Morgunblaðið - 12.09.1991, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991
55
HANDKNATTLEIKUR
Islandsmótid í hættu?
Aðildarfélög HSÍ greiða engin
þátttökugjöld vegna keppni
á vegum HSÍ, þar sem þau telja
að hagnaður af Lottói eigi að
standa straum af kostnaði vegna
móta, en nú hefur stjóm HSÍ, að
sögn Jóns Hjaltalíns, formanns
HSÍ, óskað eftir að þau hlaupi
undir bagga með sambandinu svo
hægt verði að ráða starfsmann
til að sjá um mótamál.
Stjómin hefur bent á tvær leið-
ir í þessu sambandi. Önnur er sú
að stjórnin og félögin vinni að því
sameiginlega að fá sérstakan
styrktaraðila vegna íslandsmóts-
ins, sem myndi borga laun starfs-
mannsins, en annar kostur er að
félögin, sem eiga lið í 1., 2. og
3. deild karla greiði ákveðið gjald
á mánuði til að standa straum af
kostnaðinum. í því sambandi hef-
ur verið rætt um að félög í 1.
deild borgi 9.000 krónur á mán-
uði, 2. deildar félög greiði 4.500
krónur og félög í 3. deild 2.000
krónur á mánuði.
Skipun en ekki ósk
Formenn félaganna eru ekki á
eitt sáttir með framgang mála,
en þeir, sem Morgunblaðið ræddi
við í gær, sögðu að ekkert íslands-
mót færi fram nema starfsmaður
yrði ráðinn í fullt starf og HSÍ
hefði kastað boltanum til þeirra.
íslandsmótið ætti að hefjast eftir
þtjár vikur og þar sem skammur
tími væri til stefnu yrðu félögin
að leggja sit af mörkum.
Bjarni Akason, formaður hand-
knattleiksdeildar Vals, sagði að
HSI væri að varpa eigin vanda
yfir á félögin og stillti þeim upp
við vegg. „Annað hvort borgið þið
eða það verður ekkert íslands-
rnót. Þetta er ekki ósk heldur
skipun, sem-kemur á versta tíma.
Það er sjálfsagt að biðja um stuðn-
ing, en það hefði þá átt að gera
það fyrr í sumar, en ekki konta
með skipun á síðustu stundu. Ég
lít á þetta sem fjárkúgun, sem
við verðum að ganga að, en verði
samþykkt að borga ákveðið gjald
verður séð til þess að peningarnir
.fari þangað, sem þeir eiga að fara
en ekki í hítina hjá HSI.“
HM á íslandi 1995:
IHF óskar
HSÍ biður
ríkis-
eftirstað- _
festingu HSÍ
ALÞJÓÐA handknattleikssam-
bandið (IHF) sendi Handknatt-
leikssambandi íslands simbréf
í síðustu viku, þar sem óskað
var eftir staðfestingu á að
keppnin árið 1995 geti farið
fram á íslandi. HSÍ svaraði
beiðninni í gær og sagði að
ekkert væri að óttast og bauð
fulltrúum IHF að koma til
landsins við fyrsta hentuga
tækifæri til að ræða nánar
framkvæmd keppninnar.
Fyrirspurn IHF er í þrennu lagi.
I fyrsta lagi er spurt um stað-
festingu á byggingu sérstakrar
URSLIT
Knattspyrna
Evrópukeppni landsiiða
2. RIÐILL:
Bern, Sviss:
Sviss - Skotland................2:2
Stephane Chapuisat (30.), Heinz Hermann
(39.) - Gordon Durie (47.), Ally McCoist
(83.). 48.000
Staðan:
Swiss.............7 4 2 1 19: 6 10
Skotland..........6 3 3 0 10: 6 9
Búlgaría..........6 2 2 2 10: 7 6
Rúmenía...........5 2 1 2 10: 6 5
SanMarónó.........6 0 0 6 1:25 0
4. RIÐILL:
Landskrona, Svíþjóð:
Færeyjar - N-Srland............0:5
- Kevin Wilson (7.), Colin Clarke 3 (12.,
50., 67.), Alan McDonald (15.). 1.623
Staðan:
Júgóslavía........6 5 0 1 20: 4 10
Danmörk...........5 3 11 9: 6 7
N-írland..........6 1 3 2 8: 8 5
Austurríki........5 113 5: 7 3
Færeyjar..........6 1 1 4 3:20 3
5. RIÐILL:
Luxemborg:
Luxemborg - Belgía.............0:2
- Enzo Scifo (23.), Marc Degryse (48.)
