Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.09.1991, Blaðsíða 19
meðan það var í vinnunni og ef það átti gömul, verðmæt húsgögn voru þau tekin eignarhaldi. Ástandið versnaði sífellt í land- inu. Þeir sem unnu í verksmiðjunum höfðu auðvitað fyrir löngu tekið eft- ir því að það vantaði bæði ull og stál, og að verksmiðjurnar sem voru frá stríðsárunum voru bæði orðnar gamlar og úreltar." „Og allir sögðu að þetta gengi ekki lengur, nú yrði stóri bróðir í austri að koma og hjálpa okkur. Mannstu Mutti?“ segir Dieter og horfir lymskulega á konu sína sem kinkar kolli. „Okkur var komið í skilning um að hermennirnir væru bræður okkar,“ heldur hanná- fram,„og bræður get ég ekki valið, en vini get ég valið! En við höfðum oft hugsað með okkur: Þetta er ekki eðlilegt, þetta er ekki eðlilegt." - Hvers söknuðuð þið helst að vestan? „Ég saknaði alls sem þurfti til að elda!“ segir Hildegard og hlær hátt. „Ég saknaði líka bómullarefn- is, það er svo andstyggilegt að vera í þessum gerviefnum, maður svitnar allur, - nú og svo var orðið erfitt að fá saumavélar undir lokin. Sjáðu til, allir voru jafnir, en sumir bara aðeins rétthærri." Ekki var auðvelt að vera músik- ant fyrir austan því oft reyndist erfitt að fá nótur og hljóðfæri. „Bestu hljóðfærin voru seld úr landi,“segir Dieter. „Maður varð að fá leyfi frá Berlín til að fá flygil.“ Ég spyr hvort honum hafi aldrei dottið í hug að ganga í flokkinn? Hann brosir:„Nei. Þá hefði ég ekki getað þjónað kirkjunni, enginn hefði trúað mér. Ekki satt Mutti?" BORGIN Litla-París var Leipzig kölluð þegar Goethe kom þangað sextán ára gamall árið 1765 til að læra lögfræði. Borgin átti engan sinn lík- an Þýskalandi. Breiðstræti og upp- lýstar göngugötur meðfram síkjum þar sem fyrirfólk borgarinnar spók- aði sig með sólhlífar og pípuhatta, frægar bókaverslanir, útgáfufyrir- tæki og rómaður háskóli voru helstu einkenni hennar. íbúar lögðu áherslu á hinn einá sanna elegans í umgengni og klæðnaði. Enda mun víst Goethe hafa lagt meiri áherslu á að læra um lífið en lögin. Leipzig varð fyrir loftárásum bandamanna í lok seinni heímsstyij- aldar og var miðborgin lögð í rúst. Á fimmta og sjötta áratugnum var hún byggð upp að mestu leyti en úthverfin -látin afskiptalaus. „Húsin féllu sökum vanhirðu og það var sárt að horfa upp á verðmæt hús verða eyðileggingunni að bráð,“ segir Hildegard. „Ríkið tók húsin eignarnámi, það er að segja ef eig- endur gáfu ríkinu ekki hús sín, en ekkert fé fékkst í nauðsynlegt við- hald og viðgerðir." „Það vildi enginn erfa hús,“ segir Dieter og kímir. Hildegard:„En nú koma eigend- urnir aftur!“ Dieter:„Við höfum reynt að taka nokkur hús í gegn, vonum að Leipz- ig verði fín aftur.“ Syngur svo: „Mein Leipzig lob ich mir, es ist ein- klein Paris“! Hann segir að skipulag borgar- innar hafi alltaf verið erfítt. Þijár ár hafi eitt sinn runnið um borgina, en séu nú neðanjarðar menguð af úrgangi efnaverksmiðja. „Nú þurf- um við að greiða fyrir gamlar synd- ir, en við viljum endilega fá árnar upp á yfírborðið aftur." KIRKJAN Nikulásarkirkja og Tómasar- kirkja, sem eru Bachkirkjur báðar tvær, eru þær helstu í Leipzig og það var í þeirri fyrrnefndu sem menn söfnuðust saman á mánudög- um um fimm leytið og ræddu fram- tíð Austur-Þýskalands. „Ég spilaði á orgelið þarna og kirkjan var ætíð full. En þetta v'ar ekki messa í eigin- legum skilningi," segir Dieter. „Stuttu fyrir 9.nóvember 1989 voru svo allar aðalgötur og hliðargötur fullar af fólki, bæði borgarar og lögreglumenn með hunda.