Morgunblaðið - 12.09.1991, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991
12
Konur og börn
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Það er sjaldan minnst á það nú
á dögum í umfjöllun um myndlist,
að nokkur munur kunni að vera á
viðhorfum og efnistökum lista-
manna annars vegar og lista-
kvenna hins vegar. Ymsum kunna
að þykja slíkar vangaveltur eiga
illa við í jafnréttisanda samtímans,
og telja þær einungis til þess falln-
ar að kasta rýrð á framlag kvenna,
sem sé vanmetið hvort sem er.
Þessu er hægt að andmæla í ljósi
sögunnar. Mary Cassatt var
bandarísk kona, sem starfaði með
Impressionistunum í París undir
lok síðustu aldar; vegna sambanda
sinna við auðuga landa sína hafði
hún mikil áhrif á smekk þeirra á
listaverkum og átti stóran þátt í
að þeir keyptu mikið af verkum
Impressionistanna, og var þannig
mjög mikilvæg fyrir hreyfinguna.
En listrænt framlag hennar var
ekki síður merkilegt, þar sem hún
lagði í verkum sínum mikla áherslu
á hið hversdagslega, t.d. börn að
leik, samband móður og bams og
daglegt iíf þeirra. í þeim verkum
komu fram viðhorf, sem enginn
karlmaður hefði náð að festa á
léreft.
Þessi mögulegi munur á efni-
stökum karla og kvenna kemur
upp í hugann þegar sýning Guð-
rúnar H. Jónsdóttur, Gígju, er
skoðuð í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Hún stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1979-81,
með grafík sem sérgrein, en hvarf
síðan frá námi. Síðustu ár hefur
hún mest fengist við olíumálverk,
og þetta mun vera fyrsta sýningin
sem hún heldur á verkum sínum.
A sýningunni eru fjörutíu oh'u-
málverk, sem Gígja hefur unnið á
nokkrum síðustu árum. Þrátt fyrir
fjölbreytt viðfangsefni er viss
heildarsvipur ráðandi; mjúkur,
fljótandi, allt að því loftkenndur
blær svífur yfir myndunum, og
notkun þunnra en hlýrra lita eykur
á þann innileik, sem verkin bera
með sér. Hér er því um að ræða
rómantíska list, ef menn þola það
orð í jákvæðri merkingu.
Af einstökum viðfangsefnum
eru flestar myndir af uppstillingum
blóma og ávaxta. Slík myndefni
eiga sér afar langa og sterka hefð,
og Gígju tekst ágætlega að koma
henni til skila með ákveðnum litblæ
í samræmi við efni og titil hveiju
sinni, eins og t.d. í „Haust“ (nr.
10). í einni mynd leynist þó trufl-
andi ójafnvægi, þar sem epli er að
falla af borðinu í „Ókyrrð“ (nr.
15); slíkt er óvenjuleg meðferð á
þessu viðfangsefni.
Kvenímyndin kemur nokkuð
fram í ýmsum verkanna á sýning-
unni, en best koma andstæður
hennar fram í „Nýtt líf“ (nr. 12)
annars vegar og í myndinni „A
framabraut“ (nr. 16) hins vegar.
Konan í síðarnefndu myndinni til-
heyrir allt annarri veröld og á lítið
sameiginlegt með þeirri hlýju og
mýkt, sem geislar af hinni fyrri.
Það eru þó helst myndir Gígju
af börnum og unglingum, sem sitja
í huganum. „Úr viðjum“ (nr. 17)
er lítt áberandi en minnisstæð túlk-
un á innilokun unglingsins, sem
hann þarf að bijótast úr af eigin
rammleik. Innilegar og bjartar
bemskumyndir eins og „Vor“ (nr.
24) og „Tátur“ (nr. 37) sýna heim-
inn áður en borðað er af skilnings-
trénu; þessi börn eru niðursokkin
í eigin hugarheim, veröld sem full-
orðna langar oft að hverfa aftur
til. Fyrir þá sem þekkja til listar
Mary Cassatt eru tengslin hér
einnig augljós.
Þessi frumraun ungrar listakonu
í sýningarhaldi er skemmtileg við-
bót við íslenska sýningarflóra, því
hér kemur fram listsýn, sem ekki
MINNI MENGUN
Suzuki Vitara
Jlxi 3ja dyra
lipur og öflugur lúxusjeppi
Staðalbúnaður í Suzuki Vitara
• 1.6 I 80 ha vél með rafstýrðri
bensínsprautun
• 5 gíra með yfirgír eða 3ja
gíra sjálfskipting
• Samlæsing hurða
• Rafmagnsrúðuvindur
• Rafstýrðir speglar
• Snertulaus kveikja
• Vökvastýri
• Veltistýri
• Halogen ökuljós með
dagljósabúnaði
• Þokuljós að aftan
• Útvarpsstöng
• Gormafjöðrun á öllum
hjólum
• Diskahemlar að framan,
skálar að aftan
• Grófmynstraðir hjólbarðar
195x15
• Varahjólsfesting
• Snúningshraðamælir
• Klukka
• Vindlingakveikjari
• Hituð afturrúða
• Afturrúðuþurka og sprauta
• Kortaljós
• Fulikomin mengunarvörn,
(Catalysator)
• Samlitir stuðarar, hurðar-
húnar og speglar
• Vönduð innrétting
• Litaðar rúður
• Sílsahlífar
• Eyðsla frá 8.0 I á 100 km
• Verð 5 gíra: 1.438.000 stgr.
