Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991 27 Sovétmenn fal- ast eftir matvæla- aðstoð frá EB " Reuter Thatcher ræðir hrun kommúnismans við Kínveija Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, er í Kína og ræddi í gær við Li Peng, forsætis- ráðherra landsins, um hrun kommúnismans í Sovétríkjunum, mál sem kínverska kommúnistastjórnin lítur alvarlegum augum. Thatcher kom til Kína frá Japan, þar sem hún lét svo um mælt að hrun kommúnismans í Sovétríkjunum markaði upphaf „nýrrar dögunar lýðræðis", sem myndi jafnvel berast til „myrkustu svæða heimsins“. Hún ræddi einnig við Jiang Zemin, leiðtoga kínverska kommúnistaflokksins, í gær og myndin var tekin eftir fund þeirra. Strasbourg, Moskvu. Reuter. SOVÉTMENN fóru í gær fram á mikla matvælaaðstoð frá Evrópu- bandalaginu (EB). Falast þeir m.a. eftir 5.5 milljónum tonna af korni, 800.000 tonnum af kjöti og 900.000 tonnum af sykri. Jacques Delors, forseti framkvæmdastjórnar EB, ávarpaði Évrópuþingið fyrr í gær og sagði að EB þyrfti að veita Sovétríkjunum matvælaað- stoð að andvirði a.m.k. tveggja milljarða dollara (120 milljarða ISK). Hann hvatti iðnvædd ríki til að skorast ekki undan hjálparbeiðni. ívan Sílajev, sem fer fyrir efna- hagsnefnd Sovétríkjanna, afhenti Frans Andriessen, varaforseta framkvæmdastjórnar EB, hjálpar- beiðnina í Moskvu í gær og var hún stíluð á Delors. í tilkynningu frá framkvæmdastjórn EB sagði að hún yrði tekin til umfjöllunar. „Mér virðist sem upphæðin geti ekki verið lægri en tveir milljarðar dollara og slík aðstoð myndi ýta undir Bandaríkin, Japan og Kanada að gera slíkt hið sama,“ sagði Del- ors fyrr um daginn þegar hann hvatti EB til að veita Sovétríkjun- um matvælaaðstoð. „Við getum ekki séð um þetta allt sjálfir og látið aðra síðan njóta góðs af. Þeir slyppu of auðveldlega þannig,“ bætti hann við. Hann sagði að fjár- hæðina ætti að nota til að kaupa matvæli frá Póllandi, Tékkóslóvak- íu og Ungverjalandi og flytja þau síðan til Sovétríkjanna. Þannig mætti slá tvær flugur í einu höggi. Mitterrand Frakklandsforseti: Hvetur til fundar kjarnorku- arða ÍSK) í tæknilega aðstoð. Borís Jeltsín Rússlandsforseti ávarpaði í gær mannréttindaráð- stefnu RÖSE í Moskvu og þar sagði hann að Rússlandi tækist ekki að rétta úr kútnum án aðstoðar EB. Hann sagði að fortíðin ætti eftir að draga dilk á eftir sér um ókom- in ár, en efnahag landsins yrði að gjörbreyta á örskömmum tíma. Hann bætti við að valdaránstilraun- in í síðasta mánuði hefði sýnt Rúss- um hverjir væru raunverulegir vin- ir þeirra og að „hernaðarógn úr vestri væri þjóðsaga“. í Ijósi þessa ætti að vera hægt að hraða afvopn- un og fækka hermönnum og her- gögnum umtalsvert. Embættismenn EB sögðu að upphæðin sem Delors nefndi væri heildarupphæð og inni í henni væru þau framlög EB sem þegar hafa verið samþykkt. Ríkin 12 í EB hafa samþykkt 750 milljóna ECU (55 milljarða ÍSK) matvælaaðstoð og lán til Sovétríkjanna og jafn- virði 480 milljóna EC'U (35 millj- velda um sovésk kjamavopn París, Moskvu. Reuter. FRANCOIS Mitterrand Frakk- landsforseti hvatti í gær til þess að ríkin fjögur, sem hafa kjarn- orkuvopn í Evrópu, efndu sem fyrst til fundar um öryggismál til að tryggja að ekki skapaðist Sovétríkin: Flestir valdaræningjanna neita öllum sakargiftum Moskvu. Reuter. AF ÞEIM fjórtán mönnum sem handteknir hafa verið vegna gruns um að hafa staðið að baki valdaráninu í Moskvu í síðasta mánuði hafa tíu neitað öllum sakargiftum. Að sögn talsmanns rússneska saksóknaraembættis- ins hefur einn maður sagst sekur af öllum