Morgunblaðið - 31.08.1991, Side 23
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1991
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1991
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Sovézki kommún-
istaflokkurinn
bannaður
Ifyrradag samþykkti æðsta
ráð Sovétríkjanna með
meirihluta greiddra atkvæða að
banna starfsemi kommúnista-
flokksins um óákveðinn tíma.
Áður hafði Jeltsín, forseti Rúss-
lands, gefíð út tilskipun um
bann við starfsemi kommún-
istaflokksins í rússneska lýð-
veldinu. Þótt bannið við starf-
semi flokksins sé um óákveðinn
tíma er þetta sögulegur við-
burður.
Kommúnistaflokkur Sovét-
ríkjanna hefur haft gífurleg
áhrif á örlög fólks og þjóða á
þessari öld. I öllum meginatrið-
um eru þau áhrif neikvæð og
jafnvel glæpsamleg. Undir for-
ystu kommúnistaflokks Sov-
étríkjanna hefur þjóðum
sovézku lýðveldanna verið hald-
ið í heljargreipum kúgunar, fá-
tæktar og ófrelsis meginhluta
þessarar aldar. Undir forystu
þessa flokks hafa tugir milljóna
manna innan Sovétríkjanna
verið drepnir. Undir forystu
þessa flokks hefur nágranna-
ríkjum Sovétríkjanna ekki ein-
ungis verið haldið í áþján heldur
hefur þessi sami flokkur hvað
eftir annað beitt hervaldi sínu
til þess að bæla niður uppreisn
fólks í þessum löndum.
Kommúnistaflokkur Sovét-
ríkjanna hefur jafnframt haldið
uppi ótrúlega víðtækri áróðurs-
og undirróðursstarfsemi um
heim allan til þess að fá þjóðir
heims, ekki sízt fátæku þjóðim-
ar í þriðja heiminum svonefnda,
til þess að ganga kommúnism-
anum á hönd. Þar sem því hef-
ur verið við komið hefur her-
valdi verið beitt til þess að
fylgja áróðursstarfseminni eft-
ir.
Sumir segja, að það gangi
þvert á lýðræðishugmyndir nú-
verandi stjórnenda Sovétríkj-
anna að banna starfsemi
kommúnistaflokksins þar.
Hann eigi að fá að starfa eins
og aðrir stjórnmálaflokkar sam-
kvæmt lögmálum lýðræðisins.
í slíku mati gefa menn sér þá
forsendu, að Kommúnistaflokk-
ur Sovétríkjanna sé stjórnmála-
flokkur, sem starfi á sama
grundvelli og aðrir stjórnmála-
flokkar. Þetta er misskilningur.
Kommúnistaflokkur Sovétríkj-
anna á ekkert skylt við stjóm-
málaflokka af því tagi, sem
starfa í lýðræðisþjóðfélögum
Vesturlanda.
Kommúnistaflokkur Sovét-
ríkjanna er meira I ætt við
skipulögð samtök lögbrjóta,
sem beita öllum tiltækum ráð-
um, áróðri, hervaldi, manndráp-
um, innilokun á geðveikrahæl-
um o.s.frv. til þess að ná
markmiðum sínum. Með banni
við starfsemi hans er því ekki
verið að banna starfsemi venju-
legs stjórnmálaflokks, heldur
uppræta samtök lögbijóta, sem
augljóslega hafa verið eitt af
mörgum krabbameinum í sov-
ézku þjóðlífi.
Andstæðingar Leníns innan
flokks og utan urðu undir í
átökunum við hann fyrr á öld-
inni en nú má vera, að málstað-
ur þeirra sé loks að sigra. Það
hefur tekið þjóðir Sovétríkjanna
langan tíma að hrista af.sér ok
kommúnistaflokksins og ar-
fleifð Leníns. Kynslóð eftir kyn-
slóð í þessu víðfeðma landi hef-
ur orðið að bera þungar byrðar
þeirrar arfleifðar.
Nú er komið að þáttaskilum.
Tími uppgjörsins er að ganga
í garð í Sovétríkjunum sjálfum,
uppgjörsins við kommúnism-
ann. Það hreinsunarstarf, sem
nú stendur yfír í Sovétríkjunum
getur haft jákvæð áhrif um all-
an heim á næstu árum og ára-
tugum, ef vel tekst til. Komm-
únistaflokki Leníns, Stalíns og
félaga þeirra verður hins vegar
skipað á bekk með nazistaflokki
Hitlers, þar sem þessi flokkur
og forystumenn hans hafa allt-
af átt heima.
