Morgunblaðið - 31.08.1991, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAyGARDAGUR 31. AGUST 1991 •
HEFJUM B
GAMLA
ÍSLENSKA <
BYGGINGALIST %
TIL VEGS Á NÝ...
MEGA
báruiaga
áliö ryðgar
ekki né tærist.
Til afgreiðslu strax.
Mjög gott verð.
SPARAÐU VtÐHALD
NOTAÐÍI ÁL
Mega h/f, Engjateigi 5, 105 Reykjavfk
Pósthólf 1026, 121 Reykjavfk.
Sími 91-680606. Fax 91-680208.
SVEITAFELAGIÐ
SYÐRI - ÞR/ENDALÖG
Héraðssjúkrahúsið
í Þrándheimi
Skurðstofudeild - Bæklunarsjúkdómar
SÉRMENNTADIR HJÚKRUNARFR/EÐINGAR
(nr. 514/91).
Fostar stöður og staðgenglar.
Skurðstofudeild bæklunarsjúkdóma vantar til-
finnanlega skurðstofuhjúkrunarfræðinga vegna
stækkunar deildarinnar.
Vió erum eingöngu bæklunarskurðdeild með
3-skipta virka vaktþjónustu og vió vinnum
3. hverjo helgi. A öllum vöktum eru 3 skuró-
stofuhjúkrunarfræðingar.
Tilsögn verður veitt nýróðnum.
Nðnari upplýsingar um deildina mð fó hjó
yfirhjúkrunarfræðingi eða Gro Langnes, deild-
arhjúkrunarfræðingi, sími 7 99 83 91.
Umsóknarfrestur ertil 19. september 1991.
Loun samkvæmt gildandi samningum. Eftir-
launasjóður sveitarfélaga.
Umsókn auðkennd með umsóknarnnr., afrit
af vottorðum, meðmæli og opinbert starfs-
leyfi sendist Personalseksjonen, Regionsyke-
huset í Trondheim, 7006 Trondheim, Norge.
Nr. ó að noto þessu viðvikjandi.
Starfið hefst í siðosta lagi 3 mónuðum eftir
umsókn, ef annað er ekki tekið fram. Upplýs-
ingor um heilsufar og nýlegt berklapróf þorf
að leggjo fram óður en starfið er hafið.
••f
Skíðamenn!
Skíðaþjálfarar!
Skíðadeild Þróttar, Neskaupstað, óskar eftir
skíðaþjálfara til að sjá um þjálfun allra flokka
næsta vetur.
Upplýsingar í símum 97-71140 (Ingþór) og
97-71762 (Jóhann).
London
KR. 18.900
Fast verð án flugvallarskatts og forfallatryggingar.
Til samanburðar: Ódýrasta superpex til
London á 31.940 kr. Þú sparar 13.040 kr.
Flogið alla miðvikudaga.
Frjálst val um hótel, bílaleigur og framhaldsferðir.
— fiiigFERÐIR
= SDLHRFLUC
Vesturgata 12, Símar 620066, 22100 og 15331
Þessir hringdu
Eiga að vera í sínu
náttúrulega umhverfi
Dýravinur hringdi:
Ég er sammála þeim sem eru
á móti því að háhyrningar séu
fangaðir til að loka þá svo inni í
dýragörðum eða sædýrasöfnum.
Þessar fallegu skepnur hafa það
í eðli sínu að vera frjálsar og hjóta
að líða mikið þegar að þeim 'er
þrengt og þær lokaðar af þar sem
stór hópur foiks gónir sífellt á
þær. Það fer best á að dýrin séu
í sínu náttúrulega umhverfi, þeir
sem vilja skoða þau ættu frekar
að leita þau uppi í þeirra náttúru-
lega umhverfi.
Goður upplestur
Kona hringdi:
Ég • vil þakka Hönnu Maríu
Karlsdóttur fyrir göðan upplestur
á sumarsögu Rásar 1, Dóttir Róm-
ar. Þetta var mjög skemmtileg
saga og það er hálf tómlegt á
kvöldin, núna þegar lestri hennar
er lokið.
Gallajakki
Nýr Levis gallajakki tapaðist
við íþróttahús Seljaskóla fimmtu-
daginn 22. ágúst. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 72914.
Góður veitingastaður
Kona hringdi:
Ég vil koma þakklæti til eig-
enda og starfsfólks á veitnga-
staðnum Ingólfsbrunn. Veiting-
arnar þar eru ódýrar og staðurinn
bæði snyrtilegur og huggulegur.
Ég hef farið með viðskipavini
mína bæði í mat og kaffi á þenn-
an stað og hafa allir verið
mjög ánægðir.
Hjól
Nýlegt Trekk fjallahjól, 21 gíra,
var tekið fyrir utan hús í Selja-
hverfi um síðustu helgi. Ef ein-
hver hefur orðið var við það er
viðkómandi beðinn um að hringja
í Guðmund í síma 76827.
Tyndur köttur
■ Grár fressköttur með hvíta
bringu fór að heiman sunnudags-
kvöldið 25. ágúst frá Fagrabergi
54 Hafnarfirði. Hann er með ól
og heitir Felix. Þeir sem hafa séð
hann vinsamlegast hringi í síma
653032.
