einnig
að gera áhorfendasvæði. Dómarar
voru úr Gusti í Kópavogi og eiga
lof skilið fyrir jafnar og sann-
gjarnar einkunnargjafir.
Úrslit mótsins:
Töltfullorðina: Stig
1. GuðniJónssonogSvartur 80,00
2. Olil Amble og Rósmunda 78,66
3. Alexander Hrafnkelss. og Krókur 77,33
4. BenediktÞorbjörnss. ogÞjálfi 75,46
5. Bjöm Einarsson og Þorri 70,40
Fjórgangur fullorðina:
1. GuðniJónssonogSvartur 49,29
2. Benedikt Þorbjörnsson og Þjálfi 44,70
3. Oiil Amble og Rósmunda 44,20
4. Alexander Hrafnkelsson og Krókur
40,29
5. BjömEinarssonogKrummi 38,16
Fimmgangur:
1. GuðniJónssonogSkalli 64,40
2. Benedikt Þorbjörnsson og Herdís 57,00
3. JónÁrnasonogRandver 54,40
4. Sigurður Halldórsson og Amadeus
51,00
5. Smári Njálsson og Flinkur 42,00
Gæðingaskeið:
1. GuðniJónssonogSkolli 110,00
2. SigurðurHalldórsson og Amadeus
66,00
3. JónÁmasonogRandver 55,50
Fimm efstu í fjórgangi á íþróttamóti Dreyra.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
lSOmskeið: Sek.
1. Alexand. Hrafnkelss.ogTígull 11 v.
14,7
2. Sigurður Halldórss. og Amadeus 7 v.
15,4
3. Páll Sigvaldason og Stakkur 8 v. 15,7
Tölt — börn: Stig
1. Benedikt Kristjánsson og Þokki 63,20
2. Lísbet Hjörleifsdóttir og Kristall 0
3. J óhanna Sigurðardóttir og Glæsir 0
Fjórgangur:
1. Lísbet Hjörleifsdóttir og Kristall 41,64
2. Benedikt Kristjánsson og Þokki 20,56
3. Berglind Sigurðardóttir og Dorri 19,38
4. Jóhanna Sigurðard. og Kátína 30,09
Unglingar:
Tölt:
1. ÓlafurG. Sigurðai-sonogÁs 59,46
2. Gunnar Sigurðsson og Eldur 49,06
Fjórgangur:
1. ÓlafurG. Sigurðsson, ogBangsi 30,60
2. Gunnar Sigurðsson og Eldur 36,37
Stigahæsti knapi mótsins:
Guðni Jónsson, 303,69 stig.
Isl. tvíkeppni:
Guðni Jónsson, 128,29 stig.
Skeið — tvikeppni:
Guðni Jónsson, 174,40 stig.
Stigahæsti félagsmaður í
Dreyra:
Marteinn Njálsson, 170,46 stig.
Efsti félagsmaðurinn í Fáki:
Davíð Jónsson, 64,70 stig.
Stigahæsta barnið:
Benedikt Kristjánsson, 83,76 stig.
ísl. tvíkeppni barna:
Benedikt Kristjánssori, 83,76 stig.
Stigahæsti unglingurinn:
Ólafur G. Sigurðsson, 90,06
stig.
Isl. tvíkeppni unglinga:
Gunnar Sigurðarson, 86,43 stig.