ákærum, en þrír hafa neitað sumum sakargiftum en gengist við öðrum. Ef mennirnir verða fundnir sekir eiga þeir yfir höfði sér dauðadóm eða allt að fimmtán ára fangelsisvist. Einn þeirra sem kveðst algjörlega saklaus er Anatólíj Lúkjanov, fyrr- um forseti Æðsta ráðsins og gam- all vinur og skólafélagi Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta. Rúss- neskir embættismenn hafa sakað hann um að vera upphafsmann valdaránsins. Að sögn lögfræðings hans, Alexanders Gofsteins, tók Ljúkjanov slæma sótt á þriðjudag og liggur nú alvarlega veikur á sjúkrahúsi. Gofstein sagði að ekki væri enn vitað með vissu hvað amaði að Ljúkjanov, en hann héldi að um væri að ræða „krampa í heilaæðum sem orsakaðist vegna mikils taugaálags". Ekki hefur fengist staðfest hver mannanna játaði öllum sakargift- um, en sjónvarpið í Moskvu skýrði frá því á þriðjudag að það væri Dmitríj Jazov, fyrrum varnarmála- ráðherra. Eiginkona Jazovs, Emma, sagði í viðtali við sovéska dagblaðið Komsomolskaja Pravda að maður sinn hefði aldrei treyst félögum.sín- um í neyðarnefndinni svokölluðu. Hún sagði að sér væri óskiljanlegt hvernig Jazov flæktist í samsærið. í viðtalinu kom fram að Jazov sagði eitt sinn við konu sína að hann „yrði aldrei Pinochet". Þar var hann að vísa til chileska einræðisherrans sem stjórnaði landi sínu með harðri hendi í 17 ár, eða fram í mars á síðasta ári. Gennadíj Janajev, fyrrum vara- forseti Sovétríkjanna, er á meðal þeirra 14 sem handteknir vqru, en talið er að hann hafi verið sem leik- brúða í höndum þeirra sem skipu- lögðu valdaránið. Einnig var Va- lentín Pavlov, fyrrum forsætisráð- herra handtekinn ásamt Vladímír Kijútsjkov, yfirmanni öryggislög- reglunnar, KGB, og þremur undir- mönnum hans. Borís Púgo, fyrrum innanríkisráðherra, svipti sig lífi þegar ljóst var að valdaránið hafði runnið út í sandinn. hætta af sovéskum kjarnorku- vopnuni vegna þróunarinnar í Sovétríkjunum að undanförnu. Ríkin fjögur eru Bandaríkin, Bretland og Frakkland, auk Sovétríkjanna. Mitterrand sagði að valdaránst- ilraun sovéskra harðlínukommún- ista í ágúst hefði valdið miklum ótta í heiminum öllum um að kjarnorkuvopn Sovétmanna kynnu að komast í rangar hendur. „Hvað varðar óvissuna um framtíð Sov- étríkjanna þurfa sovésk stjórnvöld að gera grein fyrir því hvemig staðan er nú, hveijir fara með völdin, hvar kjarnorkuvopnin eru og hvert þau verða flutt, til að hægt verði að tryggja strangt eft- irlit með þeim,“ sagði forsetinn. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddi við Borís Pankín, starfsbróður sinn í Sov- étríkjunum, í Moskvu í gær. Pank- ín sagði að sovésk stjórnvöld myndu standa við alla afvopnunar- • samninga, sem þau hafa gert, og kvaðst vona að viðræður hæfust sem fyrst um frekari fækkun lang- drægra kjamorkuvopna. Forsetar ríkjanna undirrituðu samning um fækkun slíkra vopna um þriðjung á fundi í Moskvu í júlí. Hans-Dietrich Genscher, ut- anríkisráðherra Þýskalands, sem er einnig í Moskvu, sagði að so- vésk stjómvöld hefðu aldrei verið jafn fús til að semja um fækkun kjamorkuvopna og nú. Hann skýrði ennfremur frá því að Boris Jeltsín, forseti Rússlands, hefði tekið vel í tillögu Þjóðveija um fækkun skammdrægra kjarnorku- vopna. ERLENT Ð JLS STIGAHUSATEPPI STIGAGANGAR SKRIFSTOFUR VERSLANIR Á ALLA ÞÁ STAÐI SEM MIKIÐ MÆDIR Á 67 NÝIR TÍSKULITIR , 5 ARA ABYRGÐ 10 ÁRA MJÖG GÓÐ REYNSLA HÉR Á LANDI VIÐURKENND AF BRUNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS TEPPAVERSLUN FÁKAFENI 9 - SIMI 686266
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.