Morgunblaðið - 20.09.1991, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
43
KNATTSPYRNA
Ólafur
enná
spvtala
ÓLAFUR Róbertsson, leikmað-
ur Víðis, sem fór meiddur af
leikvelli gegn Víkingi í síðustu
umferð Islandsmótsins, er enn
á spítala.
Olafur missti meðvitund er hann
lenti í samstuði við einn leik-
mann Víkings undir lok fyrri hálf-
leiks. Hann féll við og datt yfir
boltann - og vítaspyma dæmd.
Hann fékk aðhlynningu, var síðan
studdur af velli og fór rakleiðis til
læknis og síðan á Borgarspítalann.
Þar kom í ljós að taug í vinstra
innra auga var spmngin. Hann
hefur legið rúmfastur síðan á laug-
ardag og verður á spítalanum fram
yfir næstu helgi að minnsta kosti.
Breytingar hjá Ásgeiri
Atli Eðvaldsson, landsliðsfyrirliði, ekki valinn. Fjórir nýliðar í landsliðshópnum
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
ÁSGEIR Elíasson, nýráðinn landsliðsþjálfari í knattspyrnu,
hef ur valið 19 manna landsliðshóp fyrir Evrópuleikinn gegn
Spánverjum sem ferfram á Laugardalsvelli á miðvikudag,
en það er fyreti leikurinn undir stjórn Ásgeirs. Töluverðar
breytingar eru á landsliðshópnum frá því Bo Johannsson
stjórnaði landsliðinu. Liðið spilar æfingaleik gegn U-21 árs
landsliðinu á morgun. Eftir þann leik mun hann velja þá
16 leikmenn sem taka þátt í leiknum gegn Spánverjum.
Atli Eðvaldsson, fyrirliði
landsliðsins til margra ára,
er ekki í hópnum gegn Spánveij-
um. Fjórir nýliðar eru í landsliðs-
hópi Asgeirs: Atli Einareson og
Atli Helgason, Víkingi, Baldur
Bjamason, Fram og Hörður
Magnússon, FH.
Landsliðshópurinn er skipaður
eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Birkir Kristinsson, Fram
Friðrik Friðriksson, Þór.
Aðrir leikmenn:
Guðni Bergsson, Tottenham
Sævar Jónsson, Val
Valur Valsson, UBK
Pétur Ormslev, Fram ■
Kristján Jónsson, Fram
Þorvaldur Örlygsson, Fram
Sigurður Grétarss., Grasshoppei's
Sigurður Jónsson, Arsenal
Ólafur Þórðarson, Lyn
Atli Helgason, Víkingi
Baldur Bjamason, Fram
Andri Marteinsson, FH
Atli Einaiason, Víkingi
Hörður Magnússon, FH
Eyjólfur Sverrisson, Stuttgart
Grétar Einarsson, Víði
Hlynur Stefánsson, ÍBV
Þessir leikmenn, að undanskild-
um „útlendingunum" leika æf-
ingaleik við U-21 árs landsliðið á
morgun, laugardag. Eftir það
mun hann skera hópinn niður í
16 leikmenn. Þess má geta að
Amór Guðjohnsen er í leikbanni.
Ásgeir sagði að Atli Eðvaldsson
væri ekki inní myndinni í leiknum
gegn Spánveijum. „Stefnan er að
byggja upp landsliðið íframtíðinni
á fljótum og „teknískum" leik-
mönnum. Ég hef haft lítinn tíma
til undirbúnigs landsliðsins vegna
deildarkeppninnar og Evrópu-
leiksins hjá Fram. Æfingaleikur-
inn á laugardag er eingöngu hugs-
aður til að koma mínum hug-
myndum inn hjá leikmönnum og
til að kynnast hópnum," sagði
Ásgeir.
Hann sagði að Sigurður Jóns-
son kæmi í æfingleikinn ef hann
ytði ekki í byijunarliði Arsenal á
laugardag.
Morgunblaðiö/Bjarni Eiríksson
Fascal Becken markvörður hefur hér betur í baráttunni við Þórð Guðjónsson og Helga Sigurðsson. Belgar unnu því
þessa orrustu en það voru íslensku piltarnir sem unnu stríðið.