Kommúnistaflokkur Sovét-
ríkjanna hafði um skeið viðtæk
áhrif hér á landi. Þau áhrif
náðu til starfsemi stjórnmála-
hreyfingar, sem gengið hefur
undir þremur nöfnum á 60 ár-
um. Þar er átt við Kommún-
istaflokk íslands, Sameiningar-
flokk alþýðu - Sósíalistaflokk-
inn og loks Alþýðubandalagið.
Kommúnistaflokkur Sovétríkj-
anna hafði um skeið víðtæk
áhrif í menningarlífi íslenzku
þjóðarinnar, þar sem listamenn,
sem voru þóknanlegir kommún-
istum voru með skipulegum
hætti hafnir til vegs en aðrir
listamenn, sem bjuggu við van-
þóknun hins sovézka valds voru
rægðir með jafn skipulögðum
hætti. Kommúnistaflokkur Sov-
étríkjanna hafði líka um skeið
víðtæk áhrif í íslenzkri verka-
lýðshreyfingu, sem á tímabili
var notuð af þessum sömu öfl-
um til þess að skapa óróa og
vandamál í íslenzku þjóðlífi. Nú
er kominn tími til að fletta ofan
af þeirri starfsemi...........
Mikilvægt að fylgja hu g-
myndum tónskáldanna
um flutning verka þeirra
- segir Andreas Schmidt, sem heldur ljóðatón-
leika í íslensku óperunni í dag og á morgun
ÞÝSKI ljóða- og óperusöngvarinn Andreas Schmidt heldur tónleika í
dag og á morgun í Islensku óperunni við undirleik hollenska píanóleik-
arans Rudolfs Jansens, þar sem fluttir verða ljóðasöngvar eftir Ro-
bert Schumann. Andreas kemur hingað til lands frá Suður-Frakk-
landi þar sem hann hefur undanfarið sungið hlutverk greifans í Brúð-
kaupi Fígarós eftir Mozart. Héðan heldur hann til Berlínar þar sem
hann mun syngja Don Giovanni í Þýsku óperunni í Berlín. Tónleikarnir
í dag og á morgun eru haldnir í samvinnu við Styrktarfélag íslensku
óperunnar og hefjast báða dagana kl. 17.
Andreas Schmidt kom hingað til
lands í fyrsta sinn árið 1982 er hann
stóð við upphaf söngferils síns og
hélt tónleika með Módettukór Hall-
grímskirkju. Hann dvelur um þessar
mundir á heimili vinafólks síns,
þeirra Harðar Áskelssonar og Ingu
Rósar Ingólfsdóttur, ásamt eig-
inkonu og dóttur. „Ég kynntist Herði
í Háskólanum í Diisseldorf þar sem
við vorum báðir við nám í kirkjutónl-
ist til að byija með en ég sneri mér
síðan alfarið að söngnum," sagði
Andreas í samtali við Morgunblaðið.
„Eftir að Hörður kom til íslands
heimsótti ég hann svo ég hef komið
hingað síðan með reglulegu milli-
bili,“ sagði Andreas. Hann segist
koma til íslands af tveimur ástæð-
um, annars vegar til að heimsækja
vini sína og hins vegar til að halda
tónleika. „Eg nýt þess að geta bland-
að þessu saman þegar ég kem hing-
að og undanfama daga hef ég m.a.
verið að veiða í Kjarrá og Laxá í
Kjós. Nú tekur hins vegar alvaran
við.“ Andreas hefur á undanförn-
um árum sungið í óperuhúsum víða
um heim, m.a. í þýsku óperunni í
Berlín, Ríkisóperunni í Hamborg,
Ríkisópemnni í Munchen, Ríkisóper-
unni í Vín, Covent Garden í London
og Metropolitan ópemnni í New
York. Nokkrir hljómdiskar með ljóð-
asöng hans em komnir út og fleiri
eru væntanlegir, m.a. Vetrarferðin,
Malarastúlkan fagra og Svanasöng-
ur eftir Schubert, Die schöne Mage-
lone eftir Brahms og ljóðasöngvar
eftir Schumann. Hann segir að söng-
ferill sinn hafi hafist við upphaf
níunda áratugarins.
