Morgunblaðið - 14.09.1991, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1991
Landsvirkjun:
Rafmagnsverð hækk-
ar um mánaðamótin
180 millj. teknar að láni til virkjanaundirbúnings
STJORN Landsvirkjunar hefur samþykkt að gjaldskrárverð fyrir-
tækisins verði hækkað 1. október nk. um 5%. Akvörðun þess efnis
var tekin á fundi stjórnar fyrirtækisins í fyrradag og hefur þegar
verið tilkynnt almenningsrafveitum. Fyrir neytendur mun þetta þýða
hækkun rafmagnsverðs um rúmlega 3%, sé einungis litið á hækkun
Landsvirkjunar óháð öðrum hugsanlegum hækkunum rafveitnanna.
Stjórn Landsvirkjunar samþykkti á sama fundi að leita samþykkis
ríkisstjórnarinnar fyrir því að verja erlendu lánsfé að fjárhæð 180
milljónum króna til áframhaldandi virkjanaundirbúnings í ár.
Að sögn Halldórs Jónatanssonar, sonj í samtali við Morgunblaðið.
A fundi stjórnar Landsvirkjunar
í fyrradag var jafnframt samþykkt
að sækja um heimild fyrir notkun
erlends lánsfjár að upphæð 180
milljónir króna.
forstjóra Landsvirkjunar, er hækk-
un rafmagnsverðsins nú tilkomin
þar sem rafmagnsverð fyrirtækisins
hafi á undanförnum árum lækkað
að raungildi meira en fjárhagur
þess_ leyfi.
„Arið 1986 var tekin upp sú
stefna að lækka verðið að raungildi
að jafnaði um 3% á ári. Hefði þeirri
stefnu verið fylgt hefði rafmagns-
verð lækkað um 14% frá meðal-
verði árið 1986 til meðalverðs 1991.
í stað þess lækkaði það hins vegar
um 24% sem er meira en fjárhagur
fyrirtækisins leyfir og er ein aðal-
ástæðan fyrir þessari hækkunar-
þörf nú,“ sagði Halldór Jónatans-
Að sögn Halldórs þarf Lands-
virkjun, samkvæmt nýjustu kostn-
aðaráætlun fyrirtækisins, að veija
alls 400 milljónum í ár til virkjana-
undirbúnings ef því á að vera kleift
að hefja afhendingu raforku til hins
fyrirhugaða álvers á Keilisnesi í
ársbyijun 1995, eins og nú er stefnt
að. Þegar hefur verið varið um 220
milljónum í þessu skyni samkvæmt
heimildum frá fyrra ári.
Þyrlukaupanefnd:
Stefnt að því að skila
áliti í næsta mánuði
STEFNT er að því að nefnd sem
haft hefur til skoðunar flugrekst-
ur Landhelgisgæslunnar skili
áliti í næsta mánuði. Kaup á nýrri
björgunarþyrlu hafa verið nokk-
uð til umræðu en ekki er ljóst
hverjar tillögur nefndin gerir
þar að lútandi. Á fjárlögum þessa
árs er heimild til 100 milljóna
króna lántöku vegna þyrlukaupa
en ekki hægt að segja til um
hvernig heimildargrein fjárlaga
sem nú eru í smíðum verður.
Landhelgisgæslan hefur notað
björgunarþyriuna TF-SIF í sex ár
og oft verið rætt um að skipta um
þyrlu. Gunnar Bergsteinsson for-
stjóri Landhelgisgæslunnar segir
að TF-SIF, sem framleidd er í
frönsku Dolphin verksmiðjunum,
hafi reynst vel þegar á heildina sé
litið. Hann segir að vélar banda-
rísku strandgæslunnar séu frá-
brugðnar þeirri sem hér er, þyngri
en með kraftmeiri vél.
„Flugmenn Landhelgisgæslunn-
ar telja að umfjöllun flugtímaritsins
Flight international um erfiðleika
strandgæslunnar virðist nokkuð
orðum aukin og mótsagnakennd,"
segir Gunnar. „Það er eðlilegt að
nokkrum takmörkunum sé háð
hvernig hægt er að beita þyrlunum,
flugeiginleikar fara meðal annars
eftir því hve þungt þær eru hlaðnar
og við erfiðar aðstæður reynir auð-
vitað oft mjög á hæfni flugmanns-
ins.“
Gunnar Bergsteinsson segir vita-
skuld æskilegt að fá hingað kraft-
meiri þyrlu til björgunarstarfa. Til
að mynda hafí ný gerð Dolphin-
véla 250 kílóum meiri burðargetu
en SIF. „En það verður að meta
með hliðsjón af aðstæðum hvað
hægt er að gera,“ segir Gunnar,
„ákvörðun varðandi þyrlukaup er
pólitísk. Björgunarþyrla getur kost-
að frá hálfum upp í heilan milljarð
og afgreiðslutíminn orðið tvö ár.“
:
Morgunblaðið/Borgþór Magnússon
Surtsey. Lengst til hægri á
myndinni má sjá landbrot sem
orðið hefur í skriðum á undan-
förnum árum. Á innfelldu
myndinni er Skarfakál, haug-
arfi og varpasveifgras í máfa-
byggð í Surtsey nú í haust.
