Morgunblaðið - 20.09.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
27
Gönguferð um gosbeltið:
Fjallið
Skjaldbreiður
eftir Tómas
Einarsson
Þegar farið er eftir Kaldadals-
vegi milli Ámessýslu og uppsveita
Borgarfjarðar dregur fjallið
Skjaldbreiður óneitanlega að sér
athygli ferðamannsins. Þetta
foma, fagurformaða eldfjall er ein-
stakt og sker sig algjörlega úr
þeim fjöllum sem nálæg því era
hvað varðar form og lögun. Talið
er að það sé allt að 9 þúsund ára
gamalt og hafi myndast í löngu
gosi eftir að ísöld lauk þar sem
hinir miklu hraunstraumar gátu
hindrunarlaust flætt til allra átta.
Með þeim hætti hlóðst fjallið upp
og er nú til að sjá eins og skjöldur
á hvolfi. Hvernig landslagið var
fyrir þessar hamfarir þar sem fjall-
ið stendur nú, getur enginn sagt
um, en tveir móbergshnjúkar sem
standa sunnan í fjallinu og hafa
verið nær kaffærðir í hraununum
gefa smá vísbendingu um, að ef
til vill leynist fleiri slíkir frá tímum
ísaldar undir hraunhellunni.
Hraunstraumarnir mnnu langt
og þeir lengstu allt suður í Þing-
vallalægðina og mun unnt að finna
þar Skjaldbreiðarhraun undir
hraunum sem runnu síðar frá gíg-
um á Tindfjallaheiði austan við
Hrafnabjörg og þeir þekkja, sem
hafa heimsótt Þingvelli.
Skjaldbreiður er annar stærsti
hraunskjöldur á íslandi, hinn er
Trölladyngja í Ódáðahrauni. Hæð
íjallsins er 1.060 m y.s. og það er,
sökum lögunar sinnar, eitt þeirra
íjalla sem fært er uppgöngu úr
öllum áttum. Skiptir engu hvaðan
gengið er og því óþarft að gefa
sérstaka leiðarlýsingu.
Fyrrum var venjulegast gengið
á fjallið af Kaldadalsvegi frá Sand-
kluftavatni, eða frá Hlöðuvöllum,
en þetta breyttist eftir að raflínan
frá Búrfellsvirkjun til Borgarfjarð-
ar var lögð norðan við Skjaldbreið.
Þá var gerður bílvegur meðfram
línustæðinu, sem enn er fær fjór-
hjóladrifnum bílum. Við það stytt-
ist leiðin á fjallið afar mikið og
mun hafa orðið mörgum hvatning
til að ganga á það, enda öllum
fært, sem á annað borð geta og
vilja stunda þá hollu iðju.
í toppi fjallsins er mikill og djúp-
ur gígur. Hann er hringlaga, um
300 m í þvermál og auðvelt að
ganga allan hringinn eftir börmun-
um. Þótt Skjaldbreiður sé rúmir
1.000 m á hæð, er ekki mjög víð-
sýnt þaðan, því umhverfis fjallið
eru mörg há og mikilúðleg fjöll,
sem skyggja á. Má þar m.a. nefna
Þórisjökul, Hlöðufell, Skriðuna,
Botnssúlur og Ok.
Forfeður okkar eyddu ekki mikl-
um tíma í að ganga á fjöll, enda
á því engin þörf, ef erindið taldist
ekki til nytsemda. En Skjaldbreið-
ur hefur samt verið þeim hugstæð.
Eftirfarandi klausa stendur í sögu
Bárðar Snæfellsáss: „Segja það og
nokkurir menn, að verið hafi að
leikum í Skjaldbreið Ormur Stór-
Á leið á Skjaldbreið.
