Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1991
43*
HANDKNATTLEIKUR
Islandsmótið:
Valsmenn höggva
á hnútinn
Bjóðast til að greiða starfsmanni
laun til að koma mótinu af stað
HANDKNATTLEIKSDEILD
Vals bauð HSÍ í gær að borga
laun út mánuðinn fyrir Vigfús
Þorsteinsson, fyrrum starfs-
mann mótanefndar, til að
koma íslandsmótinu af stað,
en ráðgert er að það hefjist
2. október.
Bjarni Ákason, formaður
handknattleiksdeildar Vals,
sagðist hafa gert formanni móta-
nefndar þetta tilboð í þeirri von
að íslahdsmótið hæfist á tilsettum
tíma. „Það hefur ekkert verið
unnið í mótamálum síðan Vigfús
hætti í lok síðasta mánaðar og
Ijóst er að mótið byrjar ekki fyrr
en að ákveðnu starfi loknu,“ sagði
Bjarni. „Boltinn er hjá HSI,“
bætti hann við.
Vigfús Þorsteinsson kom af
fjöllum, þegar Morgunblaðið bar
þetta undir hann í gærkvöldi, en
hann er með U-21 landsliðinu í
Grikklandi. „Ég hætti hjá HSÍ til
að byrja í námi við Háskóla ís-
lands og hef ekki hugleitt að byija
aftur. Hins vegar er ég hér eftir
sem hingað til ávallt tilbúinn að
leggja mitt af mörkum fyrir hreyf-
inguna, en ég veit ekkert um þetta
mál. Hitt veit ég að ég prentaði
út drög að mótaskrá áður en ég
hætti, en það á eftir að fínpússa
þau.“
ísland ífimmta sæti á HM:
Lofa vercMaunum næst
- sagði Patrekur Jóhannesson. ísland sigraði Rúmeníu eftirframlengdan leik
SkúliUnnar
Sveinsson
skrifarfrá
Aþenu
Loksins kom að því að íslenskt
landslið náði að rífa sig upp í
lok leiks um sæti á stónnóti og
tryggja sér sigur. Þetta gerðist í
Aþenu í gærkvöldi,
þegar ísland vann
Rúmeníu 35:32 í
framlengdum leik
um 5. sætið á HM
21s árs liða í handknattleik. Að
venjulegum leiktíma loknum var
staðan 27:27 og gerðu íslendingar
tvö síð'ustu mörkin, en þeir voru
þremur mörkum yfir í hálfleik,
15:12.
Með þessum leik kórónuðu strák-
arnir góðan árangur á mótinu, en
þeir vildu meira og stefna að því
næst. „Ég lofa verðlaunasæti árið
1993,“ sagði Patrekur Jóhannes-
son, sem var sem fyrr klettur í
vörninni go gerði eitt glæsilegt
mark eftir hraðaupphlaup.
íslendingar byrjuðu mjög vei og
komust í 5:0, en sá munur hélst
lengst af út fyrri hálfleik. Vörnin
varði þá mjög vel og hraðaupp-
hlaupin nýttust, en annars var sókn-
in hreyfanleg og stöðugt keyrt á
kerfum, en því var ekki að heilsa
í fyrri leikjum.
„Slæmi“ kaflinn kom í seinni
hálfleiks og munaði mest um að
Jason Ólafsson var tekinn út af, en
hann hafði átt mjög góðan leik í
vörninni, og Gunnar Andrésson,
leikstjórnandi og fyrirliði, var tek-
inn úr umferð. Rúmenar komust í
23:20, en þá kom Róbert Rafnsson
í fyrsta sinn inná í mótinu og við
það lagaðist leikur strákanna til
muna. Þeir náðu að jafna, en þegar
2 mínútur og 20 sekúndur voru til
leiksloka var útlitið ekki bjart, Rúm-
enar leiddu 25:27. Þá fyrst var
Bontas, besti maður Rúmena, tek-
inn úr umferð og Björgvin Rúnars-
son jafnaði þegar 13 sekúndur voru
eftir.
Strákarnir gerðu út um leikinn í
fyrri hálfleik framlengingarinn**
og skoruðu þá fjögur mörk gegn
engu.