Sjálfskiptur: 1.530.000 stgr.
Til afgreiðslu strax.
$ SUZUKI
-----------------------
SUZUKIBÍLAR HF
■ SKEIFUNNI 17- SÍMI 68 51 00
Gígja: Meyjarsæti.
hefur sést mikið síðustu ár. Fagleg
úrvinnsla er einnig góð, en á stöku
stað hefði minni skreytni og meiri
skerpa gert myndirnar hvassari og
átakameiri. En fýrstu skrefin lofa
góðu, eins og viðtökur myndanna
sýna, og framtíðin er björt.
Sýningu Gígju í Hafnarborg í
Hafnarfirði lýkur sunnudaginn
15. september.
Frístundamálarar
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
Allir sem fengist hafa við þá
iðju að draga til myndar eru sam-
mála um að myndlistin er eitt
ánægjulegasta áhugamál, sem
hægt er að eignast. Þeir sem leggja
stund á listmálun í frístundum sín-
um hafa ávallt verið margfalt fleiri
en þeir sem leitast við að lifa á
listinni, og helga henni alla sína
orku. En oft veltir lítil þúfa þungu
hlassi, og þess eru mörg dæmi úr
listasögunni að menn sem í upp-
hafi litu einungis á þetta sem
skemmtilegt tómstundagaman,
hafi snúið sér alfarið að listinni
og lagt þar fram dijúgan skerf til
listþróunar síns tíma. Nægir í
þessu sambandi að nefna þá Paul
Gauguin og hinn einlæga Henri
Rousseau, sem Picasso og fleiri
krýndu sem konung sinn í einni
frægustu listamannaveislu sög-
unnar.
Því er alltaf áhugavert að fylgj-
ast með hvað frístundamálarar
hafa fyrir stafni. Nú stendur yfir
í Listasafni alþýðu myndverkasýn-
ing félagsmanna Verzlunarmanna-
félags Reykjavikur, en þar getur
einmitt að líta meira en eitt hundr-
að og þrjátíu verk eftir samtals
þijátíu frístundamálara.
í ávarpi til gesta, sem birtist í
ágætri sýningarskrá, segir formað-
ur félagsins að sýningin sé m.a.
haldin til að minnast aldarafmælis
þess. Á nokkrum undanförnum
árum hefur félagið stuðlað að
auknum listáhuga félagsmanna
með því að standa fyrir námskeið-
um, þar sem þekktir listamenn og
aðrir leiðbeinendur hafa veitt til-
sögn. Þetta hefur skilað sér í auk-
inni þátttöku félagsmanna, og
jafnframt má gera ráð fyrir að
fólk sæki almennar sýningar í
auknum mæli og fylgist þannig
með því sem er að gerast á lista-
sviðinu hér á landi. Það mættu
fleiri hagsmunafélög leggja mann-
rækt af þessu tagi lið í starfi sínu,
því allt slíkt er að sjálfsögðu til
hagsbóta fyrir félagsmenn.
Breiddin í hópi sýnenda er mik-
il; sá elsti verður áttræður á þessu
ári, en sá yngsti er tuttugu og
fimm ára. Á sýningunni getur að
líta olíumálverk, vefnað, textílverk,
myndir unnar með akrýl, pastel
og blandaðri tækni, en þó eru
vatnslitamyndir áberandi flestar,
enda væntanlega sá miðill, sem er
þægilegastur í meðförum. Jafn-
framt er athyglisvert að sjá, hversu
góðum tökum margir hafa náð á
vatnslitunum; litablöndun og blæ-
brigði myndanna er oft með þeim
ágætum, að flestir listamenn væru
fullsæmdir af. Þar hafa leiðbein-
endur og listafólkið sjálft náð góð-
um_ árangri.
Á jafn stórri sýningu sem þess-
ari er nær vonlaust að geta sérs-
taklega alls þess, sem vert væri,
enda vinnur þetta listafólk sín verk
frá mismunandi sjónarhorni. Við-
fangsefnin eru fjölbreytt, en mest
ber þó á hefðbundnum landslags-
myndum og uppstillingum, en fant-
asíum og abstraktmyndum bregð-
ur þó fýrir. Einkum era það
stemmningsmyndir af ýmsu tagi
sem draga að sér athyglina, og
má t.d. nefna myndina „Birtuskil“
(nr. 26) eftir Bóel ísleifsdóttur,
„Speglun“ (nr. 82) eftir Sonju
Schmidt og „Skógareld“ (nr. 112)
eftir Helga Hallgrímsson; öll þessi
verk bera með sér gott jafnvægi
og tilfinningu fyrir litum. Vefnaður
Ólafar Siguijónsdóttur sýnir
skemmtilegar landslagsmyndir í
smæð sinni, og loks auðga verk
ungu mannanna, Einars Magnúss
Magnússonar og Franz Kristins-
sonar, sýninguna með ólíkum við-
fangsefnum og efnistökum.
Þetta er skemmtileg sýning og
vel upp sett við þröngar aðstæður,
og er öllum aðstandendum til
sóma. Listafólkið á þakkir skildar
fyrir að veita öðrum hlut í ánægju
sinni, sem og Verzlunarmannafé-
lag Reykjavíkur fyrir að styðja við
bakið á frístundamálun félags-
manna sinna.
Myndverkasýningu félags-
manna VR í Listasafni ASI við
Grensásveg lýkur sunnudaginn 15.
september.