Morgunblaðið - 31.08.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1991
19
Samtök nemenda
mótmæla hugmynd-
um um skólagjöld
STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands og stjórn Félags framhandsskóla-
nema hafa samþykkt ályktanir þar sem harðlega er mótmælt hugmynd-
um um álagningu skóiagjalda í Háskólanum og framhaldsskólum. Stúd-
entaráð telur að með því sé verið að stíga stórt skref aftur á bak til
þess tíma, þegar aðeins vel stæð ungmenni gátu farið i langskólanám.
Morgunblaðið/Þorkell
Unnið að vegagerð á Fljótsdalsheiði
Undirbúningur framkvæmda vegna Fljótsdals-
virkjunar hefur staðið yfir i sumar. Hefur þar með-
al annars verið um hönnunar- og mælingavinnu að
ræða, auk þess sem unnið hefur verið að vegagerð.
Nú er á Fljótsdalsheiði vegavinnuflokkur frá verk-
takafyrirtækinu Klæðningu hf., sem vinnur að lagn-
ingu um 20 kílómetra langs vegarkafla milli Grenis-
öldu og Laugarfells. Þar hafa stórvirkar vinnuvélar
verið að verki í um það bil mánuð og að sögn Gísla
Eysteinssonar verkstjóra (á innfelldu myndinni) hafa
framkvæmdir gengið vel. Búast má við að meiri
umsvif verði á Fljótsdalsheiði næsta vor, en þá er
gert ráð fyrir að virkjunarframkvæmdir hefjist af
fullum krafti, náist samningar um byggingu nýs
álvers.
Islendingar fá þrenn verðlaun
á sænskri frímerkjasýningu
Laugarhóli, Bjarnarfirði.
ÞRIR UNGIR Islendingar unnu til verðlauna á landssýningu Svía
sem haldin var í Montala í Svíþjóð helgina 23.-25. ágúst sl. Unnu
þeir til verðlauna fyrir frímerkjasöfn sín sem eru gyllt silfur, silfur
og silfrað brons.
Að sögn Bjarna Ármannssonar,
formanns menntamálanefndar Stúd-
entaráðs, var ályktunin samþykkt
Félagar
VR sýna í
Listasafni
alþýðu
í TILEFNI 100 ára afmælis
Verslunarmannafélags
Reykjavíkur verður opnuð
myndverkasýning félags-
manna VR í Listasafni alþýðu,
Grensávegi 16A í dag, laugar-
daginn 31. ágúst 1991, kl.
14.00.
Félagsmenn VR sem sýna eru
30 talsins á aldrinum 24-79 ára.
Sumir hveijir hafa aldrei fengið
tilsögn við listsköpun sína, en
aðrir hafa notið leiðsagnar ís-
. lenskra og erlendra listamanna
og kennara. Einn þátttakandinn
sýnir einnig litskyggnur í
skyggnuvél safnsins og ráðgert
er að ýmsir listamenn bæði leik-
ir og lærðir komi fram á meðan
á sýningunni stendur, segir í
fréttatilkynningu.
Sýningin stendur til 15.
september nk. og verður opin
mánudaga til föstudaga frá kl.
14.00-22.00 og um helgar frá
kl. 10.00-22.00.
Haukur Páll Haraldsson
Söngkeppni
í Dresden
HAUKUR Páll Haraldsson bari-
tonsöngvari hefur nýlega tekið
þátt í Pavarotti-söngkeppninni
sem haldin er annaðhvert ár.
Undanúrslit keppninnar eru hald-
in víða um heim.
í Evrópu var forkeppnin haldin í
borgunum Dresden í Þýskalandi og
Budapest í Ungveijalandi. Haukur
Páll Haraldsson, sem nýlega hefur
skrifað undir tveggja ára samning
við stúdíó Ríkisóperunnar í Múnc-
hen, tók þátt í undanúrslitum í Dres-
den og vann þar í sínum riðli og
heldur því áfram í Evrópuúrslitin
sem verða í borginni Modena á ít-
alíu. Þeir sem komast áfram þar
fara síðan í lokakeppnina í Philadelp-
hia í Bandaríkjunum, en annar hluti
verðlaunanna er að halda tónleika í
óperunni í Dresden í vetur ásamt
nokkrum þekktum þýskum söngvur-
um.