Gott sumar fyrir lífríkið í Surtsey
Töluvert landbrot norðvestan á eynni
VEÐURFAR í sumar hefur haft óvenjulega góð áhrif á lífríkið
í Surtsey. Leiðangur líffræðinga fann þar nýlega þijár nýjar teg-
undir æðri plantna og í haust er fræseta sumra tegunda mikil.
Dr. Sturla Friðriksson segir, að landbrot við eyna verði á hveiju
ári og að í ár hafi það verið töluvert á eynni norðvestanverðri.
Þar hefur myndast þverhnýpi sem áður var skriða.
Þrír líffræðingar þeir dr. Sturia fannst einn einstaklingur af hverri
Friðriksson, dr. Borgþór Magnús-
son og Sigurður Magnússon voru
í leiðangrinum í Surtsey. Fundu
þeir meðal annars þijár nýjar teg-
undir æðri plantna í Máfabóli á
sunnanverðri eynni, þar sem eru
helstu varpstöðvar máfa. Þetta
eru túnfífíll, túnsúra og blóðarfi
en það eru plöntur sem hafa rækt-
unarsvæði sem kjörlendi. Aðeins
tegund. Á hraunbreiðunni sem
þarna er verpir fjöldi máfa og
bera þeir mikinn áburð á varps-
væðið. Er því að verða töluverð
gróska á þessum bletti eyjarinnar.
Þar vex einkum varpasveifgras,
fitjungur og krækill en þar má
einnig finna skarfakál og baldurs-
brá.
Austar á eynni hefur myndast
melgresishóll, sem hefur stækkað
mikið á þessu ári en fjöruarfi er
útbreiddasta plöntutegundin á
Surtsey og er hann farinn að
mynda samfelldar breiður. Þekur
gróður nú alls um 2 hektara eyjar-
innar.
Sex tegundir fugla verpa á
Surtsey, fýll, ryta, teista, silfur-
máfur, sílamáfur og svartbakur.
Tveir hrafnar halda sig á eynni
og hafa borið saman sprek til
hreiðurgerðar í Hraungígnum en
ekki orpið þar enn. Þarna hafa
einnig viðdvöl nokkrir smærri
spörfuglar og smyrill sást þar nú
sem aðkomufugl.
IVlildl andstaða við hugmyndir
um að breyta 4 siúkrahúsum
HUGMYNDIR heilbrigðisráðu-
neytisins um að breyta St. Jós-
efsspítala í Hafnarfirði í hjúkr-
unarheimili aldraðra og að
leggja niður skurðdeildir sjúkra-
húsanna á Blönduósi, Patreks-
firði og í Stykkishólmi, mæta
anstöðu forsvarsmanna þessara
stofnana. Árni Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri St. Jósefsspítala,
segir að ekki hafi verið rætt við
forsvarsmenn spítalans um lausn
á þessu máli, heldur aðeins kom-
ið tilskipun um 120 milljóna
króna niðurskurð á framlögum
til spítalans. Þorkell Helgason,
aðstoðarmaður heilbrigðisráð-
herra, segir að St. Jósefsspítali
gæti átt hlut að samstarfi og
hugsanlegri sameiningu sjúkra-
Efnahags- og framfarastofnun Evrópu:
Skattbyrði hefur stöðugt
hækkað hérlendis frá 1986
Heildarskattbyrðin vel undir meðaltali OECD
SKATTBYRÐI á Islandi sem hlutfall af Iandsframleiðslu, var 34%
árið 1990 samkvæmt bráðabirgðatölum Efnahags-og framfarastofn-
unar Evrópu, OECD og hækkaði úr 33,8% árið 1989. Skattbyrði á
íslandi hefur hækkað jafnt og þétt frá árinu 1986 en er samt með
þeim lægstu í aðildarríkjum OECD. Meðalskattbyrði í öllum OECD-
ríkjum var 38,4% árið 1989, en 39,7% ef aðeins er miðað við Evrópu.
