Morgunblaðið - 20.09.1991, Síða 1
64 SIÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
213. tbl. 79. árg.
FOSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
Préntsmiðja Morgunblaðsins
m—m
Reuter
Neyðaraðstoð við Sovétríkin:
Þörfrn sögð tvöfalt
meiri en ætlað var
Moskvu, Brussel. Reuter.
JURÍ Lúzhkov, aðstoðarforsætisráðherra Sovétríkjanna, skýrði fram-
kvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) frá því í gær, að heildar-
þörf Sovétmanna fyrir fjárhagsaðstoð og matargjafir frá Vesturlönd-
urn á næsta ári næmi 14,7 milljörðum Bandarikjadollara eða um 880
milljörðum ISK. Er þetta tvöfalt hærri upphæð en menn höfðu hing-
að til gert ráð fyrir.
í síðustu viku fóru Sovétmenn
fram á sjö milljarða Bandaríkjadoll-
ara í lán og matargjafir og kom sú
beiðni EB algjörlega í opna skjöldu.
Skýrði Lúzhkov, sem var í tveggja
daga heimsókn í Brussel, fram-
kvæmdastjórninni frá því í gær að
sú fjárhæð hefði einungis átt við um
aðstoð frá EB. Framkvæmdastjórnin
hélt að þarna hefði verið um heildar-
upphæðina að ræða og að þjóðir á
borð við Bandaríkin og Japan gætu
aðstoðað við ijármögnunina.
Nicholas Brady, fjármálaráðherra
Serbar veifa fagnandi til hermanna á skriðdrekum sem stefna frá Belgrad til Króatíu. Orrustuþotur
sambandshersins gerðu árásir á skotmörk við Adriahafsströndina. Þær beindu skeytum sínum einkum
að fjarskiptaturnum og Ta/yug’-fréttastofan skýrði frá því að þær hefðu jafnað sendistöð nálægt hafnar-
borginni Split við jörðu.
Ráðstefna utanríkisráðherra EB í Haag árangurslítill:
Hugmyndir um að senda
her á vettvang úr sögunni
Lest júgóslavneskra hermanna og skriðdreka á leið frá Belgrad til Króatíu
Haag, Zagreb, Bonn, Búdapest. Reuter.
Á FRIÐARRÁÐSTEFNU Evrópubandalagsins (EB) í Haag í gær
ákváðu utanríkisráðherrar bandalagsins að leggja á hilluna allar hug-
myndir um að senda vopnaðar friðargæslusveitir til Króatíu til að sjá
um að vopnahléinu sem taka átti gildi á miðvikudag verði framfylgt.
Fulltrúar Serba og Króata tóku þátt í fundinum og utanríkisráðherfa
Serbíu, Vladímír Jovanovic, aftók með öllu að slíkar sveitir yrðu
sendar. „Það er ekki friðargæsla að senda hermenn inn í land án
samþykkis þess, heldur innrás," sagði hann.
Ráðherrar EB samþykktu að biðja
Vestur-Evrópusambandið, samtök
níu EB-ríkja er jafnframt eiga aðild
að Atlantshafsbandalaginu (NATO),
að kanna hvað sambandið gæti gert
til að stilla til friðar og aðstoða við
vopnahléseftirlit. Bretar, sem eru
andvígir því að senda herlið á vett-
vang, sögðust ánægðir með niður-
stöðuna. Eitt helsta deiluefnið á ráð-
• •
Qfyggis^áðið:
Irakar mega selja olíu
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
ÍRAKAR fá leyfi til að selja nokkurt magn olíu næstu sex mán-
uði á heimsmarkaði en viðskiptabanni hefur verið haldið uppi
gagnvart landinu frá því að Saddam Hussein forseti réðst inn
í Kúveit í ágúst á sl. ári. Ályktunin um oliusöluna var samþykkt
á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í gær.
SÞ krefst þess að samtökin
geti fylgst með olíusölunni, kann-
að sölusamninga og gengið úr
skugga um að tekjumar verði
notaðar til að kaupa nauðsynjar
handa almenningi og inna af
hendi greiðslur í sjóð sem ætlað
er að bæta stríðsskaða sem hern-
aður íraka olli. írakar eiga nóg
af olíu í leiðslum til að geta þeg-
ar hafið sölu en þeir neita að
sætta sig við ályktun SÞ, telja
hana ólögleg afskipti af innanrík-
ismálum.
