Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 1
120 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
203. tbl. 79. árg.
SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1991
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Kristján G. Amgrímsson
GA TAN SNYRT í RIGNINGARS UDDANUM
Brosið kröftugra
en stæltir vöðvar
Vingjarnlegt bros er meira virði en
stæltir fætur og dreymandi augu, að því
er fram kemur í könnun sem bresk tíma-
rit, er sérhæfa sig í ástarsögum, gerðu
á meðal lesenda sinna nýlega. Lesend-
umir telja að of mikið sé gert úr kynlíf-
inu í þjóðfélaginu og fólk leggi almennt
ekki nógu mikla rækt við hjónabandið.
68% þeirra segja mikilvægast að karl-
memi séu „rómantískir og tillitssamir“
og þeir eru helmingi fleiri sem leggja
meira upp úr „kossum og faðmlögum"
en hinir sem leggja mesta áherslu á
kynmök. Niðurstaðan er í samræmi við
þann boðskap sem finna má i þeim smá-
sögum sem birtar em í blöðunum; til
að mynda telja Iangflestir lesendanna
að „draumaprinsarnir" - þessir með
þykkt Ijóst hár, stælta vöðva og sólbrún-
an líkama - séu yfirleitt óþokkar. Þeir
veðja frekar á trausta vini, jafnvel þótt
þeir séu forljótir.
„Flugfreyjur eiga
að vera fallegar44
Yfirmaður flugfélagsins Thai Airways
Intemational í Tælandi vill að flugfreyj-
ur verði ráðnar eftir útliti, en ekki eftir
gáfum eða hæfileikum, að sögn þarlenda
dagblaðsins Nation. „Gáfaðar konur em
yfirleitt ekki fallegar," hafði blaðið eft-
ir flugmarskálknum Kaset Rojananil,
sem á sæti í herforingjastjóm landsins,
er yfirmaður flughersins og forseti flug-
félagsins. Hann skipaði svo fyrir að fal-
legri flugfreyjur yrðu ráðnar, þar sem
viðskiptavinir hefðu kvartað yfir útliti
núverandi flugfreyja. Að hans sögn má
rekja þetta til þess að svo margar lang-
skólagengnar flugfreyjur hefðu verið
ráðnar. Kvenréttindasamtök í Tælandi
bragðust ókvæða við þessum ummælum
og sögðu það ótrúlegt að þetta hugarfar
skyldi ekki enn heyra fortíðinni til.
Hávaði bfla kæfð-
ur með hávaða
Framleiðandi Nissan-bifreiða hefur
fundið upp aðferð til þess að kæfa vél-
arhljóð í farþegarými ökutækja. Fyrir-
tækið hefur hannað kerfi, sem gefur
frá sér hljóðbylgjur gegnum hátalara
undir sætum. Þessar hljóðbylgjur kæfa
allan hávaða í vélinni, að sögn tals-
manns Nissan. Vélarhljóð breytist eftir
hraða og ástandi vegar. Því mun tölva
reikna út þá tíðni, sem þarf til að
drekkja vélarhljóðinu, sagði talsmaður-
inn án þess að gefa nánari skýringar.
Fyrirhugað er að nota þessa tækni í
þeim bifreiðum af Nissan-gerð, sem
settar verða á markað síðar á þessu
ári. Þetta nýja kerfi mun ekki auka
hávaðamengun á götum úti og mann
legt eyra nemur ekki hljóðbylgjur þess.
Alger fríverslun með físk
fær varla brautargengi
Talið að EES geti orðið fyrirmynd að samningum við A-Evrópulönd
Evrópska efnahagssvæðið;
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMNINGAVIÐRÆÐUR Evrópubandalagsins (EB) og aðildarríkja Fríverslunarbanda-
lags Evrópu (EFTA) um hið svokallaða Evrópska efnahagssvæði (EES) em þessa
dagana að hefjast að nýju eftir rúmlega mánaðar hlé. Heimildarmenn segja að í röð-
um EFTA-þjóða sé talið mjög ólíklegt að bandalagið nái fram kröfum um algera
fríverslun með fisk. Aðalsamningamenn EFTA hittust í Brussel á fimmtudag og föstu-
dag til þess að ræða stöðu mála. Jafnframt áttu þeir fund með Horst Krenzler, aðal-
samningamanni EB, þar sem m.a. var fjallað um fundaáætlun næstu vikna.
Samkvæmt heimildum í Brussel ríkir tölu-
verð bjartsýni innan EFTA um að takast
muni að ljúka samningunum á haustmánúð-
um þó svo að enn séu umtalsverð ágreinings-
efni óleyst. Þar sem Norðmenn drógu til
baka tilboð sitt í sjávarútvegsmálum situr
EFTA uppi með kröfuna um fulla fríverslun
með sjávarafurðir. Heimildir í Brussel herma
að innan EFTA séu engar líkur taldar á því
að sú krafa nái fram að ganga og sama
gildi um fullt tollfrelsi á innfluttum sjávaraf-
urðum til EB. EFTA-ríkin verði þess vegna
að sætta sig við takmarkaðar tollaívilnanir.
Samkvæmt hugmyndum sem fram-
kvæmdastjórn EB kynnti óformlega 5. júlí
um tollaívilnanir fyrir innfluttar sjávarafurð-
ir frá EFTA féllu niður um 87% af þeim
tollum sem íslendingar greiða um þessar
mundir. Ekki er hins vegar ljóst hvað EB
vill fá fyrir sinn snúð en fullyrða má að það
eru ekki einungis Spánverjar og Portúgalir
sem standa viðunandi lausn fyrir þrifum
heldur hafa aðrar þjóðir, s.s. Bretar, Frakk-
ar, írar og Þjóðveijar, ítrekað hafnað samn-
ingum sem fælu í sér fullt tollfrelsi, þrátt
fyrir fullyrðingar þarlendra ráðamanna um
sérstakan skilning á sérstöðu íslendinga.
Hinar róttæku breytingar sem orðið hafa
í Sovétríkjunum síðustu vikur hafa orðið
stjórnmálamönnum innan EB tilefni til að
hvetja til þess að blásið verði nýju lífi í samn-
ingaviðræðurnar um EES, þar sem slíkir
samningar gætu hentað vel fyrir ríki sem
ekki eru að fullu tilbúin til aðildar að banda-
laginu. Þá er og hvatt til þess að aðildar-
samningum við þau aðildarríki EFTA sem
áhuga hafa verði flýtt vegna þess að aðild
þeirra muni styrkja EB í samskiptum þess
við Mið- og Austur-Evrópu ríkin.
ÞARF AÐ SKRIFA
NÝJA EDDU ?
BLAÐ
16
ÞRATEFLI
ISVIÞJÓÐ
LIF
Í LOKUÐU
LANDI
Hildegard og Dieter Koglin frd
Leipzig í Þýskalandi í viðtali