Morgunblaðið - 20.09.1991, Page 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
>
|
>
I
I
i
Sandinistar víg-
búast í Nicaragua
Malpaisillo. Reuter.
HOPAR nianna, sem voru áður í her Sandinista í Nicaragua, hafa
vígbúist að nýju eins og hundruð af gömlum andstæðingum þeirra,
kontra-skæruliðunum fyrrverandi.
Mennirnir segjast ekki vilja koma
af stað stríði, heldur verja sig og
Sandinistabyltinguna fyrir atlögum
„eignastéttarinnar". „Auðstéttin
hefur sótt í sig veðrið og er að
Sovétsendi-
herrarláta
af störfum
Stokkhólmi. Reuter.
Utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna, Borís Pankín, seg-
ir að fiestir. sendiherrarnir
sem kallaðir voru heim til
Moskvu eftir valdaránið mis-
heppnaða hafi fallist á að
hverfa til annarra starfa eftir
að hafa farið áður í stutta
kveðjuheimsókn til viðkom-
andi landa. Pankín var sjálfur
sendiherra í Tékkóslóvakíu
en tók strax afstöðu gegn
valdaránsklíkunni.
„Við stungum upp á því að
sendiherrarnir skyldu, eftir að
að hafa hlýtt á mál okkar, sjálf-
ir ákveða hvaða störfum þeir
sneru sér að í framtíðinni," sagði
Pankín á blaðamannafundi í
Stokkhólmi en hann er í opin-
berri heimsókn í Svíþjóð. Búist
er við því að Níkolaj Uspenskíj,
sendiherra í Svíþjóð, Leóníd
Zamjatín í London og Júríj Dúb-
ínín í París séu meðal þeirra sem
víki úr embætti. Þeir ráku allir
erindi valdaránsklíkunnar og
hinn fyrstnefndi lýsti beinlínis
stuðningi við aðgerðir áttmenn-
inganna.
Pankín sagði að fækkað yrði
mjög í starfsliði sovésku örygg-
islögreglunnar, KGB, í sovésk-
um sendiráðum.
breyta lögum frá byltingunni, skaða
öreigastéttina, og við getum ekki
látið það viðgangast,“ sagði einn
þeirra, fyrrum höfuðsmaður í
Sandinistahernum.
Sveitir kontra-skæruliða voru
leystar upp í fyrra þegar Violeta
Chamorro varð forseti eftir sigur á
Sandinistum í kosningum. Hluti
þeirra hefur gripið til vopna á ný
og stjómvöld óttast að til átaka
kunni að koma á milli fylkinganna.
--------------*-*-*-------
■ BÚKAREST - Virgil Mag-
ureanu, yfirmaður rúmensku leyni-
þjónustunnar, lofaði í gær að hefja
rannsókn á starfsemi Securitate,
öryggislögreglunnar hötuðu, sem
hélt landinu í helgreipum í stjóm-
artíð Nicolae Ceausescus. Hann
sagði að rúmenska leyniþjónustan
hefði mikið af gögnum undir hönd-
um sem nota mætti í réttarhöldum
yfir fyrrum félögum í Securitate.
M VARSJÁ - Kaþólskir bisk-
upar í Póllandi hafa farið þess á
leit við kjósendur að þeir kjósi
ekki flokka sem eru hlynntir fóstur-
eyðingum í kosningunum sem fara
fram í næsta mánuði. „Siðferðileg
grundvallaratriði ... standa í vegi
fyrir því að kristnir menn kjósi þá
sem eru hlynntir fóstureyðingum
eða umberi að þær og líknardráp
séu leyfð,“ sagði í tilkynningu frá
biskupunum sem lesin verður upp-
hátt í öllum kirkjum á sunnudag.
