Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT MÓRGÚNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1991 ERLENT INIMLENT Samstaða um fjárlaga- frumvarp Samkomulag hefur náðst í stjórnarþingflokkunum um fjár- lagafrumvarp. Jóhanna Sigurð- ardóttir félagsmálaráðherra segir að samkomulag stjórnar- flokkanna feli í sér að gripið verði til aðgerða til frekari tekju- jöfnunar. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra segir að með- ferð skólagjalda hafi ekki verið endanlega ákveðin í frumvarp- inu. Bændur hafna EES-samningi Aðalfundur Stéttarsambands bænda hafnaði algerlega EES- samningi, í þeim farvegi sem samningaviðræðurnar voru þeg- ar upp úr þeim slitnaði í sumar. Bændur vilja að hagsmuna land- búnaðar verði gætt betur en raun hafi verið á. Laumufarþegi í Helgafellinu Palestínskur laumufarþegi fannst um borð í Helgafellinu þegar það kom til hafnar í Vest- mannaeyjum. Maðurinn kom um borð í Arósum og þvældist með skipinu til Noregs og Bretlands áður en hans varð vart í Eyjum. Lögreglu gerð fyrirsát Ejórir menn réðust að lög- reglumönnum, sem höfðu hand- tekið grunaðan fíkniefnasmygl- ara, og hrifsuðu hann úr höndum þeirra. Talið er að bróðir manns- ins hafi leigt menn til að gera lögreglunni fyrirsát. Tveir milljarðar falla á ríkið vegna Leifsstöðvar Að óbreyttu falla tveggja millj- arða króna skuldir Flugstöðvar Leifs Eiríksssonar á Keflavíkur- flugvelli á ríkið. Það þýðir að flugstöðin þarf 150 milljónir úr ríkissjóði árlega næstu 25 árin. Islendingur myrtur í Uganda íslenzkur maður, Samúel Jón Ólafsson, var skotinn til bana af ræningjum í Kampala, höfuð- borg Uganda. Morðingjamir eru ófundnir. Hlutabréf lækka Hlutabréfavísitala H-marks lækkaði um 2%, er gengi hluta- bréfa í öllum almenningshlutafé- lögum var lækkað. Mest var lækkunin hjá Flugleiðum, 6%. Lækkunin er vegna hárra vaxta og lakari afkomu fyrirtækja, auk þess sem sparendur fjárfesta þá fremur í skuldabréfum en hluta- bréfum. 126 bíða eftir hjartaaðgerð 166 manns biða nú eftir hjartaskurðaðgerð og er biðtím- inn allt að 45 vikur. A fundi, sem Ólafur Ólafssonlandlæknir boð- aði til, kom fram að þetta ástand væri vegna lokunar deilda á sjúkrahúsum og skorts á hjúkr- unarfræðingum og sjúkraliðum. ERLENT Sovétríkin lögðniður í núver- andi mynd Sovéska fulltrúaþingið afnam á fimmtudag sjö áratuga gamla stjórnskipun ríkisins sem komm- únistar settu á laggirnar nokkr- um árum eftir byltinguna í Rússlandi 1917. Ákveðið var að reyna að koma á laustengdu „Sambandi full- valda ríkja“ í stað Sovétíkj- anna og samþykkt að efna til þriggja nýrra valdástofnana er fá það hlutverk að undirbúa stofnun þess og fara jafnframt me_ð stjórn landsins til bráðabirgða. í valda- mestu stofnuninni, ríkisráðinu, sitja æðstu menn lýðveldanná auk Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovét- forseta. Komið verður á efnahags- svæði er minnir að mörgu á Evr- ópubandalagið og vonast sovéskir ráðamenn til að öll lýðveldin taki þátt í því samstarfi, einnig þau sem kjósa að yfirgefa sjálft ríkja- sambandið. Þessar tillögur Gorb- atjovs og fulltrúa tíu lýðvelda af fimmtán, þ. á m. Rússlands, um nýja stjórnskipun þurftu að fá tvo þriðju hluta atkvæða en voru felldar þrisvar á fulltrúaþinginu, sem rúmlega 2.200 manns áttu seturétt á. Að lokum hótaði Gorb- atsjov að þingið yrði leyst upp og náðist þá tilskilinn meirihluti en nokkur hundruð harðlínumenn tóku ekki þátt í atkvæðagreiðsl- unni. Hin breytta Skipun merkir að vald flyst að miklu leyti frá