„Ég var heppinn, hitti rétta fólkið
á réttum tíma og vann nokkrar
keppnir sem kom mér í samband við
þekkt tónskáld," sagði Andreas. Á
næstu þremur ámm mun hann halda
einsöngvaratónleika í Bandaríkjun-
um, Japan og Evrópu auk þess sem
hann mun taka þátt í ópemflutningi
víða um heim.
Andreas segist telja að það verði
að vera efst í huga hvers tónlistar-
manns fyrir hvem hann flytur tón-
listina. „Ég legg mig fram við að
syngja fyrir áheyrendur en ekki fyr-
ir sjálfan mig,“ sagði Andreas. „Auk
þess finnst mér mikilvægt að fylgja
alltaf reglum og hugmyndum tón-
skáldsins um flutning verksins í stað
þess að skapa mínar eigin. Mér
fínnst rangt að gera það sem mjög
algengt er að heyra, þegar tónlistar-
maðurinn skapar sér sérstöðu með
því að búa til eigin reglur um flutn-
ing tónlistarinnar. Það virðist gilda
nú til dags að vera á einhvern hátt
öðruvísi. Ég kýs hins vegar gamla
viðhorfið, þar sem borin er virðing
fyrir því hvemig tónskáldið sjálft
vildi að verkinu væri komið á fram-
færi,“ sagði Andreas.
Meðleikari Andreasar á tónleikun-
um í íslensku ópemnni er hollenski
píanóleikarinn Rudolf Jansen en þeir
hafa starfað saman um nokkurt
skeið. „Það er ómetanlegt fyrir
söngvara og píanóleikara að geta
starfað saman án þess að þurfa að
ræða um hvernig flytja eigi hvert
RAX
Andreas Schmidt ljóða- og óper-
usöngvari sem heldur tónleika í
Islensku óperunni í dag og á
morgun.
einstakt atriði í verkunum. Þetta
tekst okkur Rudolf. Hann nýtur góðs
af píanókunnáttu minni og ég nýt
góðs af því hve vanur hann er að
starfa með söngvurum," sagði
Andreas.
Andreas mun flytja tvær efnis-
skrár á tónleikunum í íslensku óper-
unni. Efnisskrá fyrri tónleikanna
samanstendur af ljóðum Schumanns
við texta fjögurra skálda, þeirra
W.v.d. Neun (op.89), N. Lenau
(óp.9), H.C. Andersen (óp.40) og J.
Kerner (óp.35). Síðara kvöldið til-
einkar hann sönglögum sem Schum-
ann samdi við kvæði eftir Heinrich
Heine en þar em m.a. ljóðaflokkarn-
ir Liederkreis óp. 24 og Diechterlie-
ber óp. 48.
Framtíð Reykjanesskóla ræðst eftir helgi:
Menntamálaráðherra bíð-
ur upplýsinga um umsóknir
Rekstrarkostnaður á hvern nemanda
í Reykjanesi er fjórfalt meiri en að
meðaltali annarstaðar á Vestfjörðum
HÉRÁÐSSKÓLINN á Reykjanesi við ísafjarðardjúp er nú í sviðsljós-
inu sökum deilna sem risið hafa með menntamálaráðherra og heima-
mönnum um hvort loka skuli skólanum eða ekki. Lokaákvörðunar
ráðherra um málið er að vænta strax eftir helgi en hún verður að
liggja fyrir sem fyrst svo þeim nemendum sem sótt hafa um vist við
skólann gefist kostur á öðrum ráðstöfunum um nám fari svo að skól-
inn verði lagður niður í núverandi mynd. Menntamálaráðherra hefur
þegar tekið ákvörðun um að loka skólanum en jafnframt sagt að
hann muni endurskoða þá ákvörðun ef fleiri en 30 nemendur sækja
um vist á Reykjanesi. Ráðherra bíður nú eftir upplýsingum um um-
sóknir nemenda og fær þær væntanlega um helgina. I framhaldi af
því ræðst svo nánasta framtíð skólans.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að starfsmenn menntamála-
ráðuneytisins séu lítt hrifnir af því að forráðamenn skólans skuli
hafa auglýst eftir nemendum eftir að þeim var ljóst að sennilega
yrði skólinn lagður niður. Telja þeir að með þessu hafi verið ætlunin
að hafa áhrif á ákvarðanatöku ráðherra.
