Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 17
IMORGWNBMÐIÐ SUNNUDAGURJ8, SBPIBMBBJRjilWl
BIP7
^**#*?*
Carl Bildt; leiðtogi Hægri flokksins, áritar síðustu bók sína.
ari árum og beinast gegn jafnaðar-
mannaflokknum,“ sagði hagfræð-
ingurinn Klas Ekland úr hægra
armi flokksins nýlega. „Flókið kerfi
flokksins hefur lamandi áhrif og
framtíðin verður ekki auðveld.
Flokkurinn verður að afsala sér
verulegum hluta yfírráða sinna yfir
þjóðfélaginu og það krefst mikillar
uppyngingar, ef hann á að haida
fram að vera forystuafl ...“
Ekland segir að jafnaðarmenn
verði að sýna að þeir séu millistétt-
arflokkur, ef þeir eigi ekki að lenda
í minnihluta meðal kjósenda. Jafn-
framt verði þeir að stilla skattlagn-
ingu í hóf, því að ekki sé hægt að
hækka skattana meir (þeir geta
farið upp í 80%). Efnahagsstefnan
hafi að miklu leyti mistekizt vegna
kröfuhörku hagsmunasamtaka.
Jafnaðarmenn hafi ekki getað stað-
ið við kosningaloforð um frekari
umbætur.
Þannig vilja jafnvel ýmsir jafnað-
armenn lækka skatta og draga úr
ríkisafskiptum. Margir Svíar virðast
komnir á þá skoðun að velferðar-
stefnan sé of þungur baggi.Talsvert
fylgi Nýs lýðræðis virðist ekki sízt
eiga rætur að rekja til baráttu hins
nýja flokks gegn velferðarkerfinu.
Stuðningurinn við flokkinn er talinn
bera vott um pólitíska þreytu
margra kjósenda og útbreidda
óánægju með stefnu jafnaðar-
manna.
Nýtt lýðræði vill að skattar verði
lækkaðir um 10% á sex árum, svo
og að tollar á matvælum og lyfjum
verði lækkaðir, að heilsugæzla verði
einkavædd og að 150 velferðar-
stofnanir verði lagðar niður. Aðeins
nokkrir mánuðir eru síðan kaup-
sýslumaðurinn Ian Wachtmeister
og skemmtanastjórinn Bert Karls-
son stofnuðu flokkinn til þess að
„leggja pólitísk nátttröll að velli á
sama hátt og gert var í Austur-Evr-
ópu“.
Nýtt lýðræði hefur verið sakað
um að fylgja hættulegri henti-
stefnu. Ingvar Carlsson forsætis-
ráðherra hefur kallað flokkinn ógn-
un við lýðræðið. Sten Andersson
utanríkisráðherra hefur líkt flokkn-
um við „Frankenstein-skrimsli," en
hægri menn hafa kallað hann
„brandara".
Bandalag Hægri flokksins og
Þjóðarflokksins gerði grein fyrir
sameiginlegri stefnu í apríl í áætl-
un, sem nefnist „ Ny start för Sver-
ige“. Þrátt fyrir áætlunina héldu
flokkamir áfram að missa fylgi síð-
an úr síðustu kosningum sam-
kvæmt skoðanakönnunum í sumar,
en tveggja ára fyigistap jafnaðar-
manna virtist stöðvast. Jafnaðar-
menn hafa hamrað á því í kosninga-
baráttunni að borgaraflokkarnir
séu klofnir og geti ekki myndað
stjórn.
Síðan hafa Hægri flokkurinn og
Þjóðarflokkurinn stöðugt aukið
þrýsting sinn á stjórn jafnaðar-
manna og útskýrt betur stefnu sína
um skattalækkanir og ráðstafanir
til- að draga úr ríkishöftum. Mið-
flokkurinn og kristilegir hafa lýst
sig í meginatriðum sammála stefn-
unni „Ny start for Sverige. “
Gengið hefur verið út frá því að
Miðflokkurinn og kristilegir taki
þátt í myndun borgaralegrar stjórn-
ar eftir kosningarnar en í júlí sagði
Bengt Westerberg, leiðtogi Þjóðar-
flokksins, að hann vildi ekki útiloka
samstarf við jafnaðarmenn jafnt
sem hægrimenn. Hann taldi að
Miðflokkurinn og kristilegir væru
ekki nógu ábyrgir og of ósparir á
loforð, sem yrðu dýr í framkvæmd.
Hann hefur líka varað við „neyðará-
standi,“ ef Nýtt lýðræði kemst í
. oddaaðstöðu.
Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra lýsti strax yfir stuðningi við
hugmyndir Westerbergs um sam-
steypustjórn hægri og vinstri
flokka. Carlsson er orðinn þreyttur
á samningaþófi í þinginu til að
tryggja málum framgang, en hann
tók fram að samsteypustjórn með
þátttöku Hægri _flokksins kæmi
ekki til greina. Hægri flokkurinn
hefur heldur ekki áhuga á samvinnu
með jafnaðarmönnum.
Svenska Dagbladet sagði er það
fjallaði um hugmyndir Westerbergs
að minnihlutastjórn Þjóðarflokks og
hægri manna útilokaði ekki málefn-
alega samvinnu við jafnaðarmenn,
ef þeir héldu við þá stefnu að draga
úr eyðslu og auka sparnað. En blað-
ið kvaðst efast um að slík samvinna
gæti komizt á vegna áhrifa stuðn-
ingsmanna eyðslustefnu í jafnaðar-
mannaflokknum.
Blaðið hefur einnig gagnrýnt
Westerberg fyrir að afskrifa hugs-
anlega kosti á stjórnarmyndun, ef
Nýtt lýðræði kemst í oddaaðstöðu.