Allir léku vel, en þeir réðu alls
ekki við Bontas og Dobrescu, sem
gerðu samtals 21 mark.
Mörk íslands: Björgvin Rúnars-
son 9, Gunnar Andrésson 8/3, Sig-
urður Bjarnason 4, Jason Ólafsson
4, Einar Sigurðsson 3, Gústaf
Bjarnason 3, Jóhann Ásgrímsson 2
og Patrekur Jóhannesson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson
14/2, Ingvar Ragnarsson 2/1.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
„Víkingar láta ekki af hendi fafrmR
það sem þeir hafa tak á“ FOLK
- segir ÓlafurJóhannesson, þjálfari FH, sem spáir í lokabaráttuna
„VÍKINGAR standa uppi sem sigurvegarar. Ég hef ekki trú á að
þeir láti af hendi það sem þeir hafa náð taki á,“ sagði Ólafur
Jóhannesson, þjálfari FH-liðsins, þegar Morgunblaðið bað hann
að spá í spilin í sambandi við hina æsispennandi lokabaráttu,
sem Víkingar og Framarar ganga í gegnum í dag.
Það þarf mikið að gerast til að
Framarar nái að hrifsa titilinn
af Víkingum. Leikur Fram og Eyja-
manna í Laugardal á litlu máli að
skipta. Þó svo að Framarar vinni
tvö til þijú núll mun það ekki duga.
Víðismenn verða auðveld bráð fyrir
Víkinga, sem vinna þetta þrjú til
fjögur núll. Ég stjórnaði FH-liðinu
gegn Víðismönnum um- síðastliðna
helgi, þar sem við unnum stórt
(4:0). Leikmenn Víðis veittu ekki
mikla mótspyrnu og voru áhuga-
lausir, sem fylgir þeim sem eru
fallnir og hafa að engu að keppa.
Víkingar koma til með að leika
sinn bolta; það er að segja að bakka
í vörn og beita siðan skyndisóknum.
Þeir eru með mjög fljóta framheija.
Það sem getur spilað inní, er að
völlurinn verði blautur og þungur.
Við það dempast hraðinn niður og
knötturinn þeysist hraðar á blautu
grasinu. Það á.ekki að skipta svo
miklu máli um úrslit. Auðvita verð-
ur meira um mistök á blautum og
þungum velli og fleiri mörk eru
skoruð við þannig aðstæður.
Sálræni þátturinn skiptir miklu
máli í svona baráttu. Framarar
hafa farið í gegnum þannig spennu
oftar en einu sinni og vita hvernig
þeir eiga að haga sér á þannig
stundu. Það hefur mikið að segja
fyrir Víkinga að það eru Framarar
í herbúðum þeirra, sem hafa einnig
farið í gegnum þessa spennu. Guð-
mundur Steinsson hefur yfir mikilli
reynslu að ráða. Hann er ekki að-
eins góður knattspyrnumaður, held-
ur er hann einnig mjög sterkur
sálrænt fyrir þá sem leika með
honum. Það vegur þungt fyrir
Víkinga að hafa þannig mann í
herbúðum sínum,“ sagði Ólafur.
Sjónvarpað beint
Já, spennan verður mikil í dag -
bæði inn á völlunum í Laugardal
og Garði, á áhorfendabekkjum og
fyrir þá sem sitja fyrir framan sjón-
varpstæki sín. Stöð 2 sýnir beint
frá Garðinum og Sjónvarpið (RÚV)
verður þar einnig, en RÚV er einn-
ig tilbúið að sjónvarpa glefsum frá
gangi mála í Laugardalnum, eða
jafnvel að sína beint þaðan ef það
á við. „Þetta er draumastaða knatt-
spyrnuáhugamannsins. Ég vildi fá
að fylgjast með þessari baráttu í
sjónvarpi. Það verður að bíða,“
sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari
FH-inga, sem stjórnar sínum mönn-
um í leik gegn Valsmönnum á sama
tíma og baráttan fer fram í Garðin-
um og Laugardal.