Mál þetta kom til skoðunar í
menntamálaráðuneytinu snemma í
sumar og drög að ákvörðun Ólafs
G. Einarssonar menntamálaráðherra
lágu fyrir í júlí. Á þeim tíma var ljóst
að aðeins 24 nemendur höfðu sótt
um vist í skólanum og þar af höfðu
fjórar umsóknir verið dregnar til
baka. Ennfremur lá fyrir að rekstrar-
kostnaður við hvern nemanda á
Reykjanesi var um fjórfalt hærri en
þessi kostnaður er á nemanda annar-
staðar á Vestfjörðum. Meðalkostnað-
ur á nemanda á Vestflörðum er um
125.000 krónur á ári en tæplega
500.000 krónur á nemanda í Reykja-
nesi. Ólafur G. Einarsson segir að
ekki hafi þótt réttlætanlegt að halda
óbreyttum rekstri skólans áfram við
þessar aðstæður.
Fundur með þingmönnum
Ráðherra boðaði svo fund með
þingmönnum kjördæmisins 1. ágúst
til að ræða málið. Á þann fund kom-
ust ekki Ólafur Þ. Þórðarson og
Matthías Bjamason og segir Matt-
hías raunar að hann telji að ekki
hafi verið reynt að ná sambandi við
sig. A.m.k. var fundurinn boðaður
með mjög skömmum fyrirvara, eða
aðeins nokkrum klukkustundum. Á
þessum fundi fór ráðherra yfir stöð-
una eins og hún leit út frá bæjardyr-
um ráðuneytisins og sagði þá skoðun
sína að hann teldi ekki réttlætanlegt
að halda skólastarfi áfram í óbreyttri
mynd. Hans hugmynd var, og er,
að þeir nemendur sem heima eiga í
héraðinu fengju áfram kennslu í
grunnskólanum á staðnum og þeir
þrír nemar sem sótt höfðu um í 10.
bekk færu annað. Sú hugmynd kom
fram að leggja skólastarfið niður í
eitt ár en halda svo áfram 1992.
Ráðherra kvaðst ekki geta gefið yfir-
lýsingu um slíkt. „Það fór ekkert á
milli mála að þingmönnunum var
annt um að skólastarf héldi áfram á
þessum stað enda slíkt mikilvægt
fyrir byggðina þama,“ segir Ólafur
G. Einarsson. „Én menntamálaráðu-
neytið er ekki byggðastofnun og það
er ekki réttlætanlegt að halda skóla-
starfi gangandi nema ijöldi nemenda
gefi ástæðu til.“
Þann 15. ágúst fór fulltrúi ráðu-
neytisins vestur til fundar við skóla-
nefnd og skólastjóra til að gera þeim
grein fyrir stöðu málsins og 21.
ágúst var síðan sent bréf-vestur sem
greindi frá ákvörðun ráðherra um
framtíð skólans.
Eínhugur um áframhald
skólastarfs
Matthías Bjamason einn þing-
manna Vestfirðinga segir að það ríki
alger einhugur meðal þingmanna og
heimamanna um að skólastarfi beri
að halda áfram á Reykjanesi. Þetta
hafi komið glöggt fram á fundi þess-
ara aðila á Suðureyri nú í vikunni.
„Persónulega er-ég mjög andsnúinn
þeirri hugmynd að leggja skólann
niður í núverandi mynd og ég hef
lýst eindregnum vilja mínum að skól-
inn haldi áfram,“ segir Matthías. En
það kemur jafnframt fram í máli
hans að hann sé þeirrar skoðunar
að huga megi að öðrum notum fyrir
Reykjanesskólann en nú er. Og Ein-
ar K. Guðfinnsson annar þingmaður
er á sama máli. „Á fundinum á Suð-
ureyri lýsti ég þeirri skoðun minni
að starfsemin á Reykjanesi yrði tek-
in til endurskoðunar en skólastarf
héldi áfram á meðan sú vinna færi
fram,“ segir Einar. „í þessu sam-
bandi má nefna að á staðnum er
rekið Eddu-hótel yfír sumartímann
með góðum árangri og slíkt er mikil-
Deilur vegna þings Sambands nngra sjálfstæðismanna:
Smölun fer fram í öllum raun-
hæfum stjómmálasamtökum
vægt fyrir ferðaþjónustuna í
flórðungnum." Einar segir einnig
að ýmislegt annað hafí komið til
umræðu eins og ýmis heilsurækt-
arstarfsemi, en þama er jarðhiti.
