Morgunblaðið - 20.09.1991, Page 15

Morgunblaðið - 20.09.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ EÖSTUDAGUR 20. SEPTBMBER 1991 15 Við frestum ekki framtíðinni eftir Leu Þórarinsdóttur Þrátt fyrir ríkidæmi og háar þjóðartekjur er umsamið kaup lágt á íslandi. Kauptaxtar opinberra starfsmanna eru til marks um það, en nú í septemberbyrjun þegar samningar eru lausir eru meðal- taxtalaun BSRB-félaga vel innan við 70 þúsund krónur á mánuði. Stærsti hluti póstmanna fellur t.d. inn í þennan hóp láglaunamanna. Um kaupmáttinn þarf ekki að fjöl- yrða við fólk sem stundar það efna- hagslega kraftaverk að teygja á slíkum launum milli mánaðamóta. Það eru raunar engin ný sann- indi að kauptaxtar séu lágir hér á landi, og nú þegar lýkur alllöngu samningstímabili sem kennt hefur verið við þjóðarsátt er því við hæfi að rifja upp forsendur þeirra kjara- samninga. Það er engin ástæða til að draga fjöður yfír það að kauptaxtar voru lágir þegar skrifað var upp á þjóð- arsáttina í febrúar í fyrra, og að kaupmáttur kauptaxta megi heita hinn sami nú og þá. Mergurinn málsins er sá, að samtök launa- fólks sömdu um því sem næst óbreyttan kaupmátt, gegn því að unnið yrði á verðbólgunni og efna- hagslegur stöðugleiki aukinn. Er í því sambandi nauðsynlegt að rifja upp að atvinnulífíð var í úlfakreppu og fjöldaatvinnuleysi á næstu grös- um að öllu óbreyttu. Jafnframt fór ekki á milli mála að þetta umþótt- unartímabil ríkisvaldsins og at- vinnufyrirtækjanna skyldi notað til að búa í haginn fyrir aukinn kaup- mátt launafólks. Samningstímabilinu lauk núna um mánaðamótin, og í ljósi þess sem hér hefur verið rifjað upp er launafólki fyllsta alvara þegar það nú gerir tilkall til þess að staðið verði við gefín fyrirheit. Því verður ekki skotið á frest inn í einhverja óskilgreinda framtíð. Eða með orð- um Ógmundar Jónassonar, for- manns BSRB, á bandalagsráð- stefnu samtakanna fyrir skemmstu: „Ef viðsemjendur okk- ar fallast ekki á að næstu kjara- samningar grundvallist á þessari hugsun og samþykkir hana í verki eru þeir einfaldlega að hlaupast undan merkjum. Og þá er eitt víst að næstu kjarasamningar verða ekki kenndir við þjóðarsátt.“ í umræðum um launamál er þeirri skoðun mjög flaggað að tómt mál sé að tala um taxtalaun; heild- arlaunin séu miklu hærri og ekki V Litsjónvarpstæki 14" m/Qarst. Kr. 21.950,-stgr. 5 ára ábyrgð á myndlampa VÖNDUÐ VERSLUN HUðMGO FÁKAFEN 11 — SfMI 688005 Þú svalar lestrarþörf dagsins á jjíöum MoggansL y raunhæft annað en að miða við þau. Sannleikskomið sem í þessari skoðun felst er í meira lagi létt- vægt, og það af tveimur ástæðum: 1. Hvað sem öllum meðaltölum um heildarlaun líður er það stað- reynd að fjöldi fólks hefur ekkert annað en dagvinnulaunin. Dag- vinnutaxtarnir einir sér eru öðru fremur hlutskipti opinberra starfs- manna eins og sýnt hefur verið fram á í fjölmörgum könnunum. 2. Langur vinnutími hér á landi er nauðvörn fólks út úr ógöngum lágra taxtalauna. Fram hjá því verður ekki litið að frítíma, tóm- stundum og samvistum við fjöl- skylduna er fómað á altari „heildarlaunanna". Kjarasamningav.iðræður þær sem standa fyrir dyrum verða háð- ar í skugga niðurskurðaráforma núverandi ríkisstjórnar. Jafnan þegar rætt hefur verið um niður- skurð og sparnað í hinu opinbera kerfi hafa ráðamenn einblínt á „Fram hjá því verður ekki litið að frítíma, tómstundum og sam- vistum við fjölskylduna er fórnað á altari „heildarlaunanna“.“ velferðarkerfíð og þá sem við það starfa. Nú þegar er einsýnt að skattahækkanir ríkisstjómarinnar í formi ýmissa þjónustugjalda og álagna nema nokkrum prósentum. Þref undanfarinna daga og vikna meðal ráðherra og þingmanna rík- isstjómarflokkanna um skólagjöld og sjúklingaskatta sýna að langt er seilst og takmörkunin er lítii. Sannleikurinn er sá að velferð- arkerfið íslenska er að ýmsu leyti gloppóttara en gengur og gerist hjá grannþjóðum okkar á Norður- löndum sem við berum okkur gjarnan saman við á góðum stund- um. Þannig eru stórir póstar á borð við leikskólavist yngstu barn- anna að mestu leyti gerðir að einkavandamálum foreldra þeirra, og það þótt slík mál hrópi á samfé- lagslegar lausnir vegna þess að láglaunastefnan smalar öllum sem vettlingi geta valdið út að vinna. Það liggur t.a.m. fyrir að atvinnu- þátttaka kvenna er hvergi meiri í heiminum en á íslandi, að Svíþjóð einni undanskilinni. Þrátt fyrir þetta er ríkisstjórnin komin á fullt með að draga úr þjón- ustu velferðarkerfisins. Eins og tí- undað hefur verið í fréttum er þó ekki einhugur í röðum stjórnar- flokkanna um niðurskurðinn. Sem betur fer. Þessi atlaga er ekki í samræmi við þann veruleika sem launafólk á ísladi býr við í dag. Hreyfing launafólks á drýgstan þátt í uppbyggingu íslenska vel- ferðarkerfisins og mun ekki horfa Lea Þórarinsdóttir upp á niðurrif þess með þegjandi þögninni. Höfundur er formaður Póstmannafélags íslands og stjórnarmaður í BSRB. NÝTÍI SERUTGAFA TAKMARKAÐUR FJÖLDI MEB EFTIRFARAMOI SÉRBÚMABl: 1 Stuðarar, vatnskassahlíf. hliðarlistar. hurðahandföng og útispeglar, allt í sama lit og yfirbyggingin Heilir hjólkoppar □ Rafstýrðir og rafhitaðir útispeglar □ Vindkljúfur á framstuðara Sætaáklæöi/gólfteppi - ný gerð □ Vindkljúfur að aftan (Lancer stallbakur og Colt) □ Sportstýrishjól A MITSUBISHI MOTORS A MITSUBISHI MOTORS MITSUBISHI COLT-EXE MITSUBISHI LANGER stallbakur-EXE MITSUBISHI LANCER hlaðbakur-EXE ALUR MEÐ 12 VENTLA HREYFIL MED FJÖLINNSPRAUTUN ALLIR MED AFLSTÝRI - ALLIR MED HVARFAKÚT ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ HVARFAKÚTUR MINNI MENGUN e HEKLA LAUGAVEGI 174 SÍMI695500

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.