Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
225. tbl. 79. árg.
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bandaríkjaþing:
Fresta á-
byrgðum
álánum
Israela
Washington. Reuter.
LEIÐTOGAR demókrata í báð-
um deildum Bandaríkjaþings
féllust í gær á beiðni George
Bush Bandaríkjaforseta um að
fresta umræðum um lánaábyrgð-
ir til handa Israelum um fjóra
mánuði. Beiðni forsetans hafði
valdið mikilli spennu milli hans
og stuðningsmanna ísraela í
Bandaríkjunum og er ákvörðun
þingsins áfall fyrir Israela sem
frá stofnun ríkisins hafa átt vísan
stuðning á Bandarikjaþingi.
Bush hótaði í síðasta mánuði að
beita neitunarvaldi sínu til að tefja
fyrir umræðunum þar til eftir ára-
mót. Málalyktirnar eru mikið áfall
fyrir þrýstihópa ísraela í Banda-
ríkjunum og ísraelsstjórn, sem
hugðist nota ábyrgðirnar til að taka
10 milljarða dala (um 600 milljarða
ÍSK] lán til að reisa hús fyrir so-
véska gyðinga er hafa flutt til ísra-
els. Stjórnin hefur áformað að reisa
húsin á hernumdu svæðunum en
Bush taldi að slíkt kynni að koma
í veg fyrir að ráðstefna um frið í
Miðausturlöndum gæti farið fram.
Bandarísk stjórnvöld hafa í ára-
raðir verið treg til að gagnrýna ísra-
elsk stjórnvöld, en háttsettur emb-
ættismaður í Washington sagði í
gær að Bush hefði nú „rofið bann-
helgina". Hann sagði að samkomu-
lagið við demókrata tryggði að skil-
yrði yrðu sett fyrir bankaábyrgðun-
um þegar þingið myndi greiða at-
kvæði um þær á næsta ári. Hann
vildi þó ekki tjá sig um hver skilyrð-
in kynnu að verða.
Margaret Tutwiler, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
áréttaði að Bandaríkjastjórn hygð-
ist styðja Iánaábyrgðir til handa
ísraelum en lagði áherslu á að það
væri háð því að sett yrðu skilyrði
sem stjórnin gæti sætt sig við.
Mótmæli á ársafmæli sameiningar
Reuter
Eitt ár var í gær liðið frá því að þýska þjóðin sam-
einaðist í eitt ríki. Árásir á innflytjendur og hús þar
sem pólitískir flóttamenn hafast við skyggðu á
hátíðahöldin vegna sameiningarinnar og vora þær
fordæmdar harðlega af stjórnmálamönnum. í Berlín
gengu um tíu þúsund vinstrisinnar í mótmæla-
göngu, sem sjá má á myndinni, og báru margir
þátttakendur skilti sem á stóðu slagorð á borð við
„Sameining þýðir kynþáttahatur" eða „Aldrei aftur
Þýskaland". I borginni Gera, í austurhluta Þýska-
lands, gengu hins vegar um fimm hundruð hægri
öfgasinnar um götur og hrópuðu „Þýskaland fyrir
Þjóðveija".
Sjá nánar bls. 20.
Bókmenntaverð-
laun Nóbels
Baráttukona
í ANC fær
verðlaunin
Stokkhólmi. Reuter.
SUÐUR-afríski rithöfundurinn
Nadine Gordimer hlaut í gær
bókmenntaverðlaun Nóbels.
Gordimer, sem er 67 ára að aldri,
er fyrsta konan sem hlýtur verð-
Iaunin siðan 1966, en verðlauna-
hafi það ár var Nelly Sachs.
Nadine Gordimer er félagi í
Afríska þjóðarráðinu (ANC) og hef-
ur hún í verkum sínum, skáldsögum
jafnt sem smásögum, undanfarna
áratugi m.a. barist gegn aðskilnað-
arstefnu suður-afrískra stjórnvalda.
Vora þijár bóka hennar bannaðar
í Suður-Áfríku á sjöunda og áttunda
áratugnum.
Meðal þeirra verka sem sænska
bókmenntaakademían vekur sér-
staka athygli á í greinargerð sinni
eru bækurnar „Heiðursgestur“ frá
1970 og „Júlífólkið" sem kom út
1981.
Sjá nánar bls. 20.
Hluti forsætisnefndar Júgóslavíu tekur ráðin í sínar hendur:
Forsetinn segir Serba og her-
inn hafa gert hallarbyltingu
Zagreb, Belgrad. Reuter.
FULLTRÚAR Serbíu og þeirra
þriggja héraða sem fylgja Serb-
um að málum í forsætisnefnd
Júgóslavíu, Kosovo, Vojvodina
og Montenegro, ákváðu í gær að
nefndin myndi fá aukin völd í
sinar hendur og m.a. taka yfir
hluta af verkefnum þingsins. Var
þetta ákveðið þrátt fyrir að full-
trúar Króatíu, Slóveníu, Bosníu-
Herzegóvínu og Makedóníu sátu
ekki fundinn. Stipe Mesic, forseti
Júgóslavíu, sagði fundinn ólög-
legan og þessa ákvörðun jafn-
gilda því að Serbar, bandamenn
þeirra og herinn hefðu gert hall-
arbyltingu. Sambandsherinn hélt
í gær uppi hörðum árásum á
borgina Dubrovnik við Adríahaf
þriðja daginn í röð og flotinn
setti hafnbann á sjö helstu hafn-
arborgir Króatíu. Fregnir bárust
Bildt kynnir ráðherralista nýrrar ríkisstjórnar í dag:
Ihaldsmaður forsætisráðherra
Svíþjóðar í fyrsta sinn 161 ár
Stokkhólmi. Reuter, frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSKA þingið kaus í gær Carl
Bildt, formann Hægriflokksins, til
að veita fjögurra flokka borgara-
legri ríkisstjórn forstöðu með 163
atkvæðum gegn 147. Þingmenn
flokksins Nýs lýðræðis, 23 talsins,
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Bildt er fyrsti ihaldsmaðurinn sem
gegnir embætti forsætisráðherra
í Svíþjóð í 61 ár.