ólfsson og glímdi við Bergþór og
hafí Onnur af borið. Þar var og
Orrnur skógamefur ungur. Hann
glímdi við Þóri úr Þórisdal. Sá
dalur er í Geitlandsjökli. Var Þórir
þeirra dijúgari. Þar var og Þórálf-
ur Skólmsson er glímdi við Hall-
mund úr Balljökli. Var nær um
með þeim, en Bárður þótti þeim
sem sterkastur mundi vera. Skildi
svo þessa leika, að ekki varð fleira
til tíðinda." Og í sögu Ármanns í
Ármannsfelli segir að fyrmm hafi
bærinn Eiríksstaðir staðið við fjall-
ið og hét bóndinn Eiríkur. „Hann
var auðugur maður og kvongaður
og átti mörg börn, bæði syni og
dætur." Þar var „byggð mikil, þó
nú sé af fallin fynr óveðráttu og
sandfjúki, samt sjást þar tæfur
margar“. Sé eitthvert sannleik-
skorn í þessum sögum, sjást nú
engin ummerki um byggð á þess-
um slóðum svo mér sé kunnugt.
En frá nágrenni Skjaldbreiðs kem-
ur enn „sandfjúk" í „óveðráttu",
sem allir þekkja sem heima eiga í
Þingvallasveit og nálægum byggð-
um.
En það vom fleiri en Ármann
og Bárður, sem áttu spor um hlíð-
ar Skjaldbreiðar. Á flótta um
landið barst útlaginn Grettir Ás-
mundarson í Þórisdal, sem er milli
Þórisjökuls og Geitlandsjökuls. Þar
dvaldi hann um hríð og leið vel.
Síðan segir svo í sögunni: „Fór
hann þá í buit úr dalnum og gekk
suður þvert af jöklum og kom þá
norður að undir Skjaldbreið. Þar
reisti hann upp hellu og klappaði
í rauf og sagði svo: ef maður legði
auga sitt við raufina í hellunni, þá
mætti sjá gil það, sem fellur í
Þórisdal."
Það var ekki fyrr en sumarið
1792 sem Sveinn Pálsson gekk á
Skjaldbreið fyrstur manna svo vit-
að sé. Sumarið 1833 var Björn
Gunnlaugsson skólakennari á
Bessastöðum í rannsóknarferð um
ísland og gekk á fjallið. Reyndi
hann þá m.a. að glöggva sig á
því, hvar Grettir hefði reist hell-
una, en tókst ekki að finna hana
þrátt fyrir ítarlega leit. Eftir því
sem best er vitað hefur hún ekki
fundist enn.
Jónas Hallgrímsson var þó ekki
að leita að hellu Grettis, er hann
reið umhverfis Skjaldbreið aðfara-
nótt 15. júlí 1841. Eftir þá ferð
orti hann hið stórkostlega kvæði
Fjallið Skjaldbreiður, sem allir ís-
lendingar þekkja, sem hafa áhuga
á Ijóðum á annað borð.
„Fanna skauta faldi háum fjallið
allra hæða val“ segir skáldið í
upphafi ljóðsins. Eftir orðanna
hljóðan hefur þá verið snjór á toppi
þess, en ekki fylgir sögunni, hvort
um var að ræða nýfallinn snjó eða
samfellda skafla. Nú bræðir sum-
arsólin allan vetrarsnjó af hlíðum
fjallsins, aðeins í gígnum má finna
skafia sem aldrei þiðna.
Vinir Bárðar Snæfellsáss héldu
íþróttamót sitt við Skjaldbreið. Síð-
an hefur mikið vatn mnnið til sjáv-
ar. En á síðustu árum hefur fjallið
aftur orðið vinsæll leikvöllur, ekki
kraftajötna og glímukónga, heldur
riddara hjarnbreiðunnar, vélsleða-
kappa og ökuþóra sem fara um
öræfin á breiðdekkja torfærutröll-
um. Og uppi á gígbönnunum er
meira að segja efnt til veislufagn-
aðar á góðviðris vetrardögum.
Þannig breytast tímarnir.