I frétt sem OECD hefur sent frá Japan eða um 30% af landsfram-
sér kemur fram að skattbyrði var
hæst á hinum Norðurlöndunum á
síðasta ári samkvæmt bráðabirgða-
tölum, 57,7% í Svíþjóð, 48,1% í
Danmörku, og 46,2% í Noregi. Árið
1989 var skattbyrðin lægst í Tyrk-
landi, Bandaríkjunum, Ástralíu og
leiðslu. Island var í 18. sæti af 24
aðildarríkjum OECD, árið 1989.
í frétt OECD kemur fram, að
neysluskattar voru 55,3% af heild-
arsköttum á íslandi árið 1989 og
er það Ianghæsta_ hlutfall þessara
skatta í OECD. Á móti eru á ís-
landi innheimtir lægri tekjuskattar
og mun lægri sjúkratryggingagjöld
en í öðrum aðildariöndum OECD.
Fram kemur að heildarskattbyrði
hefur farið lækkandi frá árinu 1985
í Austurríki, Belgíu, Danmörku,
Frakklandi, Þýskalandi, Grikklandi,
írlandi, Lúxemborg, Noregi, Sviss
og Bretlandi, en hækkandi á ís-
landi, i Ástralíu, Kanada, Finn-
landi, á Italíu, í Japan, Hollandi,
Nýja Sjáiandi, Portúgal, á Spáni, í
Svíþjóð, Tyrklandi og Bandaríkjun-
um.
húsa í Reykjavík og tillögur
sjúkrahússins þar að lútandi yrðu
teknar til athugunar. Yfirlæknar
sjúkrahúsanna á Blönduósi og í
Stykkishólmi telja að lítill sparn-
aður náist með því að leggja
skurðdeildir þar niður og kostn-
aður við flutning sjúklinga til
aðgerða yrði mun meiri.
Læknaráð St. Jósefsspítala kom
saman til fundar í gær og sam-
þykkti ályktun. Þar segir m.a. að
hugmynd um að leggja núverandi
starfsemi spítalans niður lýsi van-
þekkingu á mikilvægu hlutverki
stofnunarinnar í heilbrigðisþjónustu
bæjarins. Önnur sjúkrahús muni
sýnilega ekki geta sinnt þeim verk-
efnum, sem spítalinn hafi innt af
hendi.
Þorkell Helgason, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, sagði að þegar
leiðir til hagræðingar væru kannað-
ar væri litið til aukins samstarfs
og hugsanlegrar sameiningar
sjúkrahúsanna í Reykjavík. „Það
er til dæmis athugandi hvort ekki
er ástæðulaust að reka sams konar
deildir á fleiri en einu sjúkrahúsi.
St. Jósefsspítali gæti átt hlut að
því starfi og við munum að sjálf-
sögðu hlusta á tillögur stjórnar
sjúkrahússins þar að lútandi," sagði
Þorkell.
Árni Sverrisson sagði að for-
svarsmenn St. Jósefsspítala væru
tilbúnir til að ræða slíkt samstarf.
„Við viljum reyna að færa umræðu
um spítalann á faglegan grundvöll.
Ef það tekst stöndum við vel að
vígi.“
Jósef Blöndal, yfirlæknir St.
Fransiskusspítalans í Stykkishólmi,
kvaðst efast um að annað sjúkrahús
hér á landi væri rekið af meiri hag-
kvæmni. „Það væri rothögg fyrir
sjúkrahúsið ef skurðstofunni yrði
lokað. Mér skilst að hugmyndir
manna byggist á’því að með þessu
móti sparist íjórar milljónir á ári.
Mér fínnst afar vandséð hvernig
það má verða, enda hlýtur mikill
kostnaður vegna flutnings sjúklinga
til aðgerða að koma þar á móti.
Sá kostnaður er oft 50-80 þúsund
í hvert sinn.“
Sigursteinn Guðmundsson, yfir-
læknir á sjúkrahúsinu á Blönduósi,
sagði að hann hefði heyrt að þeim
væri ætlað að spara fjórar milljónir
á ári. „Ég skil ekki hvernig sá
sparnaður á að nást með því að
leggja skurðstofuna niður. Kostn-
aður við hana nær alls ekki þessari
upphæð,“ sagði hann. „Kostnaður
við að flytja alla sjúklinga héðan
til aðgerða hlýtur að fara fljótt yfir
fjórar milljónir."
Morgunblaðið náði ekki tali af
Sighvati Björgvinssyni, heilbrigðis-
ráðherra, í gær. Hann er í útlönd-
um, en kemur til landsins á mánu-
dag.
Sjá nánar á miðopnu.