sambandsstjórninni í Moskvu til einstakra lýðvelda. Hvert lýðveldi ákveður sjálft hvernig tengslum þess við nýja ríkjasambandið verð- ur háttað en velji þau fullt sjálf- stæði er þó áskilið að þau semji við hin lýðveldin um ýmis ágrein- ingsmál sem óleyst eru. Ríkisráðið viðurkenndi á föstudag sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna þriggja og er það í fyrsta sinn frá stríðslokum sem Sovétríkin afsala sér land- svæði. Bandaríkin viðurkenndu sjálfstæði ríkjanna á mánudag. Major í Kína John Major, forsætisráðherra Bretlands, heimsótti Kína í vik- unni og var fyrstur vestrænna til þess síðan kommúnista- stjórnin braut á bak aftur mann- réttindabaráttu stúdenta og verkamanna á Torgi hins himn- eska friðar árið 1989. Hann sagði á mánudag að tímabært væri að ijúfa ein- angrun Kínveija alþjóðavettvangi en bresk blöð gagnrýndu för hans harðlega. Major undirritaði samn- ing við Pekingstjórnina um gerð nýs flugvallar í bresku nýlendunni Hong Kong sem kommúnista- stjórnin fær umráð yfir 1997. Á fréttamannafundi í Peking gagn- rýndi Major mannréttindabrot stjórnvalda. S-afrískir útlagar snúa heim Stjómvöld í Suður-Afríku og Sameinuðu þjóðimar undirrituðu á miðvikudag samning þar sem kveðið er á um sakaruppgjöf til handa um 40.000 pólitískum flóttamönnum er dvalist hafa í Útlegð. Barist í Króatíu Sambandsherinn í Júgóslavíu og serbneskir skæruliðar stöðv- uðu á miðvikudag allar samgöng- ur til króatíska héraðsins Slavoníu þar sem hart hefur verið barist undanfarnar vikur. Enn var barist á fimmtudag og vonir dofnuðu um að hægt yrði að koma á vopna- hléi fyrir tilstuðlan Evrópubanda- lagsins, Major Samsæriskenningar og valdaránsklúður Samsæriskenningar ganga nú ljósum logum um stræti Moskvu og eru allir, sem vettlingi geta valdið, bendlaðir við valdaránið, allt frá Gorbatsjov til Jeltsíns. Einnig hafa mistök valdaræningj- anna verið á milli tannanna á fólki. Það er eins og þeir hafi les- ið leiðbeiningar Leníns um það hvernig á að fremja valdarán og ákveðið að fara ekki eftir þeim. Ibréfi, sem dagsett er 26.-27. september 1917 og gefið hef- ur verið út undir heitinu „Marx- ismi og uppreisn“, segir Lenín: „Það á að nálgast uppreisn á marxískan hátt, það er eins og list... staðsetja verður tryggar hersveitir við mikilvægustu staði, handtaka ríkisstjórnina, . . . og taka á sitt vald símskeyta- og símstöðvar án þess að mínúta fari til spillis. Það er ekki hægt að vera trúr marxismanum á mikilvægasta augnablikinu án þess að líta á uppreisnina sem list.“ Þegar reið á voru valdaræn- ingjarnir ekki trúir marxis- manum. Þeir tóku hvorki lyk- ilstaði, né hand- tóku Jeltsín og stjórn hans. I ofanálag áttu þeir í vandræðum með að finna trygga hersveit. Þá gerðu valdaræningjarnir þá skyssu að leyfa alþjóðlegum frétt- astöðvum að halda uppi beinni sjónvarpsútsendingu frá Moskvu allan sólarhringinn. Það var leik- ur einn að hringja tii Moskvu til að ná í upplýsingar. Önnur mistök: Valdarænin- gjarnir héldu að það væri nóg að sýna fólkinu mátt hersins. Al- menningur myndi hlaupa í felur án þess að beita þyrfti valdi. Eins og kom í Ijós var það misráðið. í Moskvu eru uppi hinar flókn- ustu og fjarstæðukenndustu kenningar um það hver hafi í raun verið heilinn á bak við valda- ránið og eru ýmsir nefndir til sögunnar. Höfuðpaurar og verkfæri þeirra „Ekki er allt sem sýnist," segir Vladimír Sjerbakov, sem var að- stoðarforsætisráðherra og náinn aðstoðarmaður Gorbatsjovs og margra þeirra, sem hafa verið handteknir fyrir þátt