Jafnvel að slík starfsemi yrði rek-
in í samvinnu við launþegasamtök.
Matthías Bjamason telur að
starfsmenn menntamálaráðuneytis-
ins hafi gefið ráðherra rangar upp-
lýsingar um fjölda umsókna í skólann
í sumar og segist standa við þau orð
sín. Ólafur G. Einarsson segir á
móti að þetta fái ekki staðist og vís-
ar þessum ásökunum á bug. En
Matthías er einnig þungorður í garð
ráðherra fyrir meðferð málsins í
heild. „Ég tel að ekki hafi verið reynt
að ná í mig fyrir fundinn I. ágúst
og það var fyrst fyrir tveimur dögum
að ég sá hjá öðmm þau plögg sem
lögð vom fram þar,“ segir Matthías.
„Það er með ólíkindum að ráðherra
Sjálfstæðisflokksins láti sína þjóna
vinna með slíkum hætti.“
Nemendum fækkar stöðugt
Ágúst Gíslason formaður skóla-
nefndar Héraðsskólans í Reykjanesi
segir að helstu rökin fyrir því að
skólastarfi beri að halda áfram á
þessum stað séu einkum sú að skól-
inn sé inni á fjárlögum og þarna sé
um eina menningarsetrið í héraðinu
að ræða sem gegni þýðingarmiklu
hlutverki fyrir byggðina.
í máli Ágústar kemur fram að nú
liggi fyrir rúmlega 30 umsóknir um
vist í skólanum og það sé svipað og
verið hefði á sama tíma á undanförn-
um árum. En hann viðurkennir jafn-
framt að nemendum hafi stöðugt
farið fækkandi við skólann og að
heimamönnum hafi fækkað á fjórum
árum úr því að vera um helmingur
nemenda niður í tæplega þriðjung
nú.
- segir Davíð Stefánsson formaður en vísar því á bug
að nokkur fulltrúi hafi verið með ólöglegt kjörbréf
NOKKRIR fulltrúar á 31. þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS),
er haldið var á Isafirði fyrir skömmu, hafa deilt harkalega á formann
og framkvæmdasljóra sambandsins að undanförnu og sagt að vegna
ýmissa lagabrota og vafaatriða séu samþykktir þingsins í reynd ómerkar
og sama sé að segja um kjör í trúnaðarstöður. Þeir telja m.a. að allmarg-
ir fulltrúar hafi ekki átt seturétt að lögum en svo fór á síðasta degi
þingsins að ákveðið var að stöðva sljórnarkjör í miðjum klíðum og byija
aftur eftir að samkomulag hafði náðst um að nokkrir fulltrúar fengju
ekki að neyta kosningaréttar þar eð vafi léki á um gildi kjörbréfa þeirra.
Morgunblaðið ræddi við Davíð Stefánsson, formann SUS, og spurði hvers
vegna ekki hefði verið gert út um þessi mál áður en gengið var til (fyrri)
stjórnarkosninganna þar sem þá höfðu þegar borist kvartanir.
„Málið er að þegar við vorum að
ljúka þingi, sem flestir hljóta að vera
sammála um að mikil eining hafi ríkt
á, þingi með góðu málefnastarfi, þá
kom að stjórnarkjöri. Það var ekki
kjörinn formaður, sjálfkjörið var í það
embætti. Þegar kemur að stjórn-
arkjörinu er borin fram athugasemd
við nokkra fulltrúa. Samkvæmt lögum
SUS eða ákvörðun fráfarandi stjómar
áttu um 380 manns seturétt á þing-
inu. 260 höfðu að mig minnir tilkynnt
að þeir myndu koma. Er kom að
stjórnarkjörinu höfðu 213 fengið kjör-
bréf í hendur. Áður en stjómarkjörinu
lauk komu fram athugasemdir við
lögmæti nokkurra fulltrúa. Þá var
farin sú leið, til að allir yrðu nú sátt-
ir, að formenn aðildarfélaganna, sem
eru 34, voru kallaðir á fund. Þar var
farið í saumana á hverju einasta kjör-
bréfi, sem gefið hafði verið út á þing-
inu, nöfnin voru lesin upphátt svo að
hægt væri að gera athugasemdir.