“ - Voruðu þið ekkeit smeyk? ________________________________________________________________________________________________________________________________________1981 „Smeyk?!“ hrópar Hildegard. „Við vorum dauðskelfd! Við óttuð- umst blóðbað. Óróleikinn lá í loft- inu, var í hveijum einasta manni. Við höfðum slæma reynslu frá árinu 1953 þegar við gerðum uppreisn og Rússar bældu hana niður.“ Dieter: „Okkur hefði aldrei dottið í hug að ríkin ættu eftir að samein- ast. Foreldrar okkar höfðu sagj;, að Rússar gæfu aldrei eftir það sem þeir eitt sinn hefðu eignast.“ „Okkur fannst það sorgleg til- hugsun,“ segir Hildegard. Ég spyr þau hvort það hafi ekki verið erfítt að vera kristin meðal kommúnista, en þau segja að það hafi einmitt verið kirkjan og músik- in sem veitti þeim hald og traust. „Sem kristinn maður hugsaði ég með mér: Þúsund ára ríki Hitlers varð að engu, og guð mun líka ákveða hversu lengi þetta ríki var- ir,“ segir Dieter. „En ég hef líka spurt sjálfan mig hvort það ástand sem við höfum núna í Þýskalandi sé nokkuð betra." - Áttu við sameinað Þýskaland? „Nei, ég á við það hvernig við lifum núna. Þegar maður trúir í ein- lægni er von til. En þegar menn fara að gefa sig að tilgangslausum hlutum þá eiga þeir ekki mikla von. Á þessari stundu getum við kirkj- unnar menn ekki séð að maðurinn eigi mikla framtíð fyrir sér. Sagan hefur margoft sýnt að það hefur aldrei bofgað sig að ætla sér að ríkja yfir sköpunarverkinu. Árið 1989 voru allar kirkjur fullar og fólkið stóð saman. En það gildir ekki lengur.“ „Þegar vel gengur þarfnast menn ekki kirkjunnar,“ bætir kona hans við. BRÆÐURNIR - Hvernig fínnst ykkur að byggja upp ríki ykkar í annað sinn á stutt- um tíma, hafið þið trú á að það muni takast? „Hveiju á maður að svara Mutti?“ segir Dieter og horfir á konu sína. „Það verður að takast," segir hún ákveðin. „Ég verð að viðurkenna að ég verð víst ekki yngri, segir Dieter. „En það sem er gott og jákvætt komum við til með að njóta. Það er indælt að geta ferðast og keypt sér almennilegan fatnað. Hins vegar. óttumst við atvinnuleysið." Ég spyr þau hvo'rt þeim finnist þau tilheyra hinu sameinaða Þýska- landi? Þau segja að síðustu tíu árin hafi þau þekkt betur til vestur- þýskra stjórnmálamanna en austur- þýskra. Hildegard segir að þau hafi þó oft hugsað um það hvernig þeim yrði tekið fyrir vestan. „Þeir segja að við viljum fá allt upp í hendurnar,“ segir Dieter áður en ég fæ ráðrúm til að spyija. Hildegard:„Sumir segja að vrð hefðum bara átt að vera hjá Rúss- um.“ „Þeir fyrir vestan þörfnuðust okk- ar ekki, en Þýskaland er og á að vera eitt ríki,“ segir Dietter með þunga. - Eruð þið kannski gröm bræðrum ykkar í vestri? „Ekki gröm, en stundum finnst okkur sem þeir líti niður á okkur,“ segir Dieter. Hildegard:„Það er ekki jafnræði með okkur.