Sigur í lokaleiknum
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu skipað leikmönnum 18
ára og yngri lagði belgíska jaf n-
aldra sína að velli í Mosfellsbæ
í gær, 2:1. Leikur liðanna var
liður í undankeppni HM og var
leikurinn lokaleikur íslands í
keppninni.
Belgarnir voru ákveðnari til að
byija með, leikmenn liðsins
léku vel saman úti á vellinum en
íslendingar voru lengi í gang. Á
9. mínútu náðu
Frosti Belgar forystunni
Eiösson með fallegu marki.
skrífar Steve Vandu Borght
skoraði með_ við-
stöðulausu skoti frá vítateig. íslend-
ingar komust inn í leikinn og í
síðari hálfleiknum var Helgi Sig-
urðsson tvívegis nálægt því að
skora.
íslenska liðið var sterkari aðilinn
í síðari hálfleik og tvö mörk með
sex mínútna millibili eftir mistök
KÖRFUBOLTI
Ísland-Belgía2:1
íþróttavöllurinn að Varmá, Undan-
keppni HM í knattspymu - Leikmenn
18 ára og yngri, fimmtudaginn 19.
september 1991.
Mörk íslands: Kristinn Lárusson
(70.), Helgi Sigurðsson (76).
Mark Belgíu: Steve Vanda Borgt
(9).
Lið Islands: Eggert Sigmundsson,
Kári Steinn Ragnarsson (Hákon
Sverrisson), Rúnar Sigmundsson,
Auðunn Helgason, Sturlaugur Har-
atdsson, Flóki Halldórsson, Rútur
Snorrason, Pálmi Haraldsson, Þórður
Guðjónsson, Kristinn Lárusson,
Helgi Sigurðsson.
Belga færðu liðinu bæði stigin.
Helgi Sigurðsson komst inn í van-
hugsaða sendingu á 72. mínútu, lék
á einn vamarmann hægra megin í
vítateignum renndi knettinum þvert
fyrir markið. Þar var Kristinn Lár-
usson réttur maður á réttum stað
og skoraði af stuttu færi. Sex
mínútum síðar ætlaði varnarmaður
Belga að hreinsa frá markinu. Ekki
vildi betur til en svo að knötturinn
fór í félaga hans og Helgi Sigurðs-
son var fljótur að átta sig, náði
knettinum, lék inn í vítateiginn og
renndi knettinum framhjá mark-
verði Belgíu og í netið. Það sem
eftir lifði leiksins sóttu Belgar meira
en færi íslands voru síst hættu-
minni.
Rúnar Sigmundsson og Helgi
Sigurðsson voru bestu menn í ann-
ars jöfnu lið íslands.
„Eg var orðinn nokkuð svartsýnn
í síðari hálfleiknum en það var gam-
an að ljúka mótinu með sigri,“ sagði
Helgi Sigurðsson eftir leikinn.
„Baráttan var í lagi í þessum
leik og við gáfumst ekki upp þegar
við vorum marki undir. Við höfum
þó leikið betur en við gerðum í dag
en að þessu sinni var gæfan okkar
megin,“ sagði Hörður Helgason
þjálfari liðsins.
Spennandi Reykjanesmót
Reykjanesmótinu í körfuknatt-
leik er nú að ljúka og er spenn-
an á toppnum mjög mikil. Þar beij-
ast Grindvíkingar, Keflvíkingar og
Njarðvíkingar og hafa léikir þessara
liða verið skemmtilegir. Grindavík
vann Njarðvík 84:82, Njarðvík vann
Keflavík 94:78 og Keflvíkingar
unnu Grindavík ;7?:69.
Úrslitin ráðast um helgina þegar
Keflvíkingar leika við Njarðvíkinga
kl. 20 í kvöld og á sunnudag leika
Keflvíkingar kl. 20 við Grindvík-
inga. Önnur lið sem taka þátt eiga
ekki möguleika á að sigra.
Minnti meira á
vináttuleik
- sagði Roberto Mussi sem skoraði fyrirTórínó
Eg viðurkenni að við getum leik-
ið betur en við gerðum núna.
