Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 18
Hildegard og Dieter Koglin frá Leipzig í Þýska- landi segja að trúin og tónlistin hafi gert líf þeirra í lokuðu landi kommúnismans léttbærara eftir Kristínu Marju Baldursdóttur HJONIN sem sitja ein í kirkjunni á Eyrarbakka hafa í tvígang horft á hrun ríkis síns og jafnoft tekið þátt í uppbyggingu þess. Orgelið í Eyrarbakkakirkju er aðeins minna en það sem Dieter Koglin organisti spilar á í Leipzig en tónarnir eru þeir sömu. Og Hiidegard kona hans setur hend- ur í kjöltu sér, hlustar í mestu ró á músikina og þannig hefur það ætíð verið. Meðan kommúnistar héldu þjóð þeirra í helgreipum héldu þau kirkjunnar fólk sínu striki. Spiluðu Bach og hina meistarana. Við vorum eins og í stóru fangelsi," segir Dieter þegar hann talar um síðustu fjörutíu árin í Austur-Þýskalandi. „Kirkjan var styrkur okkar, þar gátum við talað saman í trausti þess að það færi ekki lengra.“ Fyrsta utanlandsferð Hildegard og Dieters Koglin frá Leipzig var hingað til íslands núna í ár. í sept- ember 1989 dvöldu íslenskir starfs- bræður Dieters, þar á meðal Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri Þjóð- kirkjunnar, á heimili þeirra hjóna. Þegar íslendingarnir kvöddu mælt- ust þeir til þess að þau hjónin kæmu til íslands og fannst Dieter sú hug- mynd afar óraunhæf. „En árið 1990 var hugmyndin ekki svo vitlaus," segir Dieter, „og meðan Austur- Þjóðveijar fögnuðu frelsinu og streymdu til Mallorka skrifuðum við Hauki og sögðumst gjarnan vilja heimsækja land hans. Hann tók svo vel í það að við skunduðum bein- ustu leið á ferðaskrifstofu og sögð- umst vilja fara til íslands. Islands? sögðu þeir. Hvar er það? Ætlið þið fara þangað akandi? GRJÓTIÐ Dieter er borinn og bamfæddur í Leipzig og var tíu ára gamall þeg- ar seinni heimsstyijöldinni lauk. Hildegard kona hans er frá Slesíu, sem nú tilheyrir Póllandi, en varð að yfírgefa heimili sitt ásamt fjöl- skyldu sinni þegar Rússar réðust inn í landið í stríðslok. Þau hjónin kynntust í gegnum starf sitt í kirkjunni og hafa ætíð búið í Leipzig eða í grennd við hana. Þau eiga tvö börn, Iris sem er 35 ára og býr í Köln, og Jens-Georg sem er tvítugur og er enn í foreldra- húsum. Hann kom með foreldrum sínum til íslands en dvaldi hér skem- ur en þau. Þótt börnin séu löngu uppkomin kalla þau hjónin hvort annað mamma og pabbi, eða „Mutti og Vati“, og þijátíu ár í lokuðu landi virðast lítil áhrif hafa haft á lundina. Á Eyrarbakka hafa þau hjónin dvalið í sumarhúsi Hauks í besta yfirlæti milli þess sem þau hafa ferð- Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Tónlistinog trúin veitti þeim hjónum hald og traust á erfiðum tím- um. Hildegard og Dieter: Aðeins það að við lifðum þetta af er stór 0öf. ast um landið. „Við förum mikið í gönguferðir um þorpið, göngum meðfram gijótgarðinum héma. Ekki satt Mutti?“ segir Dieter á skemmti- legri mállýsku og lítur á konu sína. „Jú Vati,“ segir hún hressilega, og svo eru þau alveg til í að spjalla við mig um lífið í Leipzig, bæði fyrir tíma múrsins og eftir. „Ulbrich var búinn að segja að við yrðum að nota gijótið okkar í að byggja húsin, en það var nú notað í múrinn,“ segir Dieter hugsi og gýtur augum á sakleysislegan gijótgarð Eyrbekkinga um leið og við göngum út úr kirkjunni. „Alþýðulýðveldið var stofnað árið 1949, og okkur var sagt að við myndum gera þetta allt öðruvísi. Sagt að þeir í vestri færu of geyst í að byggja upp og skulduðu því Ameríkönum háar fjárhæðir sem þeir þyrftu að borga til baka.“ „Reyndar vorum við í fríi í Ham- borg árið 1957 og þá lögðu vinir okkar þar fast að okkur að við yrð- um kyrr,“ segir Hildegard. „Það hvarflaði að okkur seinna að það hefðum við átt að gera. En á þessum tíma var allt gert með leynd í Aust- ur-Þýskalandi, við vissum ekki hvað verða vildi, auk þess sem foreldrar okkar og ættingjar voru allir fyrir austan." „Allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru líka útskýrðar á mjög jákvæð- an hátt,“ segir Dieter. „Sífellt heyrði maður slagorðið: Við byggjum upp og allir verða að hjálpa til, hvort sem þeir eru kommúnistar eða kristnir. Og flestir fylgdu bara fjöld- anum.“ FANGELSI „Árið 1954 sögðu kommúnistar að kirkjan ætti sér ekki langa líf- daga því það væri aðeins gamla fólkið sem færi í kirkju,“ segir Diet- er. „Þeir sögðu líka að það yrði að ala fólkið upp á sósíalíska vísu.“ Hildegard:„Þeim tókst það ekki.“ Dieter:„Dóttir okkar hóf skóla- göngu sína árið 1962 og fékk sósíalískt uppeldi í skólanum í tíu ár. í kringum 1970 fór unga fólkið að verða mjög uppreisnargjarnt. Þau sáu í sjónvarpinu hvemig lífið gekk fyrir sig á Vesturlöndum og voru hrifin af öllu vestrænu, hvort sem það var bíll eða bírópenni. Ég sagði oft við hana dóttur mína, elsk- an mín það er ekki allt gull í vestri.“ En dóttirin vildi fara vestur hvað sem tautaði og sendi inn umsókn til ríkisins þar sem hún bað um brottfararleyfi. Þar af leiðandi var fylgst með henni og mánuði eftir að hún sendi inn umsóknina, eða í mat 1977, var hún handtekin aðeins 21 árs gömul, sett í kvennafangelsi og dæmd fyrir „flótta frá lýðveldinu". Foreldrarnir fengu fyrst upplýs- ingar um handtökuna þegar lögregl- an kom og spurði hver borgaði leig- una fyrir íbúð dótturinnar meðan hún væri í fangelsi. „Við heimsótt- um hana í fangelsið þar sem hún sat inni ásamt afbrotamönnum, og í alþýðulýðveldinu var það þannig, að þeir sem dæmdir voru fyrir flótta fengu verri meðferð en morðingjar. Við fengum lögfræðing frá Berlín til að vinna í málum hennar og hún var leyst út í desember það sama ár. Það voru Vestur-íjóðveijar sem borguðu gjaldið sem sett var fyrir hana, en á þeim'tíma var ríkið í skuld við þá í vestri og því var oft „verslað" með fólk. Dóttir okkar tók ekki í mál að fara í íbúðina sína aftur, fór yfir til Vestur-Þýskalands og fékk strax vinnu í Köln á vegum kirkjunnar.“ HRUNIÐ Dieter er bæði organisti og guð- fræðingur og sér meðal annars um barnaguðþjónustur í kirkjunni sinni. Kirkjunnar menn voru ekki vel séð- ir úti á hinum almenna vinnumark- aði, og börnum þeirra síður en svo hampað í skólanum. „Börnum okkar gekk vel í skóla og því voru þau viðurkennd," segir Hildegard. Hún er lærður kjólameistari en hefur ekki unnið við iðn sína eftir að hún gifti sig. „Ég var heima hjá börnum mínum fyrstu árin, en það var ekki eðlilegt að kona í þessu landi væri heimavinnandi húsmóðir. Sonur minn hafði til dæmis enga leikfélaga því þeir voru allir á dagheimilum. Ég fór síðar að vinna úti og því var ekki að neita að það var mjög gott að vera útivinnandi móðir í Austur- Þýskalandi. Vinnuveitendur sáu al- gjörlega um barnagæslu sem var auk þess afskaplega ódýr. Það var mjög jákvætt. Hið neikvæða var, að það var einmitt það sem ríkið vildi. Ala upp börnin á sinn hátt.“ - Hvenær fór ykkur að gruna að eitthvað væri bogið við stjórnskipu- lagið? Dieter:„Þegar vörurnar fengust ekki lengur." Hildegard:„Áður hafði allt verið til, fiskur, ananas, - allt! Dieter:„Fyrst eftir byggingu múrsins virtust allir vera jafnir, en upp úr 1970 fóru háttsettir embætt- ismenn að geta verslað í sérverslun- um þar sem allt fékkst. Hinn al- menni borgari fékk þar ekki að- gang.“ Hildegard segir að Stasi hafi auk þess verið allsstaðar. „Það var fylgst með fólki, bæði í skólum og verk- smiðjum. Ef manni varð á að segja eitthvað sem féll ekki í góðan jarð- veg var oftast sagt: þú rökræðir þetta á rangan hátt. Oft var leitað í íbúðum fólks

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.