Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1991
3
í HOPIÞRIGGJA BESTU
s
sumar hafa Flugleiðir verið í
hópi stundvísustu áætlunar-
flugfélaga í Evrópu. I júní fóru
hérumbil 85% véla félagsins í loft-
ið innan 15 mínútna frá áætluðum
tíma sem eru stundvísimörk flug-
félaga. Aðeins tvö félög gerðu bet-
ur í Evrópu. Reyndar var ekkert
evrópskt áætlunarflugfélag með
jafn hátt hlutfall brottfara á ná-
kvæmlega réttum tíma. Flugleiðir
hafa skipað sér í fremstu röð í
stundvísi.
ALDREIAUÐVELDARA
AÐFARATIL
BANDARÍKJANNA
- vegabréfsáritanir fyrir bí
Frá og með fyrsta október
þurfa íslendingar f skemmti-
ferðum eða viðskiptaerind-
um ekki lengur vegabréfsáritanir til
allt að þriggja mánaða dvalar í
Bandaríkjunum. Þá geta 9 af hverj-
um 10 ferðast án áritunar vestur
um haf. í stað heimsóknar í banda-
ríska sendiráðið dugar að fylla út
eyðublað um borð í Flugleiðavél-
inni á leið vestur. Ferðalög til
Bandaríkjanna hafa aldrei verið
auðveldari og flugið aldrei jafn
þægilegt og nú í nýjum farkostum
Flugleiða. Þetta eru góðar fréttir
fyrir þúsundir íslendinga sem fara
til Bandaríkjanna með Flugleiðum
í vetur.
wmmmmsMmmsm
EKKERT AUKAGJALD FYRIR TENGIFLUG
Við flytjum góðar fréttir
fyrir farþega sem þurfa að
komast í framhaldsflug til
borga innan Bandaríkjanna. Samn-
ingar Flugleiða við bandarísk flug-
félög gera farþegum okkar kleift
að fljúga frá Islandi til Baltimore
og áfram til 7 áfangastaða innan
Bandaríkjanna án aukagjalds. Nú
standa yfir samningar um fjölgun
þessara staða. Farþegar sem ætla
áfram til Albany, Buffalo,
Cleveland, Norfolk, Pittsburg,
Raleigh og Syracuse í 7-21 dags
ferð greiða sama gjald og fyrir
miða til Baltimore eða frá 54.800
krónum fyrir flugið alla leið frá
Islandi.
siáStáiÉsÉi
Frá Lúxemborg er skotferð til
vínhéraða í Móseldalnum,
Rínardalnum og Elsass
héraðinu, að ógleymdum vínrækt-
arsvæðum í sjálfu stórhertogadæm-
inu. í hundruðum þorpa og bæja
um alla Evrópu eru uppskeruhátíð-
ir í september og október og þar
getur ferðafólk staldrað við og
notið þess sem fram er borið með
heimamönnum. Flug og bíll í
Lúxemborg kostar aðeins frá
38.500 krónum á mann í viku ef
tveir fullorðnir eru í bíl. f Lúxem-
borg ertu sjálfs þín herra og getur
valið úr gróskumiklum vínræktar-
svæðum um alla Hvrópu. j
aovxthciaöð DIV Efltejif.l')! Itrtsið I
A UPPSKERUHATIÐ
í EVRÓPU
HRINGDU OG VIÐ
SENDUM FARMIÐANN
IIEIM.
Kreditkorthafar geta sparað
sporin. Þeim dugar eitt
símtal til farskrárdeildar
Flugleiða og þeir fá farmiðana
senda heim. Farskrá Flugleiða er
opin alla daga vikunnar frá klukk-
an 8-18 og símanúmerið er 690300.
Söluskrifstofan í Kringlunni er op-
in frá klukkan 10-19 alla virka daga
og á laugardögum frá klukkan 10-
14. Söluskrifstofumar á Hótel Esju
og í Lækjargötu em opnar frá
klukkan 9-18. Á Keflavíkurflug-
velli er söluskrifstofan opin frá
klukkan 7-18:30. Á öllum skrif-
stofunum er þrautreynt sölufólk
Flugleiða sem veitir upplýsingar
um ótrúlega íjölbreytt ferðaval.