Þannig mætti leiða í ljós öll hugsanleg
ágreiningsefni og gerðar vom athuga-
semdir við gildi kjörbréfa 10-12 full-
trúa úr alls fjórum félögum. Ekki
reyndist hægt að ganga úr skugga
um lögmæti viðkomandi kjörbréfa á
staðnum, m.a. vegna þess að tveir
formenn voru ekki á þinginu. Valin
var sú lausn að biðja þá fulltrúa sem
ágreiningurinn snerist um að kjósa
ekki í von um að sátt næðist í mál-
inu. Þeir samþykktu þetta og hafin
var stjómarkosning á ný. Ég vil taka
það skýrt fram að engin kjörbréf vom
ógilt á þinginu, þótt öðm hafi verið
haldið fram í sumum fjölmiðlum.
Það hefur verið sagt að einn full-
trúi Dalamanna hafi verið eiginkona
félaga úr Reykjavík. Félögin á hverj-
um stað ráða því hveija þau velja
fyrir sína hönd á þing SUS og engin
lög bönnuðu að fulltrúi hafi lögheim-
ili utan félagssvæðisins. Með nýjum
lögum reynum við að vísu að þrengja
þennan möguleika til að síður komi
upp ágreiningur. Þess má geta að
sömu lög um lögheimili gilda varðandi
fulltrúa á landsfund Sjálfstæðis-
flokksins.“
Fórnfýsi eða maðkur í mysunni?
— Er það ekki fremur ótrúlegt að
þessir 10-12 fulltrúar hafi sætt sig
við það, þegjandi og hljóðalaust, að
þeir fórnuðu atkvæðisrétti sínum á
altari sáttanna eftir að hafa lagt á
sig langt ferðalag og greitt þinggjald?
Höfðu þeir ekki alveg hreinan skjöld?
„Það gekk ekki átakalaust fyrir
sig. En þeir sættust á þetta og þeir
gerðu ekki athugasemdir við þessa
lausn á þinginu sjálfu."
— Er það rétt að sumir þeirra fé-
laga, er hafa verið á þinginu sam-
kvæmt gögnum þess, kannist nú ekki
við að hafa yfirgefið sína heimabyggð
þingdagana? Því er líka haldið fram
að tveir félagar hafi gripið fram fyrir
hendumar á starfsmönnum fram-
kvæmdastjómar og dreift kjörbréfum
til nokkurra fulltrúa sem komu á
sunnudeginum, síðasta degi þingsins.
Annar félaginn hafi meira segja beðið
úti á flugvelli eftir leiguvél sem kom
á síðustu stundu með um 15 félaga,
rétt áður en stjórnarkjör hófst. Eru
þetta eðlileg vinnubrögð?
„Það em nú alls konar ásakanir á
kreiki en ég kannast ekki við þetta.
Ég veit ekki til þess að áður hafi ver-
ið farið jafnvandlega ofan í kjörská á
SUS-þingi eins og gert var á fundi
formannanna. Síðar var hvert nafn
anna íjögurra sem koma við sögu og
þeir hafa sent frá sér yfirlýsingu um
málið. Áðurnefndir fulltrúar hafa ekki
reynst ólögmætir. Ég hef ekki heyrt
að gerðar hafí verið neinar athuga-
semdir við aðra fulltrúa. Það er því
ljóst að þingið var fullkomlega lög-
legt. Það er þó stjórn SUS sem úr-
skurðar þegar deilt er um túlkun laga
en hafi menn aðrar athugasemdir
geta þeir auðvitað leitað til miðstjórn-
ar Sjálfstæðisflokksins. Stjórn SUS
mun koma saman eftir viku og þar
verða þessi mál tekin fyrir. Sjálfur
ætla ég að taka það upp í miðstjóm
flokksins.“ -
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Frá þingi SUS á ísafirði. Davíð Stefánsson í ræðustól en við borðið
eru Davíð Oddsson forsætisráðherra, er ávarpaði þingið, og ísól Fan-
ney Omarsdóttir, formaður Fylkis, félags ungra sjálfstæðismanna á
Isafirði.
lesið upp og viðkomandi fulltrúi kom
sjálfur til að sækja kjörbréf sitt í allra
augsýn hjá formanni kjörnefndar.
