Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
208. tbl. 79. árg.
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Svíþjóð;
Spáð naum-
um meiri-
hluta borg-
araflokka
Stokkhólmi. Frá Steingrími Sigurgeirs-
syni, bladamanni Morgunblaðsins.
SPENNAN jókst aöeins í Svíþjóð
í gær eftir aö þrjár kannanir birt-
ust um fylgi flokkanna. Þó að í
ölluni þremur könnununum séu
borgaralegu flokkarnir fjórir,
Hægriflokkurinn, Þjóðarflokkur-
inn, Miðflokkurinn og Kristilegi
demókrataflokkurinn, með meiri-
hluta virðist geta orðið mjótt á
mununum. Þetta eru síðustu kann-
anir sem birtar eru fyrir kosning-
arnar á morgun.
í könnun SIFO-stofnunarinnar
fyrir Svenska Dagbladet eru borg-
araflokkarnir með 48% fylgi en Jafn-
aðarmenn og Vinstriflokkurinn
42,6% samanlagt. í síðustu könnun
SIFO voru hlutföllin 49,4% gegn
41,1%. í könnun sem TEMO gerði
fyrir Dagens Nyheter eru hlutföllin
50% á móti 39,5% og í könnun IMU
fyrir Aftonbladet 49,3% gegn 39,5%.
Hvað fylgi einstakra flokka varðar
þá fær Hægriflokkurinn 21,5% í
könnun SIFO, Þjóðarflokkurinn
10,9%, Miðflokkurinn 8,4%, Kristi-
legir demókratar 7,2%, Umhverfis-
flokkurinn 3,6%, Jafnaðarmanna-
flokkurinn 37,7%, Vinstri flokkurinn
4,9% og Nýtt lýðræði 5,3%. Könnun
TEMO er ekki venjuleg skoðana-
könnun heldur spá um kosninga-
úrslit sem byggir á 1.800 viðtölum
og tekur tillit til ýmissa óvissuþátta.
Allar benda kannanirnar til þess
að borgaraflokkarnir fjórir nái mjög
naumum þingmeirihluta án stuðn-
ings Nýs lýðræðis en einnig bendir
flest til að sá flokkur muni ná lág-
marksfylginu 4% sem er forsenda
þess að hann fái menn kjörna. Það
gerir hins vegar Umhverfisflokkur-
inn ekki í neinni af könnununum.
Sjá ennfremur frétt á bls. 20.
Reuter
Stórveldin hætta vopnasendingum til Afganistan
James Baker (t.h.), utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, og sovéskur starfsbróðir hans, Borís Pankín,
lýstu yfir því á sameiginlegum blaðamannafundi
eftir viðræður í Moskvu að stórveldin tvö hefðu
ákveðið að hætta öllum vopnastuðningi við stríðandi
aðila í Afganistan frá næstu áramótum. Viðbrögð í
Afganistan voru jákvæð, a.m.k. á yfirborðinu, og
Pankín sagði að framtíð Najibullahs forseta myndi
ráðast í frjálsum kosningum. Samkomulag náðist
einnig um að hefja viðræður um fækkun skamm-
drægra kjarnorkuvopna. Á fáum dögum hefur verið
eytt ágreiningi ríkjanna vegna þriggja viðkvæmra
deilumála; Afganistanstríðsins, sjálfstæðis Eystra-
saltsríkjanna og herliðs Sovétmanna á Kúbu.
ísrael:
Shamir virðir
hótun Bush
að vettuffi
Tel Aviv. Reuter. *—7
YITZHAK Shamir, forsætisráð-
herra Israels, leiddi í gær hjá sér
hótun George Bush Bandaríkja-
forseta um að beita neitunarvaldi
sínu ef bandaríska þingið sam-
þykkti að veita ríkisábyrgð á láni
til Israela að upphæð 10 milljarða
Bandarikjadala (600 mílljarða
ÍSK). Bush vill að málinu verði
frestað til að vekja ekki óánægju
andstæðinga Israela.
