Morgunblaðið - 12.09.1991, Side 54

Morgunblaðið - 12.09.1991, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991 FOLX ■ SOVÉTMENN sigruðu í liða- keppni karla á HM í fimleikum, sem nú stendur yfir í Indianapolis í í Bandaríkjunum og gafa nú sigrað í keppninni á fjórum HM-mótum í röð. Sovétmenn voru í fjórum efstu sætunum í einstaklingskeppninni. M SVETLANA Boguinskaja sýndi á HM í fimleikum að 18 ár þurfa ekki að vera hár aldur hjá konum í fimleikum. Hún er elsti keppandinn í liði Sovétríkjanna en stóð sig engu að síður best allra þátttakenda í skyiduæfingum og fékk meira en 9,9 í einkunn að meðaltali úr fjórum greinum. „Ég hó ert feti framar í sportvðrum frá Spörtu Adidas Hallen innanhúss- og leikfimiskór Nr. 29 til 35 kr. 3.495,- Nr. 36 til 47 kr. 3.750,- Adidas T.T. Super innanhússkór/leikfimiskór Nr. 31/z til 121/z (36-48). Verð 3.630,- Adidas Richfield hlaupa-og götuskór Nr. 3Vztil 11 (36-46) Verð 5.990,- Adidas improve skólaskór Nr. 30 til 38 Tilboðsverð 1.990,- Laugavegi 49, sími 12024. FRJALSAR IÞROTTIR / STIGAMOT I BERLIN Sálfræðistríðið hafið milli Krabbe og Ottey Þær mætast ekki fyrr en á Ólympíuleikunum í Barcelona Powell Boginskaya er ánægð með þetta og við sjáum hvað gerist í fijálsu æfingunum," sagði fimmfaldi gullmethafinn frá Evrópukeppninni í fyrra. ■ SOVETMENN komust ekki í undanúrslit í keppninni um Kanadabikarinn í íshokkí, sem nú fer fram, og er það í fyrsta sinn í sögu keppninnar. Kanada mætir Svíþjóð í undanúrslitum og Finn- land leikur gegn Bandaríkjunum í hinum leiknum, en Sovétríkin og Tékkoslóvakia eru úr leik. ■ MIKE Powell, sem bætti 23 ára gamalt met Bob Beamons í langstökki á HM í Tókýó, sagði í gær að það færu 50 prósent líkur á því að hann gæti gekkt á stiga- mótinu í Briissel annað kvöld. Hann meiddist á hægra hnéi á sitgamótinu í Berlín á þriðjudag er hann stökk 8,10 metra, töluvert styttra en heimsmet hans 8,95 metrar. „Eins og staðan er í dag eru líkurnar 50 prósent á að ég keppi á. föstudag," sagði Powell. ■ JORG Berger var á þriðjudag ráðinn þjálfari Kölnar í knatt- spymu. Berger, sem var rekinn frá Eintracht Frankfurt á síðasta keppnistímabili, tekur við liðinu af Erich Rutemöller. Hann stjórnar liðinu í fyrsta sinn á laugardaginn gegn Stuttgart. ■ ANDRE Cason frá Banda- ríkjunum sigraði landa sinn, Denn- is Mitchel í 100 metra hlaupi á alþjóðlegu fijálsíþróttamóti í Ko- blenz í Þýskalandi í gærkvöldi. Cason hljóp á 9,99 sek., en Mit- chell, sem varð annar, hljóp á 10,23 sekúndum. Tími Cason er sjöundi besti tími ársins í þessari vega- lengd. Michael Johnson, heims- meistari í 400 m hlaupi, varð þriðji á sama tíma og Mitchell, 10,23 sek. ÞÝSKA hlaupadrottningin Kart- in Krabbe og Marlene Ottey frá Jamaíka ekki á hlaupabrautinni fyrr en á Ólympíuleikunum í Barcelona á næsta ári. Ottey hafði lýst því yfir að hún vildi keppa við Krabbe annað hvort í Köln eða Berlín. En þjálfari Krabbe hafði ekki áhuga á því. Það má því segja að sálfræði stríðið milli þeirra sé hafið. Krabbe keppti í 200 metra hlaupi á stigamótinu í Berlín á þriðjudag, en Ottey í 100. Krabbe náði næst besta tíma ársins í 200 er hún hljóp á 21,96 sek. Ottey náði einnig næst besta tíma ársins í 100 metrunum, 10,84 sek. Krabbe þorði ekki í Ottey Ottey var ekki ánægð með að fá ekki tækifæri,til að keppa við Krabbe í Þýskalandi. Þjálfari Krabbe, Thomas Springstein, neit- aði og sagði að það yrði að bíða Ólympíuleikanna á næsta ári. „Ég var tilbúin til að mæta Krabbe, en hún valdi að keppa i 200. Ef ég hefði keppt bæði í 100 og 200 þá hefði hún bara farið í 400 metra hlaupið,“ sagði Ottey. „Ég ætlaði að reyna að hlaupa undir 22 sekúndum, en ég er mjög ánægð með tímann á síðasta mót- inu hjá mér á þessu keppnistíma- bili,“ sagði Krabbe. „Ég er nú kom- in í frí.