Næstkomandi laugardag efnir
Ferðafélag íslands til ferðar á
Skjaldbreið. Verður þá genginn
síðasti spölur . leiðarinnar vestan
frá Reykjanestá, en í vor hóf félag-
ið á skipulegan hátt að ganga
hana í 12 áföngum. Eru allir vel-
komnir í þessa léttu öræfaferð sér
til hressingar og ánægju.
Iföfundur er kennari.
>
__________Brids______________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Suðumesja
Grethe íversen og Eiríkur Ellerts-
son sigruðu í 15 para tvímenningi sl.
miðvikudag en þessi keppni var loka-
spilakvöldið í sumarbrids félagsins.
Lokastaðan: ,
Gretheíversen-Ein'kurEllertsson 213
GísliTorfason-LogiÞormóðsson 202
KarlEinarsson-KarlKarlsson 189
PéturJúlíusson-HeiðarAgnarsson 178
Nk. mánudag hefst vetrarstarfið
með eins kvölds tvímenningi en síðan
hefst aðalhausttvímenningurinn sem
er með Butler-fyrirkomulagi.
Styðjum landsliðið
Nú fer að líða að því að landsliðið
okkar leggi í hann til Yokohama. Lið-
ið leggur af stað miðvikudaginn 25.
september. Undirbúningurinn er í há-
márki og allir bridsáhugamenn eru
minntir á reikninginn í Islandsbanka
í Garðabæ. Númerið ætti að vera auð-
. velt að muna, 5252. Það vantar enn
herslumuninn upp á að endar nái sam-
an og munið, að margt smátt gerir
eitt stórt.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 16. september var
spilaður einskvölds tvímenningur.
Þátttaka varð mjög góð og lá við
að menn þyrftu frá að hverfa. Spil-
að var í tveimur riðlum, einum 16
para og einum 10 para sem skipað-
ur var byrjendum.
Úrslit í A-riðli:
Guðlaugur Svcinsson - Magnús Sverrisson 242
Ingvarlngvarsson-KristjánHauksson 238
Dröfn Guðmundsdóttir - Asgeir Ásbjömsson 235
Hulda Hjálmarsdóttir - Kristin Guðbjömsdóttir 235
GunnarBirgisson-JóngeirHlinason 235
Úrslit í B-riðli:
ívarGuðnason-JónTryggvason 94
Júlíana Gísladóttir - Jón Gíslason 86
Sigrún Amórsdóttir - Bjöm Höskuldsson 80
Júlíana Sigurðardóttir - Kristján Bjömsson 79
Sigriður Magnúsd. - Sveinbjöm Guðbjamarson 78
Næsta mánudag hefst tveggja
kvölda tvímenningur til minningar
um þá Kristmund Þorsteinsson og
Þórarinn Andrewsson sem spiluðu
með okkur árum saman. Spilað
verður um bikar sem gefinn er af
ekkjum þeirra. Mæting er kl. 19.30
í íþróttahúsinu við Strandgötu.
Vetrarmitchell BSÍ
Vetrarmitchell BSÍ fór vel af stað
síðasta föstudag. Spilað verður á
hverju föstudagskvöldi í vetur í Sig-
túni 9, eins kvölds tvímenningur, sem
hefst kl. 18.00. Allir geta mætt, annað
hvort einu sinni eða alltaf eða allt þar
á milli. Keppnisgjald er kr. 500 á
mann og þeir sem vinna hvom riðil
fá endurgreitt keppnisgjaldið.
Drifbunaður
fyrir spil o.fl.
= HEÐINN =
VÉLAVERSLIJN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
WWWWW'W
SPARIÐ - SETJIÐ SAMAN SJALF
B
jöminn býður upp á gott og
íjölbreytt úrval efniviðar til
smíði á eldhús- og baðinnréttingum
og fataskápum.
Fagmenn okkar smða efnið
eftir þínum þörfum.
Þú setur innréttinguna saman
sjálf(ur) og sparar þannig
peninga.
Komdu með þína hugmynd til
okkar - fagmenn aðstoða þig
við að útfæra hana.
BJORNINN
BORGARTÚNI28 S. 6215 66
c n • - . ?