Morgunblaðið - 20.09.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
17
Meðganga, fæðing og svo...
eftir Braga Skúlason
Dagana 25. og 26. júlí sl. sótti
undirritaður námsstefnu í London.
Channi Kumar, geðlæknir, og
starfslið hans við „The Institute of
Psyehiatry", sem tengt er „Bethle-
hem Royal“ og „Maudsley“-sjúkra-
húsinu, skipulögðu námsstefnuna.
Hún fjallaði um: „Problem parents:
Advances in Clinical Care of Ment-
ally ill Mothers and Their Infants",
þ.e.a.s. umönnun mæðra, sem eiga
við geðræn vandamál að stríða, og
barna þeirra.
Námsstefnuna sótti heilbrigðis-
starfsfólk víðs vegar að úr heimin-
um, geðlæknar, hjúkrunarfræðing-
ar, ljósmæður, félagsráðgjafar,
sjúkrahúsprestar, sjálfboðaliðar,
sem vinna á geðdeildum o.fl. Þeir,
sem jengst voru að komnir, komu
frá Ástralíu og S-Afríku. Þátttak-
endur voru um 100 talsins.
Efni námsstefnunnar
Á námsstefnunni var tekið á
margvíslegum hliðum ofangreinds
efnis. Fjallað var um sérhæfða þjón-
ustu á geðdeildum og göngudeild-
um, sem stendur þessum mæðrum
til boða í Bretlandi. Rætt var um
þátt feðra og félagslegs umhverfis,
þátt efnabreytinga í líkama móður-
innar, stuðning eða skort á stuðn-
ingi innan heilbrigðiskerfisins. Enn-
fremur var rætt um einstaka geð-
sjúkdóma, um þá foreldra, sem
misnota og jafnvel deyða börn sín,
um viðbrögð löggjafans og laga-
setningu er varðar framangreind
efni. Þá var rætt um lagalega stöðu
barna þessara mæðra og um geð-
ræna og tilfinningalega velferð
þeirra síðar á lífsleiðinni.
Fyrirlesarar nefndu, að enn væru
fordómar miklir í garð geðsjúkra,
sem leiddu til verri þjónustu innan
heilbrigðiskerfisins þeim til handa.
Rætt var um ofuráherslu samfé-
lagsins á hina hamingjusömu móð-
ur, sem hefði fundið lífsfyllingu í
því að fæða af sér barn, og þá erfið-
■ NÝ HLJÓMS VEIT leikur í
Garðakránni við Garðatorg 1 í
Garðabæ föstudags- og laugar-
dagskvöld, 20. og 21. september.
Hljómsveitin sem er bandarísk að
uppruna heitir „The Rockville
Trolls“ og er skipuð fjóruny hljóð-
færaleikurum og söngkonu. Á gítar
og „steel“-gítar leikur Pat Tennis
frá Seattle, á gítar Hörður Hákon-
arson, á bassa Óðinn B. Helga-
son, á trommur Steinar Helgason
og söngkonan er Olga Dís Emils-
dóttir einnig frá Seattle. Hljóm-
sveitin spilar „country rock“ tónlist
sem er mjög vinsæl í Bandaríkjun-
um um þessar mundir. Einnig verða
sígildir dansar þessi kvöld dansaðir
af dansflokknum „Northing Bar
Country" sem er frá Keflavíkur-
flugvelli. (Fréttatilkynning)
18 LÍTRA ÖRBYLGJUOFN
650 vött
5 stillingar, 60 mfn. klukka, snún-
ingsdiskur, íslenskur leiðarvísir,
matreiðslunámskeið innifalið.
Sértilboð 15.950 stgr.
VÖNDUÐ VERSLUN
CS Afborgunarskilmálar (J[]
HUÓMCO
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 I
leika, sem þær mæður, sem upplifa
ekki þessa hamingju, horfast í augu
viðv
Á námsstefnunni kom fram, að
búast mætti við, að 1 móðir af hvetj-
um 500 til 1 af hveijum 1.000 þyrfti
á innlögn á geðdeild að halda. Hins
vegar mætti búast við að u.þ.b. 10%
mæðra væru útskrifaðar heim og
upplifðu þar mikinn geðrænan og
tilfinningalegan vanda, sem þær
fengju lítinn sem engan stuðning
til að vinna sig í gegnum.