■ ISLAMABAD - Skæmliðar í
Afganistan gerðu í gær harðar
skot- og sprengjuárásir á Gardez,
heimabæ Najibullahs forseta, og
höfðu að engu tilraunir til að binda
enda á styijöldina í landinu eftir
pólitískum leiðum. Að sögn þar-
lendra heimildarmanna hófu skær-
uliðarnir árásir á bæinn á miðviku-
dagskvöld og virtust vera að und-
irbúa stórárás.
pRlVATlSE
Hs HEaiTh
SERVlct.
1Nc*£asz
3 MliUoh.
(aí'íHir
PRIVATISE
THE EDUCATION
SYSTEM.
RAISE VAT
TO 22%.
tiflia...manY mory...haye the Tories got in their cupboá
JJ±
M k&Aiten
Kosningabaráttan byijuð í Bretlandi
Reuter
Vegfarandi gengur framhjá auglýsingaskilti breska Verkamannaflokksins í gær, þar sem ekki er farið
leynt með hvaða áhrif flokkurinn telur að stjóm íhaldsflokksins hafi haft á kjör almennings í landinu.
Veggspjaldið markar upphaf kosningabaráttunnar í Bretlandi, og bendir margt til þess að hún verði hörð
og iliskeytt. Margir stjórnmálaskýrendur búast við því að boðað verði til kosninga innan skamms.
Bandarískar herstöðvar á Filippseyjum:
Fallið frá þjóðaratkvæðagreiðslu
Uppreisnarmaðurinn Gringo kemur úr
Manila. Reuter.
CORAZON Aquino, forseti Filippseyja, hefur látið undan þrýstingi frá
öldungadeild fiiippeyska þingsins og segir þjóðaratkvæðagreiðslu um
bandaríska herstöðvasamninginn einungis koma til ef þjóðin krefjist
þess. Uppreisnarforinginn Gregorio Honasan, eða Gringo eins og hann
hefur verið kallaður, er nú kominn úr felum til friðarviðræðna við
stjómina.
Ákvörðun Aquino um að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu eftir að þing-
menn öldungadeildar höfðu hafnað
áframhaldandi veru bandaríska
hersins á Filippseyjum, olli mikilli
reiði meðal þingmanna. Hún var
meðal annars sökuð um að vanvirða
stjórnarskrána. Jovito Salonga, for-
seti öldungadeildarinnar, sagði að
Aquino yrði að gera sér grein fyrir
því að öldungadeildin hefði gert að
engu samning hennar um áfram-
haldandi veru bandaríska hersins.
Aquino sagði í gær að hún hefði
viljað vera örugg um að vilji fólksins
kæmi í ljós og þess vegna hefði hún
ákveðið að efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu en ef það kæmi í ljós að
felum
almenningur væri henni andvígur
þá yrði hún ekki haldin.
Uppreisnarforinginn Honasan
hefur verið talinn ein helsta ógnunin
við stöðu Aquino en embættismenn
innan vamarmálaráðuneytisins
segja áhrif hans meðal hermanna
hafa minnkað eftir misheppnaða
byltingu árið 1989.
Honasan hefur verið á flótta síðan
í apríl 1988 þegar hann og fjórtán
menn hans flúðu af fangaskipi hers-
ins. Meðan á friðarviðræðunum
stendur verður hann. ekki sóttur til
saka.
i
VÉLSLEÐAR Á ÁRSGÖMLU VERÐI
Sleðasýning föstudag og laugardag
Við rýmum nú fyrir nýrri árgerð, og bjóöum því ónotaða Arctic
Cat vélsleöa árgerö 1991, á ársgömlu veröi. Veriö velkomin á
vélsleðasýninguna hjá okkur aö Ármúla 13 og hjá Bílaleigunni
Ernir á ísafirði. Sýningin veröur föstudaginn 20. sept. og
laugardaginn 21. sept. frá kl. 10-17. Sýnum einnig úrval
notaðra vélsleöa. Nýir Arctic Cat vélsleðar, árgerö 1992,
væntanlegir í október.
----- — __ \ BÍIALEIGAN
ARCTICCAT (ærnir
BIFREIOAR & LANDBÚNABARVÉLAR HF.
Armúla 13108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36