„Á þessu stigi málsins er um inn-
anríkisdeilu að ræða, á milli [banda-
rískra] þingmanna, sem styðja þarfir
ísraelsku þjóðarinnar og sýna þeim
skilning, og stjórnvalda," sagði
Shamir við fréttamenn í Tel Aviv.
„Við sjáum enga ástæðu til að breyta
afstöðu okkar.“
Bush er andvígur áformum ísra-
elsstjórnar um frekari búsetu gyð-
inga á hernumdu svæðunum sem
vakið hafa mikla bræði araba. Sham-
ir neitaði að ræða hótun Bandaríkja-
forseta nánar en sagði að banda-
rískir gyðingar myndu beita þrýst-
ingi til að fá- lánstrygginguna sam-
þykkta.
Sókn Serba í Króatíu:
Forseti Júgóslavíu hvetur
SÞ til að stöðva blóðbaðið
Zagreb, Osyek, Haag, Belgrad, París. Reuter, The Daily Telegraph.
STIPE Mesic, forseti Júgóslavíu,
hvatti í gær Sameinuðu þjóðirnar
til að binda enda á blóðsúthelling-
arnar í Króatíu. Króatar misstu í
gær mikilvæga borg, Kostajnica,
í hendur Serba en leiðtogar lýð-
veldisins sögðust staðráðnir í að
ná aftur svæðum sem serbneskir
skæruliðar hafa á sínu valdi. Þau
eru samanlagt um þriðjungur
landsins.
Að minnsta kosti ellefu Króatar
Meðferð áfengissjúklinga í Bandaríkjunum:
Arangursríkast að sjúkrahús-
vist komi á undan AA-fundum
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
Afengissjúklingar eiga samkvæmt könnun, sem birt var í New
England Journal of Medicin á fimmtudag, meiri möguleika á að
ná bata ef þeir liggja á sjúkrahúsi í þrjár vikur í upphafi meðferð-
ar, en ef þeir leita beint á náðir AA-samtakanna. Þetta kom fram
í bandaríska dagblaðinu Boston Globe.
í könnuninni kemur fram að af
þeim sem hófu meðferð á sjúkra-
húsum og sættu síðan skilyrðis-
lausri skyldumætingu hjá AA-sam-
tökunum að sjúkrahúsvist lokinni
áttu helmingi færri við drykkju-
vanda að stríða tveimur árum síðar
en þeir sem hófu strax meðferð
hjá AA-samtökunum. Einnig að
þriðjungi færri þurftu að leggjast
á sjúkrahús vegna drykkju eftir að
meðferð hófst.
í könnuninni er einnig bent á
það að þótt kostnaður hafi verið
mikill hjá þeim, sem voru lagðir inn
á sjúkrahús í upphafi - 600 þúsund
ÍSK á tveimur árum - hafi kostn-
aðurinn aðeins verið tíu prósentum
meiri en hjá AA-hópnum vegna
þess að þeir sjúklingar byijuðu oft-
ar að drekka á ný og líklegra var
að þeir þyrftu að leggjast inn á
sjúkrahús síðar meir.
Könnun þessi var gerð í sam-
vinnu Boston-háskóla og Harvard-
háskóla. Vísindamennirnir sem
stóðu að henni hugðust sýna fram
á að því fé, sem færi í sjúkrahús-
vist í upphafi áfengismeðferðar,
væri illa varið. Niðurstöður þeirra
benda hins vegar til hins gagn-
stæða.
Þetta er fyrsta vísindalega rann-
sóknin, þar sem fylgst er með
meðferð áfengissjúklinga og niður-
stöður skráðar. Búist er við að hún
geti haft umtalsverð áhrif á það
hvernig atvinnurekendur taki á
áfengisvandanum. Um þessar
mundir eru atvinnurekendur að
draga úr því fé, sem þeir greiða
til sjúkralegu áfengissjúkra starfs-
manna sinna á þeirri forsendu að
önnur meðferð gefi jafn góða raun.
