Morgunblaðið - 31.08.1991, Blaðsíða 18
»r ieei TRúoÁ .u: auoAOíiADUAj QictAjaviuÐíiOM
18— MÖRGUNBLÁÐIÐ LÁUGARDÁGUR 31. ÁGÚST 1991
Kristín Einarsdóttir
kosin formaður Sam-
*
stöðu um óháð Island
- samtökin vilja þjóðaratkvæða-
greiðslu um afstöðuna til EES og EB
STOFNFÚNDUR samtakanna Samstaða um óháð íslands var hald-
inn á Hótel Borg fimmtudaginn sl. Á stofnfundinum var kosin 15
manna stjórn sem skipti með sér verkum strax að loknum fundin-
um. Kristín Einarsdóttir er formaður, Jóhannes R. Snorrason
varaformaður, Helgi S. Guðmundsson gjaldkeri og Auður Sveins-
dóttir ritari.
I fréttatilkynningu frá samtökun-
um segir að „Samtökin vilji stuðla
að víðtækari fríverslun milli landa
og góðum samskiptum íslendinga
við Evrópubandalagið svo og aðrar
þjóðir og heimshluta. Um leið vilja
þau tryggja að íslendingar verði
hér eftir sem hingað til óháðir við-
skiptabandalögum og þjóðin haldi
óskertu fullveldi. Samstaða vill að
kjósendur eigi kost á að segja álit
sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu áður
en ríkisstjóm og Alþingi taka af-
stöðu til aðildar að evrópsku efna-
hagssvæði (EES) eða EB“.
Annar fundur stjómarinnar var
haldinn föstudag og segir í til-
kynningunni að þar hafi starfíð
framundan verið skipulagt.
Ákveðið hefði verið að gefa út
fréttabréf með ýmsu fræðsluefni,
stuðla að stofnun kjördæmafélaga,
halda fundi viða um land og em
fyrstu fundirnir á ísafírði á sunnu-
dagskvöld og Patreksfirði á mánu-
dagskvöld nk.
A undirbúningsfundinum sem
haldinn var í Norræna húsinu 3.
júlí var ákveðið að gangast fyrir
undirskriftasöfnun þar sem skorað
var á ríkisstjómina að hætta
samningum um Evrópskt efna-
hagssvæði og efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu ef gengið yrði til
samninga. Söfnun undirskrifta er
enn í fullum gangi.
Fimmvörðuskáli
verður vígður í dag
Lagning bundms slitlags á Hvammstanga.
Hvammstangi;
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Höfuðáhersla á sfatnafferð
Hvammstanga.
NÚ í sumar leggur Hvamms-
tangahreppur höfuðáherslu á
gatnagerð og er stefnt að full-
um frágangi gatnakerfisins á
næsta ári. Bæði er nú unnið að
jarðvegsskiptingu og iagningu
bundins slitlags.
Starfsmenn hreppsins svo og
verktakar hafa unnið að jarðvegs-
skiptum og endumýjun lagna í
götum. Einnig er að komast í
gagn nýtt byggingarhverfi með
tilheyrandi gatna- og veitukerfí í
Túnahverfi.
Þessa daga er Króksverk hf.
að leggja bundið slitlag á götur
sunnan ár, um 6 þús. fermetra,
einnig er lagt á svæði hjá höfn-
inni, um 2 þús. fermetra, og fyrir
aðra aðila 3-4 þús. fermetra. Loft-
orka hf. er undirverktaki hjá
Króksverki hf. Næsta vor á að
ljúka lagningu slitlags á götur á
staðnum, um 12 þúsund fermetra,
og er þá langþráðum áfanga náð.
- Karl
ENDURBYGGINGU Fimmvörðuskála á Fimmvörðuhálsi er nú lok-
ið. Skálinn verður vígður og formlega tekinn í notkun laugardag-
inn 31. ágúst 1991. I 1100 m hæð yfir sjávarmáli milli Eyjafjalla-
jökuls og Mýrdalsjökuls er Fimmvörðuháls. Þar um er fjölfam-
asta gönguleið á Islandi. Meira en 2000 manns fara þar um á
hverju sumri á leið sinni milli Skóga og Þórsmerkur.
Versnandi íslenskukunnátta stúdenta:
Mínnkandi bóklestur
unglinga áhyggjuefni
- segir Þóra K. Jónsdóttir fagstjóri í íslensku
„ÉG tel það iryög alvarlegt mál ef stúdentspróf í íslensku er orðið svo
lítils virði að það þurfi að byrja á að kenna stúdentum íslensku í há-
skóla og mér finnst stórfurðulegt að háskólakennarar skuli taka það
í mál að taka slíka kennslu að sér. Að mínu mati á að sjá til þess að ekki
sé þörf fyrir slíka kennslu á háskólastigi," sagði Þóra Kristín Jónsdótt-
ir fagsljóri í íslensku við Hagaskóla, þegar hún var innt álits á þeim
áhyggjum háskólakennara um að íslenskukunnátta stúdenta fari versn-
andi.
Dagskrá vígslunnar hefst kl.'