Þar með styrki hann stöðu Mið-
flokksins og kristilegra og veiki
stöðu bandalags hægri manna og
Þjóðarflokksins. Hægri flokkurinn
og Þjóðarflokkurinn verði kjarni
borgaralegrar stjórnar eftir kosn-
ingar — „hvort sem að henni standi
tveir, þrír, fjórir eða jafnvel fimm
flokkar".
Áður en hin eíginlega kosninga-
barátta hófst sögðu bæði Wester-
berg og Olof Johansson, leiðtogi
Miðflokksins, að þeir vildu ekki að
Nýtt lýðræði fengi aðild að stjórn.
Carl Bildt, leiðtogi Hægri flokksins,
hefur talað í svipuðum dúr. Svo
hefur virzt að Westerberg hafi einn-
ig viljað útiloka að borgaraleg stjórn
reyni að tryggja sér stuðning frá
Nýju lýðræði við einstök mál á
þingi. Johansson hefur heldur ekki
viljað gera ráð fyrir slíkum stuðn-
ingi.
Því hefur litið út fyrir að þrá-
tefli geti orðið í viðræðum eftir
kosningarnar, ef gömlu borgara-
flokkarnir fjórir fá ekki meirihluta
á þingi. Svo virðist að Umhverfis-
flokkur græningja detti út af þingi,
þar sem hann fái innan við 4% at-
kvæða, sem til þarf. Sá möguleiki
hefur verið talinn fyrir hendi að
jafnaðarmenn leiti eftir samstarfi
við Miðflokkinn, sem er talinn treg-
ur í stuðningi sínum við EB-aðild
auk þess sem hann hefur gert tillög-
ur um kostnaðarsamar umbætur.
Larsson fjármálaráðherra hefur
sagt að Wachtmeister, leiðtogi Nýs
lýðræðis, kunni að verða „voldug-
asti maðurinn í sænskum stjórnmál-
um“ í viðræðum um stjórnarmynd-
un eftir kosningarnar. Wachtmeist-
er hefur sagt að Nýtt lýðræði muni
ekki hleypa að forsætisráðherra úr
flokki jafnaðarmanna. Ef Nýtt lýð-
ræði kemst í oddaaðstöðu kann
myndun nýrrar stjórnar að verða
erfið.
Úrslit í síðustu kosningum í sept-
ember 1988 urðu sem hér segir:
Hægri flokkur 18,3%, Miðflokkur
11,3%, Þjóðarflokkur 12,2%, Kristi-
legi flokkurinn 2,9%, Umhverfis-
verndarflokkur græningja 5,5%,
jafnaðarmenn 43,2% og Vinstri
flokkur kommúnista 5,8%.
#PJOÐLEIKHUSIÐ-LEIKHUSIÐ ÞITT#
VERKEFNII
ÁSKRIFT Á STÓRÁ
SVIÐI:
GLEÐISPILIÐ
eftir Kjartan RagnarsSón
HIMNESK I ER AÐ I.IFA
eftir Paul Osborn
M. BUTTERFLY
eftir David Henry Hwárig
RÓMEÓOG JÚÍ.ÍA
eftir William Shakespeare
ELÍN. HELGA,
GUÐRÍÐUR eftir Þórunni
Sigu rðardóttur
NÚ ER ALLT LEYFT, söng-
leikureftirCole Porter
VERKEFNI I ASKRIFT
ÁLITLASyiÐI:
KÆRA JELENA eftir
Lj úd m í 1 u Razu movskaj u
ÉGHEITIÍSBJÖRG - ÉG
ERL.JÓN
eftir Vigdísi Grímsdóttur í
leikgerð Hávars Sigurjóns-
sonar'
RÍTA GENGÚR
MENNTAVEGINN eftir
Willv Russeíl
ASKRIFTARKORT:
í VETUR BJÓÐUM VIÐ
í FYRSTA SKIPTI
5 VALMÖGULEIKA
ASKRIFTARKORT:
ALLAR SYNINGAR:
Gleðispilið,
Kæra Jelena, Himneskt er
að lifa, M. Butterfly,
Rómeó ogJúlía, Égheiti
ísbjörg - ég erljón, Elín,
Helga, Guðríður, Ríta
gengurmenntaveginn, Nú
erallt leyft (söngleikur).
-Venjy jegtverð: 14.500,-
STÓRA SVIÐIÐ:
Gleðispilið, Himneskt er
að lifa, M. Butterfly,
Rómeó ogJúlía, Elín,
Helga, Guðríður, Nú er
alltleyft (söngleikur).
Venjulegt verð: 10.000,-
Áskriftarverð: 8.000,-
Þú sparar 2.000,-
ÍSLENSK
ÞRENNA
Gleðispilið, Ég heiti ís-
björg - ég er ljón, Elín,
Helga, Guðríður.
Venjulegt verð: 4.500,-
Áskriftarverð: 3.600,-
Þú sparar900
UNGAFÓLKIÐ
Kæra Jelena, Rómeó og
Júlía, Ég heiti ísbjörg - ég
er ljón, Nú er allt leyft
(söngleikur).
Venjulegt verð: 7.000,-
Áskriftarverð: 5,600,-
Þú sparar 1.400,-
LITLA SVIÐIÐ
Kæra Jelena, Ég heiti ís-
björg - ég er ljón, Ríta
gengur menntaveginn
Venjulegt verð: 4.500,-
Áskriftarverð: 3.600,
Þú sparar900,-
Miðasala Þjóðleikhússins er opin frá kl. 13.00- 20.00 á meðan á kortasölu stendur. Miðasölusími 11200. Græna línan 996160.