sinn í valda- ráninu. Hann var á fundum með valdaræningjunum meðan á vald- aráninu stóð og hefur skrifað skýrslu um þá fundi. Þar segir Sjerbakov að neyðarnefndin, sem tilkynnti 19. ágúst að hún myndi stjórna Sovétríkjunum í sex mán- uði, hefði ekki verið stofnuð fyrr en eftir að aðrir menn og óþekkt- ir hefðu framið valdaránið. Sam- kvæmt þessari lýsingu voru þeir menn, sem hafa verið handteknir, viljalaus verkfæri í höndum hinna raunverulega forsprakka. Sjerbakov nefnir ekki forsp- rakkana, en frásögn hans vekur spurningar um þátt ýmissa manna í valdaráninu. Sjerbakov segir að Valentín Pavlov, þáver- andi forsætisráðherra, hafi lýst för sendinefndar til Krímskaga 18. ágúst. Sagði Pavlov að sendi- nefndin hefði komið að Gorbatsj- ov í rúminu, hann hefði verið fár- veikur og ekki getað gert sig skiljanlegan. Þegar sendinefndin sneri aftur var Pavlov, ásamt öðrum embættismönnum, kallað- ur á fund Vladimírs Kijútjskovs, yfirmanns sovésku öryggislög- reglunnar KGB, og Júrís Plek- hanovs, yfirmanns þeirrar deildar KGB, sem gætir öryggis hátt- settra embættismanna. KGB- mennirnir greindu frá því að ver- ið væri að undirbúa valdarán í Moskvu og taka ætti háttsetta embættismenn og fjölskyldur þeirra af lífi. Sagði Pavlov aðstoð- armanni sínum að hópurinn hefði ákveðið að lýsa yfír neyða- rástandi vegna þessara upplýs- inga og skipa nefnd til að fylgj- ast með framkvæmd þess. Sjerbakov segir að bæði Ana- tolíj I. Lúkjanov, fyrrum forseti þingsins, og Alexander Bessmert- nykh, fyrrum utanríkisráðherra, hefðu verið viðstaddir þegar þessi ákvörðun var tekin. Þeir hefðu hins vegar ekki viljað sitja í neyð- amefndinni. Báðir neita aðild að valdaráninu, en þeir hafa verið reknir úr starfi fyrir að hafast ekki að. Þegar Lúkjanov ætlaði að veija gjörðir sínar stöðvaði Gorbatsjov hann og sagði: „Þu hefur þekkt mig í 40 ár. Ekki hlaða núðlum á eyrun á mér.“ Sjerbakov vildi ekki nefna neina höfuðpaura til sögunnar, en sagði að ekki mætti vanmeta hlut þeirra, sem fóru til Krím fyrir valdaránið. Að sögn viðstaddra aðstoðar- manna Gorbatsjovs voru í sendi- nefndinni Plekhanov hershöfðingi ásamt tveimur aðstoðarmönnum, Oleg Baklanov, sem hefur umsjón með hergagnaframleiðslu, Oleg Sjenín, starfsmannastjóri komm- únistaflokksins, Vítalíj Varenn- ikov, hershöfðingi úr landhemum, og Valeríj Boldín, starfsmanna- stjóri forsetans. Sjerbakov heldur því fram að kenning sín skýri ef. til vill hvers vegna valdaránið mistókst svo hrapallega þrátt fyrir að samsær- ismennirnir hafí haft stærsta her og öryggisiögreglu heims til yfir- ráða. Hvernig stóð á því að sovéska öryggislögreglan KGB handtók ekki Borís Jeltsín, forseta Rúss- lands, og aðra fijálslynda stjórn- málamenn í upphafí valdaránsins? Jeltsíns var illa gætt. Daginn, sem valdaránið var framið, flaug hann heim til Moskvu frá Kazakhstan í farþegaflugi og hafði vera hans þar síst farið leynt. Þó var ekki hreyft við honum. Hvers vegna? Samkvæmt kenningunni höfðu samsærismerinimir Kijútsjkov ekki fullkomlega á sínu bandi. Annað athyglisvert atriði kem- ur fram þegar skýrsla Sjerbakovs er skoðuð. Þar sést hvernig emb- ættismenn og ríkisstarfsmenn einbeittu sér að störfum sínum fremur en að bjóða valdaræningj- unum byrginn. Sumir voru sigri hrósandi yfír falli Gorbatsjovs, aðrir drógu lögmæti valdaránsins í efa, en lang flestir leiddu stóru spurningarnar hjá sér og ein- beittu sér að sínum daglegu verk- efnum, að halda járnbrautarlest- um á áætlun og koma uppskem undir þak. Víst er að