14.30. Útivist býður upp á ýmis
tilbrigði við ferðir frá Reykjavík á
Fimmvörðuháls. Dagsferð verður
frá Reykjavík á Fimmvörðuháls
kl. 9.30. Komið er aftur í bæinn
kl. 19.00. Helgarferð verður í Bása
í Þórsmörk kl. 20.00 á föstudags-
kvöldið. Farþegar í Þórsmörk geta
á laugardagsmorgun valið um
gönguferð á Fimmvörðuháls undir
stjóm fararstjóra eða farið með
rútu. Útivist býður einnig upp á
gönguferð af Fimmvörðuhálsi og
rútuferð í Bása. Þeir sem vilja
geta komið á eigin bílum að Skóg-
um og fengið þaðan rútuferð upp
á Fimmvörðuháls. Allar nánari
upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Útivistar
Árið 1941 byggði félagsskapur
er nefndist Fjallamenn skála á
Fimmvörðuhálsi. Fjallamenn voru
meðal frumheijanna í skipulögðum
fjallaferðum hér á landi og meðal
þeirra voru menn eins og Guð-
mundur Einarsson listamaður,
kenndur við Miðdal, Guðmundur
Hlíðdal, þáv. póst- og símamála-
stjóri, Ólafur Þorsteinsson for-
stjóri, Karl T. Sæmundsson bygg-
ingameistari og fleiri.
Árið 1980 báðu eftirlifandi Fjall-
amenn Útivistarmenn að taka að
sér skálann og endurbyggja hann
en hann var þá orðinn ansi hrörleg-
ur. Sumarið 1990 hóf Útivist
endurbyggingu skálans og er henni
nú lokið. Félagsmenn í Útivist hafa
í sjálfboðavinnu staðið að endur-
byggingunni og hafa þeir lagt um
505 vinnudaga í hana. Efniskostn-
aður við Fimmvörðuskála nemur
um 1,8 milljónum króna.
Útivistarmenn hafa notið að-
stoðar Flugbjörgunarsveitarinnar í
Reykjavík, hjálparsveita skáta í
Kópavogi, Flúðum og Hafnarfirði
og Slysavamadeildarinnar í Hafn-
arfírði við efnis- og fólksflutninga
iipp á Fimmvörðuháls.
Vígslugestir eru beðnir um að
koma vel klæddir, góður skó-
fatnaður er nauðsynlegur og alltaf
má búast við rigningu og því er
regngallinn nauðsynlegur.
(Fréttatilkynning)
Þóra Kristín sagði að ekki væri hægt
að svara því í einu vetfangi hvort
íslenskukunnáttu hefði almennt
hrakað meðal unglinga á síðustu
árum. „Það er þó ljóst að málum-
hverfið breytist stöðugt og mér fínnst
að orðaforði unglinga hafí breyst
mikið að undanförnu. Það er eins og
þeir eigi erfíðara með að skilja orð
úr daglegu lífí sem allur þorri ungl-
inga hafði á takteinum fyrir einum
eða tveimur áratugum. Eg er ansi
hrædd um að þessa þróun megi rekja
til þess að það hefur dregið úr bók-
lestri bama og ungmenna en lestur
teiknimyndasagna, myndbandagláp
og iðkun tölvuleikja hefur aukist að
sama skapi. Af og til spyr ég nem-
endur mína hvaða bækur þeir hafí
lesið síðasta mánuðinn og sorglega
oft kemst ég að því að enginn í
bekknum hefur lesið heila bók á því
tímabili. Þá á ég ekki við námsbæk-
ur eða teiknimyndasögur."
Þóra Kristín er mjög ósátt við þá
breytingu sem gerð var fyrir nokkr-
um árum í grunnskólum en þá var
kennslustundum á hvern nemanda
fækkað og það bitnaði meðal annars
á íslenskunni. „Ég held að þessi
ákvörðun sé nú þegar farin að koma
niður á íslenskukunnáttu ungmenna.
Hins vegar eigum við ekki að sætta
okkur við orðinn hlut heldur snúa
vöm í sókn. Það þarf að veita auknu
fé til skólanna svo þeir geti betur
sinnt hlutverki sínu en ekki má
gleyma því að ábyrgðin liggur ekki
síst hjá foreldrum. Þeir verða að taka
hlutverk sitt alvarlega og temja börn-
um sínum gott málfar frá fyrétu tíð.
Ég mæli með því að þeir lesi sögur
á góðri íslensku fyrir börn sín meðan
þau eru enn ómálga og ólæs. Sé slíkt
gert jafnt og þétt, öðlast þau tilfinn-
ingu fyrir málinu og í mínum huga
er ekki vafamál að þau muni búa
að því alla æfi,“ sagði Þóra Kristín
Jónsdóttir að lokum.
GABRIELE SKÓLARITVÉLIN
MEÐ ALLA KOSTI
FRÁBÆRRAR VINKONU
I^Létt ^traust eldsnögg iXþægileg
og étur villurnar umyrðalaust ofan í sig.
P.S. Verðið er aðeins 18.300,- kr. stgr. ef keypt er fyrir 1. nóvember
EINAR j.SKULASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, Sími 686933