Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 10
Eg get ágætlega tjáð mig í samræðum og lendi nánast aldrei í því að skilja ekki talað orð. Mér finnst margir af krökkum sem ég þekki tala lélega íslensku, sletta mikið erlendum orðum og tala vitlaust. Ég hef umgengist afa og ömmu mikið, en varla annað eldra fólk. í uppvextinum horfði ég mikið á myndbönd, það var lítið annað við að vera á Hólmavík, þar sem ég ólst upp í foreldrahúsum ásamt 2 systkinum. Ég las einnig mikið af unglinga- bókum en nú les ég miklu færri bækur, helst saka- málasögur eða ævisögur frægra manna. Um þessar mundir er ég að lesa um Elvis Presley. Hjalti Arnason hefur stundað nám við Fjöl- brautaskólann við Ár- múla síðustu 2 annir. „Mér finnst gagn- rýni Háskólans að hluta til réttmæt. í þessum skóla er þó íslerísku- kennsla góð. Ég tel mig eiga gott með að tjá mig í ræðu sem riti og vera allgóður í stafsetn- ingu. Ég skil vel allar bækur sem ég les, og les ég þó mikið og er alæta á bækur. Mest hef ég þó lesið af spennúbókum. Ég er alinn upp hjá foreldrum mínum á Sauðárkróki en var þó nokk- ur ár hjá afa og ömmu og hef umgengist mikið af eldra fólki. Af því hef ég lært mikið í mál- inu. Ég horfi lítið á myndbönd og sjónvarp enda vinn ég frá 5 til 10 á kvöldin við bóksölu, m.a. við að selja íslendingasögurnar. Krakkar í kring- um mig lesa lítið og tala misjafnlega gott mál, helmingurinn af því sem sumir segja er á ensku. Það ætti að minnka ensk áhrif, m.a. með því að tala inn á barnaefni. Louisa Stefanía Djermoun var fyrst við nám í Kvennaskólanum en síðan skiptinemi í frönsku- mælandi hluta Kanada. „Þetta er annað árið mitt hér,“ sagði hún. „Mér finnst íslenskukennsl- an hér góð. Ég er ekki í neinum vandræðum með að tjá mig í ræðu lengur. Áður leiðréttu' krakkar mig oft, því ég beygði talsvert vit- laust. Faðir minn er frá Alsír og foreldrar mín- ir töluð ensku og frönsku heima þar til ég var 10 ára. Eftir það var íslenska aðalmálið. Ég er heldur ekki mjög góð í stafsetningu, þess vegna myndi mig ekki langa til að verða rithöfundur þó ég hafi ríkt hugmyndaflug. Ég les talsvert og hef uppáhald á höfundum eins og Isabellu Allende, mér finnst gaman af skrítnum bókum og les ekki ástarsögur nema ég hafi ekki ann- að. Ég skil vel flest öll orð sem fyrir koma í eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur ísland er hjarta mitt, rautt eins og blessaö blóÖ. — ÞaÖ brennur eitt kveld í geislum og verÖur svo IjóÖ. Ekkert land á eins fögur og fíngerÖ hljóö fiðla míns hjarta er röddin þín, móÖir góð. Þannig kvað Jóhannes úr Kötlum. í þessu litla ljóði dregur hann upp mynd af landinu böðuðu í kvöldsólinni, vekur með okkur léttan enduróm af fuglakvaki, og lætur okkur gruna ljúfan and- vara við vanga. Til þessa notar hann íslenskuna, móðurmál okkar sem byggjum harðbýla kletta- eyju langt norður í Atlantshafi. Þannig hafa skáld þessa lands alla tíma, í sögum og ljóðum, miðlað sam- löndum sínum lífssýn sinni og birt þeim hugmyndir sínar. Nú. spyrjast þau tíðindi að erfíngjar alls þess auðs sem íslensk tunga hefur safnað á undangengnum öldum og árum kunni að hafa takmarkað gagn af auðlegð sinni af því að þá skorti þekkingu á móðurmáli sínu. Forráða- menn Háskóla íslands hafa lýst því yfír, jafnt í ræðu sem riti, að ís- lenskukunnáttu nemenda þar hafi hrakað svo umtalsvert sé. Þetta þykja að vonum illar fréttir og eru menn ekki á eitt sáttir um málið. Blaðamaður heimsótti fyrir skömmu Fjölbrautaskólann við Ár- múla og tók tali nokkra nemendum skólans, til þess að heyra þeirra sjón- armið. Halldóra Guðný Jónsdóttir er ný í skólanum, hafði áður stundað nám við Menntaskólann á Akureyri. „Þar er mjög góð íslenskukennsla," sagði Halldóra. „Ég skil ekki allt sem ég les, t.d. hefði ég ekki getað kom- ist fram úr Njálu nema með aðstoð kennara. Ég hef alltaf fengið 10 í stafsetningu en það er eigi að síður ekki mín sterkasta hlið að tjá mig í riti enda geri ég lítið af því. Ég hef líklega ekki þá sköpunargáfu sem þarf í slíkt. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.