REYKLAUST FLUG
TIL FÆREYJA OG
GRÆNLANDS
Flugleiðir vom fyrsta flug-
félag í heimi til að bjóða
farþegum uppá reyklaust
innanlandsflug. Kannanir hérlendis
benda til þess að þetta sé eindregin
vilji farþega. Meðal reykinga-
manna nýtur þetta fylgis yfirgnæf-
andi meirihluta. Frá og með 1.
september verður Færeyja- og
Grænlandsflug félagsins einnig
reyklaust. Nú stendur yfir könnun
á afstöðu farþéga til hugmynda um
reyklaust flug til Norðurlanda.
HAUSTRÓMANTÍK Á
SIGNUBÖKKUM
Þú manst eftir Parísarferðinni
sem þú ert alltaf að lofa
sjálfum þér. Nú er tækifæri
til að standa við loforðið og koma
elskunni á óvart með óvæntri
haustrómantík á Signubökkum. í
september fljúga Flugleiðir til
Parísar á fimmtudögum og sunnu-
dögum og Eiffelturninn, Sigurbog-
inn, Notre Dame, Latínuhverfið,
Louvre safnið og allt hitt bíður þín.
Með Flugleiðum kemstu til Parísar
fyrir 25.950 krónur. Og Flugleiðir
bjóða úrvalshótel á góðum stöðum.
Neðanjarðarlestirnar, Metro, leggja
'Parfs' bókstaflegá áð fótúm þérl
.nnr.n i
33-50% MAKAAFSLÁTTUR
Á SAGA CLASS
m
1 . i?§8l
ví ekki að nota tækifærið og
sameina viðskiptaferð og
skemmtiferð. Makaafsláttur
á Saga Class gerir þetta auðveldara
og ódýrara. Saga Class farþegar í
Norður Atlantshafsflugi eiga kost á
33% afslætti fyrir maka og 50%
afslætti í Evrópuflugi fyrir maka.
Vitaskuld fylgja öll þægindi Saga
Class farmiðans með í kaupunum.
Hægt er að breyta dagsetningu á
brottför og heimferð eftir vild,
Saga Class biðstofumar eru til
afnota fyrir farþega, viðurgjöming-
ur í mat og drykk er í fremstu röð
og í Norður Atlantshafsfluginu
njóta Saga Class farþegar ferðar-
innar í breiðum sætum.
Nú er haust- og vetrarvömr í
stórverslunum um alla
Evrópu og sætin seljast
hratt í pakkaferðum Flugleiða til
Glasgow, London og Hamborgar.
Flug og hótel í þrjár nætur í
London kostar frá 31.140 krónum,
tvær nætur í Hamborg frá 27.080
krónum og í Glasgow frá 26.930
krónum. Nú er tækifæri til að fara
„út“ í búð.
HÖFÐINGSBRAGUR Á
HÓTELESJU
HELGARUPPLYFTING í
HÖFUÐBORGINNI
Innanlandsflug Flugleiða býður
landsbyggðafólki helgampp-
lyftingu í höfuðborginni, flug,
gistingu og stórsýningu á Hótel ís-
landi. Flogið er frá öllum áætlunar-
stöðum innanlandsflugs, gist á
Hótel Loftleiðum eða Hótel Esju
og síðan farið á stórsýninguna
Islenskir tónar, aftur til fortíðar.
Þetta er sannkölluð helgampp-
lyfting í höfuðborginm.
HHótel Esja hefur opnað 12
ný og glæsileg útsýnisher-
bergi eða „mini svítur" á
nfundu hæð og þar búa gestir í vel-
lystingum. Herbergin era búin hár-
þurrku, buxnapressu, aukasíma,
stafrænum öryggisskáp, einnota
inniskóm, stórum sjónvarpstækjum
og snyrtivörum á baðherbergjum.
Reyndar hefur allt hótelið verið
endurbyggt á síðustu tveimur ár-
um. Öll herbergi em ný uppgerð.
Veitingastaðimir Pizza Hut og
Lauga-ás eru á jarðhæð og nú
hefur nýr og glæsilegur hótelbar
verið opnaður við inngang Lauga-
áss. Það er því höfðingsbragur á
Hótel Esju.