Morgunblaðið - 12.09.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991
19
Fjárhagsstaða Hitaveitu Reykjavíkur rædd í borgarráði:
Fullyrðingu um að draga verði
úr framkvæmdum mótmælt
Lagt til að kjömir fulltrúar skipi bygginganefndir stórra framkvæmda
LÖGÐ hefur verið fram í borgarráði útskrift úr gerðabók stjórnar
veitustofnana, þar sem greint er frá fjárhagsstöðu Hitaveitu
Reykjavíkur. Þar leggur Gunnar Kristinsson hitaveitustjóri til, að
heimiluð verði 450 milljóna króna lántaka til greiðslu skulda og að
það lán verði endurgreitt á tveimur árum. I bókun Sigrúnar Magnús-
dóttur á fundi borgarráðs s.l. þriðjudag kemur fram að þrátt fyrir
lántöku verði að draga úr framkvæmdum Hitaveitunnar. í bókun
borgarráðsmanna Sjálfstæðismanna er þeirri fullyrðingu mótmælt.
Þá lagði Katrín Fjeldsted fram tillögu um að bygginganefndir verði
skipaðar kjörnum fulltrúum þegar um stórar framkvæmdir á vegum
borgarinnar er að ræða.
I bókun Sigrúnar Magnúsdóttur
segir: „Fjárhagsstaða hjá þessu
öfluga fyrirtæki borgarbúa hefur
breyst mikið síðasta ár. Þrátt fyrir
450 milljón króna lántöku núna
verður að draga saman allar fram-
kvæmdir, viðhald og endurnýjun
lagna. Hin dýra bygging, Perlan,
er því mikill baggi á Hitaveitunni.
Onákvæmni hönnuða og ráðgjafa
varðandi fjárhagsáætlun er ámælis-
verð, sérstaklega keyrði úr hófi
núna við lokaáfanga hússins.“
í sameiginlegri bókun Kristínar
Á. Ólafsdóttur og Elínar G. Ólafs-
dóttur segir: „Svo virðist sem ekki
verði hjá lántöku Hitaveitu
Reykjavíkur komist ef gæta á ör-
yggis dreifikerfisins með því að
ljúka stórum áfanga Suðuræðar-á
næsta ári. Hitt er svo augljóst að
þörfin fyrir þessa lántöku er til orð-
in vegna ótrúlegs klúðurs og
ábyrgðarleysis þeirra aðila sem
tóku ákvarðanir um framkvæmdir
við „Perluna" án nokkurs tillits til
samþykktar áætlana sem fyrir lágu.
Eftirlit æðstu embættismanna Hita-
veitunnar og Reykjavíkurborgar
virðist gjörsamlega hafa brugðist í
þessu tilfelli þar til nýr borgarstjóri
tók í taumana. Við hörmum að þetta
makalausa klúður skuli kosta fyrir-
tæki Reykvíkinga, HR, lántöku-
kostnað til viðbótar gífurlega háum
byggingarkostnaði „Perlunnar".“
I bókun borgarráðsmanna Sjálf-
stæðisflokksins vegna þessa máls
kemur þetta fram: „Samkvæmt
framkvæmdaáætlun HR 1992 til
1995, sem lögð var fyrir borgarráð
í dag, er gert ráð fyrir framkvæmd-
FLEXON
VESTUR-ÞYSKUR
HÁGÆÐA
DRIFBÚNAÐUR
FLUTNINGSKEÐJUR
Allar stœrðir
Hagstœtt verð
Vlð veitum þér
allar tœknilegar
upplýsingar
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
SIMI (91) 20680- FAX (91) 19199
um við veitukerfi Hitaveitunnar
fyrir 740 milljónir á næsta ári, sem
er 38% aukning frá þessu ári. Þá
er gert ráð fyrir verulega auknum
framkvæmdum og endurnýjun við
veitukerfíð á næstu árum, enda er
fjárhagsstaða Hitaveitunnar mjög
traust þó taka þurfi nú lán til að-
eins skamms tíma vegna sérstakra
framkvæmda að undanförnu. Sú
staðhæfing í bókun S.M. að draga
verði saman allar framkvæmdir hjá
fyrirtækinu vegna lélegrar fjár-
hagsstöðu er því ekki sannleikanum
samkvæm.“
í tillögu Katrínar Fjeldsted um
að kjörnir fulltrúar skipi bygginga-
nefndir þegar um stórar fram-
kvæmdir á vegum borgarinnar er
að ræða, er bent á að þannig sé
staðið að málum við byggingar fyr-
ir aldraða og hafi gefið góða raun.
Afgreiðslu tillögunnar var frestað.
Skrifstofutækni
Fyrir aðeins kr. 5.000" á mánuði.
Námið kemur að góðum notum í atvinnuleit. Einungis
eru kenndar námsgreinar sem nýtast þegar út á
vinnumarkaðinn er komið. Til dœmis:
Bókfærsla
Tölvubókhald
Ritvinnsla
Tollskýrslugerð
Verslunarreikningur
Verðið miðast við skuldabréf til tveggja ára. ^
Tölvuskóli Islands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22
SERUTGAFA
TAKMARKAÐUR FJÖLDI
□ Stuðarar, vatnskassahlíf, hliðarlistar, hurðahandföng og útispeglar,
allt í sama lit og yfirbyggingin
□ Heilir hjólkoppar □ Rafstýrðir og rafhltaðir útispeglar □ Vindkljúfur á framstuðara
□ Sætaáklæði / gólfteppi - ný gerð □ Vindkljúfur að aftan (Lancer stallbakur og Colt)
□ Sportstýrishjól
A
MITSUBISHI
MOTORS
A
MITSUBISHI
MOTORS
MITSUBISHI C0LT-EXE
MITSUBISHI LANCEB stallbakur-EXE
MITSUBISHI LAMCER hlaðbakur-EXE
ALLIR MED 12 VENTLA HREYFIL MEÐ FJÖLINNSPRAUTUN
ALLIR MEÐ AFLSTÝRI - ALLIR MED HVARFAKÚT
ÞRIGGJA ÁRA ÁDYRGD
HVARFAKÚTUR
MINNI MENGUN
m
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500