Á Bretlandseyjum er nokkuð um
svokallaðar „Mother-Baby Units“,
sérhæfðar geðdeildir, sem sinna
þessum skjólstæðingum sérstak-
lega. Þar starfa saman t.d. geð-
læknar, geðhjúkrunarfræðingar,
sjúkrahúsprestar, félagsráðgjafar
o.fl. Langflestar innlagnir eiga sér
stað á fyrstu 2 vikum eftir fæð-
ingu. Ennfremur sjá sérhæfðar
göngudeildir fyrir þjónustu við þá
foreldra, sem þurfa ekki á innlögn
á lokaðri geðdeild að halda. Þessir
einstaklingar eða fjölskyldur eru í
viðtalsmeðferð, lyfjameðferð
o.s.frv.
Islenskar aðstæður
Margar spurningar vakna við
það, að hlusta á umljöllun á náms-
„Það er mikilvægt fyrir
okkur sem samfélag að
viðurkenna, að fólk
reynir meðgöngu og
barnsfæðingu út frá
mismunandi forsendum
uppeldis, heilsufars,
lífsreynslu, félagslegs
umhverfis, trúar, svo
nokkuð sé nefnt.“
stefnu sem þessari. Ég hef ekki séð
tölur yfir tíðni geðrænna vanda-
mála eftir barnsburð hér á landi.
Slík mál koma þó upp hjá okkur
eins og hjá öðrum þjóðum. Við bú-
um ekki yfir sérhæfðum meðferðar-
deildum fyrir þessa skjólstæðinga
og sjálfsagt skiptir þar fjöldi tilfella
mestu máli. Hins vegar hefur með
mér vaknað upp sú spurning, hvers
konar fylgd kæmi þeim ljölskyldum
best, sem eiga við tilfinningaleg og
geðræn vandamál að stríða í tengsl-
um við meðgöngU, fæðingu og eftir
fæðingu. Og þetta á ekki síður við
um þá, sem horfast í augu við missi
við þessar aðstæður, hvort sem um
er að ræða fósturlát, fæðingu fatl-
aðs barns, fæðingu fyrirbura, fæð-
ingu andvana barns, fæðingu heil-
brigðs bams en móðir verður þung-
lynd og svo mætti lengi telja.
Lokaorð
Meðganga og bamsfæðing er
stór reynsla og mikil að vöxtum,
sem auðveldlega leiðir til mikillar
streitu. Að sjálfsögðu vildum við,
sem erum foreldrar, ekki vera án
þessarar reynslu, því börnin okkar
geta veitt okkur svo mikla gleði.
En það er mikilvægt fyrir okkur
sem samfélag að viðurkenna, að
fólk reynir meðgöngu og barnsfæð-
ingu út frá mismunandi forsendum
uppeldis, heilsufars, lífsreynslu, fé-
lagslegs umhverfis, trúar, svo nokk-
uð sé nefnt. Og við sem einstakling-
ar eram ólík. Þess vegna er það
eðlilegt, að ein meðganga sé ann-
arri ólík og ein fæðing annarri ólík,
þótt um sama líffræðilega ferlið sé
að ræða.
Ég lít svo á, að mæður á með-
göngu séu ekki „sjúklingar". Hins
vegar geta komið upp sjúkdómar á
meðgöngu, sem krefjast allrar
hæfni okkar til úrvinnslu og með-
ferðar. Fordómar eiga þar ekki
Bragi Skúlason
heima, heldur fyrst og fremst um-
hyggja.
Á námsstefnunni í London var
mikið rætt um vonina og þátt henn-
ar í að bæta líðan og horfur þeirra
fjölskyldna, sem eiga við andleg og
geðræn vandamál að stríða. Þar var
líka rætt um vonleysi og einmana-
leikakennd. Enginn er meira einn
og vonlaus en sá, sem verður fyrir
fordómum samfélagsins.
Höfundur er sjúkrahúsprestur
Ríkisspítala.
FRANSKAR
ÐUNULPUR
BRAMBILLA
Frönsku BRAMBIUA úlpurnar eru ekta dúnúlpur, hlýjar og fallegar. BRAMBHIA dúnúlpurnar eru vendiúlpur.
Því færð þú í raun tvær dúnúlpur á verði einnar. BRAMBHJA dúnúlpurnar eru til í ölium stærðuni, jafnt á börn og fullorðna.
Nýju BRAMBILLA vendi-dúnúlpurnar eru á verði frá kr. 8.980 í barnastærðum og frá kr. 11.900 í fullorðinsstærðum.
BRAMBILLA dúnúlpur - töff bdöum megin
UTILIF Blæsibæ
Sími91-812922