Talið er að þetta vandamál kosti
Bandaríkjamenn um 44 milljarða
dollara á ári í vinnutapi og kostn-
aði við meðferð.
Hluti þeirra, sem féllust á að
taka þátt í könnuninni, fékk að
ráða því hvort meðferðin yrði fólg-
in í sjúkrahúslegu í upphafi eða
aðeins þátttöku í starfsemi AA-
samtakanna. Það sem kom lækn-
unum einna mest á óvart var hve
mörgum sjúklinganna tókst að
vinna bug á áfengissýkinni. 44
prósent þeirra sjúklinga, sem lagð-
ir voru á sjúkrahús í upphafi, áttu
ekki við drykkjuvanda að stríða
þegar könnuninni lauk eftir að hún
hafði staðið í tvö ár. Aðeins 23
prósent þeirra, sem aðeins fóru í
meðferð hjá AA-samtökunum,
höfðu sömu sögu að segja.
biðu bana í átökum í gær en alls
hafa bardagarnir í lýðveldinu kostað
nær fimm hundruð manns lífið. Stipe
Mesic er Króati og bað hann Samein-
uðu þjóðirnar um að skerast í leikinn
eftir að júgóslavneska varnarmála-
ráðuneytið virti að vettugi fyrirskip-
un hans um að kalla herinn frá átaka-
svæðunum. „Júgóslavía er að mínu
áliti ekki lengur við lýði því að með
valdaráni hersins er ekki lengur
hægt að framfylgja ákvörðunum
sambandsyfirvalda," sagði Mesic.
Borgin sem féll, Kostajnica, er um
100 km suður af Zagreb, höfuðborg
Króatíu. „Kostajnica er auðvitað
mikilvæg borg fyrir okkur,“ sagði
Ivan Vekic, innanríkisráðherra Kró-
atíu, á blaðamannafundi. „En Kró-
atíu bíða ekki sömu örlög og Kostaj-
nica,“ bætti hann vígreifur við. Vekic
sagði að tólf króatískir þjóðvarðliðar
hið minnsta hefðu fallið í nokkurra
daga bardögum um bæinn. Að sögn
fréttaritara Reuters gáfust um 300
vopnaðir króatískir lögreglumenn
upp fyrir serbneskum skæruliðum
ogjúgóslavneskum hermönnum, sem
náðu borginni á sitt vald. „Fólk er
skelfingu lostið,“ sagði kona í
Zagreb. „Þetta er harmleikur."
Júgóslavíuher, sem að mestu er
stjórnað af Serbum, er sakaður um
að hafa flutt fjölda serbneskra skæru
liða til herstöðva við strönd Adría-
hafs og munu króatísku borgirnar
Sibenik og Zadar vera á valdi skæru
liðanna. Þá hafa hermenn og serbn-
eskir skæruliðar gert harðar árásir
á bæinn Osijek í þijá daga og tals-
maður óvopnaðrar friðargæslusveit-
ar Evrópubandalagsins viðurkenndi
í gær að henni hefði ekki tekist ætl-
Reuter
Óbreyttir borgarar á leið yfir brú
sem Króatar sprengdu til að
hindra ferðir skriðdreka sam-
bandshersins.
unarverk sitt. Hans van den Broek,
utanríkisráðherra Hollands og for-
maður ráðherraráðs bandalagsins,
sagði að friðargæslusveit kynni einn-
ig að verða send til nágrannalýðveld-
isins Bosníu-Herzegovínu. Króatar
segja að serbneskir skæruliðar haldi
uppi árásum á Króatíu þaðan.
Leiðtogar 29 flokka íhaldsmanna
og kristilegra demókrata, sem eiga
aðild að Evrópska lýðræðissamband-
inu (EDU), sögðu í sameiginlegri
yfirlýsingu í gær að þeir myndu
íhuga viðurkenningu á sjálfstæði
Króatíu og Slóveníu ef vopnahlés-
samningur júgóslavnesku lýðveld-
anna sex yrði ekki virtur.