“ „Við sátum með syni okkar á kaffihúsi hér í Reykjavík," segir Dieter, „og við næsta borð sátu landar okkar að vestan og töluðu illa um Þjóðveijana að austan. Sem betur fer eru þó ekki allir sem hugsa svona, en það væri ekki óraunhæft að ætla að þjóðin skiptist í tvær jafnar fylkingar hvað sameininguna snertir. Við Þjóðveijar að austan höfum mikið að gefa löndum okkar menn- ingarlega séð. Við gefum þeim Dres- den, Weimar, og aðeins það að við lifðum þetta af er stór gjöf. Við höfum mikið að gefa með þessa reynslu. Sonur okkar er nú að heíja há- skólanám og við fórum með hann í margar borgir til að sýna honum háskólana, meðal annars í Frank- furt og Hamborg, en hann sagði: Nei, ég ætla að læra heima. Við erum eitthvað, og við frá Leipzig höfum upp á margt að bjóða.“ MODEL MYND! er nýtískuskóli, sniðin ttð þörfum fólJcs f nútíma þjóðfélagi MÓDEL MYND! er skóli sem þjónar aldrinum 7-60 ára af báðum kynjum. MÓDEL MYND! starfar í 6 vikur í senn, ýmist einu sinni eða tvisvar í viku. Aðalkennarar skólans eru: Guðrún Ólafsdóttir (Snúlla) og Kolbrún Aðal- steinsdóttir (Koila) sem sameina nú margra ára kunnáttu sína ásamt fjölda annarra sérhæfðra kennara. MYND Kringlunni, símar 12934 — 677270. Ath. Við erum á besta stað í bænum. Við erum ÍKRINGLUNNI. Afhending skírteina verð- ur laugardaginn 14/9 kl: 10-17 á 3. hæð. Kennslan byrjar mánu- daginn 16/9. Mætum öll kát og hress. Kærar kveðjur. Snúlla og Kolla. 7-9 ÁRA: Strákar og stelpur: Lærið á skemmtilegum námskeiðum. Vantar börn til sýningastarfa. í boði er góð kennsla, mikið og nytsamlegt nám. 10-12 ÁRA: Strákar og stelpur: Sett upp tískusýning. Hverjir eru möguleikar mínir? Feimni, ganga í takt við músík, tíska - efni, hreyfing, dans, leiklist, myndataka, myndbandsstund, auglýsingar. HIP HOP músík og spor. 13 ÁRA OG ELDRI: Módel námskeið hjá MÓDEL MYND. Okkur vantar stráka á skrá. Unglingar, ef þið viljið læra þá getum við kennt ykkur spennandi námskeið með spennandi nýj- ungum. Leltum að hæfileikaríku fólki. Staða 1. Byrjendur, söfnun í möppu, að bera sig vel, tíska, húð og hár, undirstaða. Staða 2. Framhald af stöðu 1. Þyngra og við ætlumst til meira af þér. Staða 3. Módeling-auglýsingar, mynda- taka, módelum komið á fram- færi, diploma, prófskjöl afhent. KONUR! KONUR! KONUR! 40 ÁRA OG ELDRI! NYTT! Ekki sitja heima. Komið heldur og prófið eitthvað fyrir ykkur sjálfar! NÁMSKEIÐ SEM TEKUR Á MÖRGU Kynningar, óöryggi, mín eigin sjálfsímynd, göngur, stöður, sjálfsöryggi, tíska, fataval, svar í síma, halda veislur, borðskreyting- ar, hormónabreytingar, skilnaðir, sorgir. HJÓN! HJÓNAKLÚBBAR! HJÖN! Því ekki að breyta til og læra eitthvað saman sem gaman er að!! Að bera sig vel, halda veislur, partý, mann- leg samskipti, leikfimi, dans, ganga í takt við músík, leiklist, kynningar, samtalsþætt- ir, boðið út, hvernig vill hún að þú sért? Hvernig vill hann að þú sért? Leikurinn Tarsan og Jane! Komdu fram við mig eins og ég kem fram við þig. Hjón í nútíma þjóðfélagi o.s.frv. Aldursskipting 7- 9 ára 13-15 ára 20-30 ára 10-12 ara 16-20 ára 30-40 ára Leiðbeinum með skreytingar fyrir brúð- kaup og útstillingar fyrir verslanir. Innrítun tiafín sunnudag 8/9 kl. 13-18 og öll kvöld þessa viku. Símar 677270 og 12934 AFHENDING __________________________________________U rr skírteina fyrir kennslustaði okkar: Kópavogur Alftanes Seltjarnarnes Tónabær Rvk. er í dag sunnudag 8. sept kl. 13-18 á Smiðjuvegi 1, Kópavogi. Einnig: * Studio 1 Létt „æfing" fyrir veturinn! * Studio 2 Myndband frá nemendasýningu, Vor '91! *Allirnemendur fá óvænta gjöf! Allir velkomnir Dansandi kveðja, _ 1 Dagný Björk danskennari V/SA' F BBEHBI DSI. DI. ICBD. Kennsla hefst mánudaginn 9. sept.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.