9.000
Staðan:
Wales...............4 3 1 0 6:2 7
Belgia..............5 2 1 2 7:5 5
Þýskaland...........3 2 0 1 4:3 4
Luxemborg...........4 0 0 4 2:9 0
6. RIÐILL:
íþróttahallar vegna keppninnar. í
annan stað vill IHF fá staðfest hvort
HSÍ geti haldið keppni með 24 lið-
um í stað 16 eins og verið hefur og
í þriðja lagi er óskað eftir upplýsing-
um varðandi fjárhagslegu hliðina.
ón Hjaltalín Magnússon, formað-
ur HSI, sagði við Morgunblaðið að
fyrirspurnin væri eðlileg, því IHF
vildi fylgjast með áætlunum og
framkvæmdum. í svari sínu hefði
hann m.a. greint frá því að bæjar-
stjórinn í Kópavogi hefði staðfest
að bygging íþróttahallarinnar hæf-
ist í byrjun næsta árs. Hann hefði
einnig bent á að HSÍ hefði alltaf
verið fylgjandi 24 liða keppni, ekki
síst vegna þess að með slíku fyrir-
komulagi væru tekjumöguleikar
meiri.
Jón Hjaltalín sagði að 24 liða
keppni þyrfti ekki að kosta meira
en 16 liða keppni ef fyrirkomulagið
væri eins og í HM í knattspyrnu,
en þetta þyrfti að ræða nánar við
IHF eins og fjölmörg önnur atriði
varðandi keppnina og því hefði hann
boðið fulltrúum IHF hingað til
skrafs og ráðagerða.
Formaðurinn sagði ennfremur að
áætlanir HSÍ varðandi keppnina
miðuðust við það að framkvæmdin
skilaði 60 milljónum króna í hagn-
að. Til að áætlanir stæðust væri
mikilvægt að hefjast þegar handa
og vegna fyrirspyrnar IHF hefði
hann óskað eftir fundi með fulltrú-
um Kópavogs og menntamálaráðu-
neytisins.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
*
Allt í hnút?
stjómina
um lán
- upp á 20 millj. kr
Handknattleikssamband íslands
ætlar á næstu dögum að óska
eftir 20 milljón króna láni úr ríkis-
sjóði, sem sambandið hyggst greiða
á fimm árum.
„Við þurfum þessa peninga til
að komast út úr lausaskuldum,"
sagði Jón Hjaltalín, formaður HSI.
„Þá fyrst getum við farið að vinna
af fullum krafti við að undirbúa
landsliðið sem best fyrir B-keppn-^
ina, sem verður í Austurríki í mars
á næsta ári, en þar er markmiðið
að vera í einu af fjórum efstu sæt-
unum, sem tryggir farseðilinn á
Heimsmeistarakeppnina í Svíþjóð
árið 1993.“
Jón sagði að menntamálaráð-
herra hefði skoðað allar leiðir til
að veita HSI fyrirgreiðslu, en þetta
væri ekki forgangsverkefni. „Við
bíðum eftir formlegum fundi um
málið og vonandi verður af honum
í næstu viku.“
Formaðurinn sagði að fjárhags-
staðan væri erfíð, en þannig hefði
þetta verið í fjögur ár eða síðan
ákvörðun var tekin um að halda
Heimsmeistarakeppnina hér á lan<Jf'
árið 1995. „Frammistaða tuttugu
og eins árs liðsins á HM í Grikk-
landi er árangur fímm ára undir-
búnings og þetta lið verður uppi-
staðan í landsliðinu 1995 ásamt
yngri mönnunum, sem nú eru í
landsliðinu. Það kostar óhemju
mikla peninga að halda úti landslið-
um í fremstu röð, en við höfum lit-
ið á þetta sem fjárfestingu til fram-
tíðar.“
Verður bikarinn afhentur
í Garðinum eða Reykjavík
Oporto, Portúgal:
Portúgal - Finnland................1:0
Brito (22.). 30.000
Staðan:
Holland.............6 4 1 1 14: 2 9
Portúgal............6 4 1 1 10: 3 9
Finnland............6 1 3 2 4: 5 5
Grikkland...........3 2 0 1 7: 4 4
Malta...............7 0 1 6 1:22 1
Vináttulandsleikir:
Eindhoven, Hollandi:
Holland - Pólland.................1:1
Gyro, Ungverjalandi:
Ungverjaland - írland..............1:2
Kalman Kovacs (50.) — David Kelly (51.),
Kevin Sheedy (70.). 4.000
Cardiff, Wales:
Wales - Brasilía..................1:0
Dean Saunders (58.). 20.000
Wembley, London: ..„„„..u.