“ Ottey verðu því að bíða fram í ágúst á næsta ári til að ná fram hefndum gegn Krabbe. Öruggt hjá Burrell Leroy Búrrell, sem vann silfur- verðlaunin í 100 m hlaupinu í Tókýó, sigraði örugglega í Berlín. Hann kom í mark á 10,04 sek. Bruny Surin frá Kanada varð ann- ar. „Ég hefði viljað hlaupa undir tíu sekúndum. Ég er þó ánægður að hafa endað tímabilið með því að hlaupa á þessum tíraa," sagði Burrell. Heimsmeistarinn Billy Kon- chellah frá Kenýa sigraði í 800 Marlene Ottey metra hlaupi karla á 1:45.95 mín. og var aðeins sjónarmun á undan landa sínum, William Tanui. Sovéski heimsmeistarinn, Ludmíla Narozhilenko, datt í 100 m grindahlaupi kvenna og varð að hætta keppni. Gail Devers-Roberts frá Bandaríkjunum sigraði örugg- lega í hlaupinu á nýju landsmeti, 12,48 sek. Heimsmethafinn Mike Powell frá Bandaríkjunum sigraði í lang- stökki karla, stökk 8,10 metra. En heimsmet hans er 8,95 metrar. Peningakröfum Bandaríkjamanna hafnaö Brussel Santa Monica félagið hótar að keppa aldrei framar Framkvæmdaraðilar stigamóts- iiis í fijálsíþróttum í Briissel um næstu helgi hafa sagt fijáls- íþróttafélaginu Santa Monica að keppendur þess fái ekki að taka þátt í stigamótinu vegna kröfu um of mikla peninga. Joe Douglas, framkvæmdastjóri , Skólamót w íknattspyrnu íslandsmót framhaldsskóla í knattspyrnu verður haldið í október og nóvember nk. Þátttökutilkynningar ásamt pátttökugjaldi kr. 5.000 sendist skrifstofu KSÍ, íþróttamið- stöðinni'í Laugardal, 104 Reykjavík, fyrir 20. september. Heimilt er að senda eitt karlalið og eitt kvennalið frá hverjum skóla. Knattspyrnusamband íslands. GOLFMOT I MOSFELLSDAL Fyrsta Lamsmátið - offið mát meú au áa tamiatar - verður háð á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal laugardaginn 14. september, og verður fyrsti hópur ræstur út kl. 8.00. Leiknar verða 18 holur á 9 holu velli. Verðlaunaveiting að sið íþróttamanna, auk nándarpen- ings við 11. og 18. holu. Þátttaka tilkynnist í síma 24036 föstudaginn 13. sept. Þátttökugjald er kr. 1.500. Mótið er haldið í samvinnu við Hestaleiguna, Laxnesi. Golfklúbbur Bakkakots GOB. Sími á mótsstað: 985-31133. Santa Monica, fór fram á 102.000 dollara (ríflega 6 millj. ÍSK) greiðslu fyrir sex íþróttamenn, þar á meðal Leroy Burrell, en Carl Lewis var utan hópsins. Þar fyrir utan hefði þurft að greiða fyrir fargjald og uppihald og hefði kostnaður vegna hópsins orðið um 7,5 miilj. ÍSK. Á síðasta ári fór félagið fram á um 4,5 millj. ÍSK. Wilfried Meert í framkvæmda- stjórn mótsins sagði að Douglas hefði orðið ókvæða við viðbrögðum mótshaldara og hótað að senda aldrei framar keppendur á mót í Briissel. Gert er ráð fyrir 25 heimsmeist- urum á mótið og segjast mótshald- arar sennilega ekki ætla að tryggja sig fyrir heimsmetum, en venjulega er greidd um 1,5 millj. ÍSK fyrír heimsmet. „Við eigum alla vega fyrir fjórum heimsmetum eftir að hafa hafnað kröfu Santa Monica;“ sagði Meert. EinarPáll Tómasson Val (2) Baldur Bjarnason Fram (2) Jón Otti Jónsson Stjörnunni (1) Friðrik Sæbjörnsson ÍBV (1) Guömundur Ingi Magnússon Vikingi (5) Hörður Magnússon FH(3) Ingólfur Ingólfsson Stjömunni (5) Sigurður Omarsson KR (1) Jón Grétar Jónsson Val (1) LIÐ 17. UMFERÐAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.