Guðmundur Steinsson er markahæstur í 1. deild.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
IA gerír tveggja ára samn-
ing við Luka Kostic
Luka Kostic
SKAGAMENN gengu í gær frá
tveggja ára samningi við Júgó-
slavann Luka Kostic, en hann
gekk til iiðs við félagið fyrir
tímabilið og hefur átt stóran
þátt í að ÍA endurheimti sætið
M.deild.
Gunar Sigurðsson, formaður ÍA,
sagði að Skagamenn hefðu
verið mjög ánægðir með Kostic í
sumar og væntingarnar fyrir næsta
keppnistímabil væru jafnvel enn
meiri. „Hann hefur fallið mjög vel
inn í hópinn og reynst góður félagi
og vonandi verður hann okkur enn
meiri styrkur í 1. deild næsta ár.
Gunnar sagði að allir leikmenn-
irnir væru samningsbundnir til
tveggja ára og væri gert ráð fyrir
að allir héldu áfram.' Þó væri öf
snemmt að segja til um hvað Karl
Þórðarson gerði. „Skagamenn vona
auðvitað að hann haldi áfram enn
eitt árið, þó hann hafi þegar lagt
sitt af mörkum og vel það, en skilja
hann vel, þegar og ef hann dregur
sig í hlé.“
Skagamenn taka á móti Selfyss-
ingum í dag og verða verðlaunaðir
í leikslok fyrir sigur í 2. deild.
■ ÞYRLA verður tii taks til að
fara með Islandsbikarinn á þann
stað sem hann vinnst á - í Garðinn
eða Laugardal. Eggert Magni^s-
son, formaður KSI, Snorri Finn-
laugsson, formaður mótanefndar
KSI og fulltrúi frá Samskipum
verða á skrifstofu KSÍ í Laugardal
þegar fyrri hálfleikur leikjanna í
dag fer fram. Þeir halda síðan út
á Reykjavíkurflugvöll og verða
þar tilbúnir við þyrluna, til að fara
á loft með bikarinn og afhenta hann
meisturunum.
■ STUÐNINGSMENN Víkings
hafa ákveðið að vera með sætaferð-
ir á leikinn í Garði. Þeir eru örugg-
ir með að bikarinn verður afhentur
í Garðinum, eða eins og einn
Víkingurinn sagði: „Það er kominn
tími til að bikarinn verði afhentur
þar — og Garðsbúar fá þá að sjá"’
hvernig hann lítur út.“
■ SPENNAN er svo mikil hjá
sumum Vikingum, að þá er farið
að dreyma um leikinn. Einn Víking-
ur varð fyrir óskemmtilegri reynslu
á fimmtudagsmorgun. Þá vaknaði
hann upp við að Víkingar væru
búnir að vinna Víði, 2:0, en leik
Fram og ÍBV var þá ekki lokið -
tíu mín. voru eftir og staðan, 4:1,
fyrir Fram. Víkingurinn reyndi
að sofna aftur, til að fá að vita loka-
tölur úr leiknum í Laugardal. Ekki
tókst honum það, þannig að hann
lifír enn i óvissunni.
■ MARGIR Framarar hafa trú á
að sínir menn verji titilinn. „Állt*
er þegar þrennt er,“ sagði einn
Framarinn, sem vitnaði í að Fram
hefði.unnið á betri markatölu 1986
og 1990.
■ EYJAMENN koma til
Reykjavíkur fjórum tímum fyrir
leik þeirra gegn Fram. Leifur
Geir Hafsteinsson, markaskorar-
inn mikli, leikur ekki með þeim -
er í leikbanni og þá er Élías Frið-
riksson meiddur og leikur ekki
með.
■ ÓLAFUR Jóhannesson stjóm-
ar FH-liðinu í síðasta' sinn se«^r
þjálfari að sinni, þegar FH mætir
Val. Ólafur verður ekki þjálfari
liðsins næsta keppnistímabil.
■ SIGURÐUR Einarsson var
ekki á meðal átta efstu í spjótkasti
á stigamótinu í Briissel í gær-
kvöldi. Finninn Juha Laukkanen
sigraði, kastaði 87,06 m. en Sovét-
maðurinn Viktor Jevsynkóv vdP^"
í áttunda sæti, kastaði 78,52 m.