England - Þýskaland................0:1
- Karlheinz Riedle (45.). 59.493
ENN eitt árið ræðst það ekki
fyrr en i' síðustu umferð hvaða
félag hampar íslandsmeistar-
atitlinum - Víkingur eða Fram.
1986 var tekið upp á því að
leika alla leikina í síðustu um-
ferð á sama tíma, en þá börð-
ust Framarar og Valsmenn um
meistaratitilinn. Framarar
unnu þá á betri markatölu.
Spennan var mikil 1989, en þá
áttu tvö félög mestan möguleika
á að verða meistari; KA og FH. KA
vann Keflavík, 2:0, í Keflavík á sama
tíma og FH tapaði óvænt, 1:2, í Hafn-
arfirði fyrir Fýlki. Þar rftéð stóðu léík-
menn KA uppi sem íslandsmeistarar.
Fram og KR háðu sögulega baráttu
í fyrra, en þá tryggðu Framarar sér
meistaratitilinnm á betri markatölu, á
elleftu stundu.
Spennan er nú enn einu sinni að
ná hámarki. Víkingar og Framarar
beijast um meistaratitilinn og eru
möguleikar Víkinga vænlegri, þar sem
þeir eru með betri markatölu en Fram-
arar. Víkingar leika gegn Víði i Graði
og Framarar fá Eyjamenn í heimsókn.
Ef bæði liðin vinna verða Framarar
að skora þremur mörkum meira en
Víkingar, til að meistaratitilinn verði
þeirra, en annars fagna Víkingar í
Garði. Það getur svo farið að Víkingur
fái bikarinn þó svo að bæði bæði félög-
in beri læri hlut, en það færi þó eftir
því hvað liðin töþúðú með miklum
mun. Sem sagt; Spennan er geysileg.
Báðum leikjum frestað?
Mótanefnd KSÍ hefur sent Víkingi,
Víði, Fram og ÍBV skeyti þess efnis,
að ef annar leikurinn frestast af ein-
hveijum ástæðum, verði hinum leikn-
um einnig frestað. „Það hefur verið
ákveðið að báðir leikimir verða leiknir
á sama tíma,“ sagði Snorri Finnlaugs-
son, formaður mótanefndar. Þegar
hann var spurður um hvort að móta-
nefndin hafi farið fram á það við Eyja-
menn að þeir komi til Reykjavíkur
daginn fyrir leik, eða á föstudaginn,
sagði hann: „Við höfum rætt það við
Eyjamenn, en þeir tóku dræmt í það.“
Bikarinn með þyrlu?
Hvar verður bikarinn staðsettur þegar
leikirnir fará fram," er spúrhirtg sém
hefur brunnið á vörum- margra. Allt
bendir nú til að bikarinn verði geymd-
ur um borð í þyrlu, sem væri tilbúin
að fara með hann í Garðinn eða Laug-
ardalinn. „Þessi hugmynd hefur verið
rædd. Við sjáum í fljótu bragði að það
verði besta lausnin. Úrslit ráðast
kannski ekki fyrr en á lokasekúndun-
um. Við verðum að vera við öllu bðír-' -
ir og það er fljótast að flytja bikarinn
á milli staða með þyrlu. Akstursvega-
lengdin á milli Reykjavíkur og Garðs
er um sextíu kílómetrar. Það er hátt
í klukkutíma akstur. Þyrla þarf ekki
nema í mesta lagt tiu mínútur til að
komast á milli staðanna," sagði Snorri.
Væntanlega mun þyrlan hefja sig
á loft með bikarinn stuttu áður en
leikirnir verða flautaðir af, sveima um,
' 'ög' véra’ 11160111' Sð "Cáka' 'stéfnúna í
Garðinn eða Laugardalinn.