ítalski tenórsöngvarinn Pavarotti
og óperan í Philadelphia standa að
þessari söngkeppni.
einróma á fundi Stúdentaráðs. Þar
sé mótmælt harðlega hugmyndum
menntamálaráðherra varðandi
skólagjöld á háskóla- og framhalds-
skólanema og sagt, að Stúdentaráð
telji að hér sé um að ræða grundvall-
arbreytingu á þeirri menntastefnu
sem rekin hafi verið í landinu, því
ef af yrði, ríkti ekki lengur jafnrétti
til náms óháð efnahag.
Bjarni sagði að í ályktuninni kæmi
einnig fram, að álagning skólagjalda
nú væri mikil afturför, þar sem þá
væri verið að hverfa aftur til þess
tíma, þegar aðeins vel stæð ung-
menni áttu kost á langskólanámi.
Með þessu drægi því úr aðsókn að
langskólanámi. Hins vegar væri ljóst
að hvorki Háskólinn né starfslið
hans kæmu til með að njóta skóla-
gjaldanna því beint framlag ríkisins
til skólans myndu einfaldlega lækka
sem þeim næmi.
Að lokum sagði í ályktuninni:
„Það er fáheyrt, að ríkisstjórnin skuli
við lausn á fjárhagsvanda ríkissjóðs
fyrst fara í vasa námsmanna, ekki
síst í ljósi stórfellds niðurskurðar hjá
Lánasjóði íslenskra námsmanna í
vor. Það er von námsmanna, að ráða-
menn sjái þá firru, sem þeir eru um
það bil að framkvæma og áfram
verði tryggður jafn réttur allra til
náms.“
í ályktun stjórnar Félags fram-
haldsskólanema segir: „Sú stefna
ríkisstjómarinnar að leggja auknar
byrgðar á herðar almennings í stað
sparnaðar og raunveruleg samdrátt-
ar ríkisútgjalda er háskabraut auk
þess sem hún ber vott um uppgjöf
og úrræðaleysi. Stjórn Félags fram-
haldsskólanema minnir á að mennt-
un er ein af meginstoðum þjóðfélags-
ins. Með álagningu skólagjalda er
hún gerð að skiptimynt í glímu
stjómmálamanna við skammtíma-
markmið og efnahagstölur. Því unir
stjórn Félags framhaldsskólanema
engan veginn.“
Björgvin Ingi Ólafsson sem fékk
Verneil-verðlaun eða gyllt silfur
fýrir safn sitt, Fuglar Evrópu. Eru
það hæstu verðlaun sem íslenskur
unglingur hefur fengið á erlendum
vettvangi. Kári Sigurðsson fékk
silfurverðlaun fýrir frímerkjasafn
sitt, Merkir íslendingar. Loks fékk
svo Ólafur Kjartansson silfrað
brons fyrir safn sitt, Evrópsk blóm.
Það var landssýning sænska
unglingasambandsins sem er aðili
að Landssambandi frímerkjasafn-
ara í Svíþjóð sem hét „Frim-Ö-91“
sem var haldin þarna, hafði íslensk-
um unglingum verið boðin þátttaka
í henni.
Unglingar þessir hafa á undan-
fömum árum starfað í unglinga-
deildum klúbbs Skandinavíusafnara
og Félags frímerkjasafnara í
Reykjavík. Hafa Jón Salevski og
Guðni Gunnarsson starfað með
þeim og fengið ýmsa aðstoðarmenn
með sér.
Telja ber þennan árangur frá-
bæran og veitir hann öllum drengj-
unum rétt til þátttöku í alþjóðlegum
frímerkjasýningum.
- S.H.Þ.
REYKJAVÍK: SKÆÐI, Kringlunni 8-12
MÍLANÓ, Laugavegi 61
SKÓSALAN, Laugavegi 1
KÓPAVOGUR: SKÓVERSLUN KÓPAVOGS, Hamraborg
SELTJARNARNES: SKÓSTOFAN, Eiðistorgi
HAFNARFJÖRÐUR: SKÓHÖLLIN, Reykjavíkurvegi 50
GEIR JÓELSSON, Strandgötu 21
KEFLAVÍK: SKÓBÚÐIN KEFLAVÍK, Hafnargötu 35
AKRANES: NÍNA, Kirkjubraut 4
ÓLAFSVÍK: ROCKY, Ólafsbraut 24
AKUREYRI: SKÓTÍSKAN, Skipagötu 5
HÚSAVlK: SKÓBÚÐ HÚSAVÍKUR, Garðarsbraut
SELFOSS: SKÓBÚÐ SELFOSS/SPORTBÆR
VESTMANNAEYJAR: AXEL Ó LÁRUSSON, Vestmannabraut