Við erum vanir að leika í öðra
umhverfi fyrir mun fleiri áhorfend-
ur, sem skapa ákveðna stemmn-
ingu. Það má kannski segja að þessi
leikur hafi minnt meira á vináttu-
leik en alvöruleik, en ég verð að
bæta því við að mér fínnst skemmti-
legra að leika í Evrópukeppni en
ítölsku deildarkeppninni,“ sagði
Roberto Mussi, sá er skoraði fyrra
mark Tórínó.
Stefnum að sigri
„Þetta var ánægjulegur leikur
og það var ánægjuleg reynsla að
leika á Islandi. Við stefnum að því
að sigra í Evrópukeppninni og
metnaðurinn er mikill. Eg hef und-
anfarið kannað tryggingar vegna
bónusa og við munum á næstu dög-
um ganga frá tiyggingu við Lloyd
í Englandi. Hver leikmaður fær um
fímm milljón krónur ef við vinnum
UEFA-keppnina, deildarkeppnina
eða bikarkeppnina. Greiddur bónus
yrði því um 150 milljón krónur, sem
tryggingarfélagið mun greiða ef til
kemur. Trygging af þessu tagi kost-
ar hins vegar á bilinu 40 til 50
milljónir," sagði Gian Mauro Bors-
ano forseti Tórínó’ ángæður með
sína menn.
Frekar erfiður leikur
„Mér þótti leikurinn frekar erfíð-
ur. Við þurftum að hafa svolítið
fyrir sigrinum, en við erum betri!
Ég hef leikið hér áður með spænska
landsliðinu og veðráttan og völlur-
inn komu mér þess vegna ekkert á
óvart. Það voru ekki þeir þættir sem
við þurftum að glíma við heldur
KR-ingarnir. Evrópuleikir eru alltaf
erfíðir og þessi leikur var engin
undantekning. Ég kem hingað aftur
í næstu viku með spænska landslið-
inu og við komum svo sannarlega
ekki til með að vanmeta andstæð-
ingana fyrir leikinn," sagði Rafael
Martin Vazquez, Spánveijinn í liði
Tórínó.
Erfiðara en ég bjóst við
„Mér er illt í lærinu. íslendinj?^
amir fengu að bijóta of mikið á
okkur án þess að dómarinn hefði
nokkuð um það að segja, og við
þurftum töluvert að hafa fyrir sigr-
inum. Þetta var erfíðara en ég bjóst
við, alls ekki eins auðveldur leikur
og ég átti von á,“ sagði Giorgio
Venturin.
Lokahóf
1. deildar
Lokahóf knattspymumanna og
kvenna sem leika í 1. deild
verður haldið á Hótel íslandi í
kvöld. Þar verður gjört kunnugt val
leikmanna liðanna á besta leik-
manni deildarinnar og þeim efnileg-
asta, bæði í karla- og kvenna-
flokki. Húsið opnar kl. 19 og borð-
hald hefst kl. 19.30.
ÚRSLIT
■Einn leikur var í UEFA-keppninni! gær-
kvöldi. Valletta frá Mörltu fékk Portó frá
Portúgal í heimsókn og sigruðu gestimir
3:0.
■í Evrópukeppni bikarhafa gerðu CSK<£>
frá Búlgaríu og Parma frá Ítalíu marka-
laust jafntefli í Búlgaríu að viðstöddum
20.000 áhorfendum.
■Salgueiros frá Portúgal fékk Cannes í
heimsókn og vann 1:0 með marki Placido
á 48. mínútu.
■Real Oviedo frá Spáni tók á móti Genóva
frá Ítalíu og vann 1:0 og það var Bango
sem gerði eina mark leiksins á 44. mínútu.
Annaö opna
safnmót Keilis
verður haldið laugardaginn 21. september.
Leiknar verða 18 holur með 7/8 forgjöf.
Mótin verða fimm, en þrjú sem telja.
Glæsileg verðlaun, utanlandsferðir og fleira.
Skráning í skála í síma 53360 milli kl. 14 og 19.