Aðfaranótt fimmtudagsins óttuð-
ust menn að svo kynni að fara að
stjórnarmyndunarviðræður Hægri-
flokksins, Þjóðarflokksins, Mið-
flokksins og Kristilega demókrata-
flokksins færu út um þúfur, þar sem
Miðflokkurinn var ekki sáttur við
alla þætti stjórn-
arstefnunnar.
Samstaða náðist
hins vegar milli
flokkanna á
síðustu stundu og
sagði Bildt í. gær
að hver einasta
komma stjórnar-
sáttmálans lægi
Bildt
nú fyrir. Ekki verður tilkynnt fyrr
en í dag hverjir munu skipa ráðherra-
embætti í nýju ríkisstjórninni.
Á fimmtudag var birt skýrsla
sænsku þjóðhagsstofnunarinnar um
efnahagshorfur á næsta ári. Ein-
kennist skýrslan af svartsýni ogþrátt
fyrir að spáð sé takmörkuðum hag-
vexti er gengið út frá því að atvinnu-
leysi eigi eftir að fara vaxandi. Gæti
atvinnuleysi í Svíþjóð næsta vetur
orðið það mesta síðan eftir stríð.
Talið er líklegt að næsti fjármála-
ráðherra Svíþjóðar verði Anne
Wibble frá Þjóðarflokknum og bíða
hennar erfið verkefni. Til að það
markmið borgaralegu ríkisstjórnar-
innar að lækka skattbyrði nái fram
að ganga þarf að draga saman rík-
isútgjöld á næsta ári um 15 milljarða
sænskra króna eða sem samsvarar
tæplega 150 milljörðum ísienskra
króna.
Sjá nánar bls. 20.
einnig af bardögum víðsvegar
um Króatíu og er talið að um
þrjátíu manns hafi fallið.
Fulltrúar fjögurra lýðvelda neit-
uðu að sitja fund forsætisnefndar-
innar þar sem til hans var ekki
boðað af Mesic, sem er Króati, held-
ur af fulltrúa Montenegro í nefnd-
inni, varaforsetanum Branko
Kðstic. Fundinn sátu hins vegar
yfirmen'n sambandshersins. í til-
kynningu sem Kostic las upp í gær
að loknum fundi forsætisnefndar-
innar kom ekki skýrt fram til ná-
kvæmlega hvaða aðgerða ákveðið
hefði verið að grípa en að ætlunin
væri að taka yfir völd þingsins að
hluta. Þá hefði forsætisnefndin
ákveðið að héðan í frá þyrfti einung-
is meirihluta meðal þeirra fulltrúa
sem mættir væru á fund tii að
ákvörðun tæki gildi. Fram til þessa
hefur þurft atkvæði fulltrúa fimm
lýðvelda af níu. Sagði hann stjórn-
arskrá landsins leyfa þetta ef bráð
stríðshætta væri yfirvofandi.
Forseti Júgóslavíu sagði viðkom-
andi ákvæði stjórnarskrárinnar ekki
eiga við þar sgm engin stríðsyfirlýs-
ing hefði verið gefin út. Þetta væri
„síðasti hvellurinn áður en Júgó-
slavía liðaðist í sundur“ og hvatti
hann umheiminn til að viðurkenna
sjálfstæði Króatíu og Slóveníu.
Stjórnvöid í Bosníu-Herzegóvínu
fordæmdu einnig ákvörðun forsæt-
isnefndarfundarins í yfirlýsingu
sem þau gáfu út.
Sambandsherinn hélt uppi harðri
skothríð á Dubrovnik í allan gærdag
af landi, sjó og lofti. Borgin er nú
símasambandslaus við umheiminn
og fær ekki iengur rafmagn eða
vatn. „Allar hersveitir staðsettar í
Dubrovnik verða annað hvort að
hörfa eða gefast upp,“ sagði hers-
höfðinginn Andrija Raseta, yfir-
maður þess hluta herafla sam-
bandshersins sem staðsettur er í
Króatíu við blaðamenn. Hann sagði
að enn hefði ekki verið farið form-
lega fram á það við króatísk stjórn-
völd að sveitir þeirra í Dubrovnik
gæfust upp en leiðtogum lýðveldis-
ins ætti að vera ljóst hvaða afleið-
ingar það mundi hafa fyrir borgina
sem stundum er kölluð „Perla
Adríahafsins“, ef harðir bardagar
héldu áfram.
. Flotinn skýrði í gær frá því að
hann hefði sett hafnbann á borgirn-
ar Pula, Sibenik, Split, Ploce, Zad-
ar, Rijeka og Dubrovnik. Var
ástæðan sögð sú að Króatar hefðu
ekki virt vopnahléssamkomulag
sem gert var 22. september sl. og
héldu enn búðum sambandshersins
í Króatíu í herkví. Yrði. öll umferð
til og frá þessum höfnum stöðvuð
með vopnavaldi.
Franjo Tudjman, forseti Króatíu,
sem nú er staddur í Róm sagði í
viðtali við ítalska útvarpið í gær
að Króatar myndu halda áfram að
beijast til hins síðasta. Tudjman
átti í gær fund með Jóhannesi Páli
páfa þar sem hann bað um aðstoð
við að koma á friði í landinu.