Hafi eitthvað komið upp af því tagi
sem þú nefnir get ég ekki séð hvern-
ig við hefðum átt að sjá við því. Það
tíðkast ekki hjá okkur að biðja alla
um persónuskilríki við afhendingu
kjörbréfs nema einhver fari beinlínis
fram á að það sé gert, ef einhveijar
grunsemdir vakna. Enginn fór fram
á það núna. Ég veit ekki betur en
dreifing kjörbréfa hafi farið fram með
eðlilegum hætti, en það hefur gerst í
gegnum tíðina að einstaklingar greiði
stundum þinggjöldin fyrir hóp af full-
trúum.“
— Varð einhver misbrestur á því
að fulltrúar greiddu þinggjald?
„Það er alveg klárt að svo var ekki,
allt fór fram með löglegum hætti. En
í hita leiksins voru sumir orðnir nokk-
uð æstir og gérðu athugasémd, vildu
að sjóðurinn yrði kannaður til að
ganga úr skugga um þetta. Fyrst í
stað neitaði ég þessu, fannst þetta
ekki koma málinu við, en þegar ég
áttaði mig á hversu alvarlegar þessar
ásakanir gætu orðið, ef þessu máli
yrði ekki lokið á þinginu, lét ég að
lokum tvo þeirra félaga sem farið
höfðu fram á þetta, vera viðstadda
þegar talið var í kassanum. Að sjálf-
sögðu var allt með eðlilegum hætti.
Það staðfesti Kjartan Magnússon, sem
var annar þessara fulltrúa. Ég vil
ekki að heiðarlegt fólk sem starfar
fyrir sambandið liggi undir grun um
eitthvert misferli, það kemur ekki til
greina."
Allar samþykktir löglegar
— En ef það kemur í ljós að ein-
hver fulltrúi hafi ekki verið með gilt
kjörbréf, hvað gerist þá? Eru allar
samþykktir, sem hann hefur greitt
atkvæði um, ógildar?
„Við erum búin að kanna lögmæti
þessara 10-12 fulltrúa sem deilan
snerist um og ræða við formenn félag-
Teppi Davíðs
— Er það rétt að þú hafí verið tek-
inn inn á teppið hjá -Davíð Oddssyni
vegna þessa máls og komið út eins
og sneyptur hvolpur?
„Það er bara af og frá, alveg út í
hött, þetta er hrein og klár lygi! Sann-
leikurinn er sá að ég hef ekki átt
fund með Davíð í nokkrar vikur og
það getur forsætisráðherra vænt-
anlega staðfest sjálfur. Þetta er bara
dæmi um þann ótrúlega rógburð sem
hér fær að vaða uppi. Ég hef rætt
þetta við ritstjóra Pressunnar, þar sem
þessu var haldið fram, og spurt hann
hvað blaðamönnum Pressunnar gangi
eiginlega til með svona framferði. Þar (
varð lítið um svör, en ég á von á að
Pressan birti afsökunarbeiðni.
Það er ekkert nýtt að átök séu í
þessari hreyfingu milli manna. Tvær
fylkingar hafa tekist á í nokkur ár í
Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavík. Þær náðu sam-
komulagi að þessu sinni um að þær
styddu samanlagt sjö einstaklinga úr
báðum fylkingum til að skipa þau níu
sæti í stjórn SUS sem ætluð eru
Reykjavík. Þetta samkomulag hélt og
fyrir vikið er stjórnin sterkari en ella.
Þess vegna hélt ég að menn myndu
leggja sig fram um að sýna ein-
drægni að þingi afstöðnu. Varðandi
smölun, þá er því slegið upp í sumum
fjölmiðlum að þarna sé um að ræða
afar merkilegt mál. Auðvitað er smöl-
un í svona samtökum, hún fer fram
í öllum stjómmálasamtökum sem taka
sig alvarlega. Ég spyr nú bara, eru
menn búnir að gleyma aðalfundum
Heimdallar? Síðustu þijú árin hefur
verið smalað 400-600 manns á aðal-
fundi félagsins og svo er því haldið
fram að átök á borð við þessi hafi
aldrei komið upp áður! Á fundum
Heimdallar eru engin kjörbréf athug-
uð, því er nú verr og miður. Ég minn-
ist þess að hafa sem fundarstjóri rek-
ið af Heimdallarfundi mann sem situr^l
í stjórn Strætisvagna Reykjavíkur fyr-
ir Nýjan vettvang. Mér finnst það á
hinn bóginn ekki sæmandi að hlaupa
með öll svona mál í fjölmiðla, það
dregur úr trúverðugleika sambands-
ins. Þetta eru vinnubrögð sem hafa
næstum því gengið af stjórnmála-
hreyfingum dauðum, til að mynda
Alþýðubandalaginu, þótt þar komi
fleira til. Menn eiga ekki að bera á
torg sérhveija naflaskoðun á smáat-
riðum og persónulegan metnað sinn.
Við verðum að sýna þann aga að af-
greiða málin í eigin röðum en ekki í
fjölmiðlum. Málefnastarf SUS hefur
skilað sér vel inn í fjölmiðla en því
miður skyggja þessar deilur á þann
árangur." ^
(Viðtal: Kristján Jónsson)
Yfirlýsing formanna fjög-
urra aðildarfélaga SUS
Á 31. þingi Sambands ungra sjálf-
stæðismanna, sem haldið var á
ísafirði dagana 16. - 18. ágúst sl.,
var gerð athugasemd við kjörbréf
nokkurra þingfulltrúa frá þeim
flórum félögum sem undirritaðir
eru í forsvari fyrir. Ekki komu fram
athugasemdir við þingfulltrúa ann-
arra aðildarfélaga SUS, 30 að tölu.
Ekki var hægt að staðfesta kjör-
bréf þeirra aðila sem gerð var at-
hugasemd við með skjótum hætti.
Orsakir þess voru: í fyrsta lagi að
tveir okkar, Siguijón Birgisson og
Ólafur Halldórsson, höfðu ekki tök
á að sitja þingið. í öðru lagi að fjar-
staddur varaformaður eins félags-
ins hafði skilað inn fulltrúalista í
forföllum formanns, Ólafs Þórs
Leifssonar. í þriðja lagi var ekki
hægt að fá úrskurðað með skjótum
hætti um lögmæti fulltrúa fjórða
félagsins þar sem upp kom ágrein-
ingur milli formanns, Baldurs Þór-
hallssonar, og varaformanns um
þann lista er formaður hafði skilað
inn til SUS með lögmætum hætti.
Til að tefja ekki störf þingsins
voru þessir þingfulltrúar sem gerð
var athugasemd við og við undirrit-
aðir staðfestum hér með að voru
réttkjörnir þingfulltrúar okkar fé-
laga, beðnir að taka ekki þátt í
stjórnarkjöri. Urðu þeir vinsamleg-
ast við þeirri bón svo ljúka mætti
þinghaldi á eðlilegum tíma. Þannig
afsöluðu þessir réttkjömu þingfull-
trúar sér kosningarétti sínum til
að viðhalda sátt á þinginu. Engar
athugasemdir voru gerðar við þessi
málalok á þinginu sjálfu.
Við hörmum að þessi ófyrirséði
misskilningur hafí verið gerður að
fjölmiðlamáli og álit ungs sjálf-
stæðisfólks þannig verið skaðað.
Þessar rangfærslur og mis-
skilning um lögmæti þingfull-
trúa okkar félaga viljum við hér
með leiðrétta með því að ítreka
enn og aftur að þessir þingfull-
trúar voru lögmætir fulltrúar
okkar félaga í samræmi við þá-
gildandi lög Sambands ungra
sjálfstæðismanna.
Með von um að þessi leiðrétt-
ing lciði málið til lykta.
Ólafur Þór Leifsson, formað-
ur Óðins FUS Seyðisfirði.
Sigurjón Birgisson, formaður
Eyverja FUS Vestmannaeyj-
um.
Ólafur Halldórsson, formaður
FUS Dalasýslu.
Baldur Þórhallsson, formaður
Fjölnis FUS Rangárvallasýslu.