áttmenningaklíkan var nægilega afturhaldssöm til að styðja valdarán. Hins vegar halda margir því fram að átt- menningamir hafí hvorki haft dug né áræði, hugmyndaflug né vald til þess að fremja valdarán upp á eigin spýtur. Meðal þeirra, sem bendlaðir eru við að hafa leitt valdaránið, eru Varennikov, Baklanov, Lúkj- anov, og Borís Púgó, innanríkis- ráðherrann, sem skaut sig. Varennikov stjórnaði aðgerð- um sovéska hersins í Afganistan og hann er grunaður um að bera ábyrgð á blóðbaðinu í Litháen I janúar. Hann hefur krafist þess að umbótum verði hætt og sagt er að einn valdaræningjanna, sem nú sitja í fangelsi, segi Varenn- ikov enn þeirrar hyggju að rétt hafí verið að fremja valdaránið. Harðlínumenn eru hins vegar margir þeirrar skoðunar að rót- tækir umbótasinnar hafí staðið að baki valdaráninu. Þeir, sem ganga lengst, halda því fram að Jeltsín hafi verið höfuðpaurinn. Ástæðan er ein- föld: Jeltsín stendur uppi sem sig- urvegari eftir valdaránið. Viku- blaðið Kommersant bendir á að sú kenning hafi einn alvarlegan galla: „Hún setur leiðtoga hinnar sigruðu valdaránsnefndar í það heimskulega hlutverk að hafa lát- ið Jeltsín spila með sig. Önnur kenning segir að Jeltsín og Gorbatsjov hafí saman lagt á ráðin um valdaránið til þess að greiða götu umbóta. Það hlýtur hins vegar að teljast fráleitt að tveir valdamiklir leiðtogar taki slíka áhættu til þess að losa sig við óvini sína, svo aftur sé vitnað í Kommersant. Samsæriskenningar um Gorbatsjov Og þá er komið að vinsælustu kenningunni. Hún er sú að Gorb- atsjov hafí verið höfuðpaurinn í að steypa sjálfum sér. Gorbatsjov hafi hugsað sem svo að tækist valdaránið gæti hann snúið aftur til valda og haft sýnu meiri frið en áður til að ráða ráðum sínum. Færi valdaránið hins vegar út um þúfur væri hann laus við harðlínu- kommúnistana, sem hafa staðið I vegi fyrir umbótastefnunni. Ýmis atriði varðandi þátt Gorb- atsjovs krefjast nánari skýringa. Boldín, einn af nánustu ráðgjöf- um Gorbatsjovs, vár eins og áður sagði í sendinefndinni, sem fór til Krím 18. ágúst. Hann er ýmist sagður'hafa leitt samsærismenn- ina á villigötur eða svikið yfír- mann sinn. Boldín reyndi að fá Gorbatsjov til að snúast á sveif með valdaræningjunum á Krímskaga. Aðild þessa nána samstarfs- manns Gorbatsjovs að valdarán- inu hefur vakið ýmsar aðrar spurningar. Það þykir undarlegt að Gorbatsjov skuli hafa fengið að halda lífvörðum sínum í prí- sundinni á Krímskaga. Vladimír Degtjaijov, aðstoðaryfírmaður landamæravarðanna, sem gættu sumarhúss Gorbatsjovs, kveðst engar sérstakar fyrirskipanir hafa fengið milli 18. og 21. ágúst. Hann segir menn sína ekki hafa séð til ferða KGB að sumarhús- inu. Vikuritinu Moskvufréttum fannst undarlegt að hægt væri að taka leiðtoga kjarnorkuveldis úr sambandi við umheiminn I þrjá daga. Einnig þykir hæpið að hægt hafí verið að gera Gor- batsjov símasambandslausan með svo auðveldum hætti. Valentín Zanín, yfirmaður fyrirtækisins, sem setti upp símkerfíð í sumar- húsinu, segir að áttmenningaklík- an hefði ekki getað lokað símum Gorbatsjovs: „Þetta er ekki bara sumarhús, landinu er stjórnað úr þessu húsi,“ sagði Zanín við Moskvufréttir. „Það er ekki hægt að skera á samskipti forsetans við umheiminn." Einnig þykir undarlegt að Gorbatsjov skyldi hafa haft kvik- myndavél í fórum sínum í prí- sundinni. Hann tók upp yfírlýs- ingar, sem hann hugðist smygla frá sumarhúsinu, en að sögn hans þá tókst það ekki. BAKSVIÐ eftir Karl Blöndal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.