Hjól
Nýlegt Euro star kvenhjól var
tekið við Torfufell. Ef einhver
hefur séð það, vinsamlegast
hringið í Halldóru í síma 78397.
Fundarlaun.
Köttur
Gulbröndóttur ársgamall högni
tapaðist úr bíl fyrir neðan Lága-
fell í Mosfellsbæ. Ef einhver hefur
orðið hans var, vinsamlegast
hringið í síma 666827.
Myndavél
Myndavél tapaðist í Ásbyrgi
laugardaginn 10 ágúst. Upplýs-
ingar í síma 93-51279.
Læða
Svört og hvít læða fór frá Rétt-
arholtsvegi fyrir viku síðan. Ef
einhver hefur orðið var við hana,
vinsamlegast hafið samband í
síma 33660 eftir ki. 20.
Kettlingar
Tveir gullfallegir sjö vikna
kassavandir kettlingar fást gefins
á gott heimili. Upplýsingar í síma
45265.
Armband
Gullarmband tapaðist 16. ágúst
á leið frá Hofsvallagötu niður í
miðbæ. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 18558.
Kápa
Laugardagskvöldið fyrir hvíta-
sunnu milli kl. 22 og 22.30 hvarf
kápa úr fatahengi Púlsins við Vit-
astíg. Kápan er gulbrún ullar-
kápa, framleidd í París með merk-
inu Electra. Hún er stutt, útvíð,
með sjaikraga og óhneppt. Eig-
andinn, sem var að ljúka námi
erlendis, er nú kominn heim aftur
og sakanar vetrarkápunnar sinn-
ar. Vinsamlegast skilið kápunni í
Púlsinn þar sem hennar verður
vitjað.
ÚR
Kvenúr fannst í grennd við fót-
boltavöllinn í Laugardal. Upplýs-
ingar í síma 688297.
Myndavél
Nikon myndavél tapaðist á
Búðum, Snæfellsnesi, vikuna eftir
verslunarmannahelgi. Hún er
svört með 35 mm linsu. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 23395.
Kafaraúr
Hinn 10. ágúst tapaðist kafa-
raúr í Laugardalslaugunum, senn-
ilega í grunnu lauginni. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 44524.
Númeraplata
Númeraplata, YE-5481, fannst
á miðvikudag. Upplýsingarí síma
670729 .
Honda NTX
Svartri Hondu NTX var stolið
24. ágúst milli kl. 9 og 12 fyrir
utan Hamraborg í Kópavogi. Hjól-
ið ber númerið R-1143. Ef ein-
hver hefur orðið var við hjólið eða
veit eitthvað um ferðir þess er
viðkomandi vinsamlegast beðinn
um að hafa samband við lögregl-
una í Kópavogi. Fundarlaunum
heitið.
Forréttindi og eignaréttur
Nú blasir fall kommúnista-
kerfisins í Sovétríkjunum við en
óljóst er hvað við tekur. Þegar
hulunni er svipt af blasir við ótrú-
leg spilling sem hefur náð að
grassera alla þá sjö áratugi sem
þetta kerfi hefur verið við lýði.
Kunningi minn, sem ég ræddi við
um daginn, benti á að nánast
væri sama hvert ríkið væri í heim-
inum, alls staðar hafa um það bil
tíu prósent þegnanna skapað sér
forréttindi á kostnað hinna. Sovét-
ríkin væru engin undantekning,
þar hefði bara verið viðhöfð önnur
aðferð við svínaríið en til dæmis
í Bandaríkjunum. í framhaldi af
þessu fór hann að tala um mis-
skiptingu auðsins í Bandaríkjun-
um, þar væru viðurstyggilegustu
fátækrahverfi rétt við hlið auð-
mannahverfa þar sem fólk lifði við
hinn ótrúlegasta munað. En hve-
nær er von á umbótastefnu fyrir
þetta fólk, spurði hann svo.
Ég held að hér sé ólíku saman
að jafna. Kerfi kommúnistaflokks-
ins í Sovéttríkunum stóð vörð um
hagsmuni fámennrar valdaklíku
sem lifði í vellystingum á-sama
tíma og alþýða manna svalt. En
þetta kerfi, þar sem eignarétturinn
var ekki til staðar, lamaði auk
þess alla atvinnustarfsemi í
landinu og útilokaði allan hag-
vöxt. Það er hrein hártogun að
jafna eymdinni í Sovéttríkjunum
við fátækt í fátækrahverfum stór-
borga víða um heim því þar er um
miklu staðbundnari fyrirbæri að
ræða.
Vonandi tekst að virkja ein-
staklingsframtakið í Sovétríkjun-
um í kjölfar þeirra breytina sem
þar hafa orðið. Þá munu mörg
þessara ríkja innan fárra ára geta
státað af góðum efnahag og
mannsæmandi lífskjörum.
Lesandi
í hvaða dyr sem er
Héðins iðnaðarhurðir
- fyrir þá sem eru opnir fyrir gæðum.
= HÉÐINN =
SMIÐJA
STÓRÁSI6 » GARÐABÆ • SlMI 52000
Hönnun ? smíöi • viögeröir • þjónusta