íraksstjórn hefur ekki sagt
neitt opinberlega um hótanir
Bandaríkjamanna sem segjast
reiðubúnir að senda aukið lið til
Persaflóa ef írakar torveldi áfram
starf fulltrúa SÞ sem kanna eiga
vopnabúnað landsins. Stjórnar-
málgagnið al-Jumhouríya birti þó
forystugrein þar sem Bandaríkja-
menn voru sagðir beija stríðs-
bumbur og standa að „lygaher-
ferð“ til að réttlæta viðskipta-
bannið.
stefnunni var hvort bardagar þyrftu
að hafa verið stöðvaðir áður en
friðargæslusveitir yrðu sendar á
vettvang, og hversu víðtæku alþjóð-
legu umboði þörf væri á. „Það verða
ekki fleiri ráðstefnur haldnar áður
en vopnahlé er komið á í raun,“
sagði utanríkisráðherra Króatíu,
Zvonimir Separovic. Ráðamenn í
Króatíu hvöttu í gær þjóðir heims
til að senda Króötum vopn og spáðu
stórárás af hálfu Serba.
Tuttugu kílómetra löng röð af
skriðdrekum og hermönnum lagði
upp frá Beigrad, höfuðborg Júgó-
slavíu og Serbíu, í gær áleiðis til
Króatíu. Svo virtist sem lestin, sem
í voru um 700 farartæki, þ. á m.
200 skriðdrekar, væri send til að
styðja við bakið á sambandshemum
í bardögum við króatískar sveit-
ir.Bardagar voru háðir í gær víðs
vegar um Króatíu. Útvarp lands-
manna skýrði frá því að a.m.k. sext-
án menn hefðu fallið og 68 særst í
bænum Vinokovci og götubardagar
geisuðu á milli króatískra sveita og
serbneskra skæruliða í bænum
Vukovar í austurhluta Króatíu í gær.
í yfirlýsingu sem Francois Mitt-
errand Frakklandsforseti og Helmut
Kohl, kanslari Þýskalands, skrifuðu
undir í gærmorgun, sagði að EB
ætti að leita eftir umboði frá Samein-
uðu þjóðunum og Ráðstefnunni um
öryggi og samvinnu í Evrópu
(RÖSE) til að senda friðargæslu-
sveitir til Júgóslavíu. Þar sagði einn-
ig að EB myndi ekki samþykkja
neinar þær-breytingar á landamær-
um sem ættu rætur að rekja til vald-
beitingar. I Brussel boðuðu Banda-
ríkin sendiherra ríkja NATO til fund-
ar í dag til að ræða hvaða áhrif það
gæti haft á NATO-samstarfið ef
V-Evrópusambandið sendi hersveitir
til Júgóslavíu.
Franz Vranitzky, kanslari Aust-
urríkis, og forsætisráðherra Ung-
veijalands, Jozsef Antall, hittust í
gær. Vranitzky sagði að Austurríki
væri í grundvallaratriðum reiðubúið
að viðurkenna sjálfstæði Slóveníu
og Króatíu, og Antall sagði að Ung-
verjar myndu einnig hugleiða það
ef ljóst væri að Júgóslavía yrði ekki
áfram sambandsríki.
Bandaríkjanna, er nú staddur í
Moskvu og átti hann m.a. fund með
Míkhaíl Gorbatsjov, forseta Sovét-
ríkjanna, í gær. Brady sagði að sové-
skir ráðamenn hefðu fullvissað sig
um að þeir myndu tryggja að vest-
ræn aðstoð rynni til þeirra sem
mest þyrftu á henni að halda. Myndu
stofnanir sem nytu almenns trausts,
s.s. Rauði krossinn, sjá um að dreifa
henni.
♦ ♦ ♦
Grænland:
Bjór víkur fyr-
ir brennivíni
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
VERULEGUR samdráttur í
grænlenskri bjórneyslu er far-
inn að valda vandræðum. Á inn-
an við áratug hefur neyslan
dregist saman um nær helming
og hefur þurft að fækka störfum
í bjórverksmiðjunni í Nuuk. Þar
starfa nú 40 manns sem er 20
færra en fyrir nokkrum árum.
Á sama tíma og neysla á bjór
minnkar eykst hún að sama skapi
á víni og sterku áfengi. Hafa
stjórnvöld ekki síst áhyggjur af
þessu vegna þess að heimastjórnin
hefur fjárfest fyrir tæpar fjögur
hundruð milljónir í bjórverksmiðj-
unni til að reyna að draga úr inn-
flutningi á bjór og skapa atvinnu-
tækifæri.
Borgarstjórinn í Nuuk, Kunuk
Lynge, sem einnig á sæti í stjórn
brugghússins, segir að lækka verði
opinber gjöld á bjór þannig að
menn neyti hans frekar en annars
áfengis.
Reuter
Misheppnað flugrán
26 ára Túnismaður, Mohammed Bouchnak, sem hafði rænt ítalskri
farþegaþotu af gerðinni DC-7, var handtekinn á flugvellinum í Túnis-
borg í gær eftir að hafa sleppt öllum farþegum og áhöfn hennar.
130 farþegar voru um borð í þotunni, auk sjö.manna áhafnar, og
engan sakaði. Þotan var á flugi frá Róm til Túnisborgar er henni
var rænt yfir Sardiníu. Myndin var tekin á flugvellinum